Morgunblaðið - 27.02.1982, Side 1
48SÍÐUR OGLESBÓK
44. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Laker leigir
verkstæði sitt
Iiondon, 26. febrúar. AP.
BRKZKA flugfélagið ('alcdonina
tilkynnti í dag að það hcfði fcngið
viðgcrðaraðslöðu þá sem Laker
flugfclagid hefur haft á Gatwick-
flugvelli skammt frá London.
Samkvæmt samningi við Lak-
er tekur Caledonian viðgerðar-
verkstæði félagsins á leigu og
annað brezkt flugfélag, Dan Air,
fær einnig að nota það.
Atlantshafsflugleiðin:
Allt að 20%
hækkun flug-
fargjaldanna
Iiondon, 26.febrúar. AP.
BRESK flugmálayfirvöld hafa fyrir
sitt leyti samþykkt allt að 20 prósent
hækkanir á fargjöldum yfir Atlants-
hafið frá og með næstkomandi mánu-
degi, og átta prósent hækkun til við-
hótar I. maí. Búist er við samþykki
bandarískra flugmálayfirvalda fyrir
helgi.
Eftir hækkunina kostar venjulegt
fargjald milli London og New York
143 sterlingspund (263 dollara) með
Pan Amerjcan, TWA, British
Airways og British Caledonian.
Þetta fargjald hækkar í 155 pund
(285 dollara) 1. maí, en í dag kostar
þessi ferð 124 sterlingspund, eða
228 dollara. Samsvarandi hækkun-
arbeiðni Air Florida hefur enn ekki
verið samþykkt.
Jafnframt þessu hækkar sérstakt
sumarfargjald milli London og New
York úr 169 pundum í 218 pund eft-
ir 1. maí. Venjulegt apex-fargjald,
sem gildir fram og til baka, hækkar
á mánudag úr 223 pundum í 257
pund, og í 278 pund 1. maí. Apex-
fargjald á mesta annatíma hækkar
úr 314 pundum í 362 pund á mánu-
dag, og í 385 pund frá og með 1. maí.
Fargjaldahækkanirnar ná til að-
ildarfélaga IATA, en búist er við að
flugfélög utan sambandsins hækki
einnig fargjöld sín. Sótt er um far-
gjaldahækkanirnar vegna vaxandi
tilkostnaðar flugfélaganna.
Rannsókn er einnig hafin gegn
Hans Friedrichs fv. efnahagsmála-
ráðherra, sem er nú formaður
Dresdner Bank. Von Brauchitsch er
varaformaður stórfyrirtækisins
Friedrich Flick í Dússeldorf. Flick
hefur einnig verið nefndur.
Ríkisstjórnin kveðst sannfærð
um að grunsemdirnar reynist ekki á
rökum reistar. Lambsdorff kvaðst
ekki vita til að hann væri viðriðinn
mútur. Matthöfer gaf út áður birta
yfirlýsingu þar sem hann neitaði að
hafa þegið mútur frá Flick.
Ef ráðherrarnir verða ákærðir
gæti hneykslið stofnað lífi fallvaltr-
ar stjórnar Schmidts í hættu og
jafnvel orðið henni að falli sam-
kvæmt pólitískum heimildum. „Ég
veit ekki hvernig stjórnin klórar sig
grunaðír um mútur
Bonn, 26. febrúar. AP.
RANNSÓKN er hafin gegn tveimur af valdamestu
ráðherrum Helmut Schmidts kanzlara, Otto Lambs-
dorff efnahagsmálaráðherra og llans Matthöfer fjár
málaráðherra, og öðrum háttsettum stjórnmála-
mönnum og iðnrekendum, vegna gruns um mútur í
sambandi við ólöglega fjáröflun í kosningasjóði.
Meðal annarra sem nefndir eru í rannsókninni eru
helzti ráðunautur Schmidts, Manfred Lahnstein, áður
ráðuneytisstjóri Matthöfers, og Eberhard von Brauch-
itsch, kunnur iðnrekandi, sem í gær sagði af sér sem
varaformaður þýzka iðnrekendasambandsins og sagð-
ist ekki mundu taka við formennsku sambandsins að
ári eins og til stóð.
fram úr þessu," sagði Ernst-Dieter
Lúg, kunnur stjórnmálafréttaritari.
Blaðið Bild sagði fyrst frá rann-
sókninni.
Rannsóknin gegn Matthöfer og
Lambsdorff er liður í viðamikilli út-
tekt á 700 meintum skattsvikum
einstaklinga, fyrirtækja og stjórn-
málaflokka, sem eru grunaðir um
ólögleg framlög í kosningasjóði eða
að taka við ólöglegum framlögum.
Komið var á fót góðgerðarstofnun-
um undir fölsku flaggi til að laða að
fjárgjafir. Síðan voru skattaíviln-
anir góðgerðarstofnana notaðar til
að veita fénu aftur til flokkanna.
Allir stjórnmálaflokkarnir þrír eru
nefndir.
Flokkarnir munu stundum hafa
falið iðnfyrirtækjum verkefni undir
fölsku flaggi. Síðan veittu fyrirtæk-
in fénu í kosningasjóði og fengu þar
|með frádrátt frá skatti.
Rannsóknin gegn Matthöfer og
Lambsdorff varðar sölu Flick á
verðbréfum í Daimler Benz-bílafyr-
irtækinu 1974. Hluti fjárins var
fjárfestur í ýmsum fyrirtækjum án
þess að skattur væri greiddur á
þeirri forsendu að yfirvöld teldu
fénu varið í almenningsþágu.
Ef ráðherrarnir verða ákærðir
verður að svipta þá þinghelgi, en
talið er ólíklegt að þeir verði reknir.
Horst-Ludwig Riemer, fv. efna-
hagsmálaráðherra Nordrhein-
Westfalen, og Rudolf Eberle, efna-
hagsmálaráðherra Baden-Wurtt-
emberg, eru einnig nefndir.
Ráðherrar í Bonn
Þotu rænt,
tveir myrtir
Nairohi, 26. Tebrúar. AP.
FLUGRÆNINGJAR rændu tanz-
anískri farþegaþotu af gerðinni
Boeing 737 með 96 farþegum í inn-
anlandsflugi í dag og neyddu flug-
stjórann til að fljúga til Nairobi þar
sem tveir voru myrtir.
Leiðtogi þeirra hótaði að
sprengja þotuna í loft upp ef hún
fengi ekki eldsneyti svo að hún
gæti flogið til Saudi-Arabíu eða
Adens. Eftir sex tíma var orðið
við kröfu hans.
Leiðtogi flugræningjanna
krafðist þess að Julius Nyerere
Tanzaníuforseti segði af sér.
Einn flugræningjanna er talinn
foringi í Tanzaníuher.
Morjfunblaðiö/Rax.
Dozier í
Vicenza
Vicenza, 26. febrúar. Al*.
JAMES Dozier hershöfðingi
kom aftur til bandarísku
herstöðvarinnar í Vicenza í
dag, fjórum vikum eftir ad
honum var bjargað úr klóm
Rauðu herdeildanna.
„Hann ætlar að hafa það náðugt
um helgina," sagði talsmaður
herstöðvarinnar. „Hann fer aftur
til Verona einhvern tíma í næstu
viku.“
Dozier og Ju-
dith kona hans
hafa verið i leyfi í
Bandaríkjunum.
Þau neituðu að
tala við blaða-
menn þegar þau
komu til her-
stöðvarinnar.
Talsmaðurinn
sagði að öryggi Doziers yrði aukið
þegar hann tæki aftur við störfum
sinum í NATO-stöðinni í næstu
viku. Dozier verður líklega á Ítalíu
fram í júní þegar tveggja ára
starfstima hans lýkur.
Flokkurinn lýsir yfír
stuðningi við herlögin
Varsjá, 26. febrúar. AP.
MIDSTJÓRN pólska kommúnista-
flokksins kaus í dag yfirmann lögregl-
unnar, ('zeslaw Kiszczak hershöfð-
ingja, aukafulltrúa í stjórnmálaráðinu
og samþykkti cinróma ályktun þar sem
lýst er yfir eindregnum stuðningi við
setningu heriaga.
Jaruzelski hershöfðingi virðist
traustur í sessi eftir stöðuhækkun
Kiszcaks og fund miðstjórnarinnar,
sem fordæmdi einnig Samstöðu. í
harðorðri ályktun og rak tvo félaga
hreyfingarinnar. Sérfræðingar segja
að ályktunin bendi til afturhvarfs
flokksins til strangs rétttrúnaðar
eftir margra mánaða umrót af völd-
um umbótabaráttu Samstöðu.
1 stað þess að gagnrýna leiðtogana
fyrir að slitna úr tengslum við
verkamenn lýsti flokkurinn yfir
heilshugar stuðningi við setningar-
ræðu Jaruzelskis, sem kenndi
Bandaríkjunum og andspyrnu inn-
anlands um þá töf sem hefur orðið á
slökun herlaga.
Um herlögin sagði: „Þessar
ákvarðanir voru teknar í nafni brýn-
ustu hagsmuna verkalýðsstéttarinn-
ar og þjóðarinnar, sem stóð frammi
fyrir ógnun við grundvöll sjálfstæð-
rar tilveru sósíalistaríkisins."
Viðurkennt er í ályktuninni að
herlög hafi verið sett þegar „öll önn-
ur ráð til að afstýra þjóðarógæfu
höfðu verið þrautreynd". Einnig er
bent á Jákvæðar breytingar" í Pól-
landi eftir setningu herlaganna, en
sagt að „efnahagsástand Póllands sé
enn erfitt".
Pólskir þingmenn bergmáluðu
ályktunina í ræðum við setningu
tveggja daga fundar þingsins.
Þingmenn samþykktu átta frum-
vörp sem eiga að bjarga bágbornum
efnahag Póllands frá algeru hruni og
losa þá úr gífurlegum erlendum
skuldum sem munu nema 28 millj-
örðum dala.
Þingið samþykkti afsögn tveggja
þingmanna: leikarans Gustaw Hol-
oubek, sem vildi mótmæla handtök-
um félaga sinna skv. áreiðanlegum
heimildum, og Emil Wojtaszek, fv.
utanríkisráðherra og nú sendiherra
á Ítalíu, fyrirrennara Jozef Czyreks.
Þriggja daga stormasömum fundi
æðstu manna kaþólsku kirkjunnar
um nýja stefnuáætlun lauk í dag.
Fimm 17 ára unglingar úr samtök-
unum „Félagið til baráttu fyrir lýð-
ræði“ hafa verið handteknir fyrir að
dreifa flugmiðum í Chelm á landa-
mærum Sovétríkjanna.