Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARÐAGUR 27. FEBRÚAR 1982 35 Minning: Hannesína Bjarna- dóttir ísafirði Fædd 1. desember 1907 Dáin 21. febrúar 1982 I dag verður til moldar borin frá Isafjarðarkirkju amma mín, Hannesína Bjarnadóttir, en hún lést á gjörgæsludeild Landspítal- ans að kvöldi hins 21. febrúar sl. eftir langvinn og erfið veikindi. Hannesína fæddist 1. desember 1907 á Stokkseyri og var því 74 ára Fæddur 21. júní 1912 Dáinn 18. febrúar 1982 Varnarleysi lífsins gagnvart dauðanum er almælt. Jú, horfa uppá sína nánustu kveðja þennan heim án þess að geta gripið inní atburðarásina, gert eitthvað. Orrustan tapast og þá er máttur mannsins, þessarar voldugu skepnu, smár. Mér verður stirt um stef þegar ég nú stoppa við til þess að skrifa um vin minn og tengdaföður lát- inn. Það var veturinn 1962 að kynni okkar Páls Jónssonar hófust um- fram það sem gerist og gengur í byggðarlagi eins og Siglufirði, þar sem allir þekkja alla. En þá tók ég að venja komur mínar á heimili hans að sækja heim einkabarnið, skærasta ljósið i lífi þessa manns, sem nú er allur. Páll Sigurvin Jónsson hét hann fullu nafni og var fæddur að Jaðri í Dalvík. Foreldrar hans voru Jó- hanna Halldórsdóttir, ættuð úr Hörgárdal og Jón Ágústsson, Svarfdælingur. Páll var elstur 7 systkina, en þau eru: Óli sjómaður á Dalvík nú látinn, Ragnar póst- maður á Dalvík, Árni matreiðslu- maður í Reykjavík, Almar verzl- unarmaður á Dalvík, Kristján matreiðslumaður í Hafnarfirði og yngst systirin Sigríður húsmóðir að Hofsárkoti í Svarfaðardal. Hlutverk Páls var, eins og margra í þann tið, að byrja ungur að vinna fyrir sér og sínum, hjálpa til við að sjá farborða þungu barn- mörgu heimili, þar sem heimilis- faðirinn var ekki heilsuhraustur. 14 ára gamall fór hann á sjóinn og var lengstum viðloðandi hann framanaf, ýmist sem sjó- eða landmaður. Hann var verklaginn svo að í minnum er haft og eftir- sóttur til vinnu. Gamlir vinnufé- lagar hans hafa haft á orði við mig að útsjónarsamari og skemmtilegri verkmaður væri vandfundinn. Sama hvort unnið var við beitingu, flatningu, flökun eða að passa og þrífa vélar og tæki, en við það var hann sérlega laginn og hafði gaman af. Aðeins 12 ára gamall eignaðist Palli sína fyrztu byssu og varð fljótt afburða góð skytta. Kom það sér oft vel þegar lítið var á borðum hjá fjöl- skyldunni stóru. Ungur að árum hóf hann trésmíðanám á Akur- eyri, en hætti fljótt, því aurarnir entust skammt og svo var þörfin brýn fyrir hendurnar heima. Oft talaði Palli um, að meðan hann var yngri, hefði hann hvorki haft tíma né fjárráð til þess að kaupa sér verkfæri eða annað til þess að gera ýmislegt sem hann langaði til. En svo þegar rýmdist um síð- ari árin „þá nennir maður engu“. Þetta var mat hans á heilsubresti sínum. P’jölskyldan bjó á ýmsum stöð- um áður en hún flutti að Holti við Dalvík, en þar bjó hún lengst af og við þann bæ var Palli oftast kenndur: Palli i Holti. Eins og áður sagði var hans að- alstarf að vera við báta, og kom m.a. tilSiglufjarðar og var hér er hún lést. Foreldrar hennar voru hjónin Arnlaug Sveinsdóttir og Bjarni Jónasson formaður þar. Hún ólst upp í foreldrahúsum og var yngst fimm systkina. Eru fjögur þeirra látin, Sigurður skip- stjóri, Jónas skipstjóri, Sighvatur skipstjóri og útgerðarmaður, allir í Vestmannaeyjum, og nú síðast Hannesína, en á lífi er Sveinbjörg, fyrrum húsfreyja í Oddhól á nokkrar vertíðir. Kynntist hann þá eftirlifandi konu sinni, Sigur- laugu Sveinsdóttur frá Steinaflöt- um í Siglufirði. Hófu þau búskap á Dalvík, en fluttu til Siglufjarðar 1941. Árið 1942 fæddist barn þeirra hjóna og var það skírt Rannveig eftir systur Sigurlaugar Sveinsdóttur frá Steinaflötum í Siglufirði. Hófu þau búskap á Dalvík, en fluttu til Siglufjarðar 1941.Um það leyti festu þau kaup á húsinu nr. 13 við Hverfisgötu og bjuggu þau alla sína tíð þar, í nágrenni við Steinaflatafjölskyld- una. Var þar ætíð mikili samgang- ur og staðið saman i blíðu og stríðu, því að töluverð veikindi áttu eftir að herja á heimilin bæði. Fljótlega eftir að þau hjónin fluttu til Siglufjarðar fór Páll að vinna hjá Síldarverksmiðjum ríkisins, fyrst í verksmiðjunum, en síðan í frystihúsinu. Um árabil átti Páll við bakveiki að stríða og lá rúmfastur um nokkurt skeið. Það var honum erfitt tímabil. Síð- ustu 2—3 árin barðist Palli við hinn falda eld, sem að lokum lagði hann af velli, eins og margan góð an og vaskan drenginn. Palli var fróður og stálminnugur og las allt sem hann komst yfir. Hann var mikill náttúruunnandi og voru ófáar stundir barnabarnanna við að hlusta á afa segja frá blómum, dýrum og öllu mögulegu. Stundum lagði ég við eyrun og það var með ólíkindum hvað hann kunni og vissi um marga hluti, hafandi ekki annað en rúmlega barnaskólapróf uppá vasann. Ekki höfðum við Palli sömu lífsskoðun, né heldur voru allar mínar gjörðir né orð honum að skapi. En aldrei hraut styggðar- yrði frá hans grandvara munni til mín fyrir það eða nokkuð annað. Stórt var umburðarlyndi þessa manns. Hans er nú sárt saknað af fjölskyldu og vinum. Mikill er söknuður afabarnanna: Hrannar, Páls yngra, Guðrúnar og Perlu. Ekki má gieyma langafabarninu, litlu Rönnu, sem lífsins skilning öðlast senn. Ég bið hinn hæðsta hofuðsmið sem öllu ræður að varðveita minn- ingu tryggðatröllsins og prúð- mennisins Páls Jónssonar. Sigurður Fanndal Rangárvöllum, næst--elst þeirra systkina. Hannesína fluttist með foreldr- um sínum til Vestmannaeyja árið 1925 og bjó þar til ársins 1931, að hún fluttist til ísafjarðar, þar sem hún átti heimili æ síðan. Hinn 1. nóvember 1930 gekk Hannesína að eiga Magnús Jóns- son frá Isafirði, síðar skipstjóra. Bjuggu þau, fyrst í stað í Ási í Vestmannaeyjum, og þar fæddist elsta dóttir þeirra. Vorið 1931 fluttu þau búferlum vestur á ísa- fjörð og settust að í Mjallargötu 8, þar sem þau bjuggu síðan. Fyrst bjuggu þau í sambýli við foreldra Magnúsar, Jón Magnússon fisk- matsmann og konu hans, Sigríði Jóhannesdóttur. Eftir andlát Jóns, 1933, bjó Sigríður með þeim að Mjallargötu 8, allt þar til hún lést 1960. Hannesína og Magnús eignuð- ust fimm börn og eru fjögur þeirra á lífi. Börn þeirra eru: Sjöfn, f. 03.12. 1929, gift Jóhannesi Þor- steinssyni, búsett á ísafirði. Jón, f. 05.09. 1931, skipstjóri, drukknaði með m/b Trausta frá Súðavík út af Vestfjörðum í febr. 1968. Mar- grét f. 17.09. 1933, gift Jóni F. Þórðarsyni, búsett í Laugarási í Skjaldfannadal, N-ísafjarðar- sýslu. Bragi f. 06.08.1936, kvæntur Láru Steinþórsdóttur, búsett á ísafirði og Sigurlaug f. 11.06 1938, búsett í Reykjavík. Magnús stundaði sjómannsstörf allt frá upphafi búskapar þeirra á ísafirði, og var jafnan skipstjóri á fiskiskipum allt fram til ársins 1961, er hann réðst sem fiskmats- maður til Ferskfiskseftirlitsins og síðar Framleiðslueftirlits sjávar- afurða. Hann varð bráðkvaddur hinn 29. ágúst 1979. Þegar hugurinn er látinn reika til þess tíma, er þau amma og afi setjast að á ísafirði, má ætla, að það hafi ekki verið ömmu með öllu átakalaust að flytjast vestur og stofna þar heimili í nýju umhverfi svo fjarri æskuslóðum sínum og nánustu ættingjum. Líf hennar, fyrstu árin á ísafirði og á meðan börnin voru að komast á legg, hef- ur að líkindum, um margt, verið svipað lífi annarra eiginkvenna sjómanna á þeim tíma. Þá voru fjarvistir sjómanna frá heimilum sínum enn meiri en nú er. Skip voru að jafnaði minni og verr búin en nú er og sjóslys mun algengari. Auk þess var afi í stöðugum sigl- ingum með fisk milli Islands og Bretlands öll heimsstyrjaldarárin síðari við þær erfiðu aðstæður, sem styrjöldin skapaði. Er mér ekki grunlaust um, að amma hafi oft orðið að fela áhyggjur sínar fyrir börnunum, sem þá voru flest á unga aldri. Með sínum einskæra karfti og óeigingirni, sem ein- kenndi hana alla tíð, tókst hún á við verkefnin hverju sinni, leysti þau farsællega og dró hvergi af sér. Amma var mjög heilsteypt manneskja, raunsæ og dugleg og gekk að hverju verki, sem hún tók sér fyrir hendur með það fyrir augum að leysa það sem best af hendi. Þegar heimilisstörfin urðu léttari, starfaði hún töluvert utan heimilis aðallega við störf, er tengdust fiskvinnu. Mér er óhætt að fullyrða, að þessi störf hafi hún unnið af dugnaði og samviskusemi í hvívetna. Hún var í eðli sínu jafnaðarmanneskja, sem mátti ekki vamm sitt vita, en gat verið föst fyrir, ef henni fannst á rétt sinn gengið. Amma var trúuð kona, þó ekki bæri hún trú sína á borð. Trúin veitti henni þann styrk, sem hún þurfti svo oft á að halda á lífsleið- inni meðal annars við fráfall ást- kærs eiginmanns og sonar og í erf- iðum veikindum hennar sjálfrar, hin síðustu ár. Árið 1977 kenndi hún sér meins og háði upp frá því harða og erfiða baráttu, þar til yfir lauk. Hún tók veikindum sínum með æðruleysi og raunsæi, eins og hennar var von og vísa. Nú, þegar amma er öll, rifjast upp minningar frá liðnum árum, minningar sem tengjast uppvexti mínum, systkina og frændsystk- ina á ísafirði. Hjá ömmu í Mjall- argötu, eins og við vorum vön að kalla hana, var okkur ekki í kot vísað, ef þurfti að fá fyrir okkur gæslu í lengri eða skemmri tíma. Síðar meir, þegar við fórum að fara okkar eigin ferða, varð heim- ili þeirra ömmu og afa vinsæll við- komustaður, hvort sem var til að þiggja góðgerðir í frímínútum eða til að spjalla saman að loknum vinnudegi. Einnig rifjast upp sam- fundir fjölskyldunnar á heimili þeirra á stórhátíðum eða öðrum tyllidögum, þar sem dugnaður og myndarskapur ömmu við húsmóð- urstörfin komu sérstaklega vel í ljós. Nú, þegar ég kveð ömmu mína, Hannesínu Bjarnadóttur, er mér efst í huga þakklæti fyrir þá gæsku og góðvild, sem hún ávallt sýndi mér og fjölskyldunni. Megi friður Guðs og blessun fylgja minningu hennar alla tíð. Magnús Jóhannesson NYJA HCISQVARNA 6690 TÖLVaVÉLIN „Hún er svo ótrúlega einföld - bara að ýta á hnapp” Munurinn á „venjulegri” saumavél og Husqvama 6690 er, að í Husqvama 6690 er Irtil ör-tölva. Þessi ör-tölva getur í raun og veru hjálpað þér að búa til eigin mynstur, skrifað orð og setningar og saumað af mikilli nákvæmni. Allt sem þarf að gera, er að ýta á hnapp! Þetta er saumavél sem hefur hlotið margar viðurkenningar um heim allan. Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlanásbfaut 16 Simi 9135200 Akurvik, Akureyri Páll Jónsson Siglu- firði - Minningarorð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.