Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982 29 Nýjar reglur um olfustyrki: Greiða þarf niður gjaldskrár hitaveita - eigi þær að vera samkeppnishæfar við olfuhitun „TALIfí er að um 30 milljónir króna þurfi í olíustyrki á þessu ári. En við hina nýju reglu bregður svo við, að olíuhitun verður nú hagkvæmari en orkuverð nokkurra hitaveitna, sem nýlega eru komnar í gagnið eða átt hafa við sérstök vandamál að stríða. Er nú nokkur þörf talin á nokkrum milljónum króna til þess að aðstoða hitaveiturnar fjárhagslega, þannig að orka þeirra verði samkeppnisfær við olíuhitun," sagði Björn Frið- finnsson, framkvæmdastjóri fjár máladeildar Keykjavíkurborgar, í erindi, sem hann flutti á ráðstefnu um orkusparnað, sem haldin var að Hótel Loftleiðum á fimmtudag. Ennfremur kom fram í ræðu Björns að áætluð orkueyðsla landsmanna í fyrra var á milli 550 og 600 milljónir króna. Taldi hann að auðveldlega mætti spara a.m.k. 100 milljónir af þeirri upphæð, jafnvel allt að þriðjungi, með rétt- um ráðstöfunum. Er Mbl. hitti Björn að máli og innti hann eftir því hvernig á því stæði að orkutap væri jafnmikið hérlendis og raun ber vitni svaraði Gamla Bíó hefur sýn- ingar á ný með „Tarzan“ GAMLA Bíó byrjar kvik- myndasýningar á ný á sunnu- dag med frumsýningu á „Tarzan“, nýrri kvikmynd frá MBM-félaginu banda- ríska. Myndin er gerð eftir „Tarzan apabróður", fyrstu Tarzansögu Edgar Rice Burrogh. Þokka- dýsin Bo Derek leikur aðalhlut- verkið, Jane, sem finnur Tarz- an í myrkviðum Afríku. Hún er jafnframt framleiðandi mynd- arinnar, en John Derek, eigin- maður hennar, leikstýrir. Aðr- ir leikarar eru m.a. Richard Harris og Miles O’Keeffe, sem leikur Tarzan. hann því til að minni kröfur væru nú gerðar til íbúðarhúsa en þyrfti. Reyndar væri það svo, að á hinum Norðurlöndunum væru kröfurnar mun meiri. Fr,am til ársins 1973 hefðu Islendingar verið í fremstu röð í heiminum hvað þetta snerti, en frá þeim tíma hefðu kröfurnar einfaldlega ekki verið hertar nógu mikið til samræmis við það, sem tíðkast erlendis. Þó eru íslensk hús ennþá talin rammger í meira lagi. 1 erindi, sem Jón Sigurjónsson, verkfræðingur hjá Rannsóknar- stofnun byggingariðnaðarins, flutti benti hann á ýmsar leiðir til að minnka orkutap og þá einkum með bættri einangrun. Tók hann sérstaklega fyrir algengustu þætti einangrunar, þ.e. þak og útveggja- einangrun svo og glugga. Vakti það nokkra athygli að í erindi sínu taldi Jón ekki borga sig fjárhags- lega að vera með þrefalt gler, þó vissulega kæmi til greina að nota það til að skapa betri og hæfari vistarverur þar sem stórir gluggar eru fyrir hendi. Á milli áranna 1979 og 1980 minnkaði vatnsnotkun 18 skóla- húsa á höfuðborgarsvæðinu um 40.000 tonn. Á sama tímabili minnkaði raforkueyðsla um J85.000 kw-stundir með einföldum en árangursríkum aðhaldsaðgerð- um. Kom þetta fram í erindi, sem Jóhann Hannesson, fv. eftirlits- maður, flutti. Var látið að því liggja að með skipulögðum sparn- aðarráðstöfunum mætti hæglega minnka vatnseyðsluna um 100.000 tonn árlega og rafmagnsnotkun um 400.000 kw-stundir á ári. Laugarásbíó sýnir „Gleðikonur í Hollywood“ LAUGARÁSBÍÓ hefur frumsýnt kvikmyndina Gleðikonur í Hollywood, sem á frummálinu nefnist „The Happy llooker (íoes Hollywood". í kynningu um kvikmyndina segir svo m.a.: „Kvikmyndafélagið Warkoff Brothers í Hollywood hefur fengið augastað á metsölubók — The Happy Hooker eða Hóran hamingju- sama — og Lionel Lamely og Joseph Rottman er falið að hafa samband við höfund eða fulltrúa hans um kaup kvikmyndaréttarins. Þegar höfundur, Xaviera Hollander, sem er frægasta pútnahússtýra í New York, fréttir um þetta, ákveður hún að bregða sér vestur til Hollywood og athuga málið á staðnum.“ Æsist nú leikurinn og hlutirnir fara að gerast hratt en sú atburða- rás verður ekki rakin frekar hér. Dudley Moore í Stjörnubíói STJÖRNIIBÍÓ hefur byrjað sýningar á kvikmyndinni „Wholly Moses" með Dudley Moore í aðalhlutverki. I frétt frá bíóinu segir svo um söguþráð: „Gamall og hrörlegur langferða- bíll ekur eftir rykugum vegi í Land- inu helga. Meðal farþega er Harvey, ungur Bandaríkjamaður, og Zoey, frá New York. Bíllinn nemur staðar. Harvey og Zoey klöngrast upp klettavegg til að njóta útsýnis. Hatt- ur ungfrúarinnar tekst á loft í vind- hviðu, og nemur staðar í helli einum. Þar finna þau skötuhjú aldagamalt handrit, og þau hefja lesturinn." Er skemmst frá því að segja að á handritinu er saga Moses og segir frá henni í kvikmyndinni en á nokk- uð frjálslegan hátt væntanlega. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar húsnæöi ; / boöi í /1_A_ íbúdir Njarðvík Ibúöarskúr um 40 fm vlö Reykja- nesveg. 4ra herb. ibúö viö Hjallaveg. Skipti á ibúö i Reykjavik mögu- leg. Glæsileg 3ja herb. íbúö viö Hjallaveg. Garöur Glæsilegt einbýlishús 136 fm. Skipti á góöri ibúö i Reykjavík möguleg. Keflavík Eldra einbýlishús sem er kjallari, hæö og ris. Tvær ibúöir í húsinu. Stór íbúöarskur á lóöinni. Miklir möguleikar. Glæsileg 3ja herb. ibúö viö Mávabraut. Viölagasjóöshús stærri gerö. Góö 3ja herb. ibúö viö Máva- braut. Viölagasjóöshús stærri gerö. Góö 4ra herb. efri hæö 148 fm. Gott verö. Eignamiölun Suöurnesja, Hafnargötu 57, Keflavik sími 3868 og Vikurbraut 40, Grindavik simi 8245. Sólargeislínn Sjóöur til hjálpar blindum börn- um. Gjöfum og áheitum veitt móttöku í Ingólfsstræti 16. Blindravinafélag istands Innflytjendur Get tekiö aö mér aö leysa út vörur. Umsóknir sendist auglys- ingad. Mbl. merkt: „T — 8252“. } húsnæöi ] í óskast i íbúð óskast til leigu Læknanemi meö fjölskyldu óskar eftir aö taka íbúö á leigu. Vinsamlegast hringiö í sima 37693. □ Gimli 5982137 = 2 Heimatrúboöiö Óöinsgötu 6a Vakningarsamkoma á morgun, sunnudag og næstu daga kl. 20.30. Efni: Oröiö og vitnisburö- urinn. Veriö velkomin. KFUM og K, Hafnarfirði Almenn samkoma sunnu- dagskvöld í húsi félaganna aö Hverfisgötu 15. kl. 20.30. Ræöu- maöur séra Siguröur H. Guö- mundsson. Allir velkomnir. Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja heldur aöalfund á morgun sunnudag 28. febrúar kl. 14.00 í húsi félagsins aö Túngötu 22, Keflavik. Dagskrá: Venjuleg aö- alfundarstörf. Félagar mætiö vel og stundvíslega. Stjórn sálarrannsóknafélags Suöurnesja Elím, Grettisgötu 62, Reykjavík A morgun, sunnudag, veröur sunnudagaskóli kl. 11.00 og al- menn samkoma kl. 17.00. Veriö velkomin. i! ÚTIVISTARFERÐIR Sunnudagur 28. febr. 1. Kl. 11.00: Skiöaganga í Blá- fjöllum eöa Þríhnúkar. Þessi ganga er jafnt fyrir byrjendur og þá sem vanir eru skíöagöngu. Fararstjóri Þorleifur Guö- mundsson. Verö 60,00 kr. 2. Kl. 13.00: Sandfell — Lækj- arbotnar. Létt ganga fyrir alla fjölskylduna. Verö kr. 50.00. Fariö frá BSÍ aö vestanveröu. Fritt fyrir börn meö fullorönum. Þórsmörk i vetrarskrúöa 5.-7. mars. Sjáumst. Utivist Krossinn Hunl-hjónin trá USA veröa með á samkomunni i kvöld kl. 20.30 aö Auöbrekku 34, Kópavogi. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Gönguferöir sunnu- daginn 28. febrúar: 1. Kt. 11. Skálafell v/Esju (754 m). Verö kr. 50. Fararstjóri: Tryggvi Halldórsson. 2. kl. 13 — Gönguferö á Mos- fellsheiöi frá Bringum aö Helgu- fossi, meöfram Geldingatjörn og Leirvogsvatni. Létt ganga. Far- arstjóri: Siguröur Kristinsson. Verö kr. 50. Fariö frá Umferöarmiöstööinni, austanmegin. Farmiöar viö bíl. Fritt fyrir börn í fylgd fulloröinna. Feröafélag íslands. raöauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar ^ * • Málfundafélagið Félagstundur verður haldinn sunnudaginn 28. februar 1982 kl. 13.30 í Valhöll, Háa- ieitisbraut 1. Albert Guömundsson alþing- ismaöur og borgarfulltrúi mætir á tundi og svarar fyrirspurnum frá félagsmönnum. Félagar fjölmenniö! Stiórnln. Óðinn f liífc / Viötalstími borgarfulltrúa Kialarnes Kiós Siálfstæðisflokksins í » Sjálfstæöisfélagiö Þorsteinn Ingólfsson held- PpwL Í»Hfí|r ur aðalfund sinn aö Fólksvangi Kjalarnesi ' ncyiVjaVIK mánudaginn 1. mars og hefst fundurinn kl. 21 00 Ðorgarfulltruar Sjálfstæöisflokksins Daaskrá ^ H veröa til viötals i Valhöll, Háaleitisbraut HT £ 1. Venjuleg aöalfundarstörf. ^ f . a augardogum fra ki. 14 til 16 f 2 Egill Jonsson. alþingismaöur mæfir á \ 9*- J Er þar tekiö a moti hvers kyns fyrirspurn- fundinn ásamt þingmönnum Sjálfstæöis- 1 um og abendingum og er ollum borgar- » / flokksins, kjördæminu buum boöiö aö notfæra ser vrötalstima Félagar hvattir til aó fjölmenna. mPÉÍ# Jj Laugardaginn 27. febrúar veröur til viö- jfe. Stiórnin. tals Sigurjón Fjelsted.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.