Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982
9
Umsjónarmaður Gísli Jónsson______________136. þáttur
N.N. (kona í Reykjavík)
skrifar svo: „Lengi vel var það
danskan sem spillti íslensk-
unni. Svo kom enskan, sem
hefir verið að „grasséra“ hér í
næstum hálfa öld, en um hana
ætla ég ekki að tala. Nú virðist
vera kominn fram á sjónar-
sviðið eða ritvöllinn nýr vá-
gestur, en þó forn.
Dr. Stefán Einarsson talaði
eitt sinn um orðið og hugtakið
móðurmál, en gat þess jafn-
framt að til hefði verið til
forna „mál sem almennt var
kallað föðurmál, lingua patria.
Það er latínan, sem á miðöld-
um var alheimsmál og ekki
mjög hlynnt vexti þjóðtungn-
anna, sem þá voru í bernsku. Á
þessum árum voru þessar ungu
og fyrirlitnu þjóðtungur kall-
aðar móðurmál, linguae mat-
ernae."
Á íslandi voru til lærðir
menn sem tóku föðurmálið
fram yfir móðurmálið. En
Laurentius biskup á Hólum á
fyrri hluta 14. aldar var á öðru
máli. Hann veitti Jóni Hall-
dórssyni, Skálholtsbiskupi
ádrepu, þegar herra Jón út-
skýrði fyrir mönnum á latínu
Möðruvallamál. En „herra
Laurentius talaði á norrænu.
Vita menn það, herra Jón, að
yður er svo mjúkt latínu að
tala sem móðurtungu yðra, en
þó skilur það ekki alþýða, og
því tölum svo ljóst, að allir
megi skilja ...“
Eg held að ég skilji yfirleitt
það mál sem íslensk alþýða
skilur (stofnanamálið nýja skil
ég iðulega ekki).
Nýlega rakst ég á tímarits-
grein sem ég skil alls ekki.
Höfundarnir, tvær nýlærðar
ljósmæður, virðast kunna föð-
urmálið, latínuna, betur en
móðurmál sitt. Greinin er um
hlutverk fylgju. I henni segir
m.a.:
„Normalt á implantation sér
stað í efri hluta cavum uteri.
Við implantation eiga sér stað
breytingar í endometrium.
Frumur í endometrium safna í
sig fitu og glykogeni, tútna út
og verða bjúgkenndar. Endo-
metrium verður mun æðarík-
ari, þessi breyting byrjar um-
hverfis staðinn þar sem im-
plantation á sér stað og dreif-
ist síðan út um allt holið og
kallast þá endometrium: Desi-
dua.
Desidua skiptist í:
a) Desidua basalis, það er mat-
ernal hluti fylgju.
b) Desidua capsularis, það er
sá hluti, sem umlykur eggið að
ofan.
c) Desidua vera (pariatalis),
það er sá hluti, sem þekur
legholið að öðru leyti.
Trophoblastið samanstend-
ur af tveimur gerðum frumna:
a) Cytotrophoblast, sem eru
einkjarna stakar frumur, sem
framleiðir síðan syncyto-
trophoblastið með mítótu-
skiptingu.
b) Syncytotrophoblast, sem
samansténdur af margkjarna
risafrumum og liggur innar í
desidua.
í syncytotrophoblastinu
hefst fylgjumyndunin:
Á 9.—10. degi fara að mynd-
ast eyður eða holrúm í syn-
cytotrophoblastinu sem kall-
ast lacunae bil. Lacunae renna
saman og mynda stærri eyður,
með bjálkum (trabeculae) á
milli."
I framhaldi greinarinnar í
næsta tölublaði tímaritsins
segir m.a.:
„Hormónafram-
leiðsla fylgjunnar
Fylgjan framleiðir bæði
proteinhormóna og steroid-
hormóna. Hormón sem fylgjan
myndar er að ýmsu leyti afger-
andi fyrir fysiologiskar breyt-
ingar á meðgöngu.
Proteinhormónar eru:
1. Human choriongoadathrop-
in - HGG.
2. Human chorionsomatom-
ammotropin — HCS, sem heit-
ir líka Human lacentalactogen
- HPL.
3. Relaxin.
4. Oxytocinasin.
Human choriongonado-
trophin myndast mjög
snemma á meðgöngu í tropho-
blastfrumum, aðallega syn-
cytotrophoblasti. HGG byrjar
að myndast 10 dögum eftir
frjóvgun og 3 dögum eftir in-
panation."
Þetta á að vera mjög fræð-
andi grein fyrir lesendur tíma-
ritsins, engu síður en hún átti
að vera latínuræða Jóns
Skálholtsbiskups, sem hann
hélt yfir öllum fremstu
mönnum sem kallaðir voru til
biskupsstofu.
En nú vantar bara einhvern
Laurentius Hólabiskup til að
taka duglega í lurginn á höf-
undum greinarinnar í Ljós-
mæðrablaðinu (1. og 2. tbl.
1981).
Fyrir utan þessa grein er
blaðið skrifað á móðurmálinu.
Reyndar hefir nafnlaus höf-
undur smáfréttagreinar tekið
latínuveikina líka. Þar er m.a.
sagt frá og af hverju konur eru
lagðar inn á meðgöngudeild
kvennadeildar Landspítalans:
„Þegar deildin er ekki full-
nýtt af konum með meðgöngu-
sjúkdóma, eru teknar inn kon-
ur til aðgerða vegna kvensjúk-
dóma og frá áramótum til 15.
maí sl. var innlagningarfjöldi
orðinn 420, en þar af 287 með
meðgönguvandamál, og eru
helstu ástæður fyrir innlögn-
um hypertensio, pre-eclampsí-
ur, partus prematurus immi-
nens, dysmatur. Flestar gem-
elli íconur frá 32. viku til 36.
viku diabetis mellitus hyper-
misis, abortus iminens, foetus
mortus, svo eitthvað sé nefnt."
Rétt er að geta þess að lækn-
ir skrifar í blaðið mjög fræði-
lega grein, en latnesk læknis-
fræðileg heiti hefir hann jafn-
an innan sviga. Dæmi má
sýna:
„Skráning fóstur-
hjartsláttar (FHR)
Fyrstu „monitorar" í fæð-
ingu voru yfirsetukonur,
ljósmæður og læknar. Engin
tæki geta leyst þau af hólmi,
heldur eiga tækin að vera
þessu fólki til hjálpar. Við ráð-
um nú yfir fjórum aðferðum
við að mæla og skrá hjartslátt
fósturs, þremur óbeinum
áverkalausum aðferðum (non-
invasive) og einni beinni
áverkaaðferð (invasive), auk
hlustunarpípunnar gömlu, sem
við minnumst á síðar."
(Arnar Hauksson,
1. tbl. 1981.)
Það er til fyrirmyndar, því
þá skilja jafnt lærðir sem leik-
ir.“
Lýkur svo löngu og þungu
bréfi frá N.N. Vonandi gefst
færi á að ræða efni þess nokk-
uð í næsta þætti og bregða
jafnframt á léttara hjal.
Greinarhöfundum Ljósmæðra-
blaðsins er að sjálfsögðu heim-
ilt að svara hér fyrir sig.
MARLEY
ÞAKRENNUR
Rúnnaðar plast
ÞAKRENNUR
og NIÐURFÖLL
Auöveldar
í uppsetningu
MARINO PÉTURSSON HF.,
Sundaborg 7, sími 81044.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Opið í dag
REYNIMELUR
2JA HERB
Glæsileg 2ja herb. íbúö á 3.
hæð 60 fm, þvottahús á hæð-
inni. Verð 650 þús.
TVÍBÝLI KÓP.
3ja herb. ibúð á jaröhæð í tvi-
bylishúsi viö Hátröð. 90 fm,
ásamt 16 fm bílskúr. Stór lóð.
Verð 780—800 þús.
HRAUNBÆR
3ja herb. íbúð ca. 75 fm á 3.
hæð. Suðvestur svalir. Verð
670 þús.
GRETTISGATA
3ja herb. íbúð á 3. hæð í stein-
húsi. Ibúöin er stórt svefn-
herb., barnaherb., tvöföld stofa,
75 fm. Útb. 450 þús.
RISÍBÚÐ BARÓNS-
STÍGUR
Mjög vönduö 2ja herb. risibúð.
Nýstandsett. 50 fm. Sér inn-
gangur. Verð 600 þús.
BJARGARSTÍGUR
3ja herb. íbúð á jaröhæð í
steinhúsi, ca. 70 fm. Bílskúrs-
réttur. Sér inngangur, sér hiti.
HVERFISGATA
4ra herb. íbúö á 3. hæð í stein-
húsi 90 fm. Verð 600 þús.
VESTURBERG
4ra herb. íbúð á 2. hæð 110 fm.
Suðvestur svalir. Til greina
koma skipti 4ra herb. íbúö í
Kópavogi.
FLYÐRUGRANDI
2)a herb. íbúð 67 fm. Fæst í
skiptum fyrir nýlega 3ja herb.
íbúö viö Flyörugranda eöa ann-
ars staöar í vesturbænum.
GAMLI BÆRINN
4ra herb. risíbúð rúmlega 100
fm. Standsett. Verð 780 þús.
VITASTÍGUR
RISÍBÚÐ
4ra—5 herb. risíbúð við Vita-
stíg ca. 90 fm. íbúöin er tvær
stofur, þrjú svefnherb. Verð ca.
700 þús.
Vesturbær, Rvík
4ra herb. íbúö á 2. hæð í stein-
húsi viö Seljaveg. Glæsileg
ibúð, 95 fm.
BALDURSGATA
4ra herb. 86 fm. Verð ca. 600
þús.
ENGIHALLI KÓP.
3ja herb. íbúö viö Engihjalla á 1.
hæð í tveggja hæöa blokk. 94
fm með suöur svölum. Tvö
svefnherb., stor stofa, búr. Ekki
að fullu frágengin.
KÓPAVOGUR
2JA HERB.
60 fm 2ja herb. ibúð í raðhusi.
Verð 500 þús.
HRAUNBÆR
2ja herb. íbúð á 1. hæð meö
vestur svölum. 65 fm. Verð 550
þús. Til greina koma skipti á 3ja
herb. íbúð við Hraunbæ.
EINBÝLISHÚS
SELFOSSI
Einbýlishus á tveim hæðum
6—7 herb. ásamt stórum bíl-
skúr upphituöum. Verö ca. 950
þús.
PARHÚS HVERAGERÐI
4ra herb. 98 fm. Útb. ca. 350
þús.
HÚSEIGNIN
Pétur Gunnlaugsson lögfr.,
Skólavörðustíg 18, 2. hæð.
Símar 28511 28040 28370
14NGII0LT
Fastetgnasala — Bankastræti
2945531^ínur
Opiö í dag
2JA HERB. ÍBÚÐIR
Þingholtsstræti 33 fm sam-
þykkt íbúð. Verð 300 þús.
Súluhólar 25—30 fm samþ.
Verð 350—400 þús.
Dúfnahólar sérlega góð 60 fm
íbúö á 5. hæö. Útb. 410 þús.
Tjarnargata 3 herb. i kjallara.
Skipholt ósamþykkt 40 fm íbúö
á jarðhæð. Verö 330 þús.
Súluhólar samþykkt 30 fm ein-
staklingsíbúö.
Austurbrún 50 fm á 9. hæð.
Verð 550 þús.
Austurgata Hf. ca 50 fm jarö-
hæð, með sér inngangi.
Vesturberg 65 fm á 2. hæð. Af-
hendist eftir mánuð. Útb. 390
þús.
Spóahólar Ca. 60 fm á 2. hæö.
Útb. 400 þús.
Barónstígur Mjög falleg risíbúö
með sér inng. Öll furuklædd.
Sólheimar Ca 50 fm einstakl-
ingsíbúö í kjallara meö sér inng.
3JA HERB. ÍBÚÐIR
Stýrimannastígur Hæö 75 til 80
fm í steinhúsi. Gæti losnaö fljótl.
Sléttahraun 96 fm á 3. hæð.
Bílskúr. Verð 820 þús.
Kríuhólar 87 fm á 7. hæð. Útb.
490 þús.
/Esufell 87 fm á 6. hæö með
útsýni.
Efstasund falleg 70 fm meö sér
inng. í kjallara. Verð 550 til 600
þús.
Mosgerði 65 fm risíbúö í tvíbýl-
ishúsi. Verö 580 þús. Útb. 430
þús.
Orrahólar 90 fm á 1. hæð. Verö
720 |)ús.
Suöurgata hf. ca 80 fm íbúð á
jarðhæð með sér inng. Útb. 470
þús.
Hófgerðí Góö 75 fm íbúö í kjall-
ara. Ný eldhúsinnrétting.
Kaldakinn 85 fm risibúö í þrí-
býlishúsi. Sér hiti. Verð 610 þús.
Reynimelur Ca. 70 fm í kjallara,
meö sér inng. Laus 1. apríl.
Spóahólar á 1. hæð, 85 fm. Útb.
560 þús.
4RA HERB. ÍBÚÐIR
Miöbraut 4ra til 5 herb. góö 118
fm íbúö á miöhæð meö bílskúr
Furuklætt baöherb., nýtt gler.
Verð 1 millj.
Fífusel rúmgóö íbúö á 1. hæð.
Vandaöar innréttingar. Útb. 650
þús.
Dalaland 110 fm sérlega góö
með sér inng. Sér gaöur. Skipti
eingöngu á 3ja herb.
Krummahólar rúml. 100 fm
ibúö á 2. hæö. Bilskúrsréttur.
Melabraut 105 fm á efstu hseö.
Mikiö endurnýjuö. Útb. 640 þús.
Tjarnargata 120 fm hæö í
steinhúsi. Þarfnast standsetn-
ingar.
Engjasel sérlega góö 108 fm á
fyrstu hæö meö bílskýli. Til af-
hendingar strax.
Vesturberg mjög góö 110 fm á
3. hæö. Ákv. sala.
Víðihvammur Hf. 120 fm á 2.
hæð með bílskúr. Bein sala.
Kópavogsbraut á tveimur hæö-
um, 126 fm meö 40 fm bílskúr.
Verð 950 þús.
EINBÝLISHÚS
Suðurgata Hf timburhús hæö
og ris, alls ca. 50 —60 fm. Viö-
byggingarréttur. Útb. 400 þús.
Rauðilækur 150 fm sér hæö
með bílskúr t.b. undir tréverk.
Afhending í haust.
Miðbraut 120 fm einbýlishús,
þarfnast standsetn. 1030 fm
eignarlóö.
Kambsvegur 200 fm verslun-
arhúsnæöi.
Stekkir glæsilegt einbýlishús
186 fm. Hæð og 60 fm á jarö-
hæð. 5 herb., útsýni. Verö
2.100.000.
Jóhann Davíðsson, sölustjóri.
Sveinn Rúnarsson.
Friðrik Stefánsson, viðskiptafr.
Einbýlishús
eða raðhús
óskast í Garöabæ. Stærö frá 120—150 fm.
Góöur kaupandi.
Fasteignamiðstöðin Austurstræti 7,
símar 14120 og 20424.
Heima 75482 og 30008.