Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐI-Ð, LAUGA'RDAGUR 27. FEBRÚAR 1«82 19 verin til viðbótar þeim umsvifum, sem það nú hefur í atvinnulífinu, sjáum við framundan framtíð ríkisrekstrar en ekki framtíð einkarekstrar. Þá fær einstakling- urinn, framtak hans og hug- kvæmni ekki notið sín. Ægisvald ríkisins. A undanförn- um árum hefur Verzlunarráð itrekað vakið athygli á þeirri stærð sem hið opinbera hefur náð í atvinnulífinu og hversu víðtæk afskipti þess eru af málefnum þess. Frekari vöxtur þess er því afar óæskilegur þegar við sjáum nú þegar að: 45% af þjóðartekjunum renna í skatta til rikis- og sveitarfélaga, og nú vinnur 5. hver maður í þjón- ustu hins opinbera. Með" sama áframhaldi verður skattheimtan komin í 75% af þjóðartekjum árið 2000 og þá vinnur 2. hver maður hjá hinu opinbera. Ef ríkisvaldið á að hafa allt frumkvæði í orkumálum verð- ur þessi mynd mun dekkri og stærri hluti mannaflans mun vinna hjá hinu opinbera. Stöðnun vegna ofvaxtar ríkisins. Mun þessi mynd rætast má spyrja. Nágrannalönd okkar á Vesturlöndum, einkum á Norður- löndum veita okkur viss svör. Það sjáum við, að skattheimtan og vöxtur ríkisvaldsins hefur leitt til stöðnunar. Hagvöxtur hefur stöðvast, atvinnuleysið hefur haldið innreið sína og erlendar skuldir vaxa til að halda lífskjör- um uppi. Við íslendingar erum á sömu braut, en ekki eins langt leiddir. Sömu einkenna verður vart hér. Við erum á tímamótum og þurfum að ákveða, hvernig við viljum bregðast við. Það er því ekki að ástæðulausu, að á þennan aðalfund eru komnir tveir merkir menn til að fjalla um þetta vandamál. Báðir þessir menn eru ekki aðeins þjóðkunnir hvor í sínu heimalandi, heldur báðir vel þekktir af verkum sínum langt út fyrir landamæri sinna heimalanda. Ég vil fyrir hönd Verzlunarráðs íslands færa þeim dr. Curt Nicolin og dr. Gylfa Þ. Gíslasyni sérstakar þakkir fyrir að koma til okkar á þennan aðalfund og taka til um- fjöllunar það mál, sem við teljum svo brýnt í dag. Fleiri og fleiri velta því fyrir sér, hvert velferðarríkið stefnir og þá um leið, hvort sívax- andi ríkisforsjá sé undirrót þeirrar stöðnunar, sem einkennir efnahags- líf Vesturlanda. Lokaord Góðir félagar, Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér til endurkjörs sem formað- ur Verzlunarráðs íslands. Ég hef gengt formannsstarfinu í fjögur ár og hefur sá tími bæði veitt mér ánægju og lífsfyllingu. Mér hefur gefist tækifæri til að vinna að margvíslegum verkefn- um í fylkingarbrjósti, verkefnum sem eru okkur öllum sameiginleg áhugamál. Sum þessara mála hafa komist í höfn, önnur hafa þokast áleiðis, en fyrir mörgum er þó bar- ist... Ég vil þakka ykkur fyrir það traust og þann stuðning, sem þið hafið veitt mér í þessu starfi. Án þeirrar uppörvunar hefði allt unn- izt á annan veg. Starfsfólki Verzlunarráðsins þakka ég gott samstarf, þó held ég að á engan sé hallað, þegar ég þakka Árna Árnasyni sérstaklega ánægjulegt og árangursríkt sam- starf. Samstarfsmönnum mínum í stjórn og framkvæmdastjórn ráðsins færi ég einnig beztu þakk- ir fyrir samstarfið. Með þessum orðum vil ég segja 60. aðalfund Verzlunarráðs Is- lands settan og biðja Jón Magn- ússon að taka við fundarstjórn. Kynningarfundur KSS í kvöld Kristileg skólasamtök í Reykjavfk efna í kvöld til sérstaks útbreiðslu— og kynningarfundar og verður hann haldinn í húsi KFUM og K að Amtmannsstíg 2b og hefst kl. 20:30. llndanfarna daga hafa félagar KSS heimsótt nokkra grunnskóla í Reykjavík og kynnt starfsemi félags- ins fyrir nemendum í 7.—9. bekk. í frétt frá Kristilegum skóla- samtökum segir m.a. að svipuð kynning hafi verið í 8 grunnskól- um í fyrravetur. Sé nemendum safnað á sal og meðal dagskrár- atriða hafi verið stuttur leikþátt- ur þar sem leitast var við að gefa innsýn í kristna trú, sýndar skuggamyndir frá starfi félagsins, kenndir léttir söngvar og að lokum afhentir kynningarbæklingar um félagið og nemendum boðið á kynningarfundinn. • Félagar eru nú kringum 300 og er markmið félagsins, sem starfar innan þjóðkirkjunnar, að safna saman ungu fólki undir kjörorðinu Æskan fyrir Krist. Einn af mörgum þáttum í starfi KSS eru ferðalög og er myndin úr einu þeirra. Harðger sveit er á ferð um Norðurland dagana 27.febr.- 2 . mars TOYOTA LAND CRUISER Nýr glæsilegur bíll frá Toyota meö styrkleika^ jeppabilsins en aksturseiginleika fólksbilsins Bíll til aö mæta þörfum þeirra sem þurfa aö feröast mikiö Vökvastýri, velstistýri. 6 cyl. dieselvél 3900 cc 4ra gíra 4x4. 5 dyra Þar eru á ferð fjórir bílar sem hver og einn hefur farið sigurför um heiminn og sannaTTágæti sitt við erfiðustu aðstæður. Bílar sem henta íslenskum aðstæðum öðrum betur. BILA KYNNING Mánudag 1. 3. SAUÐÁRKRÓKUR: Bifreiöaverkst. K.S. frá kl. 11 — 14 BLÖNDUÓS: Bílaverkst. K.H. frá kl. 17—19 Þriðjudag 2. 3. HVAMMSTANGI: Söluskálinn frá kl. 11 — 13 BÓRGARNES: Bifreiöa og trésmiöja Borgarness frá kl. 17—18 5A HI-LUX Laugardag 27. 2. AKUREYRI: Bláfell sf. Óseyri frá kl. 13—18 Bíll sem (ariö hefur sigurför um heiminn lipur og sparneytinn Vinnutæki sem hentar öllum. 2ja og 4ra hjóla drifinn. Bensin vél 2000 cc 4ra gíra LAND CRUISER PKKUP Vinnuhestur til aö nota hvenær sem er j hvað sem er, enda lítiö breyttur i 20 ár nemaávallttæknilega fullkomnari 4ra cyl. diesel vél 4ra gira Sunnudag 28. 2. HÚSAVÍK: Bif.verkst. Foss Garöarsbraut 48 frá kl. 14—17 LAND CRUISER Bíll sem hefur fengiö vlöurkenningu um allan heim fyrir styrkleika og gæöi. TOYOTA P. SAMÚELSSON & CO. HF. UMBOÐIÐ A AKUREYRI: BLAFELL S/F ÓSEYRI 5A — SÍMI 96-21090 UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI 8 KÓPAVOGI SÍMI44144

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.