Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982 39 félk í fréttum Á vélsleðum til Norðurpólsins + Danska blaðið Politiken greindi frá því nýverið að vél- sleðamenn í Noregi, Bretlandi F'rakklandi og Rússlandi hygð- ust fara á sleðum sínum til Norðurpólsins á þessu ári. Mun hópur norskra vélsleðamanna ríða á vaðið og byrja leiðangur sinn frá norðurströnd Kanada nú í marsbyrjun. Ragnar Thor- seth, 33ja áa gamail blaðamaður mun verða fyrirliði norska hóps- ins, en hann hnýtir jafnan titlin- um „ævintýramaður" aftan í nafn sitt og hefur oftlega áður ferðast um heimskautssvæðið. Norski hópurinn þarf að fara um 800 km leið á vélsleðum frá norð- urströnd Kanada til Norðurpóis- ins og verða með álbát við hönd- ina, þvi marga kílómetra komast þeir ekki nema sjóleiðina. Norsku ieiðangursmennirnir verða í daglegu sambandi við út- varpsstöðvar í Kanada og á Svalbarða, en þeir búast við að verða rúman mánuð á Norður- pólinn og síðan munu þeir halda áfram yfir ís og sjó til Sval- barða, þar sem leiðangrinum telst lokið ... Hættulegt starf blaða- mennskan! + Hann gaf ófagrar lýsingar á blaðamannsstarfinu, þessi. Hann er franskur og heitir Bernard Poulet. Hann var á leið í viðtal í Rúm- eníu fyrir franskt blað sitt við verkalýðsleiðtogann Vaslie Par- aschiv, sem er í ónáð hjá yfirvöld- um, þegar tveir fílefldir menn gegnu skyldilega að honum, illi- legir á svip og tóku að berja uppá honum, þegar hann átti sér einsk- is ills von. Hann var sleginn í rot og af áverkum dæmdu læknar að það hefði verið sparkað duglega í hann góða stund eftir það. Þetta gerðist aðeins nokkrum metrum frá herstöð nokkurri norður af Búkarest, — en þar kannaðist auðvitað ekki sála við að hafa orðið vitni að atburðinum, hvað þá heyrt stunu ... Pabbi, þetta er tengdasonur þinn! + Við höfum sagt frá því fyrr á þessari síðu að kjördóttir Rich- ard Burtons og Elisabeth Tayl- ors, sem Maria heitir, hafi ný- verið gengið í það heilaga. Nú er hún á brúðkaupsferðalagi með manni sínum, Steven Carson og hitti Maria pabba sinn í Vínar- borg fyrir skömmu. Hann leikur þar í miklum sjónvarpsmynda- flokki um líf og störf tónskálds- ins Richard Wagners. Myndin var tekin þegar Burton hitti tengdason sinn í fyrsta skipti, en hann gat ekki verið viðstaddur í brúðkaupinu, þar eða hann stóð í miðjum fyrrnefndum upptökum á myndinni um Wagner ... Karl Júlíusson sýnir skúlptúra að Kjarvalsstöðum KARL Júlíusson opnar í dag sýningu á skúlptúrum og lágmyndum í aust- urforsal Kjarvalsstada. Sýnir hann þar verk sem mörg hver eru unnin úr ýmsum hlutum sleða og segir hann þær vera vangaveltur um ýmsa þróun. Karl Júlíusson starfar sem handverksmaður og rekur nú Leð- ursmiðju á Skólavörðustíg i Reykjavík og segist hann vera sjálfmenntaður. Hann hefur áður sýnt tvisvar, í Djúpinu, og voru þá á ferðinni verk að mestu unnin úr bambus. Verkin á þessari sýningu Karls Júliussonar eru úr margs konar efni, tré, áli, blikki, nyloni og tágum, einnig notar hann hráa húð í eitt verk sitt, og segl. Verkin eru unnin síðustu mánuðina og eru þau 16 að tölu og öll til sölu. Er sýningin opin daglega kl. 14 til 22 og lýkur henni 14. mars. Karl Júlíusson er hér við eitt verka sinna sem hann smíðar að mestu úr Sleða. l.jÓHfn.: KÖK f FARIÐ Á 1 11,1 V NORRÆNAN LÝÐHÁSKÓLA í Danmörku Norræn tungumál. hljómlist, sund, stórt verklegt tilboó, þ. á m. vefnaöur, málun, textíl, spuni. 6 mán. 1/11—30/4. 4 mán. 3/1 —1/5. Lágmarksaldur 18 ár. Skrifiö eftir stundatöflu og nánari uppl. Góöir námsstyrksmöguleikar. UGE FOLKEHÖJSKOLE ! DK-6350 Tinglev, sími 04-643000. BM VALLA Laugardalshöll í dag kl. 14 leika KR og Fram í fyrstu deild. Áfram KR. Pontiac Phonix ’78. Einn meö öllu. Uppl. í síma 28255. Utgerðarmenn — Skipstjórar Kraftaverkanet fyrirliggjandi. Hagstætt verö og greiösluskilmálar. ísfjörð Umboös- og heildverslun, Dugguvogi 7, sími 36700.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.