Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982 1. deild kvenna: Lið Þróttar fallið í 2. deild TVEJR leikir fóru fram í I. deild kvenna í íslandsniólinu í handknattleik í síóustu viku. Valur og KK skildu jöfn, 14—14, og eiga stúlkurnar í Val nú litla möguleika á sigri í deildinni. l»á vann lid ÍA naum- an sigur á l'rótti í Laugardals- höllinni, 16—15.1»ar með er lið hróttar fallið niður í 2. deild. En allt útlit cr fyrir að lið FH ætli sér að verja Islandsmeist- aratitilinn í ár. Staðan í 1. deild kvenna er nú þessi: FII 10 9 I Valur 11 6 4 Fram 10 7 2 Vík. II 50 KK II 4 I ÍR 114 0 ÍA 1140 hróttur II 0 (I 0 196—128 19 1 173—135 16 I 181 — 147 16 6 182—177 10 6 179—163 9 7 187—189 8 7 149—208 8 II 124-234 0 Ul-mót í fimleikum tlm helgina fer fram ungl- ingameistaramót íslands í fim- leikum. Um 80 keppendur taka þátt í mótinu sem fram fer í íþróttahúsi Kennaraskólans. Keppnin á laugardag hefst kl. 10 fyrir hádegi. En klukkan 14.00 á sunnudag fer úrslita- keppnin fram. Hörö keppni á skíðum Um síðustu helgi fór fram Stefánsmótið á skíðum i Skála- felli á vegum skíðadeildar KR. Úrslit í mótinu urðu þessi: Stúlkur 10 ára og yngri: Sifjrún KrtNtinsdnttir ÍK 59.00 tlitdur Vr < .udmuruisrioinr Á 03.25 Ílraínhildur Mooncy Á 65,53 V aldÍM Arnarsdóftir ÍK 69,45 llelga IVtursdóflir ÍK 77,50 Ilrengir 10 ára og yngri: l'álmar l'étursson Á 65,35 llaukur ArnórsHon Á 70,99 Stúlkur 11 ára og yngri: l»órdw lijórleifHdóttir Víkingi 57*55 ilanna (áylfadóttir ÍK 60,20 llörn (.issurardóttir \ íkingi 60,#0 AuÓur Arnardóttir ÍK 63,09 Svala Skúladóttir Á 66,71 Drengir 11 til 12 ára: lijarni Pétursson KK 55,91 Kagnar Sverrisson ÍK 63,61 Kgill Injíi ÍK 66,44 \ alur Valsson KK 68,49 Olafur Kirgisson KK 77,20 Körfubolti: Valur mætir KR og ÍBK leikur gegn Grindavík EINN leikur fer fram í úrvals- deildinni um helgina. Valur og KR lcika í llagaskóla kl. 20.00 á sunnudagskvöldið. ÍBK og Grindavík leika í 1. deild í dag kl. 14.00 í Keflavík. „Pétur hefur alla burðl til að vera atvinnumaður í fremstu röð“ - segir Marv Harshmann körfuknattleiksþjálfari Körfuknattleikskappinn Pétur Guðmundsson þykir hafa vakið verðskuldaða athygli hjá NBA-félag- inu Portland Trailblazers, en eins og komið hefur fram margsinnis er Pét- ur fyrsti útlendingurinn sem kemst í bandarísku atvinnumannadeildina. Nýlega rakst Mbl. á stóra grein/við- tal við Pétur sem birtist í vestur íslenska blaðinu Lögberg-Heims- kringla, en LH fékk greinina að láni frá dagblaðinu Seattle Times. Hér fer á eftir útdráttur úr greininni. Af hinum mörg hundruð körfu- knattleiksmönnum sem voru skráðir til reynslu hjá atvinnu- mannaliðunum bandarísku og voru flestir nýkomnir úr háskólakörfuknattleiknum, héldu aðeins 52 velli. Einn þeirra var Is- lendingurinn Pétur Guðmundsson sem Portland réði til reynslu. Pét- ur, sem er 2,17 metrar á hæð, lék í þrjú ár með University of Wash- ington og skoraði að meðaltali 6,7 stig í leik. Dagblöðin Seattle Tim- es, Seattle Post Intelligenser og Bellevue Journal American voru óvægin í garð Péturs áður en keppnistímabiliö hófst. Gagnrýnin fór mjög í taugarnar á Ed Pepple, fyrrverandi þjálfara Péturs hjá Mercer Island Highschool. Hann ritaði lesendabréf til varnar Pétri og þar stóð m.a.: „Ég tel að Pétur hafi staðið sig furðu vel miðað við að margir hafa einhverra hluta vegna haft horn í síðu hans og beitt sér gegn honum. Ég vil með bréfi þessu undirstrika að til er fólk sem ber fullt traust til Péturs. Menn eru ekki ráðnir til NBA-félaga éf þeir hafa ekkert til brunns að bera, það er eitthvað nýtt ef NBA-deildin er orðin að góðgerðarstarfsemi." Þjálfari Péturs hjá Portland, Jack Ramsey, tók undir orð Pepple. Ramsey sagði: „Við mun- um styðja við bakið á honum og gerum okkur góðar vonir um góða frammistöðu hjá honum. Hann hefur styrkst mjög mikið frá því hann kom til okkar, hann lumar á góðum sendingum, er hittinn og síðast en ekki síst er hann 217 sentimetrar á hæð og það býður upp á mikla möguleika." Én hvernig stendur á því að Pét- ur hefur ekki getið sér nógu gott orð meðal margra? Svo virðist sem skýringin sé fólgin í því að hann átti erfitt með að gefa sig að verkefnum af fullum krafti, skorti einbeitingu. Að minnsta kosti var það skoðun Marv Harshman, sem var þjálfari Péturs hjá Huskies- liðinu á árunum. Pétur, sem var uppgötvaður á íslandi aðeins 15 ára gamall, var óharðnaður ungl- ingur og útlendingur í þokkabót. Þess var krafist af honum að hann 1 • Pétur Guömundsson I Isik moö Portland Trailblazers. aðlagaðist bandarískum venjum og siðum á augabragði. En það reyndist honum um megn, hann var bara barn, og það tók sinn tíma að aðlagast nýju umhverfi. Þegar Pétur kom til Bandaríkj- anna hóf hann að leika með liði Mercer Island-menntaskólans. Hann var tvö ár í byrjunarliði skólans og lék sem miðherji. Þeg- ar Mercer Island hafnaði í þriðja sæti skólamótsins flutti Pétur þakkarræðu fyrir verðlaun sín á íslensku. Hjá Washington-háskólanum gekk á ýmsu hjá Pétri, ýmist eins og í sögu, eðá hreinlega eins og í martröð. Veikindi og meiðsli komu einnig við sögu. En það var hjá Washington sem hann gagnrýndi Harshman eitt sinn opinberlega fyrir að klúðra leik með bjána- legum innáskiptingum. En svo hætti Pétur í skólanum og lét þau orð falla að svo virtist sem skólinn væri það sem allir vildu sér. Allir utan hann sjálfur. Hann vildi frekar reyna að komast einhvers staðar að sem atvinnu- maður. Pepple sagði: „Um er að ræða ungling sem var alinn upp í iframandi landi. Við flytjum hann til okkar og stillum honum upp í gersamlega framandi umhverfi. Við drógum þá ályktun að vegna þess að pilturinn var vel gefinn og átti gott með að umgangast fólk, þá myndi hann aðlagast hinu nýja umhverfi greiðlega. En breytingin var of mikil. Stundum lék hann hreint frábærlega, en þess á milli var hann hreinlega ekki með. Það fór í taugarnar á mér og ég reidd- ist honum stundum vegna þess að ég vissi að hann gat leikið stór- kostlega allan tímann ef hann hefði einungis lagt sig í verkefnið af alhug. Hann gat hreinlega troð- ið fólki ofan í körfuna, slíkur var krafturinn þegar best lét.“ Marv Harshman sagði: „Pétur hefur alla burði til að vera atvinnumaður í fremstu röð. En ég ber alls ekki illan hug til Péturs þrátt fyrir að slest hafi upp á vinskapinn okkar á milli um tíma. Er hann yfirgaf okkur þótti mér það afar leitt. Og það fór einnig í mig að Pétur skyldi ekki ná þeim styrkleika sem augljóst var að hann gat náð er hann var í okkar röðum. En það er eitt að búa yfir hæfileikum og annað að beisla þá.“ Er Pétur fékk sínu fram og hann hvarf á braut til Argentínu þar sem hann lék sem atvinnu- maður um skeið. Pétur staðfesti að hann hafi far- ið til Argentínu m.a. til þess að freista þess að þroskast sem körfuknattleiksmaður. „Ég varð að fá einbeitinguna í lag og í Arg- entínu var málið auk þess, að mað- ur lærði að bjarga sér. Þjálfun og dómgæsla er ekki upp á það besta þar um slóðir og körfuknattleikur- inn fyrir vikið grófur. Þetta var dýrmæt reynsla sem hjálpaði mér mikið." Pétur féllst einnig á að margt væri hæft í kenningu Pepples um íþróttalegt uppeldi sitt á íslandi. „Það er margt til í því, heima á íslandi var ég lang- stærstur og lék alltaf gegn mun minni leikmönnum. Ég gat því gert hluti án þess að beita mér [verulega. Nú, þegar ég kom til Bandaríkjanna lék ég aðeins tvö keppnistímabil með háskólaliðinu og það er lítið miðað við þá reynslu sem flestir körfuknatt- leiksmenn hér hafa. Svo var ég seinn til í líkamlega þroskanum, þ.a.e.s. á þverveginn. — En eftir því sem mér sýnist er ég sannfærður um að ég er nógu góður fyrir NBA-deildina. Ég þarf bara að fá smátíma til að aðlagast henni. Það besta við þetta er, að ég Ivirðist passa vel inn í dæmið, allir eru með í uppbyggingunni og und- irbúningnum." Portland-þjálfarinn Jack Ram- sey kvartar ekki, hann er sem fyrr segir ánægður með þær framfarir sem Pétur hefur sýnt og segir enn fremur: „Það eina sem hef.ur vald- ið vonbrigðum er hversu gjarn Pétur er að meiðast. Síðan hann kom til liðs við okkur hefur hann meiðst í baki, á ökkla og í hásin. En þegar hann hefur fengið næði fyrir meiðslum hefur ekki setið á góðri frammistöðu og við hjá iPortland eru afar ánægðir með það. Pétur passar í kerfi hjá okkur eins og flís við rass.“ Og látum Marv Harhsman eiga síðustu orðin: „Ég held að Pétri hafi ekki mislíkað við okkur per- sónulega, en við vildum og hvött- um hann til að æfa og leika með meiri áhuga og krafti en hann var tilbúinn að gera í þá daga. Það gleður mig að hann skuli hafa fengið tækifæri með Portland, ég hef alltaf talið að hann gæti hæg- lega orðið einn besti miðherjinn í bandaríska körfuknattleiknum, einn af þremur-fjórum bestu. Ef menn geta leikið stórkostlega tvisvar eða þrisvar þá er hæfileik- inn fyrir hendi að gera það 20—30 sinnum." Þýtt og endurs. — gg. 40 manns á A-stigsnámskeiði KSÍ - spjallað við Þór Símon Ragnarsson, formann tækninefndar KSÍ „TÆKNINEFND KSÍ hélt nám skeið, a-stigs námskeið, um síðustu helgi og voru þeir Guðni Kjartans- son, Haukur Hafsteinsson, Anton Bjarnason, Sölvi Oskarsson, Jóhann Ingi Gunnarsson, Magnús Jóna- tansson og Örn Eyjólfsson leiðbein- endur. Mikill áhugi var á námskeið- inu og mættu 40 manns, sem mun vera fjölmennasta a-stigs námskeið sem KSÍ hefur haldið,“ sagði Þór Símon Kagnarsson, formaður tækni- nefndar Knattspyrnusambands ís- lands í samtali við Mbl. „Við erum með almennt nám- skeið nú um helgina og hafa um 60 manns boðað þátttöku. Á nám- skeiðinu verður umfjöllun um meiðsli og stjórnar Halldór Matthíasson þeim þætti, Guðni Kjartansson mun halda fyrirlest- ur um þjálfun markvarða og Youri Sedov flytur erindi um sálfræðileg atriði þjálfunar. Við höfum lagt upp námskeiða- áætlun í ár og vonumst til að geta bætt við eftir því sem aðstæður leyfa. Fyrir utan að halda nám- skeið og skipuleggja þau, þá leggj- um við áherzlu á að efla knatt- þrautir, en þær hafa verið í nokk- urri lægð að undanförnu, utan hvað einstök félög hafa unnið þar gott starf. Eitt meginverkefni nefndarinnar er að afla upplýs- inga og koma áleiðis upplýsingum um tæknimál, einkum erlendis frá og vinna að endurskoðun náms- efnis í námskeiðum á vegum KSÍ. Þá fyrst og fremst afmarka enn frekar hvað tekið verður, sníða vankantana af núverandi kerfi og það tel ég stærsta verkefni nefnd- aiinnar nú. Ég hef verið svo heppinn, að hæfir og góðir menn starfa með mér í nefndinni, þeir Guðni Kjart- ansson, Eggert Jóhannesson, Haukur Hafsteinsson og Sölvi Óskarsson," sagi Þór Símon Ragn- arsson. Námskeið þau sem fyrirhuguð eru á vegum KSI eru: Almennt opið námskeið sem hefst kl. 19.30 föstudaginn 26. febr., um umfjöllun meiðsla og stjórnar Halldór Matthíasson þessum þætti. Gert er ráð fyrir að liðsstjórar eða aðstoðarmenn þjálfara geti tekið þátt í þessum hluta nám- skeiðsins sérstaklega. Árdegis laugardaginn 27. febr. heldur Guðni Kjartansson fyrirlestur um þjálfun markvarða og kynnir nýja bók, Markvörðinn, sem hann hefur þýtt úr sænsku ásamt Þorsteini Olafssyni. Eftir hádegi mun Youri Sedov, þjálfari Víkings, flytja erindi um sálfræðileg atriði í þjálfun. 26. — 28. mars er áætlað að halda c-stigs námskeið. Dagskrá liggur ekki fyrir ennþá, og verður auglýst nánar síðar. I október og november er áætlað að halda b-, c- og d-stigs nám- skeið, auk almenns námskeiðs með erlendum fyrirlesara um efnið Heimsmeistarakeppnin í knatt- spyrnu 1982. Á næsta ári er að svo komnu áætlað að halda tvö a-stigs, eitt b-stigs, eitt c-stigs og tvö almenn námskeið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.