Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982
5
Póstböggull kemur í leitirnar eftir rúma þrjá áratugi:
Finnst þetta nokkuð skrít-
ið svona á öld hraðans
PAKKI, sem póstlagður var í Reykja-
vík árið 1949 og átti að berast konu
búsettri í Liibeck í Þýzkalandi, barst
sendanda, Ilildi Björnsdóttur,
Grjótanesi, Melrakkasléttu, í hendur
á ný fyrir stuttu síðan með árituninni
„Móttakandi finnst ekki“. Pakkinn
hafði því verið í rúm 32 ár á þvælingi,
en í honum voru tvær Gefjunar
peysur og tveir pakkar af Raleigh-
sígarettum. „I>etta var algjörlega
óskemmt, enda í góðum pappakassa.
Sígaretturnar uppþornaðar? Nei, nei.
Það var ilmandi tóbakslykt þegar við
opnuðum pakkana. Við reyktum þær
með góðri lyst, en pappírinn var
eitthvað gulnaður af elli,“ sagði Hild-
ur er Mbl. spurði hana hvernig inni-
hald pakkans hefði litið út. Hildur
sendi pakkann sem gjöf til móður
sinnar fyrir rúmum þremur áratug-
um, en móðir hennar lézt fyrir um 20
árum.
- segir sendandinn,
Hildur Björnsdóttir,
en móðir hennar, sem
átti að fá pakkann,
lézt fyrir 20 árum
Hildur sagði svo frá: „Pakkinn
hefur sennilega farið með skips-
pósti á sínum tíma, en kom aldrei
fram, þrátt fyrir að við spyrðumst
fyrir bæði hér heima og í Þýzka-
landi. Gestur sem kom hingað í
sumarlok eða um haustið 1949 tók
pakkann fyrir mig og póstlagði í
Reykjavík, en það var ekki fyrr en
nú fyrir skemmstu, að mér barst
þessi tilkynning um að ég ætti
endursendan pakka í pósti, og þess
getið, að hann væri frá Þýzkalandi.
Þegar ég sá að póstsendingin var
stíluð til móður minnar og með
ættarnafninu mínu, sem ég bar áð-
ur en ég gifti mig hérlendis, upp-
götvaði ég að þetta hlyti að vera
sami pakkinn. Á tilkynningunni
var þess getið að ég ætti að greiða
51 krónu í endursendingarkostnað,
en póstmeistaranum á Kópaskeri
fannst það jafn fráleitt og mér að
ég þyrfti að greiða það gjald eftir
allan þennan tíma.“
Aðspurð sagöist Hildur ekki geta
fundið neina haldbæra skýringu á
þessu en sagði að pakkinn virtist þó
aldrei hafa náð lengra en til Ham-
borgar, því þar hefði verið skrifað á
hann að móttakandi fyndist ekki.
Peysurnar í pakkanum sagði hún
auðvitað löngu komnar úr tízku.
Þetta væru Gefjunar-peysur þess
tíma, ein karlmannspeysa og
kvengoltreyja. „En peysurnar sem
eru úr íslenzkri ull, sýna kannski
bezt þá framför sem orðið hefur á
vinnslu ullarinnar. Ullin er mjög
hörð í peysunum, sem þóttu með
þeim vönduðustu á þeim tíma.
Þetta er ekkert sambærilegt við
það sem við klæðumst í dag,“ sagði
hún og bætti við í lokin:
„Manni finnst þetta nokkuð skrítið
svona á öld hraðans, að pakkinn
skuli ekki koma fram fyrr en eftir
rúm 32 ár. Menn hefðu betur látið
einhvern njóta innihaldsins á þeim
tíma sem hann var sendur, ef ekki
tókst að koma honum til skila. En
þetta er allt svo nákvæmt hjá póst-
inum.“
Ragnar Helgason, stöðvarstjóri
Pósts og síma á Kópaskeri, sagöi í
viðtali við Mbl., að pakkinn hefði
áreiðanlega verið á þvælingi er-
lendis. Upphaflegt fylgibréf hefði
verið týnt, þegar pakkinn kom til
baka, honum hefði aðeins fylgt
pappírssnepill. Þá gat hann þess,
að þrátt fyrir það hefði böggullinn
verið rækilega merktur, bæði nafni
og heimilisfangi Hildar í Lubeck
svo og hennar sem sendanda.
Þessa mynd tók Kagnar Axelsson Ijósm. Mbl. af umbúðum pakkans á pósthúsinu í
Reykjavík í gær, en þangað voru þær sendar til athugunar. Teknar voru myndir af
innihaldi pakkans á Kópaskeri fyrir Mbl. skömmu eftir að pakkinn barst þangað á
ný, en aðsópsmikill rakki, sem var gestkomandi hjá Ijósmyndaranum, gerði sér
lítið fyrir og át filmurnar, þannig að við verðum að láta okkur nægja mynd af
umbúðunum.
*íú VltTflKB m SKÍRT flflW Híllf?, (W fltl-T
sw tb wwn flp flBFi? saer tm m pflfisfl ór vmiusí-
OKNI Vflfl vm im 06 WVfflT flNNflfl ÓRflflSfljfll."
Hafið þið séð okkar eldhús?
Ef ekki þá höfum við sýningu laugardag 9—12
og sunnudag 2—6.
Frábær vestur-þýzk framleiðsla.
Sjón er sögu ríkari.
Því ekki að líta inn hjá okkur laugardag eða sunnudag og sjá
það nýjasta hér á landi í ALNO eldhúsum frá Vestur-
Þýzkalandi.
Umboðsmenn:
Akureyri: Sveinn Jónsson, byggingameistari, Skálfsskinni.
Hvolsvöllur: Byggingafélagið Ás hf.
Akranes: Málningarþjónustan.
ísafjörður: Jakob Ólafsson, byggingameistari.
Vestmannaeyjar: Garðar Björgvinsson, byggingameistari.