Morgunblaðið - 27.02.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982
Menn vita vart hvað-
an á þá stendur veðrid
— segir dómsmálaráðherra en Weibel segir
endurskipulagningu Alusuisse tefja viðræðufundinn
Frá hinum fjölmenna fundi sjúkraliða í gær.
Sjúkraliðar:
Uppsagnir hefjast 1. mars
hafi samningar ekki tekist
„VIÐ funduðum í dag til
þess að reyna að koma okkur
saman um hvernig ætti að
bregðast við þessari óvæntu
frestun viðræðufundarins í
Kaupmannahöfn,“ sagði
Friðjón Þórðarson dóms-
málaráðherra, er Morgun-
blaðið ræddi við hann í
gærkvöldi. „Þetta kom svo
flatt upp á menn að þeir vita
vart hvaðan á þá stendur
veðrið og sannast sagna hef-
ur ekki verið tekin ákvörðun
um aðgerðir.“
Ráðherranefnd, skipuð iðnað-
ar-, sjávarútvegs- og forsætis-
ráðherra hefur undanfarið fundað
um Alusuisse-málið, en
dómsmálaráðherra, Friðjón Þórð-
arson, tók sæti forsætisráðherra
er hann hélt utan í vikunni. „Eg
vil ekkert vera að geta mér til um
ástæður þess að af fundinum gat
ekki orðið af hálfu fulltrúa Alu-
suisse, en menn mega geta í eyð-
urnar ef þeir vilja," sagði Friðjón.
„Ástæðurnar fyrir því að ég gat
ekki mætt á þennan fyrirhugaða
viðræðufund voru tíundaðar í
skeyti, sem ég sendi til íslenska
álfélagsins," sagði dr. Edwin A.
Weibel hjá Alusuisse, er Morgun-
blaðið náði tali af honum á
skrifstofu hans seint í gærdag.
„Enduruppbygging fyrirtækis-
ins stendur nú yfir og ég er að
skipta um starfssvið, þannig að
því varð ekki með nokkru móti við
komið að ég sækti fundinn. Þetta
kom allt fram í skeytinu til álfé-
lagsins og ennfremur tókum við
það fram, að okkur þætti þetta
afar leitt."
Er dr. Weibel var að því spurð-
ur hvort einhverjar viðræður
hefðu átt sér stað um nýjan fund-
artíma, kvað hann svo ekki vera,
en vissulega myndi hann sitja
fundinn þegar þar að kæmi.
FÉLAG íslenzkra sjúkraliða hefur
ákveðið að segja upp störfum á
sjúkra- og hjúkrunarstofnunum frá
og með 1. mars næstkomandi, hafi
samningar ekki tekist fyrir þann
tíma. Sjúkraliðar eru almennt í 6.
launaflokki, en þeir gera kröfur um
að byrjunarlaun þeirra miðist við 9.
launaflokk.
Sjúkraliðar héldu fund í
Reykjavík í gær og voru yfir 200 á
fundinum. Á fundinum var sam-
þykkt að segja upp störfum tækj-
ust samningar ekki fyrir 1. mars
og ennfremur var samþykkt álykt-
un, þar sem meðal annars segir, að
fundurinn geri þá kröfu til stjórn-
valda að nú þegar verði gengið til
samninga. Kröfur sjúkraliða hafi
verið lagðar fram og þar sé um
algjörar lágmarkskröfur að ræða.
Þá segir, að sjúkraliðar hafi
sýnt biðlund og verið lítillátir í
sínum kröfum. Sjúkraliðar muni
standa að baki forystu sinnar og
ekki hopa fyrr en fullur sigur hafi
unnist. Að lokum segir, að náist
ekki viðurkenning á hógværum
kröfum félagsins um starfslega og
stéttarlega viðurkenningu muni
sjúkraliðar fara þær leiðir, sem til
þess þurfi.
Hjúkrunarfólk:
Sáttatillaga rædd í gærkvöldi
Hjúkrunarfræðingar sviptir verkfallsrétti, segir í ályktun Hjúkrunarfélagsins
Hlustunarduflið, sem fannst við Bjarnarfjörð á Ströndum nýlega. Það er
talið sovéskt eins og önnur slík dufl, sem fundist hafa hér á undanförnum
árum.
Stórt hlustunardufl
finnst á Ströndum
I)ufl, sem er hluti af hlustunar og miðunarkerfi í sjónum og talið er af
sovéskum uppruna, fannst nýlega rekið á land nálægt Bjarnarfirði á Strönd-
um.
Duflið er svipað öðrum hlustun-
arduflum, sem fundist hafa rekin
á land hér eða á reki nálægt land-
inu undanfarin ár. Að þessu sinni
var það Reykvíkingur, sem var að
huga að sumarbústað á þessum
slóðum, er fann duflið.
Hlustunarduflið er mjög stórt,
3,5 metrar á lengd og vegur 1200
kíló. Landhelgisgæslan og varn-
arliðið á Keflavíkurflugvelli unnu
að því saman að ná í duflið.
Á SÁTTAFUNDI hjúkrunarfólks í
gærkvöldi var lögð fram sáttatillaga
og um klukkan 22.00 hófst fundur
hjúkrunarfólks á Borgarspítaianum
um sáttatillöguna. Stóð fundurinn
enn þegar Morgunblaðið fór í prent-
un. Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað sér,
þá mun meðal annars vera gert ráð
fyrir fyrirframgreiðslum til hjúkrun-
arfólks á Borgarspítalanum, og á
fyrirframgreiðslan að koma til fram-
kvæmda á næsta ári.
Stjórn Hjúkrunarfélags Islands
mótmælti úrskurði kjaradeilu-
nefndar harðlega í gær. í ályktun
frá Hjúkrunarfélaginu segir, að
kjaradeilunefnd hafi skyldað til
vinnu alla hjúkrunarfræðinga
Borgarspítala og deilda hans, svo
og hluta af starfandi hjúkrunar-
fræðingum við Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur, og þar með virt að
vettugi ábyrga verkfallsáætlun,
sem að mati hjúkrunarfræðinga
og stjórnenda Borgarspítalans,
sem best þekkja til þessara mála,
var vel framkvæmanleg.
„Með þessum úrskurði hefur
kjaradeilunefnd svift hjúkrun-
arstéttina verkfallsrétti, sem hún
„VART HEFUR orðið f
Reykjavík sjúkdómstilfella
af völdum taugaveikibróður.
Sýkingar hafa verið raktar til
skjaldböku, sem seld var í
gæludýraverslun í Reykjavík,
en virtist heilbrigð,“ segir í
frétt sem Mbl. barst í gær frá
borgarlækni og landlækni.
í fréttinni er fólki, sem hefur
slík dýr undir höndum, bent á að
gæta ýtrasta hreinlætis og hand-
leika dýrin sem allra minnst.
Sjúkdómseinkenni m.a. geti verið
magaverkir, niðurgangur, ógleði,
uppköst og sótthiti og standi þau
að jafnaði í nokkra daga.
Þeir sem á síðustu mánuðum
hafa veikst á heimilum þar sem
skjaldbökur eru til húsa, eru
Innbrot í Ask
ÞRJÚ innbrot voru framin í fyrri-
nótt. Brotist var inn í veitingahúsið
Ask að Laugavegi 28b. Um 3600
krónum var stolið og skáphurðir
brotnar. Þá var brotist inn í frysti-
húsið Barðann í Kópavogi og kass-
ettutæki stolið. Ixiks var brotist inn í
gám við Sundahöfn og áfengi stolið,
en síðdegis í gær lá ekki fyrir hve
miklu magni.
hefur lögum samkvæmt, og þar
með tekið sér löggjafarvald, sem
stjórn Hjúkrunarfélags íslands
telur að hún hafi ekki,“ segir í lok
ályktunar Hjúkrunarfélagsins.
beðnir að hafa samband við
heimilislækni sinn eða heil-
brigðiseftirlitið í Reykjavík. Ann-
ars staðar á landinu getur fólk
snúið sér til næstu heilsugæslu-
stöðvar.
Blaðaprent:
Samningar um
endurráðningu
standa yfir
„ÉG VONA að samningar um endur
ráðningu starfsfólks náist um helg-
ina, ef það tekst ekki, þá verða eng-
in blöð prentuð í Blaðaprenti eftir
helgi,“ sagði Magnús Sigurðsson,
formaður Félags bókagerðarmanna,
í samtali við Morgunblaðið í gær
kvöldi. Eins og Morgunblaðið hefur
skýrt frá áður, þá var öllu starfsfólki
Blaðaprents hf. sagt upp störfum, frá
og mcð 1. mars nk., eftir að Vísir og
Dagblaðið sameinuðust.
Magnús Sigurðsson sagði að
samningar um endurráðningu
hefðu staðið nokkuð lengi, en hann
sagðist ekki hafa trú á öðru, en að
samningar næðust nú um helgina.
Forsetanum ekki stætt
á að opna þessa sýningu
- segir Valtýr Pétursson listmálari um sýninguna „Scandinavia today“
„FRÁ mínurn bæjardyrum séð er þetta hneyksli. Það er skoðun mín að
forseta íslands sé ekki stætt á að opna þessa sýningu,“ sagði Valtýr
Pétursson, listmálari, er Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöld.
Kurr er nú í mörgum mynd-
listarmönnum vegna vals lista-
verka á sýninguna „Scandinavia
Today", sem opnuð verður í
Bandaríkjunum síðar á þessu
ári. Ekki er aðeins óánægja
vegna vals listaverka hérlendis,
heldur einnig í Noregi og í
Danmörku, þar sem harðvítugar
blaðadeilur hafa átt sér stað.
Sýning þessi samanstendur af
verkum listamanna frá hverju
Norðurlandanna. Annars vegar
ræðir um verk fram til ársins
1910 og hins vegar verk nýlista-
manna. Þeir Sigurður Guð-
mundsson og Hreinn Friðfinns-
son verða fulltrúar íslands á
þeim vettvangi. Hafa þeir til-
tölulega lítið sýnt hérlendis, en
numið í Hollandi og sýnt þar.
Það, sem íslenskum myndlist-
armönnum svíður hvað mest, er,
að verkum þekktra manna á
borð við Jóhannes Kjarval og
Jón Stefánsson er sleppt úr þess-
ari sýningu, svo og hitt, að
erlendir aðilar virðast ráða vali
listamanna og verka þeirra.
Verkum Edward Munk var t.d.
sleppt í tilleggi Norðmanna og
olli það mikilli reiði þar í landi.
Verkum hans var hafnað á þeim
grundvelli að þau væru einungis
eftiröpun þýska expressionism-
ans. Fróðir menn halda hinu
gagnstæða fram, að verk Munks
séu fyrirmynd hans.
„í öllu falli er ekki hægt að
nefna þessa sýningu „Scandina-
via Today" eins og allir geta
séð,“ sagði Valtýr og var allt
annað en ánægður.
Tilfelli af völdum taugaveikibróður:
Sýkingin rakin
til skjaldböku