Morgunblaðið - 27.02.1982, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982
Könnunarnefnd um úthafsveidar á laxi:
Leggur til að undanþágur til lax-
veiða í sjó verði úr gildi felldar
„LAXASTOFNINN á Norður-Atlandshafi stendur illa að okkar mati. Við teljum að
íslenski stofninn sé ekki yfir 500 tonn. I»að er tóm vitleysa ef fólk heldur að það sé
nóg af laxi í sjónum.“ I»etta sagði Jakoh V. Hafstein í samtali við Mbl., en hann
ásamt l»orsteini l»orsteinssyni og dr. Birni Jóhannssyni hafa skilað áliti þeirrar
nefndar sem þeir skipa og I»orsteinn er formaður fyrir. I»að er könnunarnefnd
úthafsveiða á laxi, sem landbúnaðarráðherra Pálmi Jónsson skipaði 21. ágúst 1981,
„til þess að leita færra leiða til könnunar á hludeild íslenska laxastofnsins í afla
þeirra þjóða, sem laxveiðar stunda á norðaustanverðu Atlantshafi.“
í afla Færeyinga í vetur. Sam-
vinnu verði leitað við Skota og Ira
um framkvæmd leitarinnar. Þegar
gengið hefur verið frá fjölþjóð-
legri starfsáætlun um merkingar
og merkjaleit, taki íslendingar
þátt í því samstarfi.
í þriðja lagi að fulltrúa íslands í
vinnuhópi um Atlantshafslaxinn í
Göngufiskanefnd Alþjóða haf-
í fyrsta kafla nefndarálitsins er
stutt yfirlit um þróun úthafs-
veiðanna á Norður-Atlantshafi.
Þar segir að eftir 7. áratuginn
hefji Danir flotlínuveiðar á laxi út
af Norður-Noregi, og fljótlega
bætist fleiri þjóðir í hópinn. Segir
að þær veiðar nái hámarki um
1970 með tæplega 1000 tonna árs-
afla. Línuveiðar á laxi við Færeyj-
ar eiga sér nokkuð langa sögu en
það er fyrst árið 1973, sem ársafli
þar fer yfir 20 tonn. Þær veiðar
hafa vaxið mjög hratt síðustu þrjú
árin og ná 1065 tonnum á síðustu
vertíð.
Hlutfall úthafsveiða af heiíd-
arveiðum á Atlandshafslaxi hefur
yfirleitt verið á bilinu frá 20 til 25
prósent undanfarin 15 ár. Telja
fræðimenn að fyrir hvert veitt
tonn af veiddum laxi á úthafi
rýrni endurheimtur til uppruna-
landanna um 1500 kíló.
Heiidarveiðar á laxi í uppruna-
löndum hans í Evrópu eru taldar
vera á bilinu 3500—4000 tonn árið
1981. Má ætla að af þessum afla
séu 1500 til 2000 tonn lax, sem al-
ist hefur upp við Vestur-Græn-
land, en aðeins 1500 til 2500 tonn
sé fiskur, sem uppalinn er í
Austur-Atlantshafi. A sama tíma
rýra Færeyjarveiðarnar endur-
heimtur á laxi til Evrópulanda um
ca. 1600 tonn eða um svipað magn
og nemur heimaveiðum á laxi frá
þessu uppeldissvæði.
I öðrum kafla nefndarálitsins er
fjallað um stjórnun úthafsveið-
anna og sagt frá þeim milliríkja-
samningi sem gerður var í Reykja-
vík 18. til 22. janúar sl. um vernd-
un laxastofna á Norður-Atlants-
hafi. I Reykjavíkursamningunum
segir að laxveiði sé bönnuð utan 12
mílna landhelgislínu aðildarríkja
EBE nema við Vestur-Grænland,
þar er bannað að veiða lax utan 40
mílna og í færeysku fiskveiðilög-
sögunni utan 200 mílna.
Veiðar verða því ekki teknar
upp á nýjum slóðum hér eftir.
Einnig leggjast niður veiðar á al-
þjóðlega hafsvæðinu milli Noregs og
Jan Mayen. Skapast hefur vett-
vangur fyrir aðildarríkin til að
„stuðla með samráði og samvinnu
Hótel Borg:
Breytingar
gerðar á
rekstrinum
NOKKRAR breytingar eru nú
fyrirhugaðar á rekstri veitinga-
sala Hótels Borgar, að því er
Sigurður Gíslason hótelstjóri
sagði í samtali við Morgunblað-
ið. Sagði hann, að helstu breyt-
ingarnar væru að í framtíðinni
yrði salarkynnum lokað klukk-
an 17 á daginn, en þeir síðan
opnir á ný á kvöldin og um helg-
ar, en fram til þessa hafa salar-
kynnin verið opin allan daginn.
Þá sagði Sigurður, að verið væri
að breyta vinnuaðstöðu í eldhúsi
til hins betra, sem ætti síðan að
þýða að þar þyrfti færra fólk en
áður til starfa.
Dr. Björn Jóhannesson verkfræðingur og Jakob V. Hafstein lög-
fræðingur. Á myndina vantar Þorstein Þorsteinsson formann nefnd-
arinnar.
að verndun, endurnýjun, eflingu
og skynsamlegri nýtingu laxa-
stofna, sem samningur þessi tekur
til“. Þannig gefst tækifæri til
stjórnunar á úthafsveiðunum með
heildarhagsmuni fyrir augum.
. Með einhliða yfirlýsingu í lok
ráðstefnunnar hét færeyska
landsstjórnin því, að auka ekki
laxveiðar sínar í sjó frá því sem nú
er. Einnig gaf hún von um veru-
legan samdrátt í veiðum á yfir-
standandi vertíð og þeirri næstu,
ef samningar næðust við EBE um
aðrar fiskveiðar. Frá því sam-
komulagi hefur verið gengið. Þ.e.
úr 1650 tonnum í ár niður í 750
tonn og á næstu vertíð niður í 625
tonn.
Þetta er megin inntak í þeim
milliríkjasamningi sem gerður var
í janúar sl. í nefndarálitinu segir
síðan: „Einnig er mjög athugandi
að Islendingar leiti beinna samn-
inga við Færeyinga um frekari
samdrátt laxveiða á Færeyjamið-
um.“
I þriðja kafla er rætt um færar
könnunarleiðir á hlutdeild ís-
ienska iaxastofnsins í afla þeirra
þjóða, sem laxveiðar stunda á
norðaustanverðu Atlantshafi. Ein
leiðin er merkingar gönguseiða og
endurheimt merkja úr aflanum.
Þessi leið hefur þá kosti, að merk-
ingar gönguseiða eru ekki mjög
kostnaðarsamar en gallinn er sá
að endurheimtur merkjanna hafa
hingað til verið slæmar. Segir að
líkur séu til að færeyskir sjómenn
skili ekki nema mjög litlum hluta
þeirra útvortis merkja sem í afl-
anum finnast. Nefndarmönnum
var tjáð að í vetur muni Færey-
ingar ekki hleypa erlendum at-
hugunarmönnum í frystihús sín.
Sérstaklega er nauðsynlegt, seg-
ir í álitinu, að kannaður verði
skipulega gönguseiðafjöldi úr
nokkrum veiðiám, dreifðum um
landið, og einnig talinn sá lax, sem
í þær gengur. Auk þess sem slíkar
rannsóknir eru nauðsynlegar til
að hægt sé að meta áhrif Færeyja-
veiðanna á laxagöngur og veiðar í
upprunalöndum laxins, munu þær
veita upplýsingar um mjög mikil-
væga þætti varðandi nýtingu lax-
veiðihlunninda hérlendis.
Önnur könnunarleið er að leita
að merktum löxum í afla af Fær-
eyjamiðum og Noregshafi. Nefnd-
armenn telja að samkvæmt bókun
um samvinnu í fiskveiði- og land-
grunnsmálum frá 13.1. 1981, beri
Færeyingum að tryggja okkur að-
stöðu til slíks eftirlits. Leggja
verður áherslu á að við það verði
staðist.
Síðan segir að sú þekking, sem
tiltæk er um upprunalönd laxins á
veiðisvæðunum við Færeyjar, sé
að miklu leyti fengin með
merkingum þar árin 1969 til 1976.
Því miður varð ekki framhald þar
á. Nefndin telur að með merking-
um af þessu tagi sé hægt að afla
nokkuð tryggra upplýsinga um
hvaðan lax sá, sem þarna veiðist,
sé upprunninn. Er óvíst hvort
nokkurntíma verður ráðist í slíkt
aftur og er það illa farið. Mjög er
athugandi hvort ekki sé hægt að
nýta íslensk hafrannsóknaskip til
sjálfstæðra laxamerkinga við
austurmörk fiskveiðilögsögu
okkar á vori komandi.
Það er mælt með því að íslenskir
eftirlitsmenn verði settir um borð á
laxveiðibátunum til að afla upplýs-
inga um laxveiðar þær sem stundað-
ar eru á hafsvæðinu, en einnig er
óskað skoðunarmanna frá öðrum
þjóðum. Telja nefndarmenn nauð-
synlegt að Islendingar taki þátt í
þessu starfi, svo þekking á veiði-
svæðum og veiðiaðferðum sé fyrir
hendi hérlendis.
Allmiklar vonir eru bundnar við
að unnt reynist að greina laxa til
upprunalanda sinna með rann-
sóknum á hreistursýnum. Virðist
sú aðferða hafa gefist allvel til að
greina á milli laxa af Ameríku-
stofni og Evrópustofni í rannsókn-
um á laxveiðum við Vestur-
Grænland.
I fjórða kafla nefndarálitsins er
fjallað um tillögur nefndarinnar
og eru þær í fimm liðum. í fyrsta
lagi að Veiðimálastofnun verði
falið að skipuleggja og fram-
kvæma gönguseiðamerkingar í öll-
um landshlutum. Ennfremur verði
lögð mikil áhersla á rannsóknir á
gönguseiðaframleiðslu, endur-
heimtun, véiðiálagi og stærð laxa-
stofna í íslenskum veiðiám. í öðru
lagi að leitað verði örmerktra laxa
rannsóknaráðsins verði falið að
beita sér fyrir því á fundum
vinnuhópsins, að upp verði teknar
merkingar á laxi á veiðisvæðunum
við Færeyjar og í Noregshafi sem
fyrst. I fjórða lagi að Islenskir eft-
irlitsmenn verði í færeyskum
laxveiðibátum í vetur eftir því
sem kostur er.
Og í fimmta lagi að Veiðimála-
stofnun veiti alla nauðsynlega að-
stoð við gagnasöfnun að annað,
sem auðveldað gæti rannsóknir á
hreisturs- og blóðsýnum úr ís-
lenska laxastofninum.
I fimmta kafla benda nefnd-
armenn á enn frekari leiðir þótt
þær varði upphaflegt verkefni
nefndarinnar ekki beint. Þar er
lögð áhersla á að veiðieftirlit við
strendur landsins verði aukið og eflt
með lögum og allar undanþágur til
laxveiða í sjó úr gildi felldar. A Is-
lendinga er litið sem forystuþjóð
hvað varðar bann við slíkum veið-
um og ekki vansalaust ef illa er að
staðið. Fiskifélagi íslands verði
falið að afla skipulegra upplýsinga
um viljandi laxveiðar íslenskra
báta á djúpmiðum og við strendur
landsins. Haldinn verði sem fyrst
fundur landbúnaðarráðherra,
sjávarútvegsráðherra og utanrík-
isráðherra með fulltrúm ráðu-
neytanna á laxafriðunarráðstefn-
unni 18. til 22. jan. sl. til þess að
meta og gera sér grein fyrir stöðu
mála eftir ráðstefnuna. Og í síð-
asta lagi að landbúnaðarráðherra
boði sem fyrst til lokaðrar ráð-
stefnu þeirra aðila er hagsmuna
eiga að gæta í málum þessum, þar
sem mótuð verði sameiginleg
Ragnar Arnalds undirritaði 723 millj. kr
RAGNAR Arnalds fjarmálaráðherra
undirritaði í gær samning um lán til
íslenzka ríkisins að fjárhæð 75 millj-
ónir dollara eða um það bil 723
milljónir króna. Lánveitendur eru 12
bankar í Bandaríkjunum, Kanada,
Japan og V-Evrópu.
Milligöngu um lánið.sem er eitt
hið hið hæsta sem íslenzka ríkið
hefur tekið, hafði City Bank í
London, sem lánar 9 milljónir af
lánsfjárhæðinni, en aðrir bankar
lána 6 milljónir hver.
Lánið er veitt til 10 ára og eru
vextir breytilegir og miðast við
millibankavexti í London, en til
viðbótar er greitf fast ofanálag,
sem er 3/8% fyrstu fimm árin en
1/2% eftir það.
í fréttatilkynningu frá fjár-
málaráðuneytinu segir, að lánið
megi greiða hvenær sem er fyrstu
fimm árin, þyki lántaka það
henta. Lánsfénu verður varið til
almennra framkvæmda innan-
lands í samræmi við fjárfestingar-
framtíðarstefna til frekari sam-
dráttar úthafsveiða á laxi.
í lokaorðum nefndarmanna
þakka þeir ágætt samband og
samstarf við landbúnaðarráð-
herra, Pálma Jónsson.
í samtali Morgunblaðsins við þá
nefndarmenn, Jakob V. Hafstein
og dr. Björn Jóhannsson, en Þor-
steinn Þorsteinsson formaður
nefndarinnar var fjarverandi
vegna anna, kom fram að heildar-
veiðar allra þjóða sl. sumar á laxi
í Norðaustur-Atlantshafi námu
5800 tonnum.
Hver var hvatinn að stofnun
Könnunarnefndar um úthafsveið-
ar á laxi?
„Það var samþykkt," sagði dr.
Björn, „stjórnar Landssambands
veiðifélaga til landbúnaðarráð-
herra um stofnun nefndar til að
kanna þessar veiðar, og síðan til-
laga Alberts Guðmundssonar í
Utanríkismálanefnd 10. ágúst um
sama efni. Auk þess blaðaskrif um
úthafsveiðarnar, sem byrjuðu 1.
nóv. 1980 með grein eftir Jakob
Hafstein."
„Sem dæmi um hvaða áhrif út-
hafsveiðar á laxi getur haft getum
við nefnt," sagði Jakob, „að Skotar
og Irar álíta að það taki þá 10 ár
að jafna sig eftir Grænlandsveið-
arnar, sem 1973 voru komnar upp
í 2700 tonn en voru þá færðar
niður í 1200 tonn. írar urðu hvað
harðast úti í þessum veiðum."
Hvað þá um Færeyingaveiðarn-
ar gagnvart okkur íslendingum?
„Það gegnir furðu," sagði dr.
Björn, „að Færeyingarnir skuli að-
eins tæpum mánuði eftir sam-
þykkt Reykjavíkursamningsins
sýna þá ósvinnu að vera við lax-
veiðar á úthafinu, utan sinnar
landhelgi og sennilega innan land-
helgi Islands — tvöfalt brot.
Landhelgisgæslan stóð þrjá fær-
eyska laxveiðibáta að veiðum í
haust og einn þeirra var með 50
kílómetra línu aftan úr sér. Okkur
þykir það alveg forkastanlegt að
Færeyingar hafa þegar brotið
samninginn."
Vorkuldakenningin, hvað felst í
henni?
„Veiðimálastjóri, Þór Guðjóns-
son,“ sagði Jakob, „og stofnun
hans halda því fram að vorkuld-
arnir 1979 séu veruleg orsök á því
hvað laxinum hefur fækkað tvö
síðustu ár. Við höfum borið þessa
kenningu undir vísindamenn og
þeir hafa sagt að það geti ekki
staðist. Kuldinn getur aðeins tafið
vöxt laxins. Svo er líka annað að
þótt engir vorkuldar hafi verið til
dæmis á írlandi, Skotlandi og
Noregi, hefur veiðin þar fallið
niður eins og á íslandi. Það eru
Færeyjaveiðarnar sem hafa valdið
þessari fækkun í laxastofninum
okkar og það er að svíkja málstað
Islands að halda annað," sagði
Jakob í lokin en hann og dr. Björn
bættu því við að Þorsteinn Þor-
steinsson bóndi á Skálpastöðum í
Borgarfirði, formaður Lands-
sambands veiðifélaga, hafi sýnt
frábæra hæfileika og stjórnvisku
sem formaður könnunarnefndar
um úthafsveiðar á laxi.
— ai.
. lán í gær
og lánsfjáráætlun ríkisstjórnar-
innar.
í fylgd með fjármálaráðherra
við undirskrift samningsins voru
dr. Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóri og Sigurgeir Jónsson að-
stoðarbankastjóri í Seðlabankan-
um, en Seðlabankinn annaðist
undirbúning þessarar lántöku.