Morgunblaðið - 27.02.1982, Síða 21
fyrir þá. En það tókst ekki betur
til en svo að enn vantar einn
dempara. Þeir voru pantaðir frá
Bretlandi og aðeins þrír komu til
landsins. Stendur það því í járnum
hvort Logi kemst í fyrsta rallið í
lok mars. Vélin verður sú sama og
fyrir var, en varahlutir pantaðir
að utan. Mun verða skipt um alla
slitfleti og sérstaklega styrktir
hlutir fengnir fyrir þá gömlu. Mun
heildarkostnaður þess verða um
12.000 krónur. Síðan þarf að inn-
rétta bílinn og koma fyrir öllum
öryggishlutum. Aðeins einn bíll
hefur fengið svipaða meðferð og
bíll Loga, en hann er í eigu Haf-
steins Haukssonar (Escort 2000).
Bíll Ómars og Jóns verður tekinn í
svipaða klössun.
Sem lokaorð á þessari grein er
rétt að minnast á tækifæri, sem
stendur íslenskum rallökumönn-
um til boða. John Haugland, er ók
í Ljóma-rallinu í fyrra sendi fyrir
stuttu bréf þess efnis að tveimur
íslandsmeistararnir Jón og Ómar Ragnarssynir með verðlaunagripi þá sem þeir hafa unnið til.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982^
Jón S. Halldórsson við nýja Porche-bílinn sinn.
Bfll Loga Einarssonar.
ökumönnum væri boðið í keppni í
svokölluðu Skoda-rally í Tékkó-
slóvakíu. Er tveim ökumönnum
boðið uppihald í tíu daga en rallið
stendur í tæpa þrjá daga. Einnig
býðst uppihald fyrir tvo viðgerð-
armenn í fimm daga og er það á
kostnað keppnisstjórnar rallsins.
Ökumenn sem hugsanlega færu
fengju einnig gefins 200 lítra af
bensíni. Skoda-rallið fer aðallega
fram á malbiki. Er sama leið ekin
þrisvar sinnum og hafa ökumenn
rétt á því að skrá leiðina hjá sér
viku fyrir keppni. Alls eru eknir
400 km á sérleiðum. John Haug-
land hefur að auki boðist til að
kenna hugsanlegum ökumönnum
á kerfið sem ekið er eftir í þessu
ralli, en það er frábrugðið röllum
hér heima, þar sem leiðir eru ekki
gefnar upp fyrr en rétt fyrir
keppni hérlendis. Vissulega er
áhugi mikill en vegalengdin til
Tékkóslóvakíu er fráhrindandi.
Jón S. Halldórsson á Porsche-
inum fyrrnefnda hefur þó rætt um
að fara. Að sögn Ólafs Guð-
mundssonar hjá Landssambandi
akstursíþróttamanna er allt
óákveðið með það hver fer fyrir
hönd Islands.
Má með sanni segja að allar dyr
séu farnar að standa íslenskum
raliökumönnum opnar ...
búnir að tapa, standi átökin leng-
ur en einn mánuð.“ Kemur þessi
setning heim og saman við sjón-
armið margra á Vesturlöndum, er
segja, að herfræðikenningar Sov-
étmanna miði að því að heyja
kjarnorkustríð og vinna það.
Margt er fróðlegt í þessari bók
fyrir hinn almenna lesanda, þó
hlýtur hún að hafa meira gildi
fyrir herfróða menn, er átta sig
betur á því, en sá, sem þetta ritar,
hvað felst í nákvæmum lýsingum
á tækjum og búnaði stórskotaliðs
og vélaherdeilda Sovétmanna.
Margar lýsingar höfundar eru
gamansamar, þótt verið sé að
segja frá hinum hátíðlegustu
stundum á ferli hans. Má þar
nefna söguna um það, þegar yfir-
maður pólitísku deildar hersins,
Episév, hershöfðingi, kom og flutti
erindi. Fyrir lá, að hann var orð-
inn gteyminn og utangátta. Hins
vegar brá áheyrendum, þegar
hann las tvisvar sinnum hvert
blað, þar eð hann var bæði með
frumrit og afrit samfest í ræðu-
stólnum. Virtist hann sjálfur ekk-
ert eftir þessu taka, þótt hann yrði
að lesa 40 síður í stað 20. Þessi
atburður gerðist 1969 og 10 árum
síðar gegndi Episév enn sama
embætti.
The Beach Boys:
Kaliforníustrákarn-
ir í ham rokksins
Hljóm-
plotur
ArniJohnsen
Kaliforníustrákarnir The
Beach Boys vaða aldeilis á súð-
um í tveggja plötu albúmi sem
Steinar hf. komu nýlega með á
markaðinn hérlendis og það er
óhætt að mæla með þessari
hressilegu plötu fyrir skalla-
poppara á öllum aldri, því The
Beach Boys hafa langa reynslu
að baki og standa enn í eldlín-
unni þótt nýjabrumið sé farið af
þeim.
The Beach Boys komu til sög-
unnar í kjölfar Bítlanna og hver
sem hefur fylgst eitthvað með
dægurlagatónlist síðustu 20 árin
og sérstaklega rokkinu, kannast
ekki við lög eins og Rock and
Roll Music, Won’tcha Come Out
Tonight, California Saga, eða
Sea Cruise, sem er eitt af fyrstu
alkunnu lögum Kaliforníustrák-
anna?
Ennþá eru þeir félagar á fullri
ferð og hafa aðlagað sig nýjum
tíma þótt stíll þeirra haldi sér,
en þeir eru orðnir fágaðri eins og
„drengjum" á þeirra aldri ber.
The Beach Boys léku m.a. í
mörgum kvikmyndum og þeir
hafa löngum verið vinsælir þar
sem þurfti að koma mannskapn-
um í stuð.
Þessi 28 lög sem þeir leika á
tveimur plötum útgáfunnar eru
flest vinir fólks á öllum aldri og
því óþarfi að fjalla sérstaklega
um þau. Upptökurnar eru við
mismunandi aðstæður, flestar í
upptökusölum af fyrstu gráðu og
sumar hljóðritaðar á tónleikum.
The Beach Boys eru fimm að
tölu. Þeir héldu merki rokksins
lengi á lofti í hópi fremstu flytj-
enda, en þeir hafa löngum þótt
túlka vel hina hlýju og rómuðu
stemmningu Kaliforníu. Þeirra
lína í textum hefur verið sól, ást
og ævintýri, tónn velferðarríkis-
ins. Þeir eru strákarnir af
ströndinni sem þurftu engar
áhyggjur að hafa og eru að því
leyti hið bandaríska andsvar við
Bitlunum sem komu úr verka-
mannahverfunum, höfðu boð-
skap að flytja með textum sínum
og ádeilu, öndvert við strákana
af gylltu ströndinni, Kaliforníu.
„I»að er eitthvað sem kemur, eitthvað sem fer,
eitthvað sem hUer og gra*tur,“
sagði Davíð í einu Ijóða sinna og
þessi plata The Beach Boys er
eitthvað sem hlær í brjósti
manns, hlær á móti gömlum góð-
um dögum þegar rokkið réði
ríkjum í dægurlagatónlistinni og
þungt rokk, brothætt rokk og
röndótt rokk var óþekkt. Það
hefur alltaf verið bjart yfir Kali-
forníustrákunum, þeir létu
vandamálin skolast til hafs, en
sungu og syngja enn um sólina
og vorið á spássitúrnum í gegn
um mannlífið.