Morgunblaðið - 27.02.1982, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982
Uppreisnar minnzt með
tárum í sjónvarpsþætti
London* 26. febrúar. AP.
FYRRVKRANDI hermenn úr 8.
brezka hernum, sem sneru ósigri
upp í sigur við El Alamein í síðari
heimsstyrjöldinni, grétu frammi
fyrir sjónvarpsáhorfendum í gær
kvöldi, þegar þeir sögðu frá því er
þeir voru ákærðir fyrir uppreisn eft-
ir innrásina í Ítalíu fyrir tæpum 40
árum.
Alls neitaði 191 maður að sækja
til vígstöðvanna við Salerno 20.
september 1943. Þetta mál hefur
farið hljótt, en BBC rifjaði það
upp í þætti sínum um söguleg
efni, „Forty Minutes". Málið hafði
í för með sér umfangsmestu her-
réttarhöld þessarar aldar í Bret-
landi.
Menn úr hópi sakborninga, sem
fram komu í þættinum, sögðu að
vegna lélegrar stjórnar hefði
skipunum ekki verið hlýtt og
sækjendur hefðu kosið að kalla
þetta uppreisn. Obreyttir her-
menn voru dæmdir í sjö ára fang-
elsi, undirliðþjálfar í 10 ára fang-
elsi og þrír liðþjálfar til dauða.
Þótt dómarnir væru seinna
felldir niður voru mennirnir
sendir til orrustu, það hlutverk
sem þeim var ætlað jafngilti
sjálfsmorði og þeir fengu það á
tilfinninguna að yfirvöid vildu
koma því til leiðar að þeir yrðu
felldir á vígvellinum. Margir féllu.
Aðrir gerðust liðhlaupar og sátu í
fangelsi unz stríðinu lauk.
Fjölskyldur mannanna fengu
ekki þær bætur sem þeim bar og
heiðursmerki sem þeir höfðu áður
unnið til fyrir hugprýði voru aldr-
ei afhent.
Varnarmálaráðuneytið segir að
málið verði ekki aftur tekið upp
fyrr en 75 árum eftir að atburður-
inn átti sér stað „til að vernda
mennina og fjölskyldur þeirra".
Alan Patient, stjórnandi þáttar-
ins, sagði: „Ráðuneytið mun ekki
viðurkenna sannleikann um hin
augljósu opinberu glappaskot fyrr
en allir sem hlut áttu að máli eru
dauðir."
BBC fór með Wally Innes lið-
þjálfa og tvo aðra sem komust af,
John McFarlane, sem var óbreytt-
ur, og Hugh Fraser, fyrrverandi
undirliðþjálfa, til vígstöðvanna
við Salerno þar sem þeir neituðu
að hlýða skipunum.
Þeir minntust þess að þeir voru
settir í „búr“ stríðsfanga við hlið-
ina á þýzkum föngum, sem hróp-
uðu að þeim: „Brezku bleyður."
Einn þeirra sagðist hafa fengið
þýzkumælandi fanga til að hrópa
á móti: „Við erum sömu bleyðurn-
ar og eltu ykkur 3.000 mílur frá
Alamein til Sikileyjar."
Undirrót uppreisnarinnar var
hefðbundin tryggð brezkra her-
manna við herdeildir sínar og fé-
laga. Mennirnir voru úr Hálanda-
og Durham-herdeildinni og höfðu
hvílzt í búðum í Tripoli eftir her-
ferðina á Sikiley, þar sem þeir
höfðu særzt, þegar þeir buðu sig
fram sem sjálfboðaliða í sveitum
sínum, sem áttu að taka þátt í
innrásinni í Italíu.
Þegar þeir voru á rúmsjó var
þeim sagt að þeir yrðu hluti af
liðsauka í orrustunni við Salerno
og yrðu ekki sendir aftur til sveita
sinna. Af einhverjum ástæðum
hafði upphaflega skipunin, sem
þeir áttu að fá, farið ranga boð-
leið.
Innes, McFarlane og Fraser
sögðu að vegna þjálfunar sinnar
hefðu þeir ekki getað hugsað sér
að leggja út í orrustu þar sem líf
þeirra væri komið undir ókunnug-
um mönnum við hlið þeirra. Þeir
voru einangraðir frá sveitum sín-
um og gerðu verkfall — og gjaldið
sem þeir urðu að greiða þjakar þá
enn.
Innes sagði að hann hefði aldrei
losnað við ragmennsku-stimpil og
pískrið hefði aldrei þagnað. Enn
þann dag í dag heyrir hann hvísl-
að þegar hann fer inn á bar: „Sjá-
ið hann, hann var dæmdur til
dauða."
McFarlane var sviptur orðu
fyrir vasklega framgöngu og kona
hans og börn stóðu uppi pen-
ingasnauð. McFarlane grét þegar
hann sagði: „Þetta eru allar þakk-
irnar sem ég fékk frá brezka
hernum ... fjölskylda mín var
ofsótt... þeir voru eins slæmir og
Þjóðverjarnir. Þeir brutu mig
niður.“
Foringjar, sem voru verjendur
og sækjendur í herréttarhöldun-
um, sögðu í sjónvarpsmyndinni að
málið hefði verið mistök og köll-
uðu það sorglegan kafla í sögu
brezka hersins. Patient sagði að
sumir mennirnir hefðu beðið
Elísabetu drottningu um náðun,
en verið sagt að ekkert væri hægt
að gera.
Robert Mugabe
Nkomo lík-
lega sótt-
ur til saka
l/ondon, 26. febrúar. Al*.
ROBERT Mugabe forsætisráðherra
/imbabwe sagði, að töluverðar líkur
væru fyrir því að Joshua Nkomo, sem
hann rak nýverið frá völdum, yrði
sóttur til saka fyrir tilraun til bylt-
ingar.
Nkomo var settur af í síðustu
viku, ásamt þremur öðrum ráðherr-
um Zapu, eftir að vopnabúr fundust
á búgörðum, sem tilheyrðu honum
og flokki hans. Nkomo hefur neitað
að hafa haft uppi áform um stjórn-
arbyltingu, og ennfremur segist
hann ekki hafa vitað um tilvist
vopnanna.
Að sögn lögreglunnar í Salisbury
fundust fjögur vopnabúr til viðbót-
ar í þessari viku, og voru þau öll á
Hamilton-búgarðinum skammt frá
borginni Gwelo. Nkomo á búgarð-
inn.
Sirkushneyksli f Moskvu:
Góðvinur dóttur Brezhnevs
handtekinn fyrir mútuþægni
Gífurlegir rekstrarerfíðleikar hafa hrjáð DeLorean sportbílaverksmiðjurnar á
Norðurírlandi, sem skiptaráðendur, skipaðir af stjórn Margrétar Thatcher,
hafa tekið til meðferðar. Hinir dýru glæsivagnar hafa selzt illa, enda í háum
verðflokki, en þessi svipmynd er frá verksmiðjulóðinni, þar sem bifreiðarnar
hafa hrannazt upp.
Tyrkland:
44 handteknir
Istanbul, 26. febrúar. Al*.
YFIRVÖLD fyrirskipuðu handtökur
44 manna í dag fyrir aðild að ólög-
legum félögum, þeirra á meðal for
manns lögmannafélagsins og fyrr
verandi sendiherra.
Handtökutilskipun var gefin út á
þriðjudag, en ekki látið til skarar
skríða fyrr en í dag vegna deilu milli
lögreglunnar og herstjórnarinnar.
Hinum handteknu er gefið að
sök að hafa verið félagar í tyrkn-
esku friðarnefndinni, sem studdi
stefnu yfirvalda í Moskvu. Nefnd-
in var stofnuð fyrir sex árum, en
bönnuð eftir byltingu herforingja-
stjórnarinnar í september 1980.
Orhan Apaydin, formður lög-
mannafélagsins, var helzti lög-
maður 52 verkalýðsleiðtoga, sem
nú eru fyrir rétti, en þeim hefur
m.a. verið gefið að sök að hafa
haft byltingaráform á prjónunum.
Hefur því verið haldið fram að
fangelsun Apaydins sé tilraun af
hálfu yfirvalda til að koma í veg
fyrir varnir af hálfu verkalýðs-
leiðtoganna, en margir lögfræð-
ingar, sem hafa varið mál verka-
lýðsleiðtoganna, hafa verið fjar-
verandi á ýmsum tímum réttar-
haldanna, til þess að mótmæla
takmörkun á störfum þeirra við
réttarhöldin.
Moskva, 26. febrúar. Al*.
LÖGREGLAN í Moskvu hef-
ur handtekið framkvæmda-
stjóra aðalsirkuss borgarinn-
ar og innsigiað húsakynnin,
meðan rannsókn fer fram í
máli framkvæmdastjórans.
Hann er grunaður um að
vera viðriðinn fjársvik og
mútur, og meðal annars þeg-
ið stórfé í erlendum gjald-
eyri.
Framkvæmdastjórinn sem
heitir Anatoly Kolevatov er
sagður vera náinn vinur Galinu
Brezhnevsdóttur. Virðist hún
hafa kynnzt Kolevatov í gegnum
tvo fyrrverandi eiginmenn sína,
sem báðir voru sirkuslistamenn.
Auk þess að hafa dregið sér fé
og þegið mútur er Kolevatov
sakaður um að hafa gefið lista-
mönnum leyfi til að fara utan og
útvega sér á þann hátt erlendan
gjaldeyri og varning af ýmsu
tagi sem er sjaldséður í Sovét-
ríkjunum.
Þegar Kolevatov var handtek-
inn fannst um ein milljón doll-
(«enf, 26. febrúar. AP.
ÝMIS flugfélög er aðild eiga að
IATA hafa komist að samkomulagi
um að hækka fargjöld á AtlanLshafs-
flugleiðinni milli sjö og tíu prósent í
aprflmánuði, að sögn talsmanns
IATA. Hækkanirnar þurfa að hljóta
staðfestingu ríkisstjórna viðkomandi
landa.
Um er að ræða flug milli Banda-
ríkjanna annars vegar og Austur-
ríkis, Búlgaríu, Tékkóslóvakíu,
Gíbraltar, Ungverjalands, Ítalíu,
Möltu, Póllands, Danmerkur, Nor-
egs, Svíþjóðar, Tyrklands og Sov-
ara í íbúð hans og er það sagt
vera aðeins brot af því sem hann
hefur dregið sér.
étríkjanna hins vegar, að sögn
IATA.
Um það bil 85% allra áætlunar-
ferða á Atlantshafinu falla undir
ákvæði IATA, en það er utan
verkahrings samtakanna að
ákvarða fargjöld milli Bandaríkj-
anna og Frakklands, Spánar,
Grikklands, Finnlands og Júgó-
slavíu.
Þessi ákvörðun er í samræmi við
þá ákvörðun IATA á fundi í Holly-
wood í síðasta mánuði, að hækka
fargjöld á Atlantshafinu frá Bret-
landi, Sviss, Portúgal, Belgíu,
V-Þýzkalandi og Hollandi.
Grófu særða indíána
Wa.shington, 26. febrúar. Al*.
FIJLLTRÚI Ronald Reagans
Bandaríkjaforseta í mannréttinda-
málum, Klliott Abrams, lét svo um
mælt í dag, að sveitir Sandinista-
stjórnarinnar í Nicaragua hafi að
líkindum greftrað fólk lifandi í
árás á 42 þorp indíána í austur-
hluta Nicaragua.
Elliott Abrams sagði, að af um
eitthundrað indíánaþorpum i
austurhluta Nicaragua, hefðu 42
verið brennd og lögð í rúst af
sveitum stjórnarinnar. „Við höf-
um þungar áhyggjur af öllum kúg-
unaraðgerðum Sandinistastjórn-
arinnar, en hinar villimannslegu
aðgerðir hennar gagnvart Mis-
kito-, Sumo- og Rama-indíánum
taka þó öllu öðru fram hvað við-
bjóð snertir," sagði Abrams. „Við
höfum fyrir því sannanir, að her-
menn Sandinista-stjórnarinnar
hafi grafið illa særða indíána lif-
andi.“
Abrams sagði stjórnvöld í Nic-
aragua hafa viðurkennt að um
8.500 Miskito-indíánar hefðu verið
neyddir til að flytja af svæðum
sínum og blandast borgarbúum
annars staðar í landinu.
Þá sagði Abrams, að Sandin-
ista-stjórnin, sem komst til valda
1979, hefði stöðugt færst nær
ráðamönnum í Moskvu og væri
lifandi
landið á góðri leið með að komast
á yfirráðasvæði Sovétríkjanna.
Stafaði allri Mið-Ameríku stór-
hætta af Nicaragua, sem orðið
hefði að griðlandi uppreisnar-
manna frá öðrum Mið-Ameríku-
ríkjum. Væri árásum á nágranna-
ríkin stjórnað frá Nicaragua. Þá
væri her Nicaragua langtum öfl-
ugri en varnarhagsmunir landsins
réttlættu.
IATA hækkar á
Atlantshafinu