Morgunblaðið - 27.02.1982, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982
Police ætla aö styrkja Freddie Laker í baréttu hans viö að komast á
réttan kjöl á ný.
Lögreglutríóið styður
við bak Freddie Laker
Umboösmaður Police til-
kynnti það fyrir skömmu að
hljómsveitin hygðist halda
20.000 manna hljómleika í Los
Angeles til styrktar konungi
lágu fargjaldanna, Freddie
Laker. Einnig ætla þeir félag-
ar að láta meira af hendi
rakna til endurreisnar flugfó-
lags hans. Ástæöan fyrir
þessum áhuga Police á
flugmálum er sú, að þeir
þakka Laker aö töluveröu
leyti hversu langt þeir hafa
náð í rokkheiminum.
„An lágu fargjaldanna sem
hann bauð á sínum tíma hefð-
um viö aldrei komist til Banda-
ríkjanna, og ég efast um að
hljómsveitin vaeri enn starf-
andi, heföum við ekki komist
þangað,“ segir umbinn. Og
hann heldur áfram: „Police
hafa alltaf reynt að ferðast
með „airbus“ Lakers þegar
þeir hafa komið því viö og
segjast vonast til aö geta hald-
ið því áfram." Segiö svo, aö
popparar hafi ekki áhuga á
fleiru en bara rokki. BV
m
Þú og ég
söngdúettinn,
Jóhann Helga-
son og Helga
Möller. Flest
bendir nú til
þess aö þau nái
umtalsverðum
vinsældum í
Japan.
Fjórða landreisa Þursanna
- ný plata kemur út núna um helgina
Nu um helgina kemur fjórða Þursa- Skógum. 16,—26. mars Reykjavík
flokksplatan út. Hún heitir „Gæti og nágrenni.
eins verið ...“ og er gefin út af þeim
sjálfum, en Steinar annast dreifingu.
Samhliða útgáfu plötunnar
leggur flokkurinn upp í sína
fimmtu landreisu, og munu þeir
spila á eftirtöldum stöðum:
Sun. 28. feb. Félagsheimilinu
Húsavík, mán. 1. mars Héraðs-
skólanum Laugum, þri. 2. mars
Stórutjarnarskóla, mið. 3. mars
Menntaskólanum Akureyri, fim. 4.
mars Dynheimum Akureyri, fös. 5.
mars Félagsheimilinu Bifröst
Sauðárkróki, lau. 6. mars Hér-
aðsskólanum Reykjum Hrútafirði,
mið. 10. mars Valaskjálf Egils-
stöðum, fim. 11. mars Héraðsskól-
anum Eiðum, fös. 12. mars Egils-
búð Neskaupstað. lau. 13. mars
Herðubreið Seyðisfirði, sun. 14.
mars Sindrabær Höfn Hornafirði,
mán. 15. mars Héraðsskólanum
91% útvarpshlustenda kunni vel að meta...:
Framavonir Þú & Ég
taka stórt stökk í Japan
Velgengni söngdúettsins Þú og ég viröist ætla að veröa meiri en nokkurn óraöi fyrir á Japansmark-
aði. Strax í fyrstu atlögu seldust 50.000 eintök af lítilli plötu dúettsins og var hún þó einungis kynnt í
norðurhluta eyjunnar í austri. Nú hafa hins vegar borist mun glæsilegri tíöindi.
Epic/Sony samsteypan í Japan gerði fyrir nokkru hlustendakönnun á tónlist Þú og óg og varö útkoman
meö ólíkindum sterk. Af þeim, sem spuröir voru, svöruðu 91% hlustenda á þá leið aö þeir kynni vel aö
meta framlag þeirra Jóhanns Helgasonar og Helgu Möller. Aöeins 9% voru ekki sátt viö tónlistina.
Bandaríska tónlistartímaritiö Billboard greinir frá þessu í nýjasta heftinu. Þar segir aö þegar viötökurn-
ar hafi veriö í líkingu viö þetta hjá öörum aðilum hafi plötusalan fariö í 800.000 eintök. Til aö styrkja þetta
enn frekar nefnir blaöiö aö 83% jákvæö svör hafi gefiö af sér 500.000 eintök í plötusölu. Ef marka má
þessi tíöindi á dúettinn meira en litia sölu fyrir höndum á eyju sólarinnar í austri.
Epic/Sony samsteypan mun á næstu mánuöum auka útbreiösluherferöina enn frekar og stefnt er aö,
tónleikaferö Heigu og Jóhanns um Japan síðar á þessu ári. Vinsældir þeirra eru þegar farnar aö segja til
sín og til marks um þaö má nefna aö þau Jóhann og Helga hafa fengiö póst frá aðdáendum í Japan.
Undirbúningur aö nýrri breiöskífu Þú og ég er nú í fullum gangi og mun hún veröa tekin upp i London
í aprílmánuöi. Geoff Calver, sem íslenskum hljómlistarmönnum er aö góöu kunnur, kom til landsins fyrir
stuttu og tók upp 20 lög til reynslu. Þau veröa síöan send Epic/Sony í Japan og mun fyrirtækiö aö mestu
ráöa því hvaöa lög veröa á plötunni, sem fer á Japansmarkaö. _sSv.
Molar af hljómboröum popparanna..
Gary Numan dregur allar
fyrri yfirlýsingar til baka
— innlendir og erlendir popppunktar í úrvali
Jóhann Helgason hefur átt
vinsældum aö fagna, sem söngv-
ari, um langt skeiö. Nýjasta fram-
lag hans, Tass, hefur selst prýöi-
lega og fyrir stuttu voru undirrit-
aöir samningar i London þar sem
Sp>ectra-útgáfufyrirtækiö mun
gefa út tveggja laga plötu meö
lögum af Tass. Eru þaö lögin Take
your time og Burnin’ love, sem
þrykkt veröa í plast.
Þursaplatan nýja, sem nefnist
Gæti eins veriö ... mun vera
væntanleg innan skamms. Flokk-
urinn gefur plötuna út sjálfur og
var hún tekin upp í stúdíói þeirra,
Grettisgati. Innan skamms mun
flokkurinn halda í tónleikaferö um
landið — þá fjóröu á jafnmörgum
árum.
Áætlað er aö plata Bubba
Morthens og fólaga í Egó komi út
í aprilmánuöi. Mun flokkurinn þá
einnig leggja land undir fót og lofa
lýönum aö sjá og heyra hvaö hef-
ur verið aö gerast undanfariö.
Upptökum á plötu Egó er lokið og
ef marka má þaö, sem undirritaö-
ur hefur þegar heyrt af henni, er
hér á feröinni enn eitt athyglisvert
framlag Bubba til íslenskrar
popptónlistarsögu og sannast
sagna gerólikt því, sem hann hef-
ur áöur látið frá sór fara.
- O -
Einhver Ijón munu hafa sest í
leiö Human League-fólkins, sem
ætlaöi aö heimsækja mörlandann
í aprílbyrjun. Þrír fyrstu dagarnir í
tónleikaferö hljómsveitarinnar eru
ennþá ætlaöir íslandi en vanda-
máliö er nú hvernig er hægt só aö
flytja 8—10 tonn af tækjabúnaði
og 14 manna liö á sem hagkvæm-
astan hátt til landsins. Mun Hu-
man League koma hingaö til
lands á vegum Þorsteins Viggós-
sonar ef af veröur.
— O —
Innan skamms mun líta dags-
ins Ijós tveggja laga plata meö
hljómsveitinni Spilafífl, sem starf-
andi hefur veriö um nokkurt
skeiö. Spilafífl er nokkuö sterkur
flokkur og gæti komlö hraustlega
á óvart. Upptakan varö gerö i
Stúdío Stemmu sl. sumar.
— O —
Ekki er langt síöan þær sögur
gengu fjöllunum hærra að plötu-
Mark Knopfler f Dir® Straits.
pressunarfyrirtækiö Alfa f Hafnar-
firöi rambaði ótæpilega á brún
gjárinnar á milli lifs og dauða.
Fylgdi og sögunni aö starfsfólkið
heföi allt gengiö út. Fyrirtækiö
mun reyndar ekki vera búið aö
leggja up laupana, en brestir
munu hafa komiö fram í rekstri
þess. M.a. gekk illa aö standa viö
geröa samninga í desembermán-
uöi.
Hótelin vildu ekki Alice Cooper.
Enska tónlistarblaðiö Melody
Maker, sem reyndar má muna
sinn fifil fegurri, greinir frá þvi í
nýlegu tölublaöi, aö ekki só nema
von aö plötuverð sé jafnhátt og
raun ber vitni. Á MIDEM-ráöstefn-
unni, sem nýlokiö er í Cannes í
Frakklandi, voru eigi færri en
5000 kampavínsflöskur opnaðar
(og innihaldiö væntanlega drukkið
líka) kvöldið, sem ráðstefnan