Morgunblaðið - 27.02.1982, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982
„Sá yðar er
syndlaus er,
U
Á myndinni eru þeir sem tóku þátt í könnuninni.
Krossinn gengst fyrir
skoðanakönnun f Kópavogi
KRISTILEG samtök sem nefna
sig Krossinn og hafa aðsetur í
Kópavoginum gengust nýlega
fyrir skoðanakönnun, sem lögð var
fyrir 516 aðila í Kópavoginum og
víðar. Markmiðið með könnuninni
sögðu þeir Gunnar Þorsteinsson
og Sverrir Armannsson fulltrúar
safnaðarins vera að kynnast við-
horfum fólks til hinna ýmsu mála,
en alls voru lagðar fyrir þátttak-
endur 7 spurningar. Gengið var í
hús að handahófi, og oftast tekið
viðtal við einn heimilismanna, í
sumum tilfelium voru þó tveir eða
fleiri spurðir. Spurningalistann
sömdu meðlimir safnaðarins, og
önnuðust þeir einnig framkvæmd
könnunarinnar.
Krossinn er frjáls og óháður
söfnuður, sem starfað hefur í um 3
ár, og byggir að sögn forráða-
manna á sömu grundvallarkenn-
ingum og aðrir kristnir söfnuðir í
landinu.
Meðlimir safnaðarins eru á
milli 60 og 80.
Hér á eftir fer spurningalistinn
og niðurstöður svara:
JA 'í. \tl i
* c
i i. %
1. Margir þjóöarleiötogar og fólk í oddastöð-
um telur að þróun heimsins stefni í
stjórnleysi. Ert þú sammála?
303 58,7 122 23,6 91 17,7
2. Telur þú að heimurinn sé að nálgast lausn
vandamála sinna?
46 8,9 415 81 53 10,1
3. Margir telja að félagsleg vandamál okkar
séu að nálgast alvarlegt stig.
1. Eiturlyfjaneysla unglinga.
2. Vaxandi fjöldi glæpa.
3. 513 fóstureyðingar á árinu 1981.
4. Vaxandi fjöldi óskilgetinna harna. ?
Telur þú þetta vera alvarleg félagsleg
vandamál?
416 82,2 46 9,1 44 8,7
4. Marnir telja að hér sé bæði þjóðar- og
alheimsvandi á ferðum. Telur þú að við (þú og ég) berum persónulega ábyrgð? 327 63,5 111 21,5 77 15
5. Margir þjóðarleiðtogar, vísindamenn,
hernaðarsérfræðingar og biblíufræðarar
telja, að lok þeirrar heimsmyndar sem við 133 25,9 259 50,4 122 23,7
þekkjum, sé fyrir dyrum. Ert þú sammála? -
H. Fólk úr hinum ýmsu trúarsamfélögum
talar um endurkomu Jesú Krists og upp-
fytlingu biblíuspádóma, t.d. eldsumbrot,
jarðskjálfta, kjarnavopn og stöðu Israels
í yfirvofandi olíustríði.
He.'ur þetta hvarflað að þér við frétta-
flutning fjölmiðla?
118 23 289 56,4 106 20,6
7. Hefur þú áhuga á því sem þjóðarleiðtog-
ar, vísindamenn, hernaðarsérfræðingar
og biblíuspádómar segja um þau tímamót
sem eru fram undan?
281 55,3 131 25,8 96 18,9
34
Eiðfaxi
kominn út
MORGUNBLAÐINU hefur bor
ist tímaritið Eiðfaxi, fyrsta tölu-
blað 1982, og er ritið fjölbreytt að
efni seni fyrr.
Greinar eru í Eiðfaxa um
hrossarækt og hestamennsku,
og eru höfundar efnis meðal
annarra Kári Arnórsson, Guð-
björg Kristinsdóttir, Eyjólfur
ísólfssoh, Páll S. Pálsson,
Kristján Eldjárn, Þorkell
Bjarnason, Sigurður Sig-
mundsson, Þórir Isóifsson, Pét-
ur Behrens, Sigurður Krist-
insson, Guðmundur Jónsson og
fleiri.
Ritstjórnarfulltrúi Eiðfaxa
er Sigurður Sigmundsson,
Syðra-Langholti. Forsíðumynd
1. tbl. þessa árs er tekin af Sig-
urði.
Athugasemd:
Hljómplötuumsögn
í IJMSÖGN um hljómplötuna
Human League í Morgunblaðinu
sl. fimmtudag var rangt nafn sett
við greinina, en það var Árni
Johnsen sem skrifaði þann hljóm-
plötuþátt.
Leiðrétting
í MYNDATEXTA, sem fylgdi
mynd af stjórn Coldwater Seafood
Corp. í afmælisblaði um SH, sem
fylgdi Morgunblaðinu á fimmtu-
dag, féll niður að Eyjólfur ísfeld
Eyjólfsson á sæti í stjórninni.
Robert Hunt, predikari frá USA
verður fyrirlesari á samkomum
Krossins næstu kvöld kl. 20.30 að
Auðbrekku 34, Kópavogi, en þar
verða lögð til grundvallar rök vís-
indamanna, fréttir fjölmiðla og
spádómar biblíunnar um ástandið
í heiminum í dag og á næstu árum.
„Einhvers konar
ögrun“
„Þrátt fyrir þetta mega menn
ekki gleyma því að aðalatriðið er,
að Sjálfstæðisflokkurinn vinni
glæsilegan sigur í borgarstjórn-
arkosningunum í vor og vil ég
skora á alla að láta þetta atvik og
mistök fundarstjórans ekki bitna
á Sjálfstæðisflokknum, heldur
vinna að því að tryggja meirihluta
flokksins í kosningunum. Það væri
illt til þess að vita, ef samstaða til
sigurs koðnaði niður vegna mis-
taka í fundarstórn." (G.N. Mbl.
18.2.’82.)
„Leiðinleg iðja“
„Þessi lokaorð GúStafs verða
ekki túlkuð á annan veg en ein-
hvers konar ögrun, með þeim skip-
ar hann sér í þann hóp manna, er
leggur stund á þá leiðinlegu iðju
að lýsa hollustu við Sjálfstæðis-
flokkinn en hafa samt í hótunum."
(Staksteinar Mbl. 20.2.’82.)
Ofangreind tilvitnun í stak-
steina Morgunblaðsins varð undir-
rituðum vægast sagt mikið undr-
unarefni. Nú er það svo að þó
Reykjavík sé aðeins eitt af sveit-
arfélögum landsins er það jafn-
framt hið stærsta. Þegar listum
stjórnmálaflokkanna er stillt upp
fyrir borgarstjórnarkosningar
vekur það eftirtekt um land allt.
Mesta athygli sjálfstæðismanna
vekur auðvitað framboð Sjálf-
stæðisflokksins. Fulltrúaráðs-
fundarins hinn 11. febrúar sl., var
því beðið með nokkurri eftirvænt-
ingu, svo og frétta þar af. Sjálf-
stæðismenn um land allt vilja veg
flokks síns sem mestan, ekki síst í
Reykjavík.
I leiðara Morgunblaðsins þ. 13.
sl., stærsta dagblaðs þjóðarinnar
og ötulasta málsvara sjálfstæð-
isstefnunnar, birtist frásögn af
umræddum fulltrúaráðsfundi.
Frásögn af tillöguflutningi þar
kom spánskt fyrir sjónir margra
og þá helst orðalagið á einni máls-
grein.
Hinn 18. febrúar sl., ritar einn
af þeim mönnum, sem lengi hefur
verið í framvarðarsveit ungra
sjálfstæðismanna, Gústaf Niels-
son, grein í Morgunblaðið og lýsir
þar frá sínum sjónarhóli því sem
gerðist á fundinum, svo og skoð-
unum sínum á fundarstjórn.
Greinin var hógværlega rituð og í
lok hennar hvetur Gústaf alla
sjálfstæðismenn til að standa
saman að glæsilegum sigri. Það
kallar staksteinahöfundur (nafn-
laus) leiðinlega iðju. Lestur stak-
steina varð til þess að undirritað-
ur las aftur grein Gústafs og nú
vandlega í leit að ögrun eða hótun.
Morgunblaðið, hinn stóri máls-
vari sjálfstæðisstefnunnar, varð
ekki hið sama í huga mínum. Ung-
ur maður, einn af baráttumönnum
sjálfstæðisstefnunnar í mörg ár,
maður sem einarðlega hefur mætt
andstæðingum flokksins margoft
og haldið á loft merki Sjálfstæðis-
flokksins ritar grein í Morgun-
blaðið og lýsir skoðun sinni og
vilja allra sjálfstæðismanna þ.e.
að meðbyr okkar verði tilefni í
glæstan sigur.
Staksteinahöfundur lýsir þessu
á ofangreindan hátt þ.e. tilvitnun
nr. 2. Fjarstaddur sjálfstæðismað-
ur, sem vill flokki sínum vel, en
jafnframt hreinskilna og opna
umræðu hlýtur að spyrja margra
spurninga. Ein gæti verið eftirfar-
andi: Hvar er nú hið margrómaða
skoðanafrelsi, sem sagt er að
skorti austantjalds? „Sá yður sem
syndlaus er kasti fyrsta steinin-
um.“
Megi Sjálfstæðisflokkurinn
standa sameinaður og vinna
glæsilegan sigur um land allt.
Olafur Helgi Kjartansson.
■ ■
TVO HOTELINOREGI
óska eftir starfsfólki
HOTíLvARL
055-11 933
Voss
Staösett í miöpunkti Voss,
fallegt útsýni til fjalla og áa.
Voss er einn þekktasti ferða-
mannastaöur í Nóregi á milli
hinna þekktu fjaröa Harö-
angursfjaröar og Sognfjarðar
— miklir möguleikar til úti-
vistar. Auðvelt aö komast til
okkar, þar sem Voss er á
Bergen/Oslo línunni og á
E-68.
Eldhús
Með eða án réltinda, en áhugi fyrir
matreiðslu og hreinlæti.
Matsalur/vínstúka
Góðir möguleikar fyrir þá sem vilja
kynnast nýju fólki.
Herbergi
Möguleiki á sveigjanlegum vinnutima.
Ráðning frá 1. maí eða seinna. Sumar-
vinna og heilsársvinna. Utvegum hús-
næöi.
Skrifið eða snúið yður til:
Dir. Per Mæland.
Strand
Hotel og Motel
055-26 305
(Jlvik
I hinni fallegu Ulvik, sem er
viö Harðangursfjörö er
Strand, með útsýn yfir fjöll og
firöi. Þetta er hiö rétta hótel
til aö fá góöa hvíld og endur-
nærast. Ulvik er í nágrenni
viö mestu ferðamannaleiðir
og er þar af leiðandi kjörinn
sem náttstaður í hringferö-
um.
Hóteliö býöur þægindi og
góöan mat og þersónulega
þjónustu.
ULVIK OG VOSS
.Hreint loft, kristaltært vatn, langt í burtu frá iðnaði og stressi.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Síðastliðinn mánudag lauk að-
alsveitakeppni BH. Sigurvegari
varð sveit Kristófers Magnús-
sonar, en auk hans spiluðu í
sveitinni Björn Eysteinsson,
Guðbrandur Sigurbergsson,
Guðmundur Sv. Hermannsson
og Þorgeir Eyjólfsson.
Úrslit urðu:
Kristófer Magnússon 193
Aðalsteinn Jörgensen 186
Sævar Magnússon 137
Ólafur Gíslason 126
Guðni Þorsteinsson 123
Sigurður Emilsson 123
Meðalskor 110.
Næstkomandi mánudag hefst
svo einmenningskeppni félagsins
en hún er jafnframt firma-
keppni. Keppni þessi verður tvö
kvöld. Allir þeir sem áhuga hafa
á að mæta eru velkomnir. Spila-
mennska hefst stundvíslega
klukkan hálf átta í hinu nýja fé-
lagsheimili i íþróttahúsinu við
Strandgötu.
Reykjanesmót í
sveitakeppni
Reykjanesmót í sveitakeppni
verður haldið 6. og 7. mars. Þeim
sveitum sem hafa hug á að vera
með í þessu móti er bent á að
hafa samband við stjórn bridge-
félaganna. Ekki er endanlega
vitað hvar mótið fer fram en það
verður auglýst síðar. Þess má
svo geta að þetta mót er jafn-
framt undankeppni fyrir ís-
landsmót, en þar á Reykjanes 4
sveitir.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Eftir að spilaðar hafa verið
fimm umferðir í Barometer-
keppni með þátttöku 26 para, eru
efst eftirtalin pör:
Jón Stefánsson —
Þorsteinn Laufdal 83
Óli Andreasson —
Sigrún Pétursdóttir 66
Garðar Þórðarson —
Guðmundur Ó. Þórðarson 51
Guðmundur Aronsson —
Sigurður Ámundason 36
Gísli R. Stefánsson —
Sigrún Sigurðardóttir 34
Guðmundur Eiríksson —
Sverrir Kristinsson 33
Næstu umferðir verða spilað-
ar þriðjudaginn 2. marz 1982.
Spilað verður í Drangey, Síðu-
múla 35 og hefst keppni kl. 19.30
stundvíslega.