Morgunblaðið - 12.03.1982, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.03.1982, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1982 Kosningar til Stúdentaráðs: Vaka og umbótasinnar bættu við sig manni SamsUiTslistarnir í Stúdentaráði lláskóla íslands, A-listi Vöku og C-listi umbótasinnadra stúdenta, bættu við sig einum manni í Stú- denUráði, en kosningar til ráðsins fóru fram í gær. LisUrnir höfðu 16 menn í Stúdentaráði, en hafa nú 17. B-listi vinstrisinna hafði 14 menn í ráðinu en hefur nú 13. Urslit kosninga til Stúdentaráðs urðu: A-listi Vöku hlaut 534 at- kvæði, eða 31,9% atkvæða og 4 menn kjörna. B-listi vinstrimanna hlaut 688 atkvæði, eða 41,2% og 6 menn kjörna og C-listi umbóta- sinna hlaut 449 atkvæði, eða Flugumferðar- stjóramálið: „Gríp inn í málið 26,9% og 3 menn kjörna. Kjörsókn var 47,7%. Úrslit kosninga til Há- skólaráðs urðu þau, að A-listi hlaut 562 atkvæði og 1 mann kjör- inn, B-listi 729 atkvæði og 1 mann kjörinn og C-Iisti 391 atkvæði og engan mann kjörinn. „Við í Vöku erum mjög ánægð með þessi úrslit, því Vaka og um- bótasinnar bæta við sig manni. Við höfum nú 17 menn í Stúdenta- ráði en höfðum 16 í fyrra. Hins vegar hafa vinstri menn unnið mann af umbótasinnum. Það er greinilegt, að félagshyggjumenn sem stutt höfðu umbótasinna hafa snúið við blaðinu og farið til vinstrimanna. Því standa Vaka og umbótasinnar, ef þeir ætla að halda áfram meirihlutasamstarfi sínu, sterkari en áður og það telj- um við meginniðurstöðu þessara kosninga," sagði Atli Jónsson, formaður Vöku, í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Mvnd Mbl.: RAX. Um þessar mundir starfar fjölmennt lið frá BBC að því að kvikmynda leiðangur Shakletons til SuðurskauLsins. Kvikmyndatökur fara fram í Angmagssalik á Grænlandi. Að undanförnu hafa staðið yfir flutningar til Græn- lands og hafa Grænlandsflug og Leiguflug Helga Jónssonar annast flutninga. í vikunni“ - segir samgönguráðherra „JÁ, ÞAÐ er komið í slæma klemmu og ég mun grípa inn í málið í vik- unni,“ sagði Steingrímur Her mannsson samgönguráðherra, er Mbl. spurði hann i gær, hvað gert yrði í svokölluðu flugumferðarstjóra- máli. Kkki vildi Steingrímur tjá sig frekar um til hvaða ráða hann myndi grípa. Málið fjallar, eins og komið hef- ur fram í fréttum, um flugumferð- arstjóranema, sem neitað hefur verið um að fá mat á prófum sín- um, þar sem stúdentsprófskírteini hans hafði verið breytt á þann veg að einkunn hafði verið hækkuð. Mál þetta hefur m.a. verið sent rannsóknarlögreglunni til athug- Flugleiðir óska eftir mati á eignum Iscargo Meirihluti stjórnar Arnarflugs hefur skrifað undir kaup- samning við Iscargo og félagið skilað flugleyfum sínum Á stjórnarfundi Flugleiða í gær var samþykkt að fara fram á að óvilhallir menn verði fengnir til að meta þær eignir Iscargo, sem meirihluti stjórnar Arnarflugs samþykkti á fundi sl. mánudagskvöld að keyptar yrðu af Iscargo. Minningarathöfn MINNINGARATHÖFN um Krist- ján K. Yíkingsson, lækni, sem fórst við björgunarstörf er belgíski togar inn Pelagus strandaði við Vest- mannaeyjar, fór fram í Landakirkju í gær. Prestur var séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson. Á morgun fer fram minningar- athöfn um Kristján K. Víkingsson í Neskirkju í Reykjavík og hefst hún kl. 11. í frétt sem Mbl. barst í gær frá Arnarflugi segir, að samkomulag hafi verið undirritað milli stjórna Arnarflugs og Iscargo um kaup Arnarflugs á verulegum hluta eigna Iscargo fyrir 29 millj. króna. Hefur Iscargo þar með hætt flug- rekstri og skilað flugleyfum sínum til samgönguráðuneytisins. Hefur Arnarflug sótt um að fá þessum leyfum úthlutað og er sú umsókn nú í umfjöllun hjá ráðuneytinu. Steingrímur Hermannsson tjáði Mbl. í gær að hann myndi í dag eiga fund með Flugleiðamönnum vegna áætlunarflugleyfa til meg- inlands Evrópu og kvaðst hann vonast til að mál þessi leystust með samningum Arnarflugs og Flugleiða. Eignirnar sem Arnarflug kaup- ir eru: Lockheed Electra flugvél með varahlutum, allar húseignir Iscargo á Reykjavíkurflugvelli með tilheyrandi búnaði og réttind- um og tækjabúnaði vegna flug- afgreiðslu. Þá var samið um að Iscargo leggi Arnarflugi til eina flugáhöfn á Lockheed vélina, flug- stjóra, flugmann og flugvélstjóra til að annast fyrirliggjandi verk- efni. Gildir samningurinn til júní- loka og jafnframt hafa starfs- menn Arnarflugs hafið könnun á nýjum verkefnum fyrir Lockheed Electra flugvélina. Fulltrúar Flugleiða í stjórn Arnarflugs vildu ekki samþykkja kaupin og báðu þeir um frest til að leggja málið í heild fyrir stjórn Flugleiða. Var því hafnað, en á stjórnarfundi Flugleiða í gær lögðu þeir fram greinargerð sína um kaup Arnarflugs á tilteknum eignum Iscargo. Samþykkti stjórn Flugleiða með hliðsjón af greinar- gerð þeirra, að fram fari mat óvilhallra manna á þeim eignum Iscargo sem meirihluti stjórnar Arnarflugs samþykkti að kaupa af Iscargo. Tryggingamenn um hækkunarbeiðni á bifreiðatryggingum: Uppsaftiað vandamál Athyglin beindist að skjaldböku á heimilinu Rætt við Þorvarð Brynjólfsson heilsugæzlulækni f Árbæ „STULKA í Árbæjarhverfi var lögð inn á sjúkrahús og þá uppgötvaðist að hún hafði veikst af taugaveiki- bróður. Kg var látinn vita um þetta, en aðeins klukkustundu eft- ir ég fékk fregnir af veikindum stúlkunnar barst tilkynning um, að systir hennar væri veik og um svip- að leyti veiktist þriðji heimilismað- urinn. Þegar á staðinn var komið beindist athyglin fljótlega að skjaldl>öku, sem hafði komið inn á heimilið mánuði áður,“ sagði Þor varður Brynjólfsson, heilsugæzlu- læknir í Árbæ í samtali við Mbl. „Við fyrirspurnir beindist grunur að skjaldbökunni. Við ræktun kom svo í ljós að sá grunur var á rökum reistur. Litl- ar vatnaskjaldbökur hafa verið þekktar fyrir að bera taugaveiki- bróðursýkil (salmonella parath- yphi B) og það er auðvitað al- varlegt mál, að slik kvikindi skuli hafa verið flutt inn í land- ið. Taugaveikibróður sá sem nú er á ferðinni, virðist ekki eins skæður og sá er geisaði hér fyrir um 20 árum síðan. Stúlkan sem veiktist er á góðum batavegi. Hún er að vísu ekki enn búin að ná fullri þyngd né fullum kröft- um en líður að öðru leyti vel. Hins vegar ber hún sýkilinn enn- þá. Hitt er svo, að ómögulegt er að segja til um hve margir hafa sýkst, það getur verið þó nokkuð stór hópur, þannig að við sjáum ekki enn fyrir endann á þessu. Það sem veldur áhyggjum er, að nánast allar skjaldbökur sem hafa verið sendar til rannsókn- ar, hafa borið sýkil," sagði Þor- varður Brynjólfsson, læknir. Um eitt hundrað skjaldbökur hafa verið sendar til heilbrigðis- yfirvalda til förgunar og hvetja yfirvöld alla þá, sem slík dýr eiga, að gera slíkt hið sama við fyrsta tækifæri. Daglega berast heilbrigðisyfirvöldum ný veik- indatilfelli og munu nú hátt í tuttugu manns hafa veikst af taugaveikibróður. „MEGINSKÝRINGIN liggur í því, að þarna er um að ræða uppsafnað vandamál, hækkunin í fyrra var ekki næg til að við kæmum út á sléttu, og svo vefur þetta upp á sig.“ sagði Bjarni Þórðarson forstjóri íslenzkr ar endurtryggingar, er Mbl. spurði hann hvað ylli því að tryggingafélög- in færu fram á svo mikla hækkun ábyrgðartrygginga bifreiða, en eins og kom fram í Mbl. í gær hljóðar hækkunarbeiðni þeirra upp á83,2*, en Tryggingaeftirlit ríkisins hefur mælt með &\,2% hækkun við ráð- herra. „Ég mun athuga þetta mál eftir helgina, en ég hef enga trú á að við föllumst á þetta mikla hækkun,“ sagði Svavar Gestsson trygginga- ráðherra, er Mbl. spurði hann hve- nær hann tæki ákvörðun um hækk- unina, og hversu mikla hann teldi hana verða. Erlendur Lárusson, forstöðu- maður Tryggingaeftirlits ríkisins, var spurður hvað hann teldi helst valda svo mikilli hækkunarþörf. Hann svaraði: „Þetta er nú ein- faldlega mitt mat á því hvað þarf til að koma til að það nægi til að standa undir tjónum yfir árið. Ég get ekki sagt annað en að þarna sé reynt samkvæmt lagaboöi að gæta hagsmuna hinna tryggðu og einn- ig verður samkvæmt lögum að sjá til þess að tryggingafélögin geti staðið við sínar skuldbindingar." Erlendur sagði einnig að ábyrgðartryggingar bifreiða væru sérstakar hvað það varðaði að þær hefðu ekki neina sérstaka trygg- ingaupphæð, eins og t.d. í heimil- istryggingum og öðrum slíkum þar sem vátryggingafjárhæðin og iðgjöldin hækkuðu í samræmi við verðbólguna. Ef sérstök vísitölu- viðmiðun yrði sett á ábyrgðar- tryggingarnar myndi þetta hækka sjálfkrafa. Hann var í lokin spurður, hvort miklar breytingar hefðu orðið á grundvelli útreikninga ábyrgð- artrygginganna og svaraði hann því til, að það hefði orðið veruleg fjölgun á eignatjónum á milli ára. Slysatjón hefðu verið með svipað- an fjölda, en slysin mun alvarlegri að meðaltali og því kostnaðarsam- ari. Eignatjónum hefði fjölgað verulega. Meðalslysatjón hefðu hækkað í peningum talið um 97,4%, en eignatjón um 45%. Hávaðamælingar í Njarðvík UTANRIKISRAÐUNEYTIÐ hefur í dag rætt við Ilarald S. Holsvik, heil- brigðisráðunaut hjá Heilbrigðiseft- irliti ríkisins, um að framkvæmdar verði hávaðamælingar í Njarðvík og nágrenni vegna flugumferðar um Keflavíkurflugvöll, sagði Helgi Ágústsson, deildarstjóri í varnar máladeild utanríkisráðuneytisins í samtali við Morgunblaðið í gær. Helgi sagði, að ætlunin væri að þessar mælingar yrðu fram- kvæmdar af fulltrúum Heilbrigð- iseftirlitsins og bandarískra aðila. í samtalinu við Helga Ágústs- son kom fram, að í dag, föstudag, yrði fundur með fulltrúum varn- armáladeildar og hreppsnefndinni og sveitarstjóranum í Gerða- hreppi um framkvæmdirnar í Helguvík og erindi það, sem hreppsnefndin lagði fyrir utanrík- isráðherra á miðvikudaginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.