Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982 TS'Láamatlcadutinn ^■tettiffötu 12-18 SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ: Mazda 323 1981 Grænsans, ekinn 4 þ. km. Verö 110 þús. Volvo 244 DL 1978 Blésans., ekinn 59 þúsund. Útvarp og fl. Verö 118 þús. Galant 1600 1980 Grár, ekinn 39 þúsund. Verð 105 þús. Toyota Tercel 1980 Ljósbrúnn, ekinn 28 þúsund. Verð 87 þús. Mazda 626 1980 (1600) Grænn, ekinn 21 þúsund. Útvarp, snjó- og sumardekk. Verö 97 þús. Subaru 1600 4wd 1981 Rauöur, ekinn 9 þúsund. Verö 145 þús. Citroén GSA 1981 Ljósbrúnn, ekinn 9 þúsund. Útvarp og segulband. Verö 120 þús. Saab 99 LS 1975 Combi Coupé Ljóslitur, ekinn 57 þúsund, sjálfskiptur. 3ja dyra. Verð 70 þús. BMW 318 1979 Brúnn, ekinn 56 þúsund, sjálfskiptur. Verö 138 þús. Vorhappdrætti Krabbameinsfélagsins: Vinningar að verðmæti 670 þúsund krónur „l>EIK sem fæddir eru árið 1959 og verða þar með 23ja ára á þessu ári eru nú væntanlega fyrir nokkru bún- ir að fá i fyrsta sinn senda heim happdrættismiða frá Happdrætti Krabbameinsfélagsins og hafa von- andi ekki látið sér bregða. Treystir félagið á velvild þeirra og stuðning í framtíðinni." I’annig hefst fréttatil- kynning, sem Morgunblaðinu hefur borizt. I»ar segir ennfremur: „Öllum, sem urðu 67 ára í fyrra, er aftur á móti „hlíft" við heim- sendingum frá og með þessu ári í samræmi við núverandi kerfi hjá happdrættinu. Færir Krabba- meinsfélagið þeim alúðarþakkir fyrir samstarf á vettvangi happ- drættisins á undanförnum árum og áratugum. Eflaust vilja margir þeirra halda áfram viðskiptum við happdrættið af tryggð við málefni krabbameinssamtakanna. Þeim skal bent á að miðar fást í lausa- sölu á skrifstofu happdrættisins í Suðurgötu 24 í Reykjavík og síð- asta mánuðinn eða svo fyrir út- drátt, sem verður 17. júní, munu miðar að venju verða seldir í happdrættisbíl nærri Lækjartorgi í Reykjavík. Það er hið árlega vorhappdrætti Krabbameinsfélagsins sem nú stendur yfir. Vinningar eru tólf talsins, þar af þrír bílar, BMW 520i, Ford Escort 1300 GL og Mazda 323 Saloon, allir af árgerð 1982. Hinir vinningarnir níu eru heimilistæki að eigin vali fyrir 20 þúsund krónur hver vinningur. Verðmæti vinninga er samtals um 670 þúsund krónur en hver happ- drættismiði kostar 25 krónur. Þótt ekki verði dregið fyrr en 17. júní eru greiðslur fyrir heimsenda miða þegar farnar að berast í óvenju ríkum mæli. Er það vel þegið af hálfu happdrættisins og Krabbameinssamtakanna sem vilja enn minna á kjörorð sitt: „Stuðningur ykkar er okkar vopn.““ Sumarbústaðalóðir — Eignarlönd Til sölu eru lóöir undir sumarbústaöi í Grímsnesi, Árnessýslu. Lóöirnar eru seldar til eignar, stærö ca. 0,9 hektarar hver. Greiösluskilmálar. Upplýsingar í síma 77617 í dag og næstu daga. ^mm^mmmmm^mmmm^mmammmmmmm Fossvogur 4ra herb. ca. 100 fm íbúö á 3. hæö í blokk. Góö íbúö, stórar suöur svalir og aörar í noröur. Sér hiti. Útsýni. Fasteignaþjónustan Austurstræti 17, s. 26600. Ragnar Tómasson hdl 1967-1982 15 ÁR íbúðir til sölu Miðleiti 2—6 Er verulega rúmgóð íbúð í sam- býlishúsi, þægilegasta íbúðar- gerðin ffyrír þig? Viö bjóöum ykkur íbúö meö mjög rúmgóöum stofum (ca. 30—50 fm) og öörum rýmum, eins þægilegum og bezt veröur á kosiö. Nettó íbúöarstæröir eru: um 130 fm (2 svefnherbergi), um 85 fm (1 svefnherbergi). Staösetning hússins er í nýjum miöbæ Reykjavíkur, beint sunnan viö nýja Borgarleikhúsiö okkar, en svalir og sólstofur snúa aö sjálfsögöu í suöur. Ibúö fylgir bílskýli í sameiginlegu bílahúsi, sem er innangengt í úr húsinu. Framkvæmdir eru hafnar og afhending veröur á næsta ári. Arkitekt er Vífill Magnússon. Verð og greiösluskilmálar eru eins viöráöanlegir og okkur er unnt, en allar nánari upplýsingar eru veittar í skrifstofu okkar, Funahöföa 19. Ármannsfell hf. Sími 83307.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.