Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982 ÞAÐBVGGISTÁ ÞESSU Traust og ending hvers mannvirkis byggist á góóu hrá- efni og vandaóri smíði. steypustál mótavír þakbita Þið fáió járnbindivír gluggagirði þakjárn pípur í hitalögn og vatnslögn birgöastöö okkar sími27222 Borgartúni 31 Allt úrvals efni á hagkvæmu verói. Búist við hörkukeppni í víðavangshlaupi ÍR „I»að hafa rúmlega eitthundrað hlauparar frá tíu félögum tilkynnt þátttöku í hlaupinu, sem nú fer fram 67. árið i röó. (>g ég á von á meiri og harðari keppni um fyrstu sætin en undanfarin ár,“ sagði Guðmundur Þórarinsson þjálfari ÍK í gær, en ÍK-ingar halda sitt árlega víða- vangshlaup í dag. Hlaupið hefur allt- af farið fram á fyrsta degi sumars, utan tvisvar, er fresta varð því vegna snjókomu og ills veðurs. „Ég býst við að þeir félagarnir Ágúst Ásgeirsson og Gunnar Páll Jóakimsson, báðir úr ÍR, eigi mestar sigurvonir, Ágúst hefur unnið hlaupið oftar en nokkur annar, eða sjö sinnum, og reynir eflaust að sigra einu sinni til við- bótar, en Gunnar, sem aldrei hef- ur sigrað í hlaupinu, kemur vel undirbúinn til leiks og hyggur ef- laust á sigur. Auk þeirra eru margir hlauparar í góðri æfingu og má því búast við mikilli bar- áttu.“ Víðavangshlaup ÍR hefst klukk- an 14 í Hljómskálagarði og lýkur því fyrir framan Alþingishúsið við Austurvöll. Vegalengdin er fjórir kílómetrar. Keppt er um vegleg einstaklingsverðlaun, bikar sem Morgunblaðið hefur gefið til keppninnar. Auk þess er keppt um veglega bikara í 3ja, 5 og 10 manna sveitum, 3ja kvenna sveit, sveit manna 30 ára og eldri, sveinasveit, auk þess sem elzta kona og elzti karl hljóta sérstakar viðurkenningar. Að hlaupi loknu bjóða ÍR-ingar til samsætis í ÍR- húsinu, þar sem verðlaun og við- urkenningar verða veitt. Fimm Islandsmet SINDRA STALHF SÍÐUSTU dagana hefur íslenska landsliðið í sundi kappt við danka sundfélagið Neptun. I»ó svo að danska sundfólkið hefði betur i stigakeppni, litu fimm ný íslandsmet dagsins Ijós. Ingi Þór Jónsson setti met í 200 metra flugsundi, synti á 2:10,7, og síðan fauk einnig metið í 200 metra skriðsundi, er Ingi synti á 1:57,1. Eðvarð Eðvarðsson setti ís- landsmet í 200 metra baksundi, Benidorm Beint leiguflug Góöir gististaöir ATH.: OKKAR VERÐ BROTTFARARDAGAR: 2/6, 23/6, 14/7, 4/8, 25/8, 15/9. FEROASKRIFSTOFAN NOATUNI 17. SIMAR 29830 og 29930. í<3 Kvl Sanitas sultan er nú fáanleg í m.a. 650 gr. og 800 gr. glerkrukkum í 5 tegundum. Sanitas LJJXi-'JJ. synti á 2:14,3. Þá setti íslenska karlasveitin met í 4x100 metra skriðsundi og kvennasveitin setti mjög glæsilegt met í 4x100 metra fjórsundi, synti á 4:42,4. Loks má geta þess, að Ragnheiður Run- ólfsdóttir synti 100 metra baksund á 1:11,9, en það er metjöfnun. Þrekmiðstöð opnar ekki ÞKEKMIÐSTÖÐ þeirra Geirs Hall- steinsNonar og félaga að Ilalsbraut 4 í Hafnarfirði verður ekki opin til sýnis í dag eins og reiknað var með. Er það af óviðráðanlegum orsökum, en þess í stað verður miðstöðin til sýnis allan laugardaginn. • Nicki Lauda féll af toppnum í stigakeppninni eftir sviptingarnar í gær. Alain Prost tók stöðu hans. Dómstóla- sviptingar DÓMSTÓLL dæmdi í gær kappakst- urskappana Nelson Piquet frá Bras- iliu og Einnan Keke Rosberg úr sæt- um sínum á brasilíska Grand Prix kappaksrinum sem fram fór í síðasta mánuði, Piquet kom þar fyrstur í mark, en Kosberg annar. Þeim var geHð að sök að hafa keppt á of létt- um bifreiðum, en Piquet keppir fyrir Brabham og Kosberg fyrir Williams. Það voru Ferrari og Renault sem kærðu keppinauta sína. Brabham og Williams eiga enga möguleika á að áfrýja, slíkur dómstóll er ekki til. Sem fyrr'segir, voru þeir Piquet og Rosberg í tveimur efstu sætun- um í Brasilíu á dögunum. Þar sem þeim hefur verið stjakað til hliðar, sigraði Alain Prost frá Frakklandi á Renault hraðakstursfáki, John Watson frá Bretlandi varð annar á McLaren-fola og Nigel Mansell frá Bretlandi varð þriðji á Lotus. í stigakeppninni tekur Prost þar með við forystunni með 18 stig, en Nicki Lauda, sem var í efsta sæt- inu er nú annar með 12 stigin sín. Keke Rosberg og John Watson hafa 8 stig hvor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.