Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982 29 Næsta ár þar á eftir stundar hann verzlunarstörf, en þau áttu aldrei hug hans, og mun hugur hans hafa leitað annarra verkefna, og fór hann til Danmerkur að sjá nýjan, óþekktan heim, og vann þar ýmis störf næstu fjögur árin eða svo. Merk þáttaskil verða þó í lífi Þórðar í Danmörku, því þar kynn- ist hann konu sinni sem heitir fullu nafni Anna Camilia Sylvia fædd Hansen frá Kallundborg á Sjálandi, fædd 2. júlí 1900. Þórður og Anna eignuðust alls 5 börn, og eru 4 þeirra á lífi en þau eru: Sveinn, fæddur 1. ágúst 1922, Ásta Benedikta, fædd 17. júní 1924, Björn Víkingur, fæddur 10. júní 1931 og Baldur, fæddur 20. sept- ember 1932. 1930 eignuðustu þau litla dóttur sem andaðist skömmu eftir fæð- ingu og var skírð Regina. Öll voru þetta mannvænleg börn með hlýtt hjarta og prúða framkomu sem arf frá góðum foreldrum. Árið 1924 komu þau Anna og Þórður til íslands, og settust að í Vestmannaeyjum. Vann Þórður þar ýmis störf við verzlun og fisk- vinnslu og þau störf er til féllu í þessum útgerðar- og athafnabæ, og deildi Þórður kjörum Eyjar- skeggja jafnt í blíðu sem stríðu. Viðkvæm lund og hlýtt hjarta Þórðar, fann til með fólki í þeirri fátækt og atvinnuleysi sem fylgdi í kjörfar heimskreppunnar miklu, og gerðist Þórður þá talsmaður þeirra afla, að mannkærleikinn væri aðeins til með framkvæmd kenningar Lenins og rússnesk fyrirmynd um alræði öreigans ein gæti leyst af hólmi kreppu og at- vinnuleysi, en sú trú Þórðar mun hafa glatast við nánari viðkynn- ingu, og hann hafi aftur hallað sér að sinni barnatrú frá Grenjað- arstaðaárunum. 1942 var Þórður kosinn sem uppbótarþingmaður til Alþingis, en seta hans var skömm, því þá veiktist hann hastarlega af berklum, og varð að fara að Víf- ilsstöðum til meðferðar og dvelur þar næstu 3 árin, þó sat hann á Alþingi frá janúar 1946 til þing- loka, en hann gaf ekki kost á sér til frekari þingsetu, því nú hafði hann kynnst þjáningum meðborg- ara sinna á öðru sviði, og tók það hans hug allan, hvernig hann gæti orðið þjáningarbræðrum sínum að liði, og verður það nú heilög köllun að vinna af lífi og sál fyrir Sam- band íslenskra berklasjúklinga, nú oftast nefnt SÍBS. Fyrir þau störf hefir Þórður orðið þekktur jafnt innanlands sem utan, en þá sögu munu aðrir skrifa um mér fróðari. 1973 veiktist Þórður illa, sem hafði í för með sér nokkra lömun, sem hann aldrei fékk bata við, og hefir hann mestmegnis síðan dvalið á heimili sínu og notið að- hlynningar elskulegrar konu sinn- ar Önnu, sem hefir sýnt honum þá fórnfýsi, ástúð og kærleika að við sem til þekkjum finnst aðdáun- arvert. Dugnaður Önnu við aðföng til heimilisins, og halda uppi risnu með reisn á gestkvæmu heimili, og um leið að hjúkra þjáðum ástvini. Allir aðstandendur og vinir Þórð- ar standa í mikilli þakkarskuld við Önnu, því hún er alveg frábær mannkosta kona. Þegar ég skrifa þessar línur, verður mér hugsað til allra föð- ursystkina minna frá Grenjað- arstað, þá stendur í hugskoti mínu sú einlæga hlýja og sá mikli kær- leikur, sem var á milli þéssara systkina og grundvallaðist af bernskuheimilinu að Grenjaðar- stað, þar sem tengdist saman, ást, gleði og söknuður, og þau munu hafa staðið á ströndinni handan móðunnar miklu og tekið á móti yngsta syninum og yngsta bróð- urnum, þegar hann kom heim til nýrra heimkynna með útbreiddan faðminn. Guð blessi þau öll. Eftirlifandi konu og niðjum sendi ég hugheilar samúðarkveðj- ur og bið guð að blessa þau, og gefa þeim í arfleifð mannkærleika látins föður. Vernharður Bjarnason ic^rel/ >A04 Súlna- i salur FÖSTUDAGSKVÖLD W Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt Maríu Helenu Opiö 10—3 Boröapantanir í síma 20221 Söngur - Grín - og Gleði ÆW ' ' w »sr —,. ■ i W Ekkert mál, að klæðast Lee Cooper LAUGAVEGI 47 SIM117575 Vi5 erum ekki slærstir. en þú getur treyst okkar ferðum FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstígl. Símar 28388 og28580

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.