Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982 31 I»ótt Jóhann Ingi, þjálfari KR, sé að missa niður um sig buxurnar á þessari mynd, er ekki hægt að segja að svo hafi verið í þjálfarastöðunni hjá KR. Besti árangur liðsins í mörg herrans ár undir hans stjórn í vetur. MorxunbiaAM/Krbtjáa Baráttugleði KR-inga færði þeim sigurinn KR VARÐ bikarmeistari í handknattleik 1982 í gsrkvöldi, er liðið sigraði rH 19—17 í ssispennandi úrslitaleik í Laugardalshöllinni. Sigur KR var eftir atvikum verðskuldaður, liðið virtist heilsteyptara og baráttuglaðara, en hlutskipti FH hins vegar nöturlegt. Liðið lék til úrslita um íslandsmeistara- titilinn gegn Víkingi og tapaði. Og aftur til úrslita í gsrkvöldi og tapaði. Vafalaust vilja FH-ingar gleyma þessu keppnistímabili sem fyrst. En leikurinn var hörkuspenn- andi. KR-ingar byrjuðu af geysi- legum krafti, léku við hvern sinn fingur fyrstu mínúturnar og kom- ust í 5—1 og 6—2 án þess að blása úr nös. Gunnar Gíslason, nefbrot- inn, lék stórt hlutverk, skoraði og sendi á línuna og Alfreð bróðir hans ógnaði með krafti sínum. En þegar staðan var 6—2 og fyrri hálfleikurinn hálfnaður, tóku FH-ingar það til bragðs að láta Finn Arnason elta Alfreð hvert fótmál. Tókst það svo vel, að FH sneri vörn í sókn, skoraði fimm mörk í röð og komst yfir í 7—6. KR-ingum fannst þá nóg komið og púsluðu þeir saman leik sínum, skoruðu þrjú gegn einu siðustu mínúturnar og höfðu yfir 9—8 í leikhléi. Ólafur Lárusson skoraði glæsi- lega fyrsta mark síðari hálfleiks, 12—10 fyrir KR, en FH-ingar jöfnuðu með tveimur mörkum, 10—10. KR-ingarnir voru áræðnir og náðu aftur tveggja marka for- ystu, 12—10 og 13—11, en tvö hraðaupphlaup FH og mörk úr þeim frá Guðmundi og Valgarði jöfnuðu leikinn á nýjan leik, 13— 13. Fór nú spennan vaxandi, 14— 14,15—15 og 16—16 mátti sjá á töflunni, en þá voru ekki meira en fimm mínútur til leiksloka. Al- freð skoraði með lúmsku skoti, 17—16 og FH-ingar sóttu. Sveinn komst í færi, en skot hans fór í stöng. Voru þá 2 mínútur og tíu sekúndur eftir. Alfreð skoraði úr næstu sókn KR, 18—16 og 1,14 mín. eftir. Sigurinn virtist í höfn, en Valgarður fiskaði víti þegar 10 sekúndur lifðu. Kristján skoraði og freistuðu FH-ingar þess síðan að leika maður á mann. Það gekk ekki upp, Gunnar Gíslason stakk sér fram hjá þremur FH-ingum, Evrópukeppni bikarhafa: Erfitt hjá Stand- ard í Barcelona ÞAÐ VKRDA Barcelona og Stand- ard Liege, sem mstast í úrslitum Kvrópukeppni bikarhafa. Standard endurtók sigur sinn yfir Dynamo Tiblisi í Liege í gsrkvöldi, 1—0, og hafði yfirburði allan tímann þrátt fyrir harða mótspyrnu Kússanna. Daerden skoraði eina mark leiksins á 33. mínútu eftir send- ingu frá Benny Wendt. Standard vann einnig fyrri leikinn, 1—0, og fer því í úrslitin með 2—0 saman- lagðan sigur. Úrslitaleikurinn fer fram í Barcelona 12. maí nk. Róð- urinn verður erfiður fyrir Stand- ard þar, því mótherjarnir verða engir aðrir en heimamenn Barce- ’ona. Þeir sigruðu Tottenham 1—0 í síðari leik liðanna í gær. Þeim fyrri lauk með jafntefli, 1—1, á White Hart Lane. Rúmlega 80.000 áhorfendur fylgdust með leiknum og sáu Allan Simonsen skora eina markið á 47. mínútu. Tottenham sótti linnulítið síðasta stundar- fjórðunginn, en tókst ekki að jafna. sendi á Jóhannes Stefánsson sem innsiglaði sigurinn, 19—17. KR-liðið sýndi mikla baráttu að þessu sinni, sérstaklega í vörninni og þar var Gísli Felix markvörður í essinu sínu, átti stórleik, varði 15 skot. Hver einasti KR-ingur skil- aði sínu í vörninni, en í sókninni bar mikið á Hauki Geirmundssyni og Gunnari Gislasyni. Þá var Al- freð glettilega drjúgur miðað við að hann dró á eftir sér „yfir- frakka" nær allan leikinn. Lið FH var ekki eins heilsteypt, vörnin opnaðist of mikið og sóknin byggð- ist um of á stórskyttunum Krist- jáni og Hans, sem KR-ingar gættu mjög vel. Haraldur Ragnarsson markvörður var besti maður liðs- ins. Mörk KR: Alfreð Gíslason 6, Haukur Geirmundsson 4, 1 viti, Jóhannes Stefánsson 3, Ólafur Lárusson 2, Gunnar Gíslason 2, Friðrik Þorbjörnsson og Haukur Ottesen eitt hvor. Mörk FH: Kristján Arason 9, 6 víti, Hans Guðmundsson 3, Val- garður Valgarðsson 2, Guðmundur Magnússon, Sveinn Bragason og Finnur Árnason eitt hver. Leikinn dæmdu Árni Tómasson og Rögnvaldur Erlingsen. — gg. City sigraði KINN leikur fór fram I l.deild ensku deildarkeppninnar í gærkvöldi, WBA og Man. City mættust í Birmingham. City sigraói l—0 og er WBA þar með í sjóóandi fallhsttu. Þrenna Heimis gegnÁrmanni VÍKINGUR sigraði Árniann 3—0 á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í gsrkvöldi og hlaut því 3 stig fyrir leikinn. Heimir Karlsson skoraói öll mörk Vikings, sem hefur for- ystu i mótinu. „Ósanngjarnt ef við hefðum tapað“ — sagði Jóhann Ingi Gunnarsson „ÞAÐ hefði veriö ósanngjarnt ef við hefðum tapað þcssum leik í kvöld,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari KR-inga, kampakátur eftir leikinn. „Við náðum upp geysilega góðri baráttu og þá varði Gísli Felix mjög vel. Sama má reyndar segja um Harald Kagnarsson í marki FH. Það kom nokkurt fát á strák- ana, er Alfreð var tekinn úr um- ferð, en þeir náðu sér aftur á strik eftir hina góðu byrjun. Auðvitað eigum við að vera fullkomlega undir það búnir að Alfreð sé tek- inn úr umferð, en menn bregðast misjafnlega við. Ég held að KR-liðið geti vel við unað eftir þennan vetur. Liðið ber sigur úr býtum í bikarkeppninni, vinnur íslandsmótið utanhúss, vinnur Adidas-mótið, sem haldið var í haust, og hafnar í 4. sæti á Islandsmótinu — tveimur stigum á eftir FH. Þetta sama lið var í fallbaráttu í fyrra. Ég held enn við það, sem ég hef sagt. KR og FH eru þau lið, sem koma til með að bíta vel frá sér í íslenskum handknattleik á næstu árum. Hvað mig varðar get ég ekki annað sagt, en ég sé mjög ánægð- ur,“ sagði Jóhann Ingi. — SSv. „Uppskera eftir ' erfiðan vetur“ — sagði Gísli Felix Bjarnason „KG VAR dálítið hrsddur um að við myndum e.t.v. missa þetta út úr höndunum, þegar FH náði að vinna hina góðu byrjun okkar upp, en strákarnir náðu aftur upp góðri bar- áttu. Kftir það óttaöist ég ekkert,“ sagði Gísli Felix Bjarnason, mark- vörður KK-inga, sem varði eins og berserkur í gær. „Ég veit ekki hvort þetta var minn besti leikur til þessa. Um það verða aðrir að dæma. Þetta er hins vegar aðeins uppskera okkar eftir erfiðan vetur, þar sem við höfum lagt hart að okkur. Ég er þess fullviss að ekkert KR-lið til þessa hefur æft eins mikið og við í vetur," sagði Gísli Felix. — SSv. UEFA-keppnin: Gautaborg í úrslit SÆNSKA liðið Gautaborg gerði sér lítið fyrir og komst í úrslit IIEFA- keppninnar í knattspyrnu í gsr- kvöldi, er liðið sigraði vestur þýska liðið Kaiserlautern 2—1 eftir fram- lengdan leik. Eftir venjulegan leik- tíma var staðan 1—1 og þar sem fyrri leiknum í Þýskalandi lauk með sömu tölum þurfti að framlengja. Þegar 13 mínútur voru liðnar af framlengingunni skoraði Stig Fred- rikson sigurmarkið úr vítaspyrnu. Sigur Gautaborgar er athyglisverðari fyrir þsr sakir að í liðið vantaði tvo af lykilmönnum þess, Glen Hysen og Tord Holmgren. Gautaborg hafði athyglisverða yfirburði í leiknum, sótti stíft og átti mun fleiri marktækifæri heldur en Þjóðverjarnir. Tommy Holmgren skorað fyrir liðið með þrumuskoti á 42. mínútu, en Rein- er Gaye jafnaði snemma í síöari hálfleik. Fleiri urðu mörkin svo ekki fyrr en í framlengingunni. Þetta er í annað skiptið á 4 árum sem sænskt knattspyrnulið leikur til úrslita í Evrópukeppni í knattspyrnu, en fyrir 4 árum mætti Malmö FF liði Nottingham Forest í úrslitum Evrópukeppni meistaraliða, en tapaði 0—1. í hinum leik undanúrslitanna gersigraði Hamburger lið Radn- icki frá Júgóslavíu 5—1. Radnicki vann fyrri leikinn 2-1, tapaði því samtals 3—6. 3—0 í hálfleik í Hamborg, þrjú glæsileg skalla- mörk frá Jimmy Hartwig (2) og Von Heesen. Von Heesen bætti svo fjórða markinu við á fyrstu andartökum síðari hálfleiks og Magath skoraði fimmta markið fáeinum mínútum síðar. Panajo- tovic skoraði eina mark Radnicki rétt fyrir leikslok. Evrópukeppni meistaraliða: Bayern og Aston Villa í úrslitin — Það er óneitanlega gaman að vera kominn i úrslit í Kvrópukeppn- inni, ég reiknaði nú ekki með slíku þegar ég byrjaði í alvinnumcnn.sk- unni á sínum tíma, sagði Ásgeir Sig- urvinsson er Mbl. rsddi við hann í Miinchen í gsrkvöldi. Ásgeir lék með síðustu 15 mínúturnar í gsr og sagðist hafa fundið sig vel í leiknum. Bayern Miinchen varð ekki skotaskuld úr því að tryggja sér sæti í úrslitum Evrópukeppni meistaraliða i knattspyrnu í gærkvöld er liðið mætti CSKA frá Sofia í síðari leik liðanna á ólympíuteikvanginum í Múnchen. CSKA vann fyrri leik liðanna 4—3, en í gærkvöldi hafði Bayern tögl og hagldir og sigraði 4—0. Það voru þeir félagar Paul Breitner og Karl-Heinz Rummen- igge, sem voru eins og oft áður mennirnir á bak við sigur liðsins. Þeir skoruðu öll mörk liðsins, tvö hvor. Annað marka Breitners var úr vítaspyrnu. Mótherjar Bayern í úrslitunum verða nokkuð óvænt Englands- meistarar Aston Villa, sem tókst að halda aftur af Anderlecht i Brússel í gærkvöldi. Reyndar var lið Anderlecht afar slakt í leikn- um og var leikurinn því fremur auðveldur f.vrir Villa, sem lagði allt kapp á að halda forskoti sínu frá fyrri leik liðanna, sem Villa vann 1—0. Ekkert mark var skor- að í Brússel í gær og Villa fer því áfram í úrslitin, sem fara fram í Rotterdam (á heimavelli Feye- noord) 26. maí nk. Mikil skrílslæti brutust út í Brússel og voru áhangendur Aston Villa helstu ólátaseggirnir. Varð um tíma að stöðva leikinn á með- an lögreglan lét hendur standa fram úr ermum við að stilla til friðar. Pétur Pétursson lék ekki með Anderlecht í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.