Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982 Minning: Þórður Benediktsson fyrrv. formaður SIBS Fæddur 10. marz 1898 Dáinn 14. apríl 1982 Aldrei framar munum við í SÍBS sitja við pall meistara okkar og foringja, Þórðar Benediktsson- ar, og ræða við hann um málefni sambands okkar og fyrirætlanir. Það höfum við gert naer undan- tekningalaust á annan tug ára a.m.k. einu sinni í viku, að jafnaði á laugardögum, til að leita ráða hjá okkar gamla og trausta for- ingja eða gefa honum skýrslu um gang mála hjá sambandinu. Þótt farinn væri að heilsu og hefði látið af störfum sem fram- kvæmdastjóri Vöruhappdrættis SIBS 1967 og af formennsku sam- bandsins 1974 eftir gifturíka og farsæla forystu frá bernskuárum þess, og var áhugi hans til síðustu stundar hinn sami og hann hafði ávallt verið, þótt getan til athafna og orða væri að miklu leyti ekki lengur fyrir hendi. Ef til vill hljómar það nokkuð undarlega að tala um lán þegar minnst er á jafn banvænan sjúk- ^ dóm og berklaveikin var 1942 þeg- ar Þórður veiktist af þessum voð- asjúkdómi og hann varð að yfir- gefa störf sín á Alþingi Islendinga sem hann hafði verið nýkjörinn til fyrir Vestmannaeyjar, aðeins eftir eins dags setu, í febrúar 1942. Afturkvæmt átti Þórður ekki fyrr en í febrúar 1946 og sat þá aðeins í þrjá mánuði á Alþingi til loka kjörtímabilsins. Haustið 1938 höfðu berklasjúkl- ingar á hælunum bundist samtök- um og stofnað samband sem hlaut nafnið Samband íslenskra berkla- sjúklinga og því má segja að lán þessa nýstofnaða félagsskapar var að fá þennan nýja liðsmann, sem var lífið og sálin í samtökunum eftir að hann kom til hælisins. Ahugamál sambandsins voru mörg, en getan smá, og því beind- ist hugur þeirra fyrst og fremst að fjáröflun til að mögulegt væri að gcra að veruleika draum berkla- sjúklinganna um að koma upp vinnuheimili og starfsþjálfunar- aðstöðu fyrir sjúklingana. Ekki hafði Þórður verið lengi á Vífilsstöðum þegar hann þurfti að fá bæjarleyfi. Mörg voru bæjarleyfin, en það voru ekki aðeins sjúidingarnir á Vífilsstöðum sem vissu um hinar tíðu ferðir hans, heldur fundu al- þingismenn fyrir komu hans á þeirra fund, að tala máli SÍBS og þarfir félagsskaparins til að hrinda í framkvæmd áhugamáli þeirra um vinnuheimili. Þingmenn hafa á öllum tímum verið tortryggnir gegn ýmsum „þrýstihópum" sem leita eftir opinberum stuðningi við hin margvíslegustu málefni. Svo fór einnig þegar Þórður kom á fund þingmannanna sem fulltrúi nýstofnaðs félagsskapar sjúklinga með enga getu en ótrú- lega bjartsýni, en fyrsta beiðni Þórðar til vina sinna á Alþingi var um flutning frumvarps til laga um skattfrelsi gjafa til SÍBS. Frumvarpið fékk virðulega en þinglega meðferð, og var vísað til nefndar sem síðan lagði til að frumvarpið yrði fellt. Þessi var Þórðar fyrsta ganga, en hann lét ekki bugast við fyrsta mótlætið og hélt baráttunni ótrauður áfram, og með sínum persónutöfrum, þrautseigju og óbilandi trú á málefninu var frumvarpið samþykkt í desember 1943. Þannig var fyrsti sigur þessa févana félagsskapar unninn, sem varð slík lyftistöng, að þegar var hafist handa um undirbúning að byggingu vinnuheimilis og endur- hæfingarstöðvar fyrir sjúklinga af hælunum. Leit var hafin að landi, það fundið í Mosfellssveit, arkitekt ráðinn og aðrir sérfræðingar til hinna ýmsu verkefna, sem fram- kvæma þurfti. Segja má, að Þórður hafi tæp- lega haft tíma til að liggja sjúkur á Vífilsstöðum, svo mörg voru verkefnin, öll það brýn og aðkall- andi, að engan tíma mátti missa, enda voru störfin hafin meðan á Vífilstaðadvölinni stóð og af Víf- ilsstaðahæli fór Þórður beint til starfa fyrir SÍBS í erindrekstur fyrir sambandið. I stjórn sambandsins var Þórð- ur kosinn 1946, þá varaformaður, og frá 1956 stjórnarformaður þar til hann lét af störfum eins og fyrr segir af heilsufarsástæðum 1974. Saga Þórðar er saga SIBS á sama hátt og saga sambandsins er saga Þórðar Benediktssonar, sem við nú erum að kveðja og þakka fyrir farsæla forystu og trausta. Farsæl var fyrsta ganga Þórðar á fund stjórnvalda, eins og fyrr er getið, en þær urðu margar fleiri sem skemmst af að segja báru ríkulegan árangur, eins og best sést af þeim árangri sem náðst hefur og alþjóð þekkir með starf- semi Reykjalundar, sem ekki að- eins hefur borið SIBS hróður, bæði innanlands og utan, enda endurhæfing sjúkra algjör ný- lunda í félagslegri aðstoð við sjúka og vanmegnuga til sjálfsbjargar, en fyrstu sjúklingarnir komu af yfirfullum berklahælunum þegar í byrjun árs 1945. Að þessi draumur skyldi verða að veruleika á jafn stuttum tíma og raun ber vitni má þakka þjóð- inni allri og þeim velvilja sem hún veitti samtökum sjúklinganna við að koma á fót þeirri fyrirmynd- arstofnun sem við þekkjum í dag á Reykjalundi. Þórður var erindreki og forystu- maður fyrir þeim áróðri og þeirri kynningu á starfsemi og stefnu- miðum SIBS um „að styrkja sjúka til sjálfsbjargar" eins og það hét í fyrstu stefnuskrá SÍBS frá stofn- un sambandsins haustið 1938. Ekki var á betri erindreka kosið en þar sem Þórður fór að kynna stefnu og óskir berklasjúklinga. Hann var með afbrigðum vel máli farinn, mælskur og ritaði mál af hinni mestu list og kunnáttu, og komst auðveldlega að kjarna hvers máls í stuttu en skýru máli. Margar eru minningarnar um ræður hans og ávörp við ýmis tækifæri, og kveðjur hans til vina og stuðningsmanna SÍBS báru af um innileik og traust til þess er kveðjuna fékk, enda var hópur stuðningsmanna og velunnara SIBS vaxandi og traustur, ekki hvað síst vegna persónutöfra Þórðar og kynna fólks af störfum sambandsins fyrir tilstuðlan hans. Framkvæmdir allar gengu með ævintýralegum hraða, og má frek- ar segja að um kraftaverk hafi verið að ræða, svo undraverður var árangurinn af SIBS með bjartsýnina eina að veganesti þeg- ar hafist var handa. Peninga þurfti þó til hjálpar og margar voru leiðirnar reyndar til fjáröflunar því yfirleitt voru framkvæmdir örari en getan leyfði, en drýgstur var Þórður og fundvísastur á fjáröflunarleiðir. Frægt varð SÍBS af sínum marg- víslegu skyndihappdrættum, og þeim stóru og nýstárlegu vinning- um sem í boði voru. Má þar nefna t.d. flugvélarvinn- ing, tuttugu bíla happdrætti, á sama tíma og lokað var fyrir inn- flutning slíkra lúxustækja, enda hélt ráðherra að Þórður væri ekki með öllum mjalla þegar hann fyrst leitaði leyfis fyrir bílunum, en þá eins og oft fyrr fékk Þórður leyfið og mörg sjúkrarúm voru byggð fyrir hagnaðinn af happ- drættinu. SIBS flutti inn sirkus, þann eina raunverulega sirkus með lifandi dýrum, auk fimleikafólks og lista- manna sem slíkri skemmtan fylgja. Stóri áfanginn í glæstri sögu sambandsins var þegar SÍBS fékk samþykkt lögin um vöruhapp- drættið 1949, en það mætti tölu- verðri andstöðu á þingi vegna einkaleyfis Háskóla íslands á happdrætti, en Þórður benti þá réttilega á, að með tilkomu nýs happdrættis myndi Háskóla happ- drættið rísa úr sínum öldudal, sem það var þá komið í. Allt voru þetta mjög stór fyrir- tæki og vöktu á sínum tíma mikla athygli og gáfu góðar tekjur í tóma kassa fjárfreks fyrirtækis, sem var bygging Reykjalundar og sú þjónusta sem var stefnt að fyrir útskrifaða sjúklinga af berklahælunum, sem áður áttu engra kosta völ annarra en þeirra erfiðisstarfa sem þeir komu úr er þeir veiktust, ef þess var þá kostur á tímum atvinnuleysis og óvissu, er ríktu þegar sambandið var stofnað 1938. Starfsemi Reykjalundar bar þegar tilætlaðan árangur, en áfram skyldi haldið. Næst var að koma upp vernduð- um vinnustað fyrir sjúklinga eftir útskrift frá Reykjalundi en þó vanmegnuga til almennra starfa. Því ákvað stjórn SÍBS að koma á fót vinnustofu í Reykjavík árið 1957 sem svo tók til starfa 1958 og hefur veitt um 50 manns vinnu við léttan iðnað í vinnustofu sam- bandsins að Múlalundi í Ármúla. Enn reyndi á hugkvæmni Þórð- ar við fjármögnun þessa nýja fyrirtækis, sem ekki brást, og naut hann fyllstu tiltrúar þeirra stjórn- valda sem leita þurfti til, svo að sú ósk náði fram að ganga. Oft voru framkvæmdir unnar með meiri hraða en geta SÍBS leyfði, enda höfðu meðstjórnar- menn Þórðar smitast af bjartsýni hans og tekið ákvarðanir, í þeirri fullvissu að honum tækist að hrinda þeim í framkvæmd. Ótaldar eru þær næturnar er Þórður lá andvaka í leit að ráðum til úrlausnar, en að morgni voru þær fundnar og framkvæmdar. Er ég hef verið að skrifa þessar línur til að þakka vini mínum og foringja fyrir áratuga leiðsögn og ljúfa vináttu hef ég freistast til að skrifa sögu sambands okkar, SÍBS, en eins og ég hef fyrr sagt verður saga Þórðar og saga sam- bandsins ekki sögð aðskilin vegna þess að hún er ein glæsiganga undir frábærri forystu áróðurs- meistarans og foringjans Þórðar Benediktssonar. Þórður á til gagnmerkra þing- eyskra og húnvetnskra ætta að telja, sem einkenndust af frábær- um gáfum, ljúfmennsku og glæsi- leik, sem verður einnig aðalsmerki hans við öll störf og kynningu. Ungur að árum giftist Þórður danskri stúlku, frú Önnu, sem bor- ið hefur hita og þunga dagsins við hin erilsömustu störf og gesta- komur, sem fylgdu bónda hennar. Margan fundinn hélt stjórn SIBS á heimili þeirra hjóna og má segja að saga samtaka okkar hafi að miklu leyti verið skráð í þeim anda friðar og kærleika sem þar réðu ríkjum. Margar eru ferðirnar sem við hjónin höfum farið með þeim hjónum, Önnu og Þórði, bæði utanlands og innan og ekki var hægt að hugsa sér elskulegri ferðafélaga en þau voru, enda til- hlökkun hverju sinni þegar för var fyrirhuguð. Fjögur börn gift eiga þau hjón, öll hin mannvænlegustu eins og þau eiga kyn til, en um ætt og uppruna Þórðar Benediktssonar mun verða fjallað af mér fróðari í þessu blaði. En nú þegar óumflýjanleg kveðjustund rennur upp er margs að minnast og fyrir svo mikið að þakka að öll orð verða fátækleg þegar mikið skal segja og stórt að þakka. Við hjónin viljum sérstak- lega þakka Þórði og hans elsku- legu frú fyrir ógleymanlegar sam- verustundir og vináttu, en samtök berklasjúklinga og öryrkjasamtök önnur standa í mikilli þakkar- skuld fyrir ómetanleg störf í þágu öryrkja landsins. Sem þakklætisvott fyrir ómet- anleg störf Þórðar Benediktssonar og forystumanns og brautryðj- anda SIBS og umburðarlyndi konu hans, frú Önnu, voru þau hjón heiðruð æðsta heiðursmerki sam- taka okkar, gullmerki SÍBS, er Þórður lét af formannsstörfum 1974. Einnig hafði Þórður áður verið heiðraður af íslenska ríkinu fyrir hans margvíslegu félags- málastörf og sæmdur Fálkaorð- unni. SÍBS færir frú Önnu Bene- diktsson, börnum þeirra hjóna og skyldmönnum öllum alúðarfyllstu samúðarkveðjur vegna fráfalls vinar okkar allra og foringja, Þórðar Benediktssonar. Útför Þórðar Benediktssonar verður gerð á morgun, föstudag, frá Dómkirkjunni kl. 3 e.h. Kjartan Guðnason, formaður SÍBS. Hjartkær frændi minn, Þórður Benediktsson fyrrverandi formað- ur og brautryðjandi SÍBS, verður kvaddur hinstu kveðju frá Dóm- kirkjunni föstudaginn 23. apríl kl. 3 e.h. Þórður fæddist að Grenjaðar- stað, S-Þing. 10. marz 1898 sonur síra Benedikts Kristjánssonar prófasts og konu hans, Ólöfu Ástu Þórarinsdóttur frá Víkingavatni. Þórður var yngsta og sextánda barn séra Benedikts, en yngsta og sjöunda barn seinni konu hans, Ástu Þórarinsdóttur. Séra Benedikt var áður giftur Reginu Magdalenu Sivertsen. f. 22. maí 1857 og átti með henni 9 börn, en 1882 gerast hörmuleg atvik á Grenjaðarstað og fleiri íslenzkum heimilum. Hafís leggst að landinu, og er landfastur fram á höfuðdag í ágúst, og fylgdu honum miklar hríðar og frosthörkur, og grasleysi algjört, og féll þá búpeningur hjá fjölda bænda. Annar verri vágestur heimsótti þá líka landið, en það var dílapest eða mislingar. I Reykjavík einni lágu 1100 manns í júnímánuði af 2800 íbúum alls. Veikin barst norður í Þingeyjarsýslur strax i júní, og lagðist þungt á byggðina. Á Grenjaðarstað veiktist húsmóð- irin frú Regina, öll börn og heimil- isfólk flest, og þar sem saman fóru veikindin og grimmdarleg harka náttúrunnar, urðu fylgihvillar margir, svo sem heilabólga, brjósthimnubólga og berklar, þar- eð læknisþjónusta fyrir einni öld var ekki mikil í þessu landi. Nú dynur hvert reiðarslagið eftir annað yfir fjölskylduna á Grenj- aðarstað. Þann 31. júlí deyr Rann- veig litla, 8 mánaða gömul, og er jarðsett 9. ágúst. Þann 20. október andaðist Gunnar, þriggja og hálfs árs, úr heilabólgu sem er afleiðing mislinganna, og áður en tekst að jarðsetja hann deyr 3. barnið, Ingibjörg, 2ja ára þann 31. okt. Gunnar og Ingibjörg eru bæði jarðsett 8. nóvember og sett í sömu gröf, og enn er höggvið í ranninn því Kristján andaðist 4. desember, sex og hálfs árs gamall, og jarðsettur 13. desember. Það voru haldin döpur jól á Grenjað- arstað þá. Húsmóðirin sárþjáð af veikindum, og heltekin af sorg yfir missi barnanna. Hún nær sér aldrei eftir þetta, og er meira og minna rúmföst, og andast 18. sept. 1884 úr tæringu. Harmþrungin eiginmaður, börn og aðrir ástvinir kveðja hana við gröfina 2. okt. 1884. Þegar neyðin er stærst, er oft hjálpin næst, því þegar séra Bene- dikt var prestur á Skinnastað, þjónaði hann líka Garðskirkju í Kelduhverfi, þá fermdi hann síð- asta ár sitt þar Ólöfu Ástu, dóttur hjónanna Þórarins Björnssonar og Guðrúnar Árnadóttur á Víkinga- vatni. Veturinn 1885 dvaldist Ásta á Kvennaskólanum að Laugalandi í Eyjafirði, og um vorið fór Björn Víkingur bróðir hennar inn eftir að sækja hana, og þegar þau komu á heimleið að Grenjaðarstað og Ásta vissi af heimilinu í sárum, þá ákvað hún að koma þar við og votta prestinum samúð sína. Séra Benedikt var þessi sending sem frá guði kominn, og síðar um sumarið skrifaði hann Ástu á Vík- ingavatni og bað hana að giftast sér og taka við uppeldi barna sinna, hvað hún samþykkti. Um haustið fór séra Benedikt norður að Víkingavatni og giftist þar Ástu þann 26. september. Ásta var þá 26 ára gömul, fædd á Víkinga- vatni 20. júní 1859. Frú Ásta flyt- ur með sér sólargeisla á þetta hrjáða heimili. Hún var svo frá- bær mannkostakona, að víðfrægt varð um héraðið og út yfir það. Hún gengur í móður stað 5 börn- um séra Benedikts af fyrra hjóna- bandi, 3—15 ára að aldri og elur séra Benedikt 7 glæsileg börn, og stjórnar mannflesta heimili hér- aðsins með slíkri rausn, að lengi var í minnum haft. Ég leyfi mér að endurprenta lýsingu óskylds aðila, herra Gísla Jónssonar al- þingismanns, hvernig hann lýsti frú Ástu í afmælisgrein um Þórð Benediktsson sjötugan. „Ásta, móðir Þórðar, var af hinni alkunnu Víkingavatnsætt. Hún var frábær kona að glæsileik, menntun, dugnaði og gáfum. Nam hún snemma lífspeki af þeim mikla og góða bókakosti, sem til var á heimili hennar í æsku. Var það jafnan rómað, hvað djúpan skilning hún hafði á margslungn- um gátum hins mannlega lífs. Frú Ásta var 19 árum yngri en maður hennar, en hjónaband þeirra var slíkt, að það var sem hver stund væri lofsöngur í lífi þeirra. Undir þessum áhrifum mótast barnssál Þórðar Benediktssonar. Fræin sem móðirin sáir í hjarta hans á unga aldri, nærast allar stundir af geislum kærleikans, sem aldrei tapar ljóma sínum. Það er því eng- in tilviljun, að sonurinn velur sér það fagra lífsstarf, að bera geisla inn í líf þeirra manna, sem skugg- ar þungra örlaga vildu ráða ríkj- um.“ Það að ég dreg þennan aldar- gamla harmleik fram í minn- ingargrein um þennan hjartkæra frænda minn, er af því að mér er það ljóst, að þeir mótuðu það and- rúmsloft af ástúð og trega í því umhverfi er Þórður fæddist inn í. Þórður líktist föður sínum með þennan milda fallega augnsvip, og góða barnslega hjarta, sem ekkert má aumt sjá, og samtímamenn hafa orðið varir við í öllum hans störfum, og leyfi ég mér að birta hér að neðan lítið erindi er Árni Óla, blaðamaður og frændi hans sendi honum er hann var sjötugur. I*vgar adrir borgir brutu, hyW^ir þú, og slarfs þíns nutu, þeir, sem erfid orlog hlutu. en eru nú á sigurleið, og blessa allt þitt æílskeið. Öll kveður þjóðin einum rómi, ætur þinnar og landsins sómi, sönnum máttu una vel. Mestur er sá, er sigrar llel. Séra Benedikt gerðist þreyttur á miklum búrekstri og stóru presta- kalli, og afræður að stofna til verzlunar og útgerðar með Bjarna syni sínum á Húsavík, og byggja þeir í félagi íbúðarhús og annað verzlunarhús, rétt fyrir sunnan hina nýbyggðu, fögru kirkju á Húsavík. Séra Benedikt flytur þvi með fjölskyldu sína í september 1907 til Húsavíkur í þetta nýja íbúðarhús, sem enn setur svip á Húsavík og er merki um stórhug í byrjun þessarar aldar. Séra Bene- dikt flutti einnig póstafgreiðsluna frá Grenjaðarstað til Húsavíkur, og annaðist hana til dauðadags, en Bjarni annaðist verzlunina og út- gerðina, og var frumkvöðull að stofnun vélbátaútgerðar á Húsa- vík. Þórður er þá 9 ára gamall og gengur í barna- og unglingaskóla á Húsavík, en vinnur þess á milli unglinga- og verzlunarstörf hjá Bjarna bróður sínum, þar til 1916 að hann fer í Verzlunarskólann í Reykjavík og líkur þar námi 1918.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.