Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982 Skattur á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði: Samþykktur með 17 atkvæðum gegn 16 Pálmi og Friðjón með — Eggert Haukdal sat hjá Sumargjöf til Siglufjarðar Siglufirði, 21. apríl. SIGLUFJARÐARBÆR fékk góéa sumarjijof í gærdau, þogar 150—180 skólabörn úr Barnaskóla Siglufjaróar fóru um götur hæjarins ásamt fjórum kcnnurum og hreinsuðu hann. Börnin voru mætt út á götur snemma í morgun vopnuð sópum og sögðust ætla að gefa bænum þessa hreinsun í siimargjöf. Börnin stóðu sig með afbrigðum vel og hér er allt annað um að litast á eftir. — Fréttaritari. Sóttu sjúkan skipverja af NATO-kafbáti AÐ SÖGN Helga Ágústssonar, deild- arsljóra í varnarmáladeild utanríkis- ráðuneytisins, barst í fvrradag beiðni frá NATO um, að Varnarliðið sækti sjúkan skipverja af kafbáti eins aðild- arríkjanna, sem var staddur um 40 sjómílur undan Austurlandi. Flugvél og þyrla frá Varnarliðinu fóru á staðinn og fluttu hinn sjúka í sjúkrahús. Gekk aðgerðin sam- kvæmt áætlun. LOTHAR ('iesielski, sem hér á landi er kunnur fyrir „áhuga“ á fálkaung- um kom hingað til lands á þriðjudag en fór af landi brott í gær eftir að Útlendingaeftirlitið hafði afskipti af ferðum hans. Lothar var handtekinn hér á landi fyrir tæpum fjórum árum ásamt foður sínum eftir að þeir feðg- ar höfðu verið eltir víðs vegar um landið i fimm daga. Astæða þess að islenzk yfirvöld gjalda varhug við ferðum þeirra feðga hingað til lands er, að þeir eru kunnir víða um Evr- ópu fyrir þjófnað á fálkaungum. Útlendingaeftirlitið spurði Ciesielski um ástæður farar sinn- ar til íslands. Hann kvaðst hingað kominn í frí. Kvaðst ætla að fara til Þingvalla. Hins vegar fundust í fórum hans kort af Vestfjörðum u , # § Skátar verða með flugdreka- keppni í Elliðavogi i dag. Hér má sjá þá æfa sig fyrir keppnina á Arnarhól. og Norðurlandi og vegakort. En án nokkurra útskýringa ákvað Ciesi- elski að fara af landi brott, þó ferð hans hingað geti í engu talist saknæm. „Ciesielski hafði fullkominn fjallabúnað í fórum sínum, en þeg- ar hann var spurður hvað hann hyggðist fyrir hér á landi, þá hætti hann við áform um að ferð- ast um landið. Ég held að einsýnt sé, að Ciesielski hafi ætlað sér að komast yfir fálkaegg en fálkinn er byrjaður að verpa og kort, sem hann hafði í fórum sínum, ná ein- mitt yfir aðalútbreiðslusvæði fálkans," sagði Ævar Petersen, fuglafræðingur, í samtali við Mbl. „Lothar Ciesielski kom hingað STJÓRNARFRHMVARP um fram lengingu sérstaks skatts á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði var samþykkt frá fyrri þingdeild í gær, að viðhöfðu nafnakalli, með 17 atkvæðum gegn 16, 1 sat hjá en 6 vóru fjarverandi. Með frumvarpinu greiddu atkvæði allir viðstaddir þingmenn Alþýðu- bandalags og Framsóknarflokks, auk Friðjóns pórðarsonar og Pálma Jónssonar. Eggert Haukdal sat hjá. Geir Hallgrímsson (S) vitnaði til ummæla Steingríms Hermannsson- ar, formanns Framsóknarflokksins, í umræðu um stefnuræðu forsætis- ráðherra 1980, þar sem hann taldi þennan sérstaka skatt vafasaman, enda legðu framsóknarmenn áherzlu á niðurfellingu hans, sem og orð Tómasar Árnasonar, ritara Framsóknarflokksins, sem sagði í til lands um sama tíma í fyrra og var þá í 2—3 vikur. Stúlka kom hingað til lands í fyrra og dvaldi einn sólarhring og leikur grunur á, að þau hafi smyglað eggjum úr landi. Þessi sama stúlka kom nú til landsins og í hennar fórum fannst veski, sem var sérstaklega ein- angrað. Ég held að tilgangur far- arinnar sé ljós; að stela fálkaeggj- um. Og í þessu sambandi er vert að minnast þess, að fyrir Alþingi liggur nú frumvarp, sem m.a. ger- ir ráð fyrir verulegri þyngingu refsingar við stuldi á fálka og eggjum og er mjög brýnt, að það nái fram að ganga,“ sagði Ævar Petersen. þingræðu 1981, að þessi skattur kæmi þunglega niður bæði á sam- vinnu- og einkaverzlun, einkum í strjálbýli, og þyrfti endurskoðunar við. Ég spyr þessa ráðherra báða, sagði Geir, hvort þeir séu sama sinnis nú, og ef svo er, hversvegna þeir standi þá að stjórnarfrumvarpi um framlengingu skattsins? Ekki skorti þá, að ég hygg, samstöðu af hálfu ráðherra úr hópi sjálfstæð- ismanna. Er þetta þá eitt dæmið enn, þess efnis, að Alþýðubandalag- ið beygir samstarfsaðila undir sinn vilja. Steingrímur Hermansson, sam- gönguráðherra, sagði m.a., að sér hefði virzt þensla í byggingu verzl- unarhúsnæðis úr sögunni 1980, en síðar hafi komið í ljós, að svo væri ekki. Hann hefði því sætzt á fram- lengingu skattsins. Tómas Árnason, viðskiptaráðherra, sagðist hinsveg- ar enn sömu skoðunar og þá er fyrri orð hans vóru töluð, að þessi skatt- ur, sem mismunaði atvinnugrein- um, væri ranglátur, en í stjórnar- samstarfi yrði að taka tillit til sam- starfsaðila. Við náðum fram lækk- un á launaskatti en ekki niðurfell- ingu þessa skatts. Geir Hallgrímsson (S) sagði skatt þennan ganga gegn efnislegri niðurstöðu í áliti starfsskilyrða- nefndar, þó hún fjallaði ekki sér- staklega um verzlunarrekstur, þ.e. nauðsyn á jafnstöðu atvinnugreina. Skatturinn hefði valdið því, að hús- næði í verzlunarsamstæðum væri nýtt til annars en verzlunarþjón- ustu, þ.e. hin mismunandi sköttun húsnæðis. Þessi skattur, til viðbót- ar óhóflegri hækkun fasteignamats og sköttun húsnæðis í miðbænum í Reykjavík, væri meðvirkandi í því, Skoðanakönnun DV: Helmingur AF ÞEIM helmingi, sem tók afstöðu í skoóanakönnun Ilagblaðsins & Vísis um helgina um fylgi borgarstjórnar- flokkanna, sögðust 66% styðja Sjálf- stæðisflokkinn, 10,1% Alþýðubanda- lagið, 9,8% kvennalistann, 9% Alþýðu- Geir Hallgrímsson að slæva þann mikilvæga borgar- hluta. Mismunun í sköttun húsnæð- is, eftir notkun, byði og upp á spill- ingu. En skatturinn kæmi máske ekki sízt við strjálbýlisverzlun, sem talin væri berjast í bökkum. Albert Guðmundsson (S) sagði skattinn ekki bara ranglátan, held- ur stórhættulegan. Það skapaði ekki ný atvinnutækifæri að þrengja að einstökum atvinnugreinum. Framsóknarráðherrar segðu sam- vizku sína mæla gegn þessum skatti, en þó segðust þeir standa með honum, til að þóknast Alþýðu- bandalaginu. Þetta eru stór orð og stórfurðuleg afstaða, það að selja samvizku sína fyrir völd. Fram- sóknarmenn ættu að taka höndum saman við sjálfstæðismenn og fella þetta frumvarp. Margir fleiri tóku til máls og verður vikið nánar að umræðunni á þingsíðu Mbl. síðar. óákveðinn flokkinn og 4,9% Framsóknarflokkinn. í skoðanakönnuninni voru 600 manns spurðir, hvaða lista þeir myndu kjósa, ef borgarstjórnarkosn- ingar færu fram þann daginn. Af þessum 600 sögðust 36,3% vera óákveðnir og 16% svöruðu ekki, en 31,5% sögðust myndu kjósa Sjálf- stæðisflokkinn. 4,8% sögðust myndu kjósa Alþýðubandalagið, 4,6% kvennalistann, 4,3% lista Alþýðu- flokksins og 2,3% sögðust myndu kjósa Framsóknarflokkinn. í síðustu borgarstjórnarkosning- um fékk Sjálfstæðisflokkurinn 47,4% atkvæða og 7 borgarfulltrúa, Alþýðubandalagið 29,8% atkvæða og 5 borgarfulltrúa, Alþýðuflokkurinn 13,4% og tvo borgarfulltrúa og Framsóknarflokkurinn 9,4% og einn borgarfulltrúa. Nefnd á Seltjarnarnesi um erlent sjónvarpsefni: Möguleiki á mót- töku efnis frá þremur aðilum SÉRSTÖK nefnd á vegum bæjarstjórn- ar SeltjarnarnoNK, sem hefur að undan- förnu kannað möguleika á móttöku sjónvarpsefnis frá erlendum stöðvum, hefur komÍNt að þeirri niðurstöðu að mögulegt verði að ná þremur erlendum sendingum á íslandi gegnum gervi- hnött. í Seltirningi, blaði sjálfstæð- ismanna á Seltjarnarnesi, kemur fram í frétt sem höfð er eftir Júlíusi Sólnes formanni sjónvarpsnefndar- innar, að mögulegt verði að ná send- ingum frá Nordsat-gervihnettinum, bresku sjónvarpi og sendingum frá hnetti er skotið verður upp 1984, en um hann fer valið efni frá flestum sjónvarpsstöðvum í Evrópu. Enginn mælti meÖ því aö fella íslenzka ákvæðið út Krá Kyjóin Konrárt Jónssyni, New Vork, 21. apríl. í ALMENNUM umrædum hér á hafréttarráðstefnunni, þar sem full- trúar um 90 þjóða tóku til máls, mælti cnginn beint með tillögu Zaire um að fella burt 71. grein uppkastsins að hafréttarsáttmála, íslenzka ákvæðið svonefnda. Flestir eru sammála þeim sjónarmiðum ís- lendinga að ekki eigi að hrófla við tcxtanum varðandi málefni annarr- ar nefndar og því ætti ekki að þurfa að óttast breytingar, sem skerða myndu fiskveiðiréttindi okkar. Ilans G. Andersen telur að samn- ingsuppkastið verði samþykkt með þeim hætti, sem okkur sé nægilegt. Maraþonumræður hafa staðið yfir á allsherjarfundum hafrétt- arráðstefnunnar og augljóst að margar ræður hafa verið fluttar fyrir heimamarkað. Hafa full- trúarnir verið að sýna, að til hins síðasta hafi þeir reynt að koma fram hagsmunamálum þjóða sinna. Flestir hafa þó lagt — í almennum umræðum á haf- réttarráðstefnunni áherzlu á, að málefni varðandi efnahagslögsöguna séu útkljáð og margir hafa skorað á þá, sem flutt hafa breytingartillögur, þar á meðal um brottfellingu 71. greinar, að draga tillögurnar til baka. Hans G. Andersen, sem sæti á í 11 manna samninganefndinni, hefur eftirfarandi að segja um horfurnar nú: „Forsetinn, Tommy Koh, stjórnar nú erfiðum samn- ingaviðræðum um auðævi hafs- botnsins í samráði við 11 manna sáttanefndina og eru stöðugar viðræður, annars vegar við 77 ríkja hópinn og hins vegar iðnrík- in, það er Bandaríkin, Bretland, Beigíu, Þýzkaland, Frakkland, ít- alíu og Japan auk Rússlands og Fndlands. Þróunarríkin tóku þá afstöðu, að vilja ekki tala um nema eitt atriði í einu og því hefur mest allur tíminn undanfarið farið í að ræða fjárfestingu þá, sem frum- kvöðlar á sviði vinnslu þessara auðæfa hafa þegar lagt í eða hafa á prjónunum. Er þar aðallega fjallað um nánari ákvæði um réttindi þeirra og skyldur, eink- um í sambandi við stærð vinnslu- svæða og fjármálaskuldbind- ingar. Af hálfu iðnaðarríkjanna er lögð áherzla á að ræða ýmis önnur atriði, svo sem samsetn- ingu alþjóða hafsbotnsráðsins og ákvarðanatöku þar, endurskoðun samningsins um miðlun tækni- þekkingar og svo framvegis. Hins vegar gerir starfsáætlunin hér ráð fyrir því, að föstudaginn 23. þessa mánaðar skuli allsherjar- fundur taka ákvörðun um það, hvort allt, sem hægt er, hafi verið gert til að ná samkomulagi, en þegar slík ákvörðun liggur fyrir, er ekki um annað að ræða en að greiða atkvæði um það, sem kann að standa eftir. Á föstudaginn mun forsetinn leggja fyrir fundinn tillögur í þessu efni og ef hann telur sig þurfa meiri t.íma til að ná frekara samkomulagi, er hugsanlegt að ofangreindri ákvörðun verði frestað í nokkra daga.“ Aðspurður um endalok ráð- stefnunnar sagði Hans: „Ég held að það sé vaxandi fylgi fyrir því að komast hjá atkvæðagreiðslum um einstakar greinar sáttmálans og þá er um tvennt að ræða, ann- aðhvort verði samningsuppkastið samþykkt án atkvæðagreiðslu eða borið upp í heild. Það yrði þá samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. Það væri okkur nægi- legt en hins vegar lítið gagn að því hvað alþjóða hafsbotnssvæðið varðar, ef iðnaðarþjóðirnar væru ekki með. Þess vegna eru nú gerð- ar úrslitatilraunir til að sætta sjónarmiðin. Kunnur fálkaþjófur hér á landi: „Hefur ætlað sér að komast yfir fálkaegg“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.