Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982 Mótmæla sætaskipan Kómahor)!, 21. apríl. Al’. FLESTIR hryðjuverkamennirnir sem grunaðir eru um að hafa verið viðriðnir morðið á Aldo Moro fyrr- um forsætisráðherra, mættu ekki til réttarhaldanna í dag í mótmæla- skyni við sætaskipan í réttarsalnum. Dómari í máli hryðjuverka- mannanna sagði sakborninga ekki skylduga til að vera viðstaddir réttarhöld. Flestir hryðjuverka- mannanna 63ja neyttu þessa rétt- ar, þar sem þeir sættu sig ekki við sætatilhögun í búrunum sem þeir eru hafðir í við réttarhöldin, og einnig vildu þeir með þessu mót- mæla viðurvist lögreglumanna í réttarsalnum. Hyggjast hryðju- verkamennirnir ekki mæta fram- ar við réttarhöldin ef þeir fá ekki sjálfir að velja í hvaða klefa járn- búrsins þeir setjast í, en alls er búrinu stíað upp í fimm hólf. Schmidt reynir að lægja öldur ágreinings í flokknum Miínchen, 21. apríl. Al'. viðeigandi fjölda bandarískra vopna skotmörk víðs vegar í Vestu IIKLMIJT Schmidt kan/.lari revndi að í Rvrnnn pf pntrinn árAnirnr vrði -if Rvrnnn Lögregluþjónn leysir handjárn eins helzta leiðtoga hryðjuverkamanna Kauðu herdeildanna, Antonio Sa- vasta. Hryðjuverkamennirnir eru jafnan hlekkjaðir við járnbúrið, þeg- ar þeir mæta til réttarhaldanna. Miinchen, 21. apríl. Al*. IIKLMUT Schmidt kanzlari reyndi að ná samstöðu í flokki sínum um kjarn- orkustefnu Atlantshafsbandalagsríkja á þingi Dokksins á þriðjudag, og varði fyrir andstæðingum hennar, að nýjum handarískum kjarnorkuvopnum yrði komið fyrir í Kvrópu með því að minna á „sovézku vigvélarnar", sem beint væri að Þjóðverjum. Schmidt hvatti mótherja sína til að endurskoða hug sinn. Hann lagði áherzlu á andstöðu sína við einhliða bann vestrænna ríkja við fram- leiðslu kjarnorkuvopna, sem hann sagði mundi færa Sovétríkjunum mikla yfirburði í kjarnorkuvígbún- aði í Evrópu. Schmidt sagði í þessu sambandi, að því aðeins væri hægt að vænta árangurs af viðræðum Bandaríkja- manna og Rússa um takmörkun kjarnorkuvígbúnaðar, ef Rússum yrði gert ljóst að komið yrði fyrir viðeigandi fjölda bandarískra vopna í Evrópu ef enginn árangur yrði af viðræðunum fyrir árslok 1983. Hafnaði Schmidt boði Rússa um stöðvun vopnaframleiðslu af þeirra hálfu, því það væri aðeins bragð til að reyna að koma í veg fyrir stað- setningu bandarísku flauganna. „Þess geta Rússar ekki vænst öðru vísi en þeir fækki SS-20 flaugunum, vígvélunum sem beint er að okkur," sagði Schmidt. Hann sagði það brýnasta hagsmunamál Þjóðverja, að Rússar fækkuðu SS-20 kjarn- orkuflaugunum, sem beint er á skotmörk víðs vegar í Vestur- Evrópu. Schmidt höfðaði mjög til flokks- einingar í ræðu sinni og minntist fremur fyrri afreka flokksins en að fjalla um framtíðarstefnu. Sérfræð- ingar segja ræðuna hafa fallið í góð- an jarðveg og ætti hún líklega eftir að leiða til þess að öldur ágreinings lægði og sundrung í flokknum minnkaði. Þannig var Erhard Eppler, einn helzti gagnrýnandi Schmidts, stillt- ari í ræðu sinni og hógværari en endranær. SINDRA STALHE Fyrirliggjandi í birgðastöð ÁLPLÖTUR (ALMg3) Sæ- og seltuþolnar. Hálfhart efni í þykktum frá 0,8 mm — 6,0 mm. Plötustæröir 1250 mm x 2500 mm. Matvæli og benzín hamstrað í stór- um stíl í Noregi Borgartúni31 sími27222 » ■ U Osló, 2I. april. AP. MIKH) hamstur matvæla og benzíns einkenndi norskt þjóðlíf í dag, þegar almenningur gerði sér Ijóst, að verk- fall samgönguverkamanna, sem hófst á þriðjudag, gæti orðið langvinnt. Kkkert benti til að stjórn Kaare Willochs mundi skerast í leikinn og binda endi á verkfallið með því að vísa deilunni til gerðardóms. Um gjörvallan Noreg mynduðust langar biðraðir við benzínstöðvar, og voru yfir eitt þúsund bílar í sumum þeirra, einkum í höfuð- borginni. Af þessum sökum tæmd- ust geymar hverrar stöðvarinnar á eftir annarri, enda keypti fólk benzín á tunnur og flöskur í stórum stíl. „Segja má að Noregur sé nú ein stór benzínsprengja," sagði Dagbladet í stórri fyrirsögn, þar sem sagði frá benzínhamstrinu. Sagði blaðið kjallara og geymslur allar fullar af flöskum eða tunnum af benzíni, og eldhætta því gífurleg. Biðraðir mynduðust ekki aðeins við benzínstöðvar, heldur einnig í stórmörkuðum. Greip um sig al- gjört kaupæði og seldust ýmsar nauðsynja- og hreinlætisvörur upp á skömmum tíma í mörgum verzl- ana. Við verkfallið stöðvaðist öll vöruafgreiðsla í skipahöfnum, en Tvátta léttir heimilsstörfin. Tvátta er milt og ilmurinn f rábær. 80dl n*.pö«-‘hw,",!' -rU*\ 80 dl ÍSrlÍa 'mzsz Æil ( eORCARHELLA ) SIMI 11660 farþegaflutningar lögðust ekki niður. Flugsamgöngur og lestar- samgöngur voru með eðlilegum hætti. Hins vegar var búizt við ein- hverri röskun á flugáætlunum í innanlandsflugi á fimmtudag. Ferðir almenningsvagna í einka- eign lögðust niður, en samgöngu- fyrirtæki í eign ríkis eða bæja störfuðu með eðlilegum hætti. Bú- izt er við talsverðri röskun á dreif- ingu olíu og benzíns frá olíufélög- Sovéskur njósnari rekinn frá Svíþjóð Stokkhólmi, 21. apríl. AP. SÆNNKA utanríkisráðuneytiö vísaði í gær úr landi vararæðismanni Sov- étríkjanna, Albert Liepa, og var hon- um gefið að sök að hafa stundað njósnir í Svíþjóð. Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins, Magnus Faxen, sagði, að sendi- fulltrúi sovéska sendiráðsins hefði verið kvaddur í ráðuneytið og hon- um sagt, að Liepa yrði að fara af landi brott tafarlaust. „Með tilliti til þeirra upplýsinga, sem við höfð- um frá sænsku öryggislögreglunni, höfðum við ærna ástæðu til að reka hann á stundinni," sagði Faxen. Albert Liepa starfaði í sovéska sendiráðinu í Stokkhólmi á árunum 1971—74 og kom aftur 1978 sem vararæðismaður. Hann er Letti að þjóðerni og hafa njósnir hans eink- um beinst að samtökum útlægra landa hans í Svíþjóð, að því er Magnus Faxen sagði. 19 tilfelli af gin- og klaufaveikinni Kaupmannahöfn. 21. apríl. Al*. NÍTJÁNDA tilfellið af gin- og klaufa- veikinni kom upp á bæ á Fjóni i dag og öllum bústofninum, 32 grisum og 10 nautgripum, var slátrað samstund- is. Fjón er nú allt talið sýkt svæði og miklar varúðarráðstafanir viðhafðar á eyjunni. Að sögn dr. Erik Stougaards, yf- irdýralæknisins í Danmörku, er ástandið af völdum veikinnar enn „mjög alvarlegt" en hann segir það þó góðs viti, að ekki hafa komið upp ný tilfelli á Suður- og Austur-Fjóni síðasta hálfa mánuðinn, en þar varð veikinnar fyrst vart. Danskir kúabændur hafa lagt mjög hart að yfirvöldum að hefja allsherjarbólu- setningu en dýralæknar vara ein- dregið við því á þessu stigi. Segja þeir, að bólusetning kynni að vísu að bjarga nautgripunum en þeir yrðu þá bara smitberar, sem hæg- lega gætu lagt svínastofninn að velli en hann er miklu næmari fyrir veikinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.