Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.04.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982 13 Sumardagurinn fyrsti: Skrúðgöngur, flugdrekakeppni og trúðar — meðal dagskráratriða skátanna HÉR FARA á eftir nokkrar upplýs- ingar um hátíöahöld sumardagsins fvrsta á nokkrum stöðum á landinu, en yfirleitt eru það skátafélög sem hafa veg og vanda af skipulagningu þessara hátíðahalda. Reykjavík Að venju eru skrúðgöngur ómiss- andi þáttur dagsins. Hefjast þær kl. 13:30 og eru sem hér segir: Frá fé- lagsheimilinu Árseli í Árbæjar- hverfi, Verslunarmiðstöðinni Grímsbæ við Bústaðaveg, Breið- holtsskóla, Hólabrekkuskóla, þar sem gengið verður um hverfið og síðan ferðast með sérstökum auka- vögnum SVR niður á Elliðaáa- hólma, en þar fara aðalhátíðahöldin fram, Ölduselsskóla, þar sem sami háttur er á og frá Hólabrekkuskóla. Göngunum stjórna skátar og verður fánaborg fyrir hverri göngu, trúðar og aðrir sprellikarlar fylgja og lögreglan er til aðstoðar göngu- mönnum. En aðalhátíðahöldin fara sem fyrr segir fram í hólmanum við Elliðaárnar og þar gerist m.a.: Flugdrekakeppnin 1982, fyrsta keppni sinnar tegundar hérlendis og er keppt í 2 flokkum: barnaflokki og pabbaflokki. Keppt verður í þessum greinum: Stærsti flughæfi flugdrek- inn, minnsti flughæfi flugdrekinn, fallegasti heimatilbúni, frumlegasti, hæstfljúgandi og fallegasta flugið. Þá verður mikið um leiki og söngva og allir fá að taka þátt í póstakeppn- inni. Þar eiga menn að leysa ýmsar þrautir, þungar sem léttar. Boðið verður upp á „stóru-þrautabraut- ina“ og „litlu-þrautabrautina“. Varðeldur verður kveiktur og þar verða skátar með leikþætti, þeir ætla að sýna tjaldbúðalíf skáta, en þessi félög eru Arbúar, Garðbúar, Hafernir, Segull, Skjöldungar og Urðarklettur. ísafjörður Skátar taka þátt í skátamessu, sem haldin verður í ísafjarðarkirkju og hefst kl. 9. Geirþrúður Charles- dóttir safnaðarsystir og skátarnir hafa skipulagt messuna, en sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson á Suður- eyri prédikar. Að lokinni messu verður gengið fylktu liði frá kirkju og niður í bæinn og endar skrúð- gangan síðan við hús Landsbanka Islands. Síðdegis eru kvenfélagskon- ur með kaffisölu. Meðal dagskráratriða skáta í Reykja- vík er sérstök flugdrekakeppni í Ell- iðaáahólminum. Þá er einnig ráðgerð í dag svonefnd Fossavatnsganga, sem er árleg skíðaganga, um 20 km. Garðabær Skátafélagið Vífill í Garðabæ gengst fyrir hátíðahöldum sumar- dagsins fyrsta þar að venju. Hátíða- höldin verða með hefðbundnum hætti og hefjast með skátamessu í Garðakirkju klukkan 11 fyrir há- degi. Klukkan 14.00 verður svo geng- ið í skrúðgöngu frá gatnamótum Karlabrautar og Hofstaðabrautar að skátaheimilinu. Þar verður fána- hylling, en að henni lokinni verður ýmislegt gert til skemmtunar. Skátaheimilið verður opið og verður hægt að fá kaffiveitingar þar. Akureyri Skátar safnast saman á Strand- götu og ganga þaðan í skrúðfylkingu til kirkju. Þar hefst skátamessa klukkan 11 þar sem Ingólfur Ár- mannsson fræðslustjóri prédikar, en séra Þórhallur Höskuldsson þjónar fyrir altari. Hestamenn, sem oft hafa farið hópreið um bæinn á sumardaginn fyrsta, munu í þetta sinn fresta henni til laugardagsins og fara þá ekki um bæinn heldur inn að Hrafnagili. Munu þeir drekka þar kaffi og fagna sumri. Hafnarfjörður Skrúðganga sem skátar standa fyrir hefst við skátaheimilið kl. 10 og verður gengið til Þjóðkirkjunnar þar sem messa hefst kl. 11. Skátar verða einnig með fánaborg við úti- guðsþjónustu sem verður á Víði- staðatúni og hefst kl. 14. Þá er að venju ráðgert víðavangshlaup. í Vatnaskógi gefst drengjunum kostur á hvers kyns leikjum og starfí úti inni, en í sumar er ráðgert að þar dvelji 10 flokkar. r Arleg kaffísala Skógarmanna KFUM sem ÁRLEG kaffísala Skógarmanna KFIJM verður í húsi KFIJM og K við Amtmannsstíg í Reykjavík í dag, sumardaginn fyrsta. Stendur hún yf- ir milli kl. 14 og 17—18 og um kvöldið kl. 20:30 verður sérstök samkoma þar sem m.a. verður greint frá starfí Skógarmanna i Vatna- skógi. Innritun í sumarbúðirnar í Vatnaskógi er nú hafin og fer hún fram á aðalskrifstofu KFUM og K í félagshúsinu við Amtmannsstíg. Fyrsti dvalarflokkur drengjanna fer í Vatnaskóg 28. maí. Alls eru skipulagðir 10 flokkar og endar sumarstarfið síðustu helgina í ág- ústmánuði. Er þá ráðgert að bjóða elstu drengjunum er dvalist hafa í Skóginum í sumar að dvelja þar eina helgi. Rauðavatnssvæðið á sprungu- sveimi Reykjanesskaga Á kortinu sjást sprungu- sveimar á Reykjanesskaga. Rauðavatnssvæöið, þar sem vinstri meirihlutinn í borg- arstjórn Reykjavíkur vill að framtíðarbyggð borgarinnar rísi, er á elsta hluta sprungusveims, sem liggur til norðausturs og er fram- hald á virku umbrotasvæði á Reykjanesskaga, Krísu- víkursvæðið. Ekkert bendir til að eldsumbrotum sé lok- ið á Reykjanesskaga og er mjög líklegt að við umbrot þar verði hreyfingar á sprungum á Rauðavatns- svæðinu, einkum ef um- brotin eiga upptök sín á Krísuvíkursveimnum. Þess- ar upplýsingar koma fram í jarðfræðilegri greinargerð, sem lögð var fram í fram- kvæmdaráði Reykjavíkur- borgar í gær. ^ára abyrgð fyrirfö/ksemgerirkrtífur! Kalmar Kalmar innréttingarh.f,, Skeifunni8,108 Reykjavík, slmi 82011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.