Morgunblaðið - 17.06.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.06.1982, Blaðsíða 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1982 Suzuki Fox reynsluekið Lipur í innanbæjarakstri Hastur á mölinni Mjög lipur í torfærum IILUTFALL jeppa í heildarsölu bíla hér á landi hefur farið mjög minnk- andi siðustu árin og má í því sam- handi nefna, að árið 1962 var mark- aðshlutdeildin um 36%. Árið 1972 var hún komin niður í um 15% o£ á síð- asta ári niður í um 5,5%. Ástæður þessa eru eflaust margar, en sjálfsagt vegur hátt verð á amerísku og brezku jeppunum þar þyngst, þar sem þeir hafa verið uppistaðan í þeim jeppum, sem hingað hafa verið fluttir. Breyting hefur hins vegar orðið á þessu hin allra síðustu misseri og jeppasala jafnframt glæðst, en það er með sí- auknum innflutningi á japönskum smájeppum. Kinn þeirra er Suzuki Fox, sem er nokkurs konar arftaki Suzuki-jeppans, sem verið hefur á markaði síðustu árin. Ég reynsluók Foxinum á dögunum og útkoman úr þeim akstri kom mér verulega á óvart, þ.e. hversu marga góða kosti þessi annars litli jeppi hefur. Foxinn er skráður fyrir tvo full- orðna og tvö börn aftur í, og það verður að segjast, að rýmið frammi í er ágætt. Það fer alveg þokkalega um tvo meðalstóra menn. Hins veg- ar er sætið aftur í af einfaldari gerðinni, enda aðeins gert fyrir tvö börn, eða unglinga. Það þyrfti hins vegar ekki að gera ýkja miklar breytingar til að gera aðstöðuna al- veg þokkalega fyrir tvo fullorðna. Taka þyrfti úr gólfinu, sem er lítið mál og hækka sætið lítið eitt. Eins og áður sagði er rými í framsætum ágætt. Sætin sjálf eru hins vegar frekar af einfaldari gerðinni og þegar ekið er í ójöfnu landi, eða í torfærum er bráðnauðsynlegt, að festa sig með öryggisbeltum. Annars má segja það um Foxinn, að þrátt fyrir smæðina er ágætt fyrir meðalstóra menn að stíga upp í hann. Hurðirnar opnast mjög vel og rými er ágætt til að smeygja sér inn. Aðeins er ætlast til þess, að aftursætisfarþegar fari inn far- þegameginn að framan og sætið þannig úr garði gert, að hægt er að leggja það fram og færa fram á við í heilu lagi, sem gerir það að verk- um, að tiltölulega skaplegt er að komast aftur í. Auk þess að vera með tiltölulega stórar framdyr, sem gott er að ganga um, eru stórar dyr aftan á bílnum, sem gefa honum mjög auk- ið gildi. Það opnast hreinlega allur gaflinn, þannig að mjög auðvelt er að flytja hluti í Foxinum. Það er hægt að leggja aftursætið fram, eða hreinlega kippa því úr án mikillar fyrirhafnar og má þá segja, að kom- inn sé lítill sendibíll. Því má og Jóhannes Tómasson Sighvatur Blöndahl inn er mjög léttur, eða aðeins um 800 kg, sem gefur síðan möguleika á minni vél en gengur og gerist í jeppum. Vélin er aðeins 45 hestöfl við 5.000 snúninga, en það ótrúlega er, að bíllinn er alls ekki eins afl- vana eins og menn gætu ætlað. Eins og áður sagði svipar akst- urseiginleikum Foxins mjög til Willys-jeppanna, enda er Foxinn stuttur á grind og með fjaðrir en ekki gorma. I innanbæjarakstri verður maður tiltölulega lítið var við þessa jeppaeiginleika og er hann í raun mjög lipur og beygju- radíusinn er aðeins 4,9 metrar. Það getur vart betra verið. Hins vegar er því ekki að neita, að um leið og koma ójöfnur og farið er að aka á malarvegum, verður maður að vera vel vakandi. Blessaður bíllinn á það til að gera tilraun til að taka völdin og fara eigin leiðir. Þetta þýðir ekki endilega að hann sé hættulega hastur, heldur aðeins það, að menn verða að halda vel vöku sinni, eins og gildir reyndar um alla jeppana. Þeir verða aldrei eins og fólksbílar. Á malbikuðum vegum er alveg ágætt að keyra Foxinn og það vekur athygli, að auðvelt er að aka honum á um 100 km hraða, án þess að farið sé að syngja og hvína í öllu. Hann er tiltölulega hátt drifaður, sem gerir þetta fyrst og fremst að verk- um. Þegar ekið er á mölinni er hann eins og áður sagði hastur og því alls ekki hægt að keyra hann mjög hratt. Góður ferðahraði er á bilinu 50—70 km á klukkustund. Þess má geta, að hámarkshraði er talinn vera um 115 km á klukkustund. Foxinn kom mér töluvert á óvart þegar ég fór að aka honum í torfær- um. Hann er mjög lipur og þótt hann komi á tiltölulega litlum og mjóum dekkjum komst hann furðu- mikið. Það er mjög þægilegt, að koma honum í framdrif og síðan í lágadrif, í raun óvenjulega þægilegt af jeppa að vera. Aðalgallinn við bílinn í torfærum er hversu hátt drifaður hann er, sem hins vegar kemur honum til góða í venjulegum Foxinn kom furðuvel út utan vegar. þurrkurnar, sem eru tveggja hraða, og aðalljósarofinn, sem er á vinstri hönd, en í honum er ennfremur flautan. Innsogið er mjög hand- hægt innan seilingar og sömuleiðis er auðvelt að koma lyklinum fyrir í stýrinu. Það sem kannski helzt má finna að staðsetningu stjórntækj- anna er miðstöðin, en aðalrofi hennar er tiltölulega langt út til hægri í borðinu, þannig að maður verður að teygja sig í átt að honum. Annars má segja það um miðstöð- ina, að hún virkar alveg ágætlega og er tiltölulega fljót að hita bílinn upp. Foxinn er byggður á stálheilgrind og svipar uppbygging hennar mjög til gamla Willys, enda eru aksturs- eiginleikar um margt svipaðir. Bíll- Ljósmyndir Mbl. Kristján. 45 hestafla vél er í Suzuki Fox skjóta inn í,’ að fyrir aftan aftur- sætið er smápláss fyrir minni far- angur, þannig að segja má, að hver sentimetri sé fullnýttur í bílnum. Þegar setzt er inn í Foxinn og hann skoðaður er hann óneitanlega frekar hrár. Það vantar alla klæðn- ingu inn í hann aftur í og á fram- hurðum eru síðan spjöld. Þessu er auðvelt að kippa í liðinni með léttri klæðningu, sem myndi gerbreyta bílnum til hins betra. Bæði gera hann hlýlegri og ennfremur að minnka í honum hávaðann, því óneitanlega er nokkur glymjandi í honum þegar ekkert hefur verið gert. Annar hlutur er það, sem maður tekur strax eftir, en það er hversu gott útsýni er úr bílnum frammi í. Maður situr tiltölulega hátt og hef- ur mjög góða yfirsýn yfir bílhlut- ana. Mælaborðið er frekar einfalt, en skilar sínu hlutverki annars vel. Auðvelt er að sjá á mæla án þess að hreyfa sig til og stjórntæki eru flest innan seilingar, svo sem stefnu- ljósarofi, en í honum eru ennfremur Suzuki Fox hefur hreinar og beinar linur. Mælaborðið er frekar einfalt, en skilar sínu. Bílar Ný Toyota Celica Supra 2.8: „EINN MEÐ ÖLLU“ „EINN með öllu“ kalla þeir hjá Toyota nýju útfsrsluna af Toyota Celica-sport- bílnum kunna, en hann er nú fáanlegur í sérstakri lúxusútgáfu og nefnist Celica Supra 2.8. Bíllinn er búinn flestum hugsanlegum aukatskjum, sem yfírleitt eru ekki í hefðbundnum útfsrslum. Má þar nefna sólþak, sæti með loftpúðum, sem eru upphituð. Þau getur viðkomandi pumpað eftir eigin geðþótta, rafmagnsrúðuupp- halara, miðstýrða læsingu á hurðum, steríótæki, auk ýmiss konar msla til að kanna stöðu hinna ýmsu kerfa bílsins. Annars er innrétting bilsins mjög ríkulega búin. Toyota Celica Supra er knúinn 6 strokka benzinvél, sem er 170 DIN-hestöfl. Nýjung hjá Opel: Ascona og Kadett fáanlegir með dies Ennfremur hefur verið kynntur nýr Manta Opelverksmiðjurnar vestur-þýzku hafa á undanförnum misserum kynnt nýja línu i Opel Kadett og Opel Ascona, en þeir bílar hafa náð mikl- um vinsældum, sérstaklega í Evrópu. Þessir bílar hafa verið knúnir benz- ínvélum, en nú hefur Opel bætt um betur og býður þá nú með dísilvél. Dísiivélin, sem Opel býður nú í bílana, er fjögurra strokka, með 1,6 lítra rúmtak og er 54 DIN hestöfl við 4.600 snúninga. Menn fá sem sagt sömu vélina, hvort heldur þeir kaupa Kadett eða Ascona og spurn- ingin er því um pláss og þyngd bíls- ins. Þar sem Kadettinn er eilítið létt- ari bíll heldur en Asconan eyðir hann ennfremur heldur minni olíu, en samkvæmt upplýsingum Opel er hægt að aka 19,6 kilómetra á hverj- Opel Kadett. Opel Ascona.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.