Morgunblaðið - 17.06.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ1982
43
75 ára afmæli Patrekshrepps:
Minnzt með sam-
eiginlegri kaffi-
drykkju bæjarbúa
Patreksfirði.
í DAG, 17. júní, býður hreppsnefnd
Patrekshrepps öllum íbúum þorps-
ins til sameiginlegrar kaffidrykkju
í félagsheimili Patreksfjarðar í til-
efni af 75 ára afmæli staðarins,
sem var fimmtánda þessa mánað-
ar. Það var 15. júni árið 1907 sem
Rauðavatnshreppi var formlega
skipt og var þá Patrekshreppur
stofnaður en áður hafði Vatnseyri
og Geirseyri sem nú nefnast einu
nafni Patreksfjörður tilheyrt
Rauðavatnshreppi.
íbúafjöldi staðarins var þá um
300 manns. Fyrsti oddviti
hreppsins var Jón Snæbjörnsson.
Tveir menn komu mikið við sögu
uppbyggingar Patreksfjarðar á
fyrstu árum staðarins. Það voru
þeir Pétur A. Ólafsson við upp-
byggingu Geirseyrar og Ólafur
Jóhannesson við uppbyggingu á
Vatneyri og tengdasynir hans,
þeir Garðar og Friðþjófur.
Snemma kom hér sjúkrahús og
var Patreksfjörður mikill við-
komustaður franskra fiskiskipa
og síðar færeyskra. Seinna þegar
skútuöld lauk var staðurinn fjöl-
Samdrátt-
ur 1 þurrk-
un saltfisks
Útflutningur á þurrkuðum saltf-
iski dróst mikið saman á síðastliðnu
ári og varð aðeins 840 tonn á móti
2.539 tonnum árið 1980.
Á aðalfundi Sölusambands ísl.
fiskframleiðenda kom fram, að á
árinu 1980 hafi reyndar mikið ver-
ið flutt út af gömlum birgðum af
úrgagnsfiski til Zaire. Segir að
samdráttur í þurrfiskframleiðsl-
unni hafi verið óumflýjanlegur. Þó
undarlegt megi virðast, sé tæpast
nokkurt samband á milli heims-
markaðsverðs á blautsöltuðum
fiski annars vegar og þurrkaðs
saltfisks hins vegar. Islendingar
hafi haft afgerandi áhrif hingað
til á verðlag blautsaltaðs fisks, en
hins vegar sé saltfiskþurrkun í
Noregi ríkisstyrkt í stórum stíl.
Þurrfiskframleiðsla Norðmanna
hefur numið 50.000 tonnum á ári
mörg undanfarin ár og hefur sölu-
verð Norðmanna almennt numið
hráefnisverði því, sem íslenzkir
framleiðendur þurfa að borga.
sóttur viðkomustaður breskra og
þýskra togara, sem sóttu hingað
margs konar þjónustu. Myndar-
legur barnaskóli var reistur og
gegnir nú því hlutverki að vera
ráðhús staðarins. Þar hefur einn-
ig sýslubókasafnið aðsetur.
Vatnið á eyrinni, sem Vatneyri
dregur nafn sitt af, var grafið út
og gerð þar myndarlegasta höfn.
Má segja að þá hafi staðurinn að
nokkru leyti misst nafn sitt. Áð-
ur var oft talað um Vatneyri við
Patreksfjörð en nú er sú nafngift
að mestu leyti horfin og alltaf
talað um Patreksfjörð. Áður töl-
uðu bændur í Rauðasandshreppi
og Barðastrandarhreppi, ef þeir
ætluðu í kaupstað, um að fara á
Eyrar en nú er þetta með öllu
horfið en eimir ennþá eftir af
þessum nöfnum hjá gömlum
fyrirtækjum, má t.d. nefna Eyr-
arsparisjóð, sem búinn er að
þjóna þessum stað um áratugi.
Miklar framkvæmdir hafa ver-
ið hér á undanförnum árum sem
og annarstaðar. Á miðjum
fimmta áratugnum var byggt
myndarlegt sjúkrahús á þeirra
tíma mælikvarða og nú hefur
nýlega verið tekin í notkun vönd-
uð og glæsileg heilsugæslustöð.
Tveir læknar eru hér starfandi.
Myndarlegt og stórt félags-
heimili hefur verið tekið í notkun
en er ekki að fullu lokið. Slökkvi-
stöð hefur verið byggð og barna-
heimili er í byggingu. Slitlag hef-
ur verið lagt á flestar götur.
Sýslumaður Barðastrandarsýslu
situr á Patreksfirði. Núverandi
sýslumaður er Jóhannes Árna-
son. Prófastur sýslunnar situr
hér einnig, séra Þórarinn Þór.
úr massivu beyki
rUriVCr eikog ask
Hagstætt verð/góð greiðstukjör
Timburverzlunin Völundur hf.
KLAPPARSTIG 1 S. 18430
Patreksfjörður hefur alla tíð
byggt afkomu sína á sjósókn og
útgerð og höfum við átt því láni
að fagna að eiga afburða duglega
og aflasama sjómenn. Hafa bát-
ar hér oft verið hæstir og með
þeim hæstu vertíð eftir vertíð
hvað afla snertir. Margir stórir
vélbátar eru gerðir hér út og einn
skuttogari ásamt fjölda minni
báta.
Hraðfrystihús Patreksfjarðar
er nýflutt í stór og glæsileg húsa-
kynni. Það gerir út skuttogarann
„Sigurey" og vélbátinn „Þrym“.
„Oddi hf.“ er með mikla salt-
fisksverkun og skreiðarfram-
leiðslu og hefur gert út bátana
„Vestra" og „Garðar" og einn til
viðbótar. „Garðar" hefur nú sem
kunnugt er verið dreginn á land í
Skápadal til endanlegrar veru en
hann er elsta fiskiskip landsins.
Verið er að smíða í Stykkishólmi
nýtt skip í stað „Garðars" og
kemur það væntanlega í haust.
Framkvæmdastjóri „Odda hf.“ er
Jón Magnússon. Finnbogi Magn-
ússon sem til skamms tíma gerði
út „Helgu Guðmundsdóttur" rek-
Ankeri og irskur kross eru sam-
tvinnuð í hinu nýja merki Patreks-
fjarðar, sem Dýrleif Guðjónsdóttir
hannaði.
ur hér einnig fiskverkunarstöð-
ina „Vesturröst" og vélskipið
„Dofra". Bræðurnir Héðinn og
Hörður Jónssynir reka hér einn-
ig nýbyggða fiskverkunarstöð og
gera út bátana „Gylfa“ og „Jón
Þórðarson". „Kópanes hf“ hefur
keypt hraðfrystihúsið „Skjöld"
og er Karl Jónsson byggingar-
meistari þar forsvarsmaður.
Þrjú byggingafyrirtæki eru
starfandi hér á staðnum, „Bygg-
Frá Patreksfirði.
ir“, „Iðnverk", og „Einar Óli“ og
þrjár vélsmiðjur, „Logi“,
„Sindri“, og „Bílaverkstæði Guð-
jóns“. Veita þessi fyrirtæki
fjölda manns atvinnu. Einnig er
hér mjólkursamlag og nýbyggt
sláturhús.
I tilefni afmælisins hefur verið
gert merki fyrir staðinn. Var það
samþykkt til notkunar á hátíðar-
fundi hreppsnefndar þann 15.
júní. Ung stúlka hér, Dýrleif
Guðjónsdóttir, teiknaði merkið
sem er bæði einfalt, sérlega fal-
legt og táknrænt fyrir staðinn.
Það er írski krossinn og ankeri
samtvinnað. Ankerið er tákn
trausts og atvinnuhátta staðar-
ins en írski krossinn minnir á
nafngift staðarins, en eins og
kunnugt er þá gaf landnámsmað-
urinn Örlygur gamli firðinum
nafn eftir heilögum Patreki. Nú-
verandi oddviti Patrekshrepps er
Hjörleifur Guðmundsson en
sveitarstjóri er Úlfar Thor-
oddsen. Fjölbreytt hátíðarhöld
verða hér í dag í tilefni afmælis-
ins og þjóðhátíðardagsins.
— Páll.
Til Benidorm 22. júní
Fylgist með heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu á
Spáni. Þaðeraðeins um klukkutíma aksturfrá Benidorm
til borganna Valencia, Alicante og Elche, en þari fara
t.d. fram leikir heimsmeistaranna Argentínumanna og
leikir landsliðs Spánverja (3. og 5. riðillinn).
Ferðamiðstöðin hefur þegar útvegað takmarkað
magn miða á leiki.sem fara fram eftir 22 júní, og á þeirra
vegum fóru farþegar frá Benidorm ströndinni á setning-
arathöfnina
Það varla fiægt að fylgjast betur með heimsmeistara-
keþpninni en að fara til Benidorm 22 júní með Ferðamið-
stöðinnil.
1FERÐAMIÐSTÖDIN
AÐALSTRÆTI9
Sl'MI 28133 11255