Morgunblaðið - 17.06.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.06.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ1982 47 95 ára: Pétur Þ. Guðmunds- son frá Vatnshlíð Höfuðþjóðbraut íslands liggur um Vatnsskarð. Þá leið fer drjúg- ur hluti íslensku þjóðarinar á hverju ári. Landfræðileg þekking margra er því talsvert bundin henni. Kennileitin á þessari leið eru flest auðskilin og sjálfsögð. Þó er þar ein undantekning. Marka- línan milli Austur-Húnavatns- sýslu og Skagafjarðarsýslu fylgir ekki vatnaskilum á Vatnsskarðinu sjálfu, heldur var hún dregin nokkru austar. Þannig er Vatns- hlíð ekki einungis fyrsti bærinn sem komið er að austan Vatns- skarðs á leiðinni ofan i Skaga- fjörð, heldur jafnframt austasta jörð í Húnaþingi. Þetta misræmi milli þeirra móta sem guðirnir gerðu í öndverðu og línunnar sem dauðlegir menn drógu síðar lögum samkvæmt hefur m.a. valdið því að Skagfirðingum er gjarnt að líta á höfuðbólið Vatnshlíð sem hluta af sínu eigin umdæmi. Engar heimildir eru þó fyrir landamæra- erjum á þessum slóðum. Miklu fremur má líta á afbrigðileg sýslu- mörk á Vatnsskarði sem tákn um vinsemd og frið héraða í milli. Þetta sameiningartákn efldist enn að mun á fyrri hluta þessarar ald- ar, þegar húsum réð í Vatnshlíð Pétur bóndi Guðmundsson, sá maður sem nýtur virðingar og trausts um bæði Húnaþing og Skagafjörð sem og meðal allra þeirra sem hafa haft af honum einhver kynni. Því eru þessi orð á blað fest að þann 18. júní á yfirstandanda vori verður Pétur frá Vatnshlíð 95 ára gamall, en á þeim bæ var hann í heiminn borinn árið 1887. Foreldr- ar hans voru þau hjónin Lilja Þur- íður Stefánsdóttir og Guðmundur Sigurðsson. Árið 1912 kvæntist Pétur Herdísi Grímsdóttur frá Syðri Reykjum í Biskupstungum, glæsilegri sæmdarkonu. Hófu þau hjón þá búskap í Vatnshlíð og bjuggu þar síðan óslitið í aldar- fjórðung eða til ársins 1938 er þau fluttust til Sauðárkróks. Eftir að Pétur lét af búskap, annaðist hann ýmis störf og dró sig ekki í hlé fyrr en hann stóð á áttræðu. Varð starfsdagur hans því miklum mun lengri en títt er. Frú Herdís and- aðist á Sauðárkróki árið 1971, og höfðu þau hjónin þá verið gift í næstum sex áratugi. Þau Herdís og Pétur eignuðust þrjár dætur. Ein þeirra dó í frumbernsku. Hin- ar tvær eru frú Kristín, búsett í Reykjavík, og frú Þuríður á Sauð- árkróki. Barnabörnin eru fjögur að tölu, og þriðju kynslóð fer fjölg- andi. Þótt jörðin Vatnshlíð standi all- hátt yfir sjávarmál, eru landkostir þar góðir og nýttust þeir Pétri bónda. Hann jók ræktun að mun, og árið 1916 byggði hann stórt og reisulegt íbúðarhús, sem í þá daga stakk mjög í stúf austan Vatns- skarðs, en þar um slóðir lét meiri- hluti bænda torfbæina duga fram undir öldina miðja. Ný peningshús reisti Pétur og leiddi vatn í. Fannst samtíðarmönnum og grönnum mjög til um þá hagræð- ingu. I einu og öllu hafði Vatns- hlíðarheimilið á sér brag menn- ingar og framfara. Pétur frá Vatnshlíð er með af- brigðum listhneigður maður. Ung- ur að árum nam hann orgelleik norður á Akureyri hjá hinum kunna hljómlistarmanni Magnúsi Einarssyni. Æ síðan hefur hann forðast að sitja einn að sinni mennt en látið aðra njóta hennar. „Það var mikið sungið og spilað í Vatnshlíð," mælti kunnugur, og eftir að Pétur var orðinn einbúi á Sauðárkróki, þá kominn talsvert yfir áttrætt, bar við að hann gleymdi sér við orgelið fram eftir nóttu. Meðal afkomenda Péturs gætir þessarar ríku listhneigðar og tónagleði, og um suma þeirra má með sanni segja að þeir láti ekkert aftra sér ef sönggyðjan og tónlistin eru annars vegar. Pétur Guðmundsson er höfð- ingsmaður að allri gerð, og kurteis reisn er hans aðal. Hálftíræður fer hann sér ögn hægar heldur en þegar gengið var milli flekkja á Vatnshlíðartúninu forðum, en andlegu atgervi heldur hann óskertu. Ættingjar Péturs og vinir senda honum hugheilar afmæliskveðjur. M.B. og H.B. Royal Viking Star í Reykjavík Royal Viking Star, stærsta far- þegaskip sem hefur lagzt aö bryggju í Reykjavík, kom hingað frá New York meö viðdvöl á Bermuda-eyjum síðasta sunnudag. Skipið stóð aöeins við i einn sól- arhring. Héðan siglir það til Nor- egs þar sem stoppað verður á ýms- um stöðum og þá til Kaupmanna- hafnar. Royal Viking Star kemur aftur til íslands 16. ágúst. Royal Viking Star er í eigu Royal Viking Line-skipafélags- ins sem í viðbót við Royal Viking Star er með tvö önnur skip í eigu sinni, Royal Viking Sky og Royal Viking Sea og kom fyrrnefnda skipið hingað í fyrra. Royal Viking Star tekur sjö Skemmtiatriði æfð um borð í Royal Viking Star. Royal Viking Star liggur við festar í Reykjavík. hundruð farþega þó aðeins séu fjögur hundruð farþegar með skipinu í þessari ferð. Stjórn skipsins er öll í höndum Norð- manna en Bandaríkjamenn sjá um fararstjórn þar sem aðal- markaður Royal Viking Line- skipafélagsins er í Bandaríkjun- um. Meirihluti farþega er Bandaríkjamenn, en einnig eru Evrópumenn, Ástralíumenn og Kanadamenn um borð. Það er ferðaskrifstofan Atlantík sem sér um alla fyrirgreiðslu við far- þega hérlendis. Engum þarf að leiðast um borð í Royal Viking Star, því um 30 fastráðnir skemmtikraftar eru um borð. Á hverju kvöldi eru um fimm mismunandi skemmti- atriði, auk þess er þar kvik- myndasalur þar sem fara fram sýningar á ýmsum kvikmyndum, myndbandasjónvarp, sauna-böð, leikfimissalur og nuddstofa. Einnig eru tvær útisundlaugar um borð. Royal Viking Star er rúmlega 28 þúsund rúmlestir að stærð og nær 22 hnúta hraða. Aðalskrif- stofa Royal Viking-skipafélags- ins er í San Francisco í Banda- ríkjunum. ATAR Góö greiösluViör Stuttur „tnreiðslulrestur SKIPAVIÐGERÐIR HF. Frá og meö 1. mars 1982 hefur fyrirtækiö Skipaviö- geröir hf., Vestmannaeyjum, sem framleiöa mun undir nafninu S.V. BÁTAR, keypt framleiösluréttinn á fiski- og skemmtibátum af fyrirtækinu Mótun hf., Hafnarfirði. Framleiösla er þegar hafin í Vest- mannaeyjum á eftirtöldum bátstegundum: Áöur MOTUN 26 nú S.V. bátur 26 (Færeyingur). Áöur MÓTUN 25 nú S.V. bátur 25 (25 feta planandi fiskibátur). Undirbúningur framleiöslu á S.V. bát 20, sem er 20 feta planandi fiskibátur meö lúkar, er á lokastigi. Okkur er sérstök ánægja aö tilkynna aö söluaöili okkar er Þ. Skaftason hf., Grandagaröi 9, R. Sími 91-15750 og 91-14575, sem veitir fúslega allar upp- lýsingar, en einnig munum viö veita upplýsingar í síma 98-1821 eöa 98-1226, kvöldsími. Viö munum kappkosta viö að halda afgreiðslutíma stuttum, en meðalafgreiðslufrestur í dag er 6—8 vikur. Skipaviðgerðir hf., Stofnað1958 Vestmannaeyjum. sími 98-1821.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.