Morgunblaðið - 17.06.1982, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1982
41
hvern sem getur skipulagt þær
heimildir sem berast stofnuninni
og ekki síður leitað heimilda fyrir
þá sem vinna þar. Það er ólíkt
þægilegra fyrir sérfræðing að geta
beðið annan sérfræðing (þ.e.a.s.
bókasafnsfræðing) að leita að
heimildum fyrir sig, leita upplýs-
inga, t.d. í erlendum tölvubönkum,
hvað um viðfangsefni hans hefur
verið ritað o.s.frv., heldur en eyða
sjálfur dýrmætum tíma í leit.
Einkafyrirtæki jafnt sem opinber-
ar stofnanir eru nú farin að sækj-
ast eftir bókasafnsfræðingum eft-
ir því sem skilningurinn á verk-
þekkingu þeirra eykst.
Bókasaf nsfræðin
og skólasöfnin
Ekki get ég lokið svo við þessa
grein að ekki sé nefnd þróun
skólasafna hér á landi og þáttur
bókasafnsfræðinnar í þeirri þróun
enda hafa skólasöfnin verið í
brennidepli hér að undanförnu.
Það er leitt til þess að vita að því
hefur verið haldið á lofti að bóka-
safnsfræðin sé óþörf þeim sem
eiga að vinna í skólasöfnum. Svo
langt hefur þessi rógur gengið að
talað er um að ekkert sé sameig-
inlegt skólasöfnum og öðrum söfn-
um nema flokkunarkerfið! Slík
þröngsýni hefði verið fyrirgefan-
leg fyrir 10 árum þegar skólasöfn-
in voru ný hér á landi og hver sá
sem sýndi áhuga á málinu þá, gat
orðið skólasafnvörður. Raunveru-
leikinn er hins vegar sá, að það
færist æ meir í vöxt alls staðar í
heiminum að skólasöfn séu viður-
kennd sem sérstök tegund bóka-
safna, sem þjóni þeim stofnunum
sem þau starfa við og verði sem
slík að laga sig að starfsháttum
viðkomandi skóla. Þau þjóna skól-
anum, bæði nemendunum og
starfsliði skólans og eru þannig
þær stofnanir sem leggja grund-
völlinn að allri bókasafnsnotkun
framtíðarinnar. í þessu sambandi
má benda á að UNESCO, Menn-
ingar- og vísindastofnun Samein-
uðu þjóðanna, hefur lagt mikla
áherslu á að útvega fé til að
byggja upp skólasöfn og mennta
skólasafnverði. Skólasöfnin, að
þeirra mati, leggja grundvöllinn
að lesvenjum og heimildanotkun
samfélagsins. Ef skólasöfnin eru
ékki þannig úr garði gerð að þau
geti gegnt sínu hlutverki hlýtur
það að koma niður á allri upplýs-
inga- og safnnotkun fólks í fram-
tíðinni. Að halda því fram að
skólasöfnin séu sérstakt fyrir-
brigði óskylt öllum öðrum söfnum,
er byggt á vanþekkingu og miklum
misskilningi og getur eingöngu
spillt stórlega fyrir þróun þeirra.
Framtíöin
Sé litið til framtíðarinnar má
segja að hún sé björt fyrir bóka-
safnsfræðingar. Tölvuvæðing er
að hefjast í íslenskum söfnum og
má búast við stórstígum framför-
um á því sviði á næstu árum.
Smám saman er að vakna áhugi
sveitarstjórnarmánna og annarra
ráðamanna í samfélaginu á nauð-
syn góðrar bókasafns- og upplýs-
ingaþjónustu. Bein afleiðing af
þeim áhuga er svo að sóst er eftir
vel menntuðu og hæfu starfsfólki.
Víða um land er verið að huga að
byggingu bókhlaða og í smíðum er
stærsta bókasafn landsins, Þjóð-
arbókhlaðan, sem mun þurfa á
mörgum bókasafnsfræðingum að
halda. Það virðist því auðsætt að
þörf verður fyrir margt fólk í
framtíðinni sem getur starfað að
því að gera íslandi og íslendingum
kleift að tileinka sér þekkingu og
tækniframfarir á öllum sviðum.
Því hefur verið haldið fram að
komandi öld verði öld upplýs-
inganna. Þekkingin vex ört og
ógjörningur er að sjá fyrir þær
afleiðingar sem þekkingarflóðið
kann að hafa fyrir okkar heim.
Hvert það samfélag sem vill kalla
sig nútímalegt og sem vill tileinka
sér það besta sem þekkingin hefur
fram að færa verður því að kunna
að nýta sér þær heimildir og þá
þekkingu sem til staðar er. Til
þess þörfnumst við margra, góðra
og vel menntaðra bókasafnsfræð-
inga sem hafa þekkingu, víðsýni
og starfslöngun til þess að takast
á við þetta heillandi starf.
Ferming í
Hevdalakirkju
Ferming í Heydalakirkju í Breið-
dal 20. júní, 1982, kl. 11.00. Prestur:
séra Kristinn Hóseasson
Fermd verða:
Gunnsteinn Þrastarson,
Sæbergi 19.
Ingólfur Örn Arnarson,
Sólbakka 10.
Ómar Ingi Melsted,
Ásvegi 21.
Sveinn Ari Guðjónsson,
Ásvegi 19.
Guðríður Snjólfsdóttir,
Sæbergi 8.
Guðrún Hafberg Ólafsdóttir,
Felli.
Linda Mjöll Stefánsdóttir,
Sæbergi 5.
Nína Midjord Erlendsdóttir,
Fellsási.
Þrír Falk-
landseying-
ar fallnir
__ London, 15. júní. AP
ÁTTATÍU og tveggja ára gömul kona,
Mary Goodwin, lét lífið í sprengjuárás
Breta á stöðvar Argentínumanna í
Port Stanley sl. laugardag, að þvi er
breskar heimildir herma.
Mary Goodwin hafði leitað skjóls
í húsi í Port Stanley ásamt tveimur
öðrum konum, sem haldið var að
einnig hefðu farist, en seinna kom í
ljós að svo var ekki.
Hún er þriðji Falklandseyingur-
inn sem lætur lífið í átökunum.
Vinningshöfum Heimabingós
gefst kostur á því að nota ávísun þessa til vöruúttektar hjá
Hljómbæ, Hverfisgötu 103, og þar með eignast gæðamerki í
hljómflutningstækjum.
OiDpioimeer Luxor ®TDK
orlQfonSb M^raudio sonic
HUOMBÆR
------ w rwvtcn
HUOMMR SHARP,i__m_b
■ ---mn-DDmi
HLJOM‘HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI íjVERFJ?rtGÖTU 103
SIMI 25999 — 17244.
Ath. verö á Lada-bílum
hefur aldrei veriö hag-
stæöara.
LADA STATION 1200 CA. KR. 76.000
LADA STATION 1500 CA. KR. 80.000
LADA SPORT CA. KR. 124.000
Munið að varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki.
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf
Suðurlandsbraut 14 - Simi 38600 Suludeild 31236
W
T Jk ■* M l
brýtur verobólgumúrinn-besta kjarabótin!
Verð
kr. 77.000.
Cóðir greiðsluskilmálar.