Morgunblaðið - 17.06.1982, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 17.06.1982, Qupperneq 28
60 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ1982 HCÉAAHH • 1982 UnlvtrMl rr»»« Sywdlcm -- .... . ■ - ....... Ég & aivcg ab Ijóka o\6 I húsgcicjnac^cia?5" V ... aö taka ötulan þátt í áhugamál- um hans. Þér er óhætt að koma niður, grimmi kötturinn er farinn! I’að er lán i óláni hve minnugur þú ert á andlit, því ég braut rakspegil- inn þinn! HÖGNI HREKKVlSI Endursýnd kvikmynd ekki auglýst sem slík „Kæri Velvakandi! Mánudaginn 7. júní sl. hugðist ég undirritaður ásamt félögum mínum fara og sjá kvikmyndina „Með hnúum og hnefum", sem sýnd er í Bíóbæ í Kópavogi. Er við komum á staðinn og sáum útstillt- ar auglýsingamyndir um kvik- myndina, fannst okkur við kann- ast við þessar útstillingar og minnti okkur, að mynd þessi hefði verið sýnd í þessu sama kvik- myndahúsi fyrir nokkru, er það starfaði undir öðru nafni (Borg- arbíó). Það er þó hvergi tekið fram, hvorki í dagblaða- auglýsingum né á auglýsingaskilt- um bíósins, að um endursýnda mynd sé að ræða. Við spurðum því afgreiðslumanninn hvort myndin væri endursýnd og þrætti hann fyrir það blygðunarlaust. Við lét- um það þó gott heita og hugðumst kaupa aðgöngumiða. Verð miðans var kr. 37. A þessa gömlu endur- sýndu mynd kostar því mun meira en á nýjustu myndir annarra kvikmyndahúsa og leyfi ég mér að efast um, að löglegt sé að selja miða á slíku okurverði. Rök af- greiðslumannsins fyrir hinu háa verði voru „að gamlar myndir væru jafn dýrar í innkaupum og nýjar", auk þess sem þetta væri nú „aðeins fjórum krónum dýrara en leyft verð“. Varla þarf að taka það fram, að jafn afspyrnulélega mynd hefur undirritaður aldrei séð. Virðingarfyllst, Björn Jónsson, Ljósalandi 7.“ Bréfritara þykja nýju Volvo-strætisvagnarnir til fyrirmyndar. Nýtt fargjaldakerfi fyrir Strætisvagna Reykjavíkur Hr. Velvakandi. Mér er spurn: Er ekki kominn tími til að endurskoða fargjalda- greiðslufyrirkomulag Strætis- vagna Reykjavíkur? Mér kemur þetta sérstaklega í hug þessa dagana, þegar útlend- ingar eru farnir að koma í sumar- heimsókn til íslands. Erlendis er hægt að fá kort í strætisvagna sem gilda mismunandi langan tíma. I Svíþjóð til dæmis er hægt að fá kort sem gildir á öllum leið- um í einn dag og jafnvel lengri tíma. í Danmörku er hægt að fá mánaðarkort og svona mætti lengi telja. í Þýskalandi kaupir fólk kort og gatar þau sjálft í vagnin- um. Eftirlitsmenn koma svo í vagnana við og við. Ef einhver ferðast með vagni í heimildarieysi er hann þegar sektaður. Þetta þýðir víst ekki hér þar sem helst ekki má framfylgja lögum og regl- um. Nokkrir menn hér í Reykjavík eru sagðir lausir við að greiða stöðumælasektir. Nú, jæja, aftur að SVR. Á rekstri þeirra er mikill halli. Hluti þessa halla stafar ef- laust af slæmum fargjaldaheimt- um. Þetta er ekki vagnstjórunum að kenna heldur er greiðslufyrir- komulagið svo erfitt til eftirlits að það býður upp á ýmis undanbrögð frá greiðslu. Fólk kemur inn og hellir slatta af mynt í brúsana. Enginn veit hvort upphæðin er rétt. Það má segja að það sé rangt að gera mönnum upp óheiðarleika og vafalaust greiða margir rétta upphæð. En svona fyrirkomulag er of freistandi og gerir fólk óheið- arlegt enda er fjöldi fólks farinn að halda að það eigi alls staðar inni einhverja félagslega þjónustu sem það sjálft þarf ekkert að Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvað- eina sem þeim liggur á hjarta — eða hringja milli kl. 10 og 12 mánudaga til föstudaga. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð. Þeir sem ekki koma því við að skrifa slá þá bara á þráðinn og Velvak- andi kemur orðum þeirra áleið- is. Nöfn, símanúmer og heimil- isföng þurfa að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar þess óski nafnleyndar. greiða fyrir. Annað dæmi: Ungl- ingar ryðjast inn og hver segir að hinn borgi fyrir sig eða öfugt og allt lendir í töf og þrasi. Það er ekki hægt að ætla vagnstjórum að standa í þessu. Ég vil gera það að tillögu minni að SVR fari nú þegar að undirbúa sölu á kortum sem gilda til langs tíma. Þetta yrði til þæginda og ör- yggis. Það er svo mikill fjöldi fólks sem ferðast daglega með strætis- vögnunum allan ársins hring að þetta hlýtur að vera hægt hér eins og annars staðar. Að endingu langar mig til að óska hönnuði og bílasmiðju- mönnum fyrir hve vel þeir hafa leyst af hendi yfirbyggingar nýju vagnanna (Volvo). Það er mjög gott að ferðast með þessum vögn- um. Handbragðið og frágangur allur er til sóma. Sjálfum fannst mér þægilegast að ferðast með litlu „Benzunum", en þessir nýju gefa þeim lítið eftir. Sætin í nýju vögnunum eru einkar þægileg. Það er verst hvað margir krakkar spyrna með óhreinum skóm í bök- in, en mér er nær að halda að unglingar séu farnir að ganga bet- ur um vagnana en áður. Það er nú líka ekki ástæða til annars eins og vagnarnir eru orðnir fínir. „Farþegi" Tískusýning undir „Kæri Velvakandi! Síðastliðinn föstudag var ég stödd af tilviljun niðrí í miðbæ um kl. 18.00 og átti þá leið fram hjá hinu margumtalaða tafli eða úti- tafli eins og það er nú kallað. Þá fór þar fram einhver uppákoma sem mér fannst stórkostleg en því miður sem ég veit engin deili á. Þarna voru 17 stórglæsilegar stúlkur, sem voru allar klæddar í ísl. fatnað, kjóla og skreyttar með silfri eða silfurskartgripum og sýndu þær fatnaðinn á taflborðinu með ákaflega glæsilegri sýningu. Þetta var svo glæsilegt. Langar mig að vita hvort þetta var ekki allt íslenskur fatnaður, sem og ég held? Var þetta á vegum Listahá- beru lofti tíðar og hvaðan komu þessar stúlkur og hvaðan var silfrið og kjólarnir? Mér þætti gaman að fá þetta upplýst og skora svo á þá aðila, sem hlut eiga að máli, að endurtaka þessa stórglæsilegu og óvenjulegu uppákomu. „Ein forvitin, sem kann að meta listræna sýningu".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.