Morgunblaðið - 17.06.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1982
61
Strandgatan í Hafnarfirði
17. júní
í Hafnarfirði
Hafnfirðingur í húð og hár
hringdi og vildi beina því til 17.
júní-nefndar í Hafnarfirði,
hvort ekki megi hafa hátíða-
höldin vegna 17. júní við hús
Bjarna riddara, ofan í miðbæ,
en ekki upp við Lækjarskóla
eins og verið hefur. Sjómanna-
dagshátíðahöldin sem voru
ofan í miðbæ hafi tekist mjög
vel. Það hafi lengi verið óán-
ægja meðal fólks með Lækj-
arskólann sem samkomustað
hátíðarhaldanna, þó það hafi ef
til vill ekki borist hátíða-
nefndinni til eyrna, vegna þess
að óánægjan hafi ekki farið
mjög hátt. Svæðið við Lækj-
arskólann er fremur þröngt og
ekki mjög vistlegt. Ef fólk get-
Þessir hringdu . . .
ur ekki orðið sammála um að
hafa hátíðarhöldin ofan í
miðbæ, var hún með þá uppá-
stungu, að skipta þeim, þannig
að þau væru sitthvort árið á
sinnhvorum staðnum.
Þá lét hann þess getið í leið-
inni að hann væri mjög ánægð-
ur með niðurstöðuna í sam-
bandi við hundahaldið í Hafn-
arfirði.
Ráð móti
störrum
Helga Kristinsdóttir hringdi
og vildi koma á framfæri ráði
til fólks við störrum, vegna
þeirra umræðna, sem um þá og
flóna sem þeir bera, hafa
spunnist. Hún vildi koma þessu
ráði á framfæri fyrir 17. júní,
vegna þess að það sem hún not-
aði gegn störrum væri gömul
17. júní rella. Þannig væri mál
með vexti, að það hefði ekki
verið neinn friður fyrir störr-
um hjá henni. Þá hefði maður-
inn hennar komið fyrir gamalli
rellu á svölunum hjá þeim.
Þegar rellan snerist, fram-
leiddi hún blísturshljóð. Síðan
rellunni hefði verið komjð upp,
hefðu starrarnir algerlega
horfið og ekki sést, og nú kom-
inn hátt í mánuður síðan þau
gerðu þetta.
Ónæði af
hundum
0339—2406 sem býr við
Sörlaskjól hringdi, og sagði að
í hverfinu hjá henni væri svo
mikill hávaði af hundum, að
lítið barn sem hún væri með
gæti ekki sofið á daginn vegna
hávaðans. Þá væru þeir einnig
eltandi krakka og valdandi ým-
iss konar ónæði. Það væri alveg
furðulegt, hvernig fólk leyfði
sér að brjóta lög og kæmist upp
með það. Aðrir yrðu þó að
sætta sig við að hlýta lögum, og
hún sæi ekki rökin fyrir því að
einn hópur fólks ætti að vera
undanskilinn frekar en annar.
Það væri talað um að þetta
væri tilfinningamál, en það
væri svo ótalmargt annað sem
væri tilfinngamál við lögbrot
af öðru tagi, og ekki væri mis-
kunninni þar fyrir að fara.
mWúÁ
10100 KL. 10—12
FRA MANUOEGI
n / TIL FÖSTUDAGS ,
Ljóðin óskast í heild
Kæri Velvakandi.
Eg hef orðið þess var að þú leys-
ir svo mörK vandamál annarra, og
þá tel ég þig líklegan að leysa
cinnig mitt vandamál. Árið 1920
kom ég í hús á ísafirði og þar lá
I bók á borði og tók ég hana og fór
að lesa hana yfir. í henni voru tvö
ljóð, sem mér eru enn þann dag í
dag hugstæð, en ég kann þau ekki
öll. En það sem ég kann úr þeim er
á þessa leið:
í litlum bæ, langt frá sæ
laugaðan í dögg og blæ
móðir min þar sefur
morgunljósið vefur
enni hennar bjart og ?
blítt og rótt hún sefur.
Hitt kvæðið er svohljóðandi:
l>á var það, hann kom og kvaddi mig
hann kvaðst þurfa að sigla um
ókunn lönd
og gæfunnar gengi að reyn
Kn aldrei síðan sá ég hann
né sagnir af neinum frétta vann
en báran hún brotnar við steina.
Eg tek það fram að þetta eru
slitur úr þessum Ijóðum, en mér
hafa þau alltaf verið hugstæð og
væri þakklátur, ef þú gætir upp-
fyllt sextíu og tveggja ára hugsun
mína að fá ljóðin í einni heild.
Með bestu þökk fyrir væntan-
lega aðstoð.
NN.
Svar við ljóðabeiðni
Velvakandi!
Ég sá „neyðarkallið" frá NN í blaðinu 13. júní og
þá rifjaðist þetta ljóð upp fyrir mér. Ég lærði það
þegar ég var lítil, af ömmu minni, en veit ekki eftir
hvern það er og hef ekki, svo ég muni til, séð það á
prenti, svo kannski er einhverju áfátt um grein-
amerkjasetningu, en hún amma mín kallaði þetta
„þulu“ og við það hef ég haldið mig. Þetta er eins
og hún fór með það.
Jónbjörg Kyjólfsdóttir,
stödd á Tröllagili, Mosfellssveit.
Bíddu, bíddu, bláa ský, bjarta morguntraf.
Vindsvalur þér vængi gaf. Vorgola hlý
hátt þér lyfti hnjúkum af, himinborna ský.
Meðan sóiin svaf sat ég út við haf.
Hafið stundi hægt og þungt hamraborgum í.
Brjóst mitt ungt þá bifaðist þungt, blælétta ský.
Fljúgðu nú heim, heim yfir hamrageim.
Lítinn bæ, langt frá sæ, laugaðu í dögg og blæ,
sumardögg og svalablæ.
Móðir min þar sefur, morgunljósið vefur
enni hennar, brjóst og brár, blítt og rótt hún sefur.
Hún, sem þúsund hefur hlotið tregasár
allt þó öðrum gefur, ástarbros og tár,
líf og gleði, Ijúfu geði, krafta og æviár.
Meðan tárið tefur, tært á rósakinn
láttu blakta um Ijórann inn Ijósa sumarfeldinn þinn.
Henni segðu harminn minn.
Löngun mína láttu skína, líkt og geisla um gluggann inn.
Ennþá man ég æsku mina, engu blómi skal ég týna.
Ennþá finn ég ástarmjúka arma strjúka
enni mitt, sem blíðvind af bládýpi rynni,
öll þau hjartans hlýindi hef ég geymt í minni.
Leiðist mér langdegi, líf mitt þreytir óyndi
síðan ég kvaddi Sóldali.
Segðu það minni. Segðu það móður minni.
Velvakandi þakkar Jónbjörgu kærlega fyrir,
hversu fljótt og vel hún brást við beiðni NN í
sunnudagsblaðinu. Þá vantar bara annað ljóðið og
einnig væri gaman að frétta af höfundum.
Cetec Benmar
skipa- og báta sjálfstýringar
Bjóöum þessar frábæru amerísku sjálfstýringar fyrir
allar stæröir skipa og fiskibáta á mjög hagstæöu
veröi. Sjálfstýringarnar eru bæöi fyrir vökva- og
barkastýri.
Fjöldi Benmar sjálfstýringar þegar í notkun viö góöa
reynslu. Býöur möguleika á tengingu við Loran C.
Gengi 1/6 1982.
Benco,
Bolholti 4, sími 91-21945
Verð frá kr. 13.862.
Góðir
greiðsluskilmálar
ALLTAF Á LAUGARDÖGUM
Á FERÐ UM
FALKLANDSEYJAR
Dr. Sturla Friöriksson lýsir útliti eyjanna,
náttúrufari, mannlífi og höfuöstaönum,
Port Stanley.
GEISLf
GUÐDÓMLEGA
LJÓSIÐ
Ritgerö Knut Ödegárds um íslenzkt mið-
aldakvæði
UPPNÁM HJÁ
MENNINGARVITUNUM
Af umdeildri sýningu á verkum Andy
Warhol og LeRoy Neiman.
Vönduð og menningarleg helgarlesning
AUGLÝSINGASTOf A KRISTINAfl HF