Morgunblaðið - 23.06.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1982
31
Pétur Pétursson:
„Feginn að vera laus
frá liði Anderlechr
— Þetta var eina leiðin fyrir
mig til þess að losna frá Ander-
lecht. Ég er ánægður með að vera
laus og kominn yfir í annað gott
lið. Antwerpen varð í fjórða sæti í
belgísku deildinni á síðasta keppn-
istímabili og er með gott lið, sagði
Pétur Pétursson atvinnuknatt-
spyrnumaður í spjalli við Mbl. í
gær, en hann kom til landsins í
gærdag í stutt frí með fjölskyldu
sinni. Pétur sagðist vera nýkom-
inn úr fríi frá Grikklandi og hefði
stoppað í Belgíu til þess að ganga
endanlega frá málum sínum hjá
Antwerpen. „Þetta var góður
samningur sem ég gerði, og hann
er bara til eins árs. Nú verð ég að
leika vel á næsta keppnistímabili.
Ég fer utan 5. júlí og þá mun liðið
hefja æfingar, sagði Pétur sem nú
er að hefja feril sinn sem atvinnu-
maður hjá sínu þriðja félagi.
Fyrst lék hann með Feyenoord,
síðan Anderlecht og nú kemur
hann til með að spila fyrir Ant-
werpen.
— ÞR
EINS OG knattspyrnuáhugamenn
vita setti Bryan Robson nýtt met í
markaskorun i úrslitakeppni HM er
hann skoraði gegn Frakklandi eftir
aðeins 27 sekúndur. Fyrir metið
hlaut kappinn að launum forláta úr
að verðmæti lítilla 15.000 króna ís-
lenskra.
George Best, írski vandræða-
gemlingurinn, sem gerði garðinn
frægan hjá Manchester United
hér áður fyrr, er einn af frétta-
mönnum ensku sjónvarpsstöðvar-
innar ITV í HM-keppninni á
Spáni. Er það í fyrsta skipti sem
Best tekur slíkt að sér.
í leik Ungverja og E1 Salvador á
dögunum fengu tveir ungverskir
leikmenn, þeir Nyilasi og Fazckas,
gul spjöld fyrir að drekka vatn
inni á vellinum meðan leikurinn
var í fullum gangi. Hafa forráða-
menn Ungverja nú sent FIFA
mótmæli vegna þessa.
Enginn leikmaður í HM-keppn-
inni hefur verið gripinn fyrir
ólöglega lyfjaneyslu hingað til, og
vonandi kemur ekki til þess. Held-
ur er það hvimleitt þegar menn
eru gripnir fyrir slíkt og muna all-
ir hvernig fór fyrir Willie greyinu
Johnston í Argentínu fyrir fjórum
árum. Ekki gengur alltaf nógu vel
þegar taka á þvagprufu af leik-
mönnum og fékk skoski leikmað-
urinn Alan Brazil illa að kenna á
því er hann var valinn í „test“ eft-
ir leikinn gegn Nýja Sjálandi á
dögunum. Hann gat ómögulega
pissað þrátt fyrir ómælda vatns-
drykkju í fjóra tíma og gáfust
menn þá upp við að reyna klukkan
fjögur um nóttina. Morguninn eft-
ir mættu Brazil og skoski læknir-
inn aftur og þá með þvagprufu í
fórum sínum og var hún send frá
Sevilla til Madrid. Nefnd sú sem
um þessi mál fjallar var þó ekki
ánægð með framkvæmd málsins,
virðist ekki hafa verið allt of viss
um að Brazil hafi sjálfur pissað í
glasið, og hefur sent FIFA málið
til umfjöllunar.
Eins og allir vita er knattspyrn-
an óútreiknanleg eins og flest
annað og kemur það stundum
fyrir er Davíð og Golíat leiða sam-
an hesta sína að Dabbi litli fer
með sigur af hólmi. Skemmst er
að minnast sigurs Alsírbúa á
sjálfum Evrópumeisturum Vest-
ur-Þjóðverja á dögunum. Erlend
blöð skýrðu þá frá því að þýsk
knattspyrna hefði verið jöfnuð við
jörðu, og víst er að Þjóðverjar
voru allt annað en hrifnir af þeim
úrslitum. Ensk knattspyrna beið
mikinn ósigur árið 1950 er Banda-
ríkjamenn unnu þá í landsleik
með einu marki gegn engu, og
sama ár létust fjórir brasilískir
áhangendur á Maracana-leikvell-
inum í Rio de Janeiro er Uruguay
sigraði Brasilíu 2—1. Einhverjir
þeirra fengu hjartaáfall og einnig
voru framin sjálfsmorð. Fjórum
árum seinna sigruðu Vestur-
Þjóðverjar Ungverja 3—2, sem
teldist varla til stórtíðinda í dag,
en á þeim tíma var Ferenc Puskas
upp á sitt besta og Ungverjar tald-
ir nær ósigranlegir. Eftir „undrið í
Bern“, eins og sigurinn var kallað-
ur, komst Puskas að þeirri niður-
stöðu að Þjóðverjarnir hlytu að
hafa verið dópaðir!! í úrslita-
keppni HM í Englandi 1966 kom
það mest á óvart er Norður-
Kóreubúar skelltu Ítalíu með einu
marki gegn engu, og slógu ensku
blöðin því upp að fa.ll Rómaveldis
hefði ekki verið neitt á við þessi
ósköp!
Góðir 1500 metrar
hjá Gunnari Páli
GUNNAR Páll Jóakimsson ÍR hljóp
ágætt 1500 metra hlaup á innanfé-
lagsmóti ÍR-inga í Laugardalnum á
sunnudag, hljóp keppnislaust á
3:54,8 mínútum, og var því aöeins
sekúndubroti frá sínu bezta, sem
hann náöi í hörkukeppni. Greinilegt
er aö Gunnar Páll er í æfingu til að
hlaupa undir 3:50 mínútum í 1500 m.
Næsta keppni Gunnars Páls veröur í
800 metrum á afmælismóti ÍR í
Laugardalnum á laugardag, en þar
mætir hann Jóni Diörikssyni UMSB,
sem sett hefur íslandsmet í 800 og
1500 mctrum í vor. Stefnir í stór-
skemmtilega keppni þeirra á ÍR-
Frjðisar Ibrúttir
mótinu, og ef veöur veröur bærilegt
eru íslandsmetin í stórhættu.
Robson skorar
Bryan Robson skorar hér glæsilega annað mark sitt og Englands í 3—1 sigrinum gegn Frökkum i síðustu
viku. Hann meiddist í nára gegn Tékkum á laugardaginn og lék ekki meö enska liðinu eftir leikhlé, en það
kom ekki að sök, England lagði Tékkóslóvakíu 2—0.
HM-punktar:
Belgíumenn sakaðir um
ölvun og óreglu á HM
SPÁNSKT dagblað skýrði frá því
fyrir helgina að leikmenn belgíska
landsliðsins heföu verið á fyllerii og
kvennafari. Sum belgísku dagblöðin
voru ekki lengi að birta söguna um
þessa óæskilegu hegðun sinna
manna. Eins og gefur að skilja urðu
eiginkonur leikmannanna ekki ýkja
hrifnar við þessar fréttir og hringdu
sumar þeirra hvassyrtar í þá. Belg-
iska knattspyrnusambandið hefur
þverneitað að nokkur fótur sé fyrir
þessari frétt blaðanna og herma
fregnir að belgísku leikmennirnir
hugsi ekki mjög hlýtt til blaðamanna
frá heimalandinu fyrir að birta þessa
slúðursögu spánska blaðsins.
Stærstu blöð Belgíu eru með frétta-
menn á Spáni sem fylgjast að sjálf-
sögðu vel með sínum mönnum og
hafa að sögn ekki orðið varir við
neitt lauslæti leikmanna.
Tele Santana, þjálfari Brassanna,
segir að sínir menn séu ekki enn
komnir á toppinn þrátt fyrir auðveld-
an stórsigur á Skotum á föstudag-
inn. „Við verðum ekki komnir í
toppform fyrr en við leikum vel í
báðum hálfleikjum leikjanna,“ sagði
Tele. Hann sagði að leikmenn sínir
hefðu bæði gert skyssur í fyrri hálf-
leik og einnig verið seinir í gang
eftir að Skotarnir skoruðu mark sitt.
Joae Havelange, formaður Al-
þjóðaknattspyrnusambandsins,
FIFA, segist viss um að fjölgun liða í
24 i úrslitakeppni HM muni verða til
þess að auka gæði keppninnar.
„Þessar þjóðir hafa lagt mikið á sig
til þess að lcika góða knattspyrnu og
við ættum að gefa þeim fleiri tækif-
æri. Ég trúi ekki að nokkur sem sér
þessi lið leika nú sé andmæltur því,“
Mick Mills, fyrirliði enska landsliðs-
ins í knattspyrnu. Tekst honum að
leiða lið sitt til sigurs?
sagði formaöurinn. Hér eins og ann-
ars staðar koma þó blessaðir pen-
ingarnir inn í myndina og viður-
kenndi formaðurinn að sumar þess-
ara þjóða ættu við fjárhagsvanda að
stríða og einnig hefðu liðin ekki
nægilega reynslu. Jói sagði að hans
menn, en hann er Brasilíumaður,
ættu næga peninga og léku 80 til 90
ieiki á ári en bestu liðin í Asíu og
Afriku hefðu ekki efni á að leika
nema 30 leiki á ári í mesta lagi.
Mick Mills, hinn gamalreyndi
fyrirliði Ipswich Town, hefur verið
fyrirliði enska landsliðsins i báðum
leikjum þess á Spáni i fjarveru
Kevin Keagans, sem enn hefur ekki
leikið vegna meiðsla. Mills lék sinn
40. landsleik gegn Tékkum á sunnu-
daginn, og var það fimmti leikur
hans sem fyrirliða. Hann segir að
ekki sé erfitt að vera fyrirliði lands-
liðsins. „Margir leikmanna lands-
liösins eru fyrirliðar sinna félagsliða
og þeir eru hvorki sparir á góð ráð
né fyrirskipanir. Þetta auðveldar
verk mitt til muna.“ Margir töldu að
ef Keagan meiddist yrði Phil
Thompson frá Liverpool fyrir valinu
sem fyrirliði landsliðsins á Spáni, en
það kom Mills ekki á óvart að hann
skyldi hreppa hnossið. „Thompson
hefur yfirleitt ekki leitt liðið nema
ég hafi ekki verið með, en ég hef
oftast verið fyrirliði þegar Keagan
hefur meiðst, ef ég hef lcikið á ann-
að borð,“ segir Mills.
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu
'l afeAK' WÁL-FrU&lK
teEVNJA HOLIÉJOO
lUzioARr Autur
HUAfS) t=eÍL? átETA
eu VEDTufc-
vdstauÍNj
yetesT
.......
T
J#!Wj
k>i
f'
fl?eMoe
i| MAsteeve i K>U.
HoLLEP)V5MoC3Afc. eW>cr3íV
KTáfieucnT' vesToe -
Dj'tj
•cJI..
pi etcVvitvjd
>5 velCXii? 'idv1 i
ACS C>C<NAA.CriUU . k
V'AEAp HAL'H s/iE’.
Fengu gul spjöld
fyrir vatnsdrykkju