Morgunblaðið - 27.06.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ1982
61
Egill Skúli Ingibergsson
Kísilmálmvinnslan:
Egill Skúli
Ingibergsson
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Á fundi stjórnar Kísilmálm-
vinnslunnar hf. sem haldinn var á
Reyðarfirði þann 24. júní 1982 var
Egill Skúli Ingibergsson, raf-
magnsverkfræðingur, ráðinn
framkvæmdastjóri Kísilmálm-
vinnslunnar h.f. frá 1. júlí nk. að
telja.
(FrétUtilkynning frá Kísilmálmvinnslunni hf.)
Islenzkir
alþýðukór-
ar á mót í
Finnlandi
DAGANA 1.—4. júlí næstkomandi
verður haldið í Pori í Finnlandi 8.
Norræna alþýðutónlistarmótið, „Ar-
betets Ton i Norden, Pohjolan Työva-
en Sével“. Frá íslandi fara að þessu
sinni tveir kórar: Samkór Trésmiðafé-
lags Reykjavikur undir stjórn Guð-
jóns B. Jónssonar og Kór Starfs-
mannafélags Álafoss undir stjórn
Páls Helgasonar.
Þetta er í annað sinn sem íslend-
ingar taka þátt í þesskonar móti, S
fyrsta sinn 1977 í Osló. Þátttakend-
ur þá voru Lúðrasveit verkalýðsins
og Samkór Trésmiðafélags Reykja-
víkur. Mót þessi eru haldin fjórða
hvert ár. Á mótið í Pori er búist við
8—10 þús. þátttakendum. Eftir að
mótinu lýkur munu íslensku hóp-
arnir ferðast um Finnland og til
Rússlands. Heim verður komið 12.
júlí.
Nordiska arbetars&ngar- och
musikerforbundet, Tónlistarsam-
band alþýðu á Norðurlöndum, var
stofnað í Gautaborg árið 1947 með
þátttöku tónlistarsambanda verka-
fólks frá Finnlandi, Svíþjóð, Dan-
mörku og Noregi. I sambandinu eru
nú um 12 þús. félagar.
Frá 1947 þar til nú hefur sam-
bandið staðið fyrir sjö tónlistar-
mótum, en á síðari árum hefur
sambandið einnig staðið fyrir nor-
rænum menningarmálaráðstefnum
og námskeiðum. Var ein slík ráð-
stefna haldin hér á landi dagana
10,—16. sept. 1979 í Ölfusborgum.
Árið 1975 hafði NASMF samband
við Menningar- og fræðslusamband
alþýðu og óskaði eftir fulltrúum á
ráðstefnu það sama ár. Samskonar
ráðstefna var aftur haldin 1976.
Fulltrúar frá MFA, LV og STR
sóttu þessar ráðstefnur og árið
1976, 28. september, var Tónlistar-
samband alþýðu stofnað með þátt-
töku þessara sömu aðila. Nú eru að-
ilar sambandsins 4 því snemma árs
1981 gerðist Kór Starfsmannafé-
lags Álafoss aðili að sambandinu.
7.-15.jtílí
ætlar Ftiðrik
aðleiða^datr
f allan sannleikann
um Kölnarvatnið fræga!
Friðrik Haraldsson er fararstjóri, sem kann sitt fag. Um daginn
stjórnaði hann frábærlega velheppnaðri rútuferð um Þýskaland.
7-15.júlí ætlar hann afturaf stað og þá í beinu leiguflugi til Kölnar.
Það er reyndar óvíst að Friðrik geti sýnt farþegum sínum uppsprettu
Kölnarvatnsins fræga, sem þær Jósefína Napóleons og hirðmeyjar
hófu að skvetta á sig á 19.öldinni, en hann þekkir sögu þess mæta
vel. Annars liggur leiðin frá Köln suður um Wurzburg til Munchen.
Þaðan um Oberammergau til Konstanz og niður með Rín til
Heidelberg. Auðvitað verður siglt svolítið á Rín, en hin ágæta
verslunarborg Trier verður dvalarstaður hópsins síðustu tvær
næturnar. Dagleiðirnar eru stuttar aðeins 100 til 300 kílómetrar.
Friðrik er gjörkunnugur staðháttum í Þýskalandi og segir að þar sé
meir en nóg að skoða. Heim er haldið frá Köln seint að kvöldi þess 15.
Verðið er aðeins 4.980krónur. Innifaliðerflugfar, gisting í2jamanna
herbergi, morgunverður, allur akstur, sigling á Rín og frábær íslensk
fararstjórn.
Það er líka hægt að fara á eigin vegum til Kölnar 7.júlí og heim aftur
þann 15.
Flugfar og Ford Fiesta bílaleigubill, til afnota allan tímann með
ótakmörkuðum akstri kosta aðeins 2.980 krónur, miðað við fjóra i
bíl. Auðvitað er einnig hægt að fá dýrari tegundir.
Flugfar og VW-Joker III, sem er húsbíll með gistiaðstöðu, kosta
aðeins 3.980 krónur, miðað við fjóra í bíl. Bíllinn er til afnota allan
tímann og 1.750 kílómetra akstur innifalinn.
Leitið upplýsinga í sima 26900
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
VIÐ AUSTURVÖLL