Morgunblaðið - 27.06.1982, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ1982
77
VÉl^AKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
FÖSTUDAGS
Þessir hringdu
1983, ár
sparnaðarins
Kona hringdi og vildi stinga
að þeirri hugmynd, að árið
1983 verði helgað sparnaðinum
og verði kallað Ár sparnaðar-
ins. „Mér datt þetta svona í
hug eftir að dreift hafði verið
nýju símaskránni. Hvernig
stendur á því að íslendingar
henda svona mörgum hlutum,
sem eru til margra hluta nýt-
anlegir. Af hverju lætur Póst-
ur og sími ekki afhenda gömlu
skrána þegar hinni nýju er út-
hlutað. Hana væri hægt að
endurnýta til margra hluta."
Hvað segja
dýravernd-
unarfélögin?
A.S. hringdi og kvaðst fagna
því að V.G. hafi vakið máls á
villimannslegri aflífun dýra
eins og t.d. minka og refa. „Mér
hefur lengi blöskrað þegar ég
hef lesið um þessar aðfarir á
síðum dagblaðanna. Það væri
æskilegt að dýraverndunarfé-
lögin létu heyra eitthvað frá
sér um mál þetta."
Búið að fín-
kemba svæðið
Sumarbústaðareigandi við
Þingvallavatn hringdi og sagði
farir sínar ekki sléttar. „Svo-
leiðis er, að ég er með einn og
hálfan hektara lands nálægt
þjóðveginum. Á því landi er
stór hóll, sem skiptir landinu í
tvennt, öðru megin hreiðra
fuglar um sig, en hinum megin
er ég og fjölskylda mín. Fugla-
megin, eins og ég kalla það, er
algjörlega friðað land nema
fyrir mig og fjölskyldu mína,
nema hvað við höfum leyft
okkur að fylgjast með þessu
náttúruríki í hæfilegri fjar-
lægð. Þessi eini og hálfur hekt-
ari er afgirt land. Síðastliðinn
sunnudag er við komum að
bústaðnum var búið að ræna
eggjum úr öllum hreiðrunum.
Það var greinilegt af aðstæð-
um, að hér var hvorki um
vargfugl né mink að ræða, því
ekki var eggjaskurn að sjá í
hreiðrunum né í nágrenni
þeirra. Þarna áttu sér hreiður
lóur, hrossagaukar, rjúpur o.fl.
fuglategundir. Það er furðulegt
að menn geti ekki unnt fuglun-
um að vera í friði, heldur
skemma fyrir fólki og spilla
„fjölskyldulífi fuglanna", að
því er virðist að ástæðulausu.
Svo er orðið ástatt hjá mörgum
sumarbústaðaeigendum, að
þeir eru farnir að velta því
fyrir sér að láta vakta bústaði
sína meðan þeir eru fjarver-
andi.
Þá langar mig til þess að
koma þeirri spurningu á fram-
færi við rétta aðila, hvenær
áætlað verði, að varanlegri lag-
ningu slitlags á veginn undir
Ingólfsfjalli, frá Suðurlands-
vegi að Þrastalundi, verði lok-
ið? Hver stjórnar þessari
vegarlagningu og af hverju
hefur þetta tekið svo langan
tíma?
Sambyggöar
trésmíöavélar
ZINKEN 21
til afgreiöslu
strax.
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Armúla 1. — Sími 8 55 33.
Sóði er og verður alltaf sóði
Kæri Velvakandi!
Það er víst að bera í bakkafullan
lækinn að minnast á umgengnis-
venjur Islendinga í sambandi við
náttúruna, flösku- og glerbrotin
sem eru okkar þjóðareinkenni,
ásamt plastinu sem fjúkandi er
um borg og bý. Það er eitt sem mig
langar að koma á framfæri við
þig, það er nefnilega ekki því að
neita að þú kemur mörgu þarflegu
til leiðar. Ég vil, þegar verið er að
úthluta lóðum, að þeir sem það
gera kanni aðeins hverjir það eru
sem plantað er saman eins og
trjám í mörk. Við hjónin erum ein
af þessum mörgu sem í byggingum
standa og allt í kringum okkur eru
byggingarframkvæmdir í fullum
gangi. Af tilviljun rákumst við á
hús þar sem tilvonandi nágranni
okkar býr og hvílík umgengni á
lóðinni hjá fólkinu. Ég held að sá
hlutur sé næstum ekki til, sem
ekki var þar fyrir utan, en fínn bíll
auðvitað til að setja kórónuna á
allt saman. Nú vill kannske ein-
hver segja, að þetta lagist þegar
þau eru komin í nýtt umhverfi. Ég
segi hiklaust nei, sóði og draslari
er og verður það, hvar sem hann
er, hvort sem það væri í aldingarð-
inum Eden eða uppi á Esju. Þetta
fólk á bara að vera með sitt skíta-
rusl einangrað og út af fyrir sig.
Þetta fólk hlýtur að vera óhreint
innra sem ytra og svona fólk setur
svartan blett á hverfið þar sem
það býr. Ég get fullyrt, að ef fleiri
af tilvonandi nágrönnum þeirra
hafa barið þetta augum, verða
þetta ekki kærkomnir nágrannar.
Húsbyggjandi
Vísa vikunnar
Þó hafi á Fróni heiðríkt loft
er hugsun rauð á sveimi
og þá er Palli æði oft
einn i þessum heimi.
Hákur
Sérkennileg-
ur formáli ad
veðurfréttum
í KRÉTTATÍMA sjónvarpsins, fóstu- I
daginn 18. júní sl., hóf Páll Berg-
þórsson vedurfrKÓingur, kynningu
veðurfrétU meó eftirfarandi h*tti:
„Fallegt er nú landið okkar og
vinalegt á svona degi og raunar
ekki síöur séö utan úr geimnum,
eins og þessi mynd sýnir. En
kannski gleöur hún ekki augu
allra af sömu ástæöu, stríösglaöar
konur úti í heimi kynnu aö líta
hýru auga til aö æfa si? •'
legri hernaöaráré'-
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Þetta breytist vegna setningu nýrra laga.
Rétt væri: Þetta breytist vegna setningar nýrra laga.
Sagt var: Það var sífellt ráp um báðar dyrnar.
Rétt væri: Það var sífellt ráp um hvorartveggju (eða hvorar
tveggja) dyrnar. (Ath.: Orðið dyr er ekki til i eintölu.)
SlGGA V/GGA fi llLVERAM
ALIÍTAF Á ÞRIÐJUDÖGUM
FRETTIR AF FYRSTU
LEIKJUNUM
í MILLIRIÐLUM
HM-KEPPNINNAR
A EFTIR BOLTANUM
0 *
AFMÆLISMOT IR I
FRJÁLSUM ÍÞRÓTTUM
o
Itarlegar og spennandi íþróttafréttir
[wvómm \ VAom.J WNflUW M%iL\%ÍUm [cbM£LLWmV/1 \ OG J 9 0 Wm
—y ávTr
Æí
§MÉi^á T