Morgunblaðið - 30.06.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ1982 3 5
Ný sundlaug vígö í Mývatnssveit:
Megi rekstur henn-
ar verða gæfurík-
ur og slysalaus
— sagði formaður byggingarnefndar
Mývatnssveit, 25. júní.
í DAG var vígð ný sundlaug í Mývatnssveit og er hún staðsett við
íþróttavöllinn hjá Krossmúla. Jón Illugason, formaður byggingar-
nefndar, flutti nokkur ávarpsorð en sveitarstjórinn, Arnaldur
Bjarnason, stjórnaði samkomunni. Kirkjukór Reykjahlíðarsóknar
söng undir stjórn Jóns Árna Sigfússonar. t>á flutti sóknarpresturinn,
séra Örn Friðriksson, blessunarorð og bæn. Síðan rakti Jón Illuga-
son byggingarsögu sundlaugarinnar frá upphafi. Ræður og ávarp
fluttu, Arnaldur Bjarnason, Árni Lund, Halldór Blöndal, Örnólfur
Hall, Jón Bjartmar Sigurðsson og Þormóður Ásvaldsson, formaður
HSÞ. Aö síðustu sýndu nokkrir unglingar, 12 til 13 ára, sund í
lauginni undir stjórn Arngríms Geirssonar. Fjölmenni var við vígslu-
hátíðina. Kostnaður við sundlaugarbygginguna er um 9 milljónir
króna á núverandi verðlagi. Sundlaugarvörður verður Ingibjörg
Gísladóttir.
Eins og áður sagði rakti Jón 111-
ugason byggingarsögu sundlaug-
arinnar og sagðist honum meðal
annars á þessa leið: „Það var á
árinu 1974 að fyrst fékkst undir-
búningsfjárveiting til sundlaugar
á fjárlögum og sama ár ákvað
sveitarstjórn að hefja undirbún-
ing að byggingu sundlaugarinnar.
Arkitektastofan sf., það er arki-
tektarnir Ormar Þór Guðmunds-
son og Örnólfur Hall, voru ráðnir
til að teikna bygginguna og hófust
þeir handa við þetta verkefni
snemma á árinu 1975. 16. marz
1976 kaus sveitarstjórnin bygg-
ingarnefnd til að annast fram-
kvæmdir þessar. Nefndina skip-
uðu Jón Illugason, Arnþór
Björnsson og Ásmundur Jónsson.
Umboð nefndarinnar var endur-
nýjað í upphafi kjörtímabils, sem
hófst 1978 og hefur hún því verið
óbreytt frá upphafi. Verklegar
framkvæmdir hófust 21. júní 1976
eða fyrir 6 árum og fjórum dögum
og hafa staðið yfir síðan, að vísu
með nokkrum hléum á milli, en
verulegar framkvæmdir hafa þó
verið á hverju ári. Það er kunnara
en frá þurfi að segja, að fjárveit-
ingar ríkisins til íþróttamann-
virkja hafa löngum verið tregar og
hefur þetta mannvirki goldið þess
hvað ríkið hefur verið langt á eftir
með sínar fjárveitingar, en um
þann kapítula í byggingarsögu
þessa mannvirkis mætti margt
segja, það verður ekki frekar rakið
hér.
Byggingin sjálf er 318 fermetrar
á tveimur hæðum eða alls 2.300
rúmmetrar. Húsið er með steypt-
um útveggjum, en milliveggir að
hluta til hlaðnir úr steini frá
Léttsteypunni. Sundlaugin er úr
trefjaplasti frá Guðmundi Lárus-
syni á Skagaströnd, 25 sinnum 11
metrar að stærð. Fjarhitun hf.
annaðist verkfræðiþjónustu undir
forystu Ragnars Ragnarssonar,
tæknifræðings og Egill Olgeirs-
son, rafmagnstæknifræðingur á
Húsavík, annaðist rafmagnsteikn-
ingar. Trésmíðameistari og yfir-
smiður hússins hefur verið Héðinn
Sverrisson, rafvirkjameistari
Grímur Leifsson, pípulagningar
annaðist Karl Guðmundsson og
múrarameistari var Eiður Árna-
son. Mikill hluti múrverks á neðri
hæð hefur verið undir forystu
Þorláks Jónassonar. Þá má geta
um störf Sigurðar Bárðarsonar,
starfsmanns Skútustaðahrepps,
sem raunar er þúsund þjala smið-
ur, og á drjúgan hlut í ótrúlega
mörgum verkþáttum sundlaug-
arbyggingarinnar. Aðalverktaki
við bygginguna hefur verið Sniðill
hf. undir forystu Héðins Sverris-
sonar, Blikksmiðjan hf. undir for-
ystu Ólafs Á. Jóhannessonar sá
um loftræstikerfi, K. Auðunsson
hf. undir stjórn Jóns K. Auðuns-
sonar annaðist uppsetningu
hreinsibúnaðar og setlauga og
lagnir því tengdar. Fjölmargir
hafa lagt fram gjafavinnu við
þessa framkvæmd, en því miður
eru ekki handbærar tölur þar um,
en sú vinna er orðin geysimikil.
Sömuleiðis hafa fjölmargir ein-
staklingar og fyrirtæki gefið
byggingunni gjafir. öllum þessum
aðilum eru hér með færðar kærar
þakkir og hafi einhverjum verið
gleymt í þessu sambandi, er það
ekki viljandi.
Hlutverki byggingarnefndar er
nú að ljúka og vil ég endurtaka
þakkir mínar til allra hlutaðeig-
andi aðila, óska okkur til ham-
ingju með sundlaugina og íþrótta-
miðstöðina í heild. Megi rekstur
hennar verða gæfuríkur og slysa-
laus, megi hún verða íbúum Mý-
vatnssveitar og öllum öðrum, sem
hana nota, til ánægjuauka, heilsu-
bótar og aukinnar lífsfyllingar.“
— Kristján
Arnaldur Bjarnason sveitarstjóri og Jón Illugason formaöur byggingarnefnd-
ar- LjÓBmjrndir <hm FriðríkaHon.
Hin nýja sundlaugarbygging viö íþróttavöllinn við Krossmúla í Mývatnssveit.
Því meiri kröfur, sem þú gerir
til utanhúsmálningar
því meiri
ástæða er til að bú notir
HRAUN, sendna akrýlplastmáln-
ingin hefur allt það til að bera, sem
krafist er af góðri utanhússmáln-
ingu:
Mikinn bindikraft, frábæra endingu
— dæmierutilum meiraen 17ár.
Þekur vel — hver umferð jafnast á
við þrjár umferðir af venjulegri
plastmálningu. Hefur fallega áferð
— til bæöi fín og gróf, og fæst í fjöl-
breyttu litaúrvali.
HRAUN stenst allan verðsamanburð.
HRAUN litakortið fæst í öllum helstu máln-
ingarvöruverslunum landsins.
málninghlf