Morgunblaðið - 30.06.1982, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.06.1982, Blaðsíða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ1982 Norðurland eystra______________________________________________________________Fréttaskýring Alþýðubandalagið tapar fulltrúa á Akureyri, Húsavík, Dalvík og Raufarhöfn Sjálfstæðisflokkur bætir við sig 38% í Ólafsfirði, 30% á Akureyri og 24% á Húsavík Frambjóóendur Sjálfstsðisflokksins á akureyrir 22. maí 1982. Framsóknarflokkur með hreinan meirihluta á Dalvík Norðurland eystra er kostaríkur landshluti. „I>ar er mörg matarhol- an,“ eins og fyrrum var að orði komizt. Þó hafa byggðir á þessu svæði sætt tvennum timum. í við- varandi harðæri á síðari hluta lið- innar aldar tóku fólksflutningar til Vesturheims drjúgan toll á Norð- urlandi eystra, en frá aldamótum hefur verið meiri mannfjölgun þar cn í öðrum landshlutum, utan Keykjavíkur- og Reykjanessvæða. llm aldamót bjuggju þar um 12.000 manns, eða 15,2% þjóðar- innar, en 1980 25.700 manns, eða 11%. ByggAakjamar Akureyri, höfuðstaður Norð- urlands, er stærsti þéttbýlis- kjarninn í kjördæminu með um 13.600 íbúa. Akureyri á og stærstan hluta í mannfjölgun í landshlutanum. Þar var íbúa- fjölgun, umfram landsmeðaltal, allt fram til 1950. Á áratugnum 1950—1960 dró úr vexti bæjarins en síðan hefur fólksfjölgun verið um 2,1% á ári að meðaltali, eða í rúma tvo áratugi. Akureyri er einn fegursti og snyrtilegasti bær á íslandi og stendur á gömlum merg, menn- ingarlega, þó nokkuð hafi slakn- að á hefðum, sem gáfu byggðar- laginu mikinn „sjarma". Ovíða er atvinnulíf jafn fjölþætt. Bær- inn stendur jöfnum fótum í sjáv- arútvegi og þjónustu við blómleg nærliggjandi landbúnaðarhéruð. Iðnaður, þ.á m. skipaiðnaður, verzlun, ferðaþjónusta, heil- brigðisþjónusta, að ógleymdum fjölda fræðslustofnana (þar sem Menntaskóli Akureyrar skipar öndvegi) setja og svip sinn á bæjarbraginn. Húsavík (íbúar tæplega 2.500) stendur, eins og Akureyri, jöfn- um fótum í sjávarútvegi, úr- vinnslu búvara og landbúnaðar- þjónustu, en þessi tvíhliða at- vinnugrundvöllur hefur reynzt farsæll og traustari en sá, sem byggir einhliða á sjávarútvegi. Sama máli gegnir um Dalvík (íbúar 1.300) en Ólafsfjörður (íbúar 1.200) er hinsvegar dæmi- gert sjávarpláss, þó nokkur sveitabýli séu að vísu í firðinum. Veruleg fólksfjölgun hefur verið á framangreindum stöðum, sem og Grenivík og Kópaskeri, en byggð hefur lagzt niður í Flatey á Skjálfanda. Tiltölulega lítill vöxtur hefur verið á Þórs- höfn og Raufarhöfn og fólks- fækkun á Litla-Árskógssandi, Hauganesi og Hjalteyri, en síð- ast taldi staðurinn var „síldar- pláss" meðan silfur hafsins fannst enn fyrir Norðurlandi. Á Norðurlandi eystra búa samtals um 25.700 manns. Þar af eru um 10.500 taldir starfandi. í iðnaði og byggingarstarfsemi starfa 32% fólks á vinnualdri, við þjónustustörf — þar með taldir opinberir starfsmenn — 20,6%, í sjávarútvegi — veiðum og vinnslu — 18,6%, við sam- göngur, verzlun og viðskipti 16,3%, við landbúnað — frum- vinnslu — 11,9% ogannað0,6%. Talið er að milli 2500—3000 ný störf þurfi að verða til í kjör- dæminu á þessum og næsta ára- tug. Meðalbrúttótekjur framtelj- enda í kjördæminu vóru rétt tæplega landsmeðaltal fram- taldra tekna á árabilinu 1970-1978. Akureyri Sjálfstæðisflokkurinn jók fylgi sitt um rúmlega 30% á Ak- ureyri í nýliðnum sveitarstjórn- arkosningum miðað við kjörfylgi 1978. Flokkurinn hlaut 34,6% greiddra atkvæða og fjóra bæj- arfulltrúa, vann einn. Þetta þýð- ir að Sjálfstæðisflokkurinn fær nú sambærilegan stuðning og 1974 og hefur unnið upp fylgis- tap í bæjarstjórnarkosningum 1978. Framóknarflokkurinn stendur nokkurn veginn í stað hvað fylgi varðar, fær 25,1% at- kvæða og 3 fulltrúa kjörna. Al- þýðubandalag tapar um 90 at- kvæðum og 1 fulltrúa, fær 13,1% kjörfylgi. Alþýðuflokkur, sem fékk 1326 atkvæði og 21,5% kjör- fylgi 1978, hrapar niður í 643 at- kvæði og 9,8% kjörfylgi nú. Tap- ar 1 fulltrúa eins og Alþýðu- bandalagið. Sérstakt kvenna- framboð hlaut 17,4% atkvæða og 2 fulltrúa, en Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna, sem áttu 1 fulltrúa, buðu ekki fram nú. í stuttu máli: A-flokkarnir tapa hvor um sig 1 fulltrúa og frjálslyndir, sem höfðu 1, bjóða nú ekki fram. Nýtt kvennafram- boð fékk tvo af þessum full- trúum, Sjálfstæðisflokkur 1. Það sem gerðist síðan á Akur- eyri var það, að kvennaframboð- ið fyllti upp í það skarð vinstri meirihluta, sem til varð við tap Alþýðubandalagsins og hvarf frjálslyndra, en Alþýðuflokkur- inn heltist úr samstarfslestinni. Olafsfjöröur Vinstri flokkarnir stóðu að sameiginlegu framboði í Ólafs- firði bæði 1978 og 1982. í hið fyrra skiptið fékk vinstri fylk- ingin 64,2% atkvæða og 5 bæj- arfulltrúa en Sjálfstæðisflokkur 35,1% og 2 fulltrúa. Að þessu sinni fékk sambræðslan 54,1% atkvæða og 4 fulltrúa en sjálf- stæðismenn 45,9% og 3. Sjálf- stæðisflokkurinn jók kjörfylgi sitt um 38% og vinnur 1 fulltrúa. Hér hefur orðið umtalsverð hægri sveifla. Kunnugir telja að Jakob Ágústsson, rafveitustjóri, sem leiddi kosningabaráttu sjálfstæðismanna nú, hafi styrkt framboð flokksins verulega. Dalvík Hér vinnur Framsóknarflokk- urinn hreinan meirihluta, hlaut 48,2% atkvæða og 4 fulltrúa af 7. Slíkt hefur ekki gerzt í kaupstað á Islandi áður. Framsóknar- flokkurinn hefur búið vel um sig á Dalvík, á þar menn í flestum lykilstöðum. Dalvík og Grinda- vík vóru skrautblóm Framsókn- ar í sveitarstjórnarkosningun- um, sem á heildina litið sýndu kyrrstöðu í fylgi flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 20,9% atkvæða á Dalvík og einn fulltrúa kjörinn, hafði tvo. Dal- vík er eini kaupstaðurinn þar sem Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi. Alþýðuflokkur fékk 13,5% kjörfylgi, eykur fylgi sitt úr 64 í 96 atkvæði og vinnur fulltrúa, hafði engan áður. Alþýðubandalagið missir hinsvegar um 39% fyrra fylgis, fær 123 atkvæði (202 1978) og tapar öðrum af tveimur bæjar- fulltrúum sínum. Þetta fylgi sýnist hafa farið yfir á Fram- sóknarflokk og Alþýðuflokk. Sem sagt: Alþýðubandalag og Sjálfstæðisflokkur missa 1 full- trúa hvor sem Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur vinna. Húsavík Sjálfstæðisflokkurinn fékk mjög góða kosningu á Húsavík, jók kjörfylgi sitt um tæp 24%. Hann fékk 21,3% greiddra at- kvæða og 2 bæjarfulltrúa kjörna. Alþýðuflokkurinn eykur og fylgi sitt og vinnur fulltrúa, fær tvo kjörna. Alþýðuflokkur- inn fékk 18,6% atkvæða. Alþýðu- bandalag og óháðir, sem höfðu 3 fulltrúa, fá hinsvegar aðeins tvo kjörna nú. Hlutu 26,6% fylgis nú en höfðu 34% 1978. Framsóknar- flokkurinn er sem fyrrum stærsti flokkur staðarins, fær 33,5% kjörfylgi og 3 fulltrúa, eins og áður. Kauptúnahreppar Á Raufarhöfn vinnur Fram- sóknarflokkur hreppsnefndar- fulltrúa af Alþýðubandalagi. Framsóknarflokkur fær 32,6% atkvæða (76 atkvæði) og tvo kjörna, Sjálfstæðisflokkur 26% (56) og 1 kjörinn, Alþýðubanda- lag 20,2% (47) og 1 fulltrúa, Óháðir kjósendur 23,3% (54) og 1 fulltrúa. Alþýðubandalagið tap- ar um helmingi fyrra fylgis. Á Þórshöfn komu ekki fram flokkslistar og í Hrísey var óhlutbundin kosning. Horft um öxl — og fram á veginn Sjálfstæðismenn buðu fram í tvennu lagi á Norðurlandi eystra 1979: flokkslista, sem fékk 2.758 atkvæði, og hliðarlista, sem fékk 859 atkvæði. Af D-lista var kjör- inn Lárus Jónsson og Halldór Blöndal var landskjörinn (upp- bótarþingmaður). S-listi fékk ekki mann kjörinn. Féllu því all- mörg atkvæði áhrifalaus í kjör- dæminu. Samanlagt kjörfylgi þessara lista var 3.615 atkvæði. Framsóknarflokkurinn var sigurvegari á Norðurlandi eystra 1979, fékk 5.896 atkvæði og þrjá þingmenn kjörna: Ingvar Gísla- son, Stefán Valgeirsson og Guð- mund Bjarnason. Alþýðubanda- lag fékk 2.141 atkvæði og Stefán Jónsson kjörinn. Alþýðuflokkur 1.789 atkvæði og Árna Gunnars- son kjörinn. Úrslit sveitarstjórnarkosn- inga í kjördæminu benda til, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi unnið upp fylgi sitt frá því fyrir 1978, en það ár snérist kosningagæfan nokkuð í höndum hans á heild- ina litið. Flokkurinn hefur greinilegan byr í kjördæminu nú — og þingmenn hans, Lárus Jónsson og Halldór Blöndal, hafa staðið sig með ágætum í þingstörfum. Það ættu því að vera sterk spil á hendinni þegar gengið verður til Alþingiskosn- inga á nýjan leik, sem verður í síðasta lagi síðla næsta árs — en getur vel orðið fyrr. Síldarstemmning á Húsavík 1981 — en þá náðu Húsvíkingar í smávegis búbót af hafsilfri — síld — í lagnet. Alþýðuflokkur missir helming atkvæða á Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.