Morgunblaðið - 30.06.1982, Side 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ1982
w
Alyktun stjórnar SUS á fundi í Vestmannaeyjum:
Nauðsynlegt að sjálfstæð-
ismenn sameinist á ný
í landsmálabaráttunni
Nýkjörin stjórn Heimdallar. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurður
Ólafsson, Ólafur Jóhannsson, Jóhannes Sigurðsson, Svanbjörn Thor-
oddsen, Ásdís Loftsdóttir, Edda Magnúsdóttir, Árni Sigfússon, Árni
Sigurðsson, Örn Þ. Þorvarðarson, Þorsteinn Haraldsson og Haukur Þ.
Hauksson.
Aðalfundur Heimdallar:
Sigur Sjálfstæðis-
flokksins sýnir hvers
hann er megnugur
Árni Sigfússon endurkjörinn formaður
— sú er krafa stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins
AÐALFUNDUR Heimdallar,
SUS, var haldinn í Valhöll sunnu-
daginn 6. júní síðastliðinn og var
á fundinum Árni Sigfússon kos-
inn formaður. Hann var sjálfkjör-
inn.
Aðrir í stjórn voru kosnir:
Árni Sigurðsson, Ásdís Lofts-
dóttir, Baldvin Einarsson, Edda
Magnúsdóttir, Haukur Þ.
Hauksson, Jóhannes Sigurðs-
son, Ólafur Jóhannsson, Sig-
urður Ólafsson, Svanbjörn
Thoroddsen, Þorsteinn Har-
aldsson og Örn Þ. Þorvarðar-
son.
Skýrsla stjórnar var lögð
fyrir fundinn og reikningar fé-
lagsins voru samþykktir.
Þá var stjórnmálaályktun
samþykkt samhljóða, en þar
segir m.a. að sigur Sjálfstæðis-
flokksins í sveitarstjórnarkosn-
ingunum sýni hvers flokkurinn
sé megnugur, standi sjálfstæð-
ismenn saman um sjálfstæð-
isstefnuna, sem ein er fær um
að tryggja kröftuga endurupp-
byggingu íslensks þjóðfélags.
„Sigur Sjálfstæðisflokksins í
sveitarstjórnarkosningunum
ítrekar enn frekar mikilvægi
þess að þingmenn flokksins
standi á ný sameinaðir á Al-
þingi íslendinga. Aðeins með
þeim hætti getur unnist sá sig-
ur í alþingiskosningum sem
sjálfstæðisfólk væntir og þjóð-
in þarfnast," segir í stjórn-
málaályktuninni.
NYAFSTAÐNAR sveitnar-
stjórnarkosningar marka tíma-
mót í stjórnmálum á íslandi.
Þrátt fyrir innri erfiðleika und-
anfarin misseri vann Sjálfstæð-
isflokkurinn glæsilega sigra um
land allt. í Vestmannaeyjum,
þar sem stjórn SUS er nú saman
komin, vann Sjálfstæðisflokkur-
inn einhvern stærsta sigur í sögu
sinni. Um allt land flykktist
ungt fólk til liðs við flokkinn
enda sýndi enginn flokkur ungu
fólki jafnmikið traust og Sjálf-
stæðisflokkurinn með því að
velja það til framboðs. Hópar
kjósenda, eins og t.d. námsmenn
erlendis, sem stundum áður hafa
verið Sjálfstæðisflokknum frem-
ur andsnúnir, komu nú til liðs
við flokkinn í ríkara mæli en
fyrr.
Ljóst er að tilraunir andstæð-
inga Sjálfstæðisflokksins til að
kljúfa hann hafa mistekizt og
andstæðingaflokkarnir féllu á
eigin bragði í kosningunum. Úr-
slit þeirra sýna svo ekki verður
um villzt, að Sjálfstæðisflokkur-
inn er nú sem fyrr langöflugasta
stjórnmálaflið í landinu.
Samstaka og samvinna allra
sjálfstæðismanna á vafalaust
mikinn þátt í því, hversu vel
tókst til í kosningabaráttunni.
Mikið liggur við, að sjálfstæð-
ismenn um land allt taki einnig
höndum saman fyrir næstu al-
þingiskosningar, sem orðið geta
fyrr en varir. Sveitarstjórnar-
kosningarnar í maí sýna hvers
flokkurinn er megnugur, þegar
flokksmenn standa saman.
Örlagaríkir tímar eru fram-
undan í þjóðmálum á íslandi.
Við blasir efnahags- og stjórn-
arfarslegt öngþveiti verði ekki
tekið í stjórnartaumana af festu
og styrk. Erfiðar vinnudeilur
standa yfir og mikill vandi steðj-
ar að atvinnulífi þjóðarinnar og
fjárhag heimilanna samfara
minnkandi þjóðartekjum og
margvíslegum erfiðleikum í út-
flutningsatvinnuvegunum.
Enda þótt hluti þeirrar efna-
hagsholskeflu, sem yfirvofandi
er, sé til kominn vegna ytri
áfalla þjóðarbúsins er ekki síður
um að kenna fyrirhyggjuleysi
núverandi ríkisstjórnar, þar sem
afturhaldsöflin í Alþýðubanda-
laginu ráða ferðinni og hafa taf-
ið eðlilega atvinnuuppbyggingu
með þeim afleiðingum að stöðn-
um blasir við.
Viðhorf almennings til stefnu
Alþýðubandalagsins kom þó
glöggt fram í nýafstöðnum kosn-
ingum og ljóst er að stefna þess
nýtur lítils fylgis. Þannig hrundi
fylgið af Alþýðubandalaginu í
Reykjaneskjördæmi, en einmitt í
því kjördæmi hefur þröngsýni
alþýðubandalagsmanna, varð-
andi byggingu nýrrar flugstöðv-
ar á Keflavíkurflugvelli og eðli-
legar framkvæmdir í tengslum
Frá fundinum í Vestmannaeyjum. Geir H. Haarde formaður SUS í ræðustól.
Stjórn SUS með fund
í Vestmannaeyjum
STJÓRN SUS - Sambands
ungra sjálfstæðismanna —
hélt nýlega stjórnarfund í
Vestmannaeyjum. Tóku Ey-
verjar vel á móti stjórninni og
fylgifiskum hennar, eins og
vænta mátti.
Stjórnarmenn í SUS, Heimdalli
og Eyverjum á bryggjunni í Vest-
mannaeyjum, skömmu áður en
lagt var upp í bátsferðina um Eyj-
arnar.
Stjórnin sendi frá sér
ályktun í tilefni kosningúr-
slitanna og er ályktunin birt
hér á síðunni. Einnig voru
ýmis önnur mál rædd á
fundinum. Að fundarstörf-
um loknum var farið í báts-
ferð og Eyjarnar skoðaðar og
þótti hún takast vel. Um
kvöldið mættu menn á sigur-
hátíð sjálfstæðismanna í
Eyjum, sem var hin fjörug-
asta eins og hátíðir Eyja-
manna jafnan eru. Auk
stjórnarmanna í SUS mætti
hluti stjórnar Heimdallar á
sigurhátíðina í Vestmanna-
eyjum.