Morgunblaðið - 30.06.1982, Page 22

Morgunblaðið - 30.06.1982, Page 22
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1982 Hin vondu veiðarfæri Eftir Guðna Þor- steinsson fiskifrœðing Sjálfsagt fer miðlungi vel á því, að undirritaður ófrægi þau tæki, sem þjððin lifir þó á öllu öðru fremur, veiðarfærin. Þau eru þó á ýmsan hátt gallagripir og gengur mönnum illa að koma sér saman um það, hver séu verst og hver kannske illskást, enda hafa menn ýmis mismunandi atriði í huga, þegar þeir fella dóma. Sagan segir okkur, að jafnan hafi verið barist skeleggast á móti öllum þeim veið- arfærum, sem aflasælust eru hverju sinni og eimir enn eftir af þessari áráttu. Ekki er meiningin með þessari grein að gera ein- hvern alisherjar samanburð á þeim veiðarfærum, sem við not- um. Hér á eftir verður hins vegar leitast við að gera grein fyrir einu einstöku eðli veiðarfæranna en það er að rekja örlög þess fisks eða annarra sjávardýra, sem komast í kast við veiðarfærin án þess að veiðast í venjulegum skilningi. Þar er sem sagt um dýr að ræða, sem sleppa undan eða út úr veið- arfærunum. Til þess að réttlæta hinn dapurlega titil greinarinnar, skal það tekið fram strax, að þessi viðskipti fisks og veiðarfæris enda alltof oft með dauða fisksins. Rétt og skylt er strax í upphafi að gera grein fyrir þeim gögnum, sem notuð hafa verið við samn- ingu þessa pistils. Upphaf þess máls má rekja til vinnunefndar- fundar veiðarfæra- og atferlis- fræðinga Alþjóðahafrannsókna- ráðsins, sem haldinn var í Nantes í Frakklandi vorið 1981. Þar var samþykkt tillaga frá íslandi þess efnis, að á næsta fundi, sem hald- inn var í Aberdeen í maí 1982, yrði aðalumræðuefnið einmitt fiska- dauði af völdum veiðarfæra af þeim fiski sem ekki veiðist. Téðir sérfræðingar höfðu því eitt ár til að gera tilraunir og viða að sér efni til þess að varpa ljósi á það mikla vandamál, sem hér er um að ræða. Verður nú leitast við að rekja hið helsta, sem í ljós kom á síðasta fundi og skal það tekið fram strax, að þær þjóðir sem hafa yfir neðansjávarsjónvarpi að ráða, gátu lagt mest af mörkum. Það er að sjálfsögðu tilgangur fiskveiða að drepa fisk eða önnur sjávardýr. Veiðarfærin skila okkur aflanum lifandi eða dauðum en um það er ekki fengist, .ef gæðin eru í lagi. Hitt er svo verra, að veiðarfærin drepa ætíð eitthv- að af fiski, sem ekki veiðist. Slíkt dráp rýrir að sjálfsögðu fiski- stofnana án þess að auka aflann og er því mjög óæskilegt. Það hlýt- ur að vera keppikefli okkar að afla nákvæmra upplýsinga um þetta atriði og reyna síðan eftir megni að koma í veg fyrir þetta óvilja- dráp bæði með breytingum á veið- arfærum og reglugerðarákvæðum. „Þaö er að sjálfsögðu tilgangur fiskveiða að drepa fisk eða önnur sjávardýr. Veiðarfærin skila okkur aflanum Iif- andi eða dauðum, en um það er ekki fengist, ef gæðin eru í lagi. Hitt er svo verra, að veiðar- færin drepa ætíð eitt- hvað af fiski, sem ekki veiðist.“ Þessu drápi fisks sem ekki veið- ist má skipta í 5 flokka. Er þar fyrst að nefna fisk, sem tapast með veiðarfærunum. Hér er því um fisk að ræða, sem hefur veiðst á venjulegan hátt, en nýtist samt ekki, þar sem veiðarfærin tapast. í öðru lagi geta veiðarfærin skadd- að fiskinn til ólífis á ýmsan hátt. Er þar átt við það, að fiskurinn kremjist eða særist. I þriðja lagi getur fiskurinn svo afhreistrast til ólífis við það að synda í gegnum net veiðarfæranna. I fjórða lagi getur fiskur svo drepist á þann hátt, að sundmaginn skaddast eft- ir að fiskurinn hefur verið dreginn upp langa vegu. Loks getur fiskur svo drepist vegna áhrifa veiðar- færanna á miðtaugakerfið, þ.e. dá eða lömun. Nú verður reynt að at- huga hverja aðferð um sig örlítið nánar með tilliti til einstakra gerða veiðarfæra. Leiðir til úrbóta verða nefndar, ef þær eru tiltæk- ar. Fiskur sem tapast með veiðarfærunum Troll og dragnætur: Þessi veið- arfæri tapast tiltölulega sjaldan, þannig að hér er varla um mikinn fiskadauða að ræða. Lína: Hlutar af línu tapast af og til og er talið, að sá fiskur, sem er á línunni, drepist fljótlega. Hér er varla um stórt vandamál að ræða. Helst mætti ráða bót á því með því að nota sterkari línu, hafa fleiri uppistöður og einnig með því að kappkosta betur að hafa upp á týndum línustubbum. Lagnet: Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þorskanet tapast oft, enda þótt notaðar séu sterkar línur í uppistöður. Netin og uppi- stöðurnr geta borist með straum- um, fallið niður bratta kanta eða flækst í önnur net með þeim af- leiðingum, að tengsl þeirra við yf- irborð rofnar, þannig að netin týn- ast. Hér er að sjálfsögðu um stórt vandamál að ræða. Það kann að vísu að vera misjafnt, hversu lengi þessi net, drauganetin, halda áfram að fiska. Oft lenda þau sjálfsagt í hnút og fiska þá vænt- anlega lítt eða ekki. í öðrum til- vikum haldast netin tiltölulega greið og geta þá fiskað um hríð. Þó er ósennilegt, að netin séu mjög fiskin eftir að fiskurinn í þeim er farinn að úldna. Þegar drauganet koma upp með trollum, finnast oft í þeim lifandi fiskar, sem líklegt er, að flækst hafi í netin í trollinu en hefðu náð að forðast netin ella. Persónuleg reynsla undirritaðs er sú, að drauganetin séu oftar í hnút en greið og fiskin. Á meðfylgjandi mynd er þó ekkert um að villast, fiskurinn í netunum er greinilega mjög misvel á sig kominn. Annars þarf ekki að orðlengja það, að skoðanir eru mjög skiptar um það, hve lengi drauganetin fiska. Að sjálfsögðu er vandalaust að fá úr þessu skorið. Við þurfum að fá okkur neðansjávarsjónvarp og það fyrr en seinna. En hversu lengi sem netin fiska eftir að þau tapast þá er þó ljóst, að í þeim tapast mikið af fiski, enda þótt flestir séu feimnir við að nefna þar ákveðnar tölur. Sitthvað er hægt að gera til þess að draga úr fiskadauðanum í drauganetunum. Sérhver skip- stjóri reynir væntanlega að kraka upp töpuð net, enda er mikið í húfi að bjarga aflanum og netin eru einnig það dýr, að menn sætta sig ekki við það aðgerðarlausir að tapa trossu. Oft kann þó að vera naumur tími til slíkra aðgerða. Kemur þá mjög til greina að hafa sérstakt og vel útbúið skip ein- göngu í því að kraka upp drauga- net og hafa t.d. Norðmenn þennan hátt á. Norðmenn hafa einnig reynt að koma útvarpsmerkjum fyrir á netunum til þess að auð- velda leit að drauganetum. Fyrir nokkrum árum var það skylda á íslandi að nota náttúru- leg efni í flothanka. Þetta var gert til þess að koma í veg fyrir, að drauganetin héldu endalaust áfram að fiska, því að jurtatrefj- arnar rotna til ónýtis áður en langt um líður og losna flotin þá frá netunum, sem falla þá til botns og hætta að fiska. Þessi lausn var ekki vinsæl á meðal sjó- manna og útgerðarmanna, þar sem hankarnir vildu slitna nokkuð oft í lagningu og olli það bæði aflatapi vegna þess að netin flutu ekki eins vel upp frá botni og einn- ig var talsverð aukavinna fólgin í því að skipta um hanka. Að auki komu svo óþarfa útgjöld vegna fleiri hanka og flota. Þessi lausn er því ekki fýsileg og enda verður að stefna að því að koma drauga- netunum upp fyrir yfirborð en ekki láta þau liggja dauð á hafs- botni. Loks má svo takmarka neta- veiðar í tíma og rúmi með reglu- gerðum. Er þá einkum átt við það að draga úr netaveiðum fyrri hluta vertíðar, þegar veður er yf- irleitt rysjótt og einnig kæmi til greina að skorða netaveiðarnar við eitthvert hámarksdýpi, því að sennilegt er, að net tapist frekar á Egilsstaðir: Bátsferðir á Lagarfljóti Kgil.sstöðum, 27. júní. I byrjun næsta mánaðar munu hefjast daglegar bátsferðir á Lag- arfljóti milli Egilsstaða og Atlavíkur í Hallormsstaðarskógi. Auk þess eru nú hafnar áætlunarferðir þrisvar í viku með sérleyfisbifreiðum Sveins Sigurbjörnssonar milli Egilsstaða og Hallormsstaðar. Þetta kom fram á fundi — sem hótelstjóri Hótels Eddu á Hall- ormsstað, Þórhalla Snæbjörns- dóttir, Þórhallur Sigurðsson, út- gerðarmaður á Lagarfljóti og Sveinn Sigurbjörnsson, sérleyfis- hafi, efndu til með frétta- og blaðamönnum nú á dögunum. Þetta er fjórða sumarið sem Ferðaskrifstofa ríkisins rekur sumarhótelið á Hallormsstað. Fram til þessa hafa gestir hótels- ins einkum verið erlendir ferða- hópar. Nú er hins vegar ætlunin að breyta til og kappkosta að reka hótelið fyrir fámenna hópa, ein- staklinga og fjölskyldur. I matsal hótelsins er hægt að velja á milli 17 aðalrétta að jafn- aði. Létt vín eru á boðstólum með mat. Um helgar verður köku- hlaðborð með kaffinu með svo- nefndu „gestgjafa tilboði". í því felst að einn (gestgjafinn) greiðir fulit verð, síðan lækkar verðið um 3 kr. fyrir hvern einstakling þar til 18% afsláttur er fenginn. Ef fólk dvelur um lengri tíma á hótel- inu er veittur verulegur afsláttur bæði á gistingu og mat. Börn inn- an 6 ára aldurs greiða hvorki fyrir mat né gistingu — og börn 6—12 ára greiða ekki fyrir gistingu en hálfvirði matar. Matsveinn Hótels Eddu á Hall- ormsstað, er Einar Ingólfsson, sem áður starfaði á Hlíðarenda í Reykjavík. Að sögn hótelstjóra hefur Hótel Edda á Hallormsstað nokkuð goldið þess að vera fjarri hring- vegi — en nú ætti að rætast úr með tilkomu fastra áætlunarferða á láði og legi milli Egilsstaða og Hallormsstaðar. Áætlunarbjfreið- ir Sveins Sigurbjörnssonar fara frá Ferðamiðstöð Austurlands á Egilsstöðum til Hallormsstaðar á föstudögum og sunnudögum kl. 18.00 og kl. 14.00 á þriðjudögum. Til Egilsstaða er farið aftur eftir eins og hálfs tíma stans. Bátur Þórhalls Sigurðssonar, sem tekur 8 manns í sæti, fer frá Egilsstöðum (líklega frá Lagar- fljótsbrú) á hverjum morgni og úr Atlavík til Egilsstaða að kvöldi. Hótelstjóri taldi kjörið fyrir fólk til að hrista af sér gráan hversdagsleikann og taka áætlun- arbifreiðina einhvern daginn inn að Hallormsstað, njóta þar gist- ingar, matar og drykkjar í hinu fegursta umhverfi og fara síðan með bátnum að kvöldi til Egils- staða. Að líkum geta gestir í Atlavík fengið bátinn til leiguferða um Löginn milli áætlunarferðanna. — Ólafur. Þórhallur Sigurösson, útgerðarmaður á Lagarfljóti, Þórhalla Snæbjörnsdóttir, hótelstjóri Hótels Eddu á Hallorms- stað og Sveinn Sigurbjörnsson, sérleyfishafi. Hótel Edda á Hallormsstað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.