Morgunblaðið - 30.06.1982, Blaðsíða 24
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1982
^cjcHnu-
ípá
HRUTURINN
Mil 21. MARZ-19.APRÍL
Þú gotur ekki hugsaö um annad
en einkalíf þitt í dag og ættir því
að hafa vit á að þegja. Það þarf
ekki mikið til að þú missir
stjórn á skapi þínu. Reyndu að
hafa það skemmtilegt í kvöld.
NAUTIÐ
20. APRlL—20. MAÍ
Þú færð einhverjar miður
skemmtilegar fréttir bréfleiðis
eða símleiðis. Líklega er þetta
eitthvað í sambandi við fjármál
sem eru ekki í eins góðu lagi og
þú hélst.
TVÍBURARNIR
Á&sS 21. MAÍ-20. JÚNl
Þú átt erfitt með að einbeita þér
að venjubundnum störfum. Það
gengur betur ef þú ætlar að
leysa einhver skapandi verk
efni. ímyndunaraflið og ævin-
týraþráin eru í hámarki.
m KRABBINN
21. JÍJNl-22. JÚLl
Notaðu ímyndunaraflið til þess
að gera breytingar á heimili
þínu. I»saðu þig við gamalt
drasl og hluti sem þú þarft ekki
lengur að nota.
UÓNIÐ
22. JHI.I-22. ÁCflST
<«ættu þess að fá ekki alla fjöl-
skylduna upp á móti þér vegna
stjórnsemi þinnar. Fullorðið
fólk verður að fá að ráða gerð-
um sinum sjálft. Hvíldu þig og
reyndu að slappa af.
(ÍIEÍ M KR,N
M3IL 22. ÁCÍIST—22. SEPT
Ágætur dagur ef þú freistast
ekki til að eyða peningum þín
um í vitleysu. Vinir þínir eru
mjög hjálpsamir. Sýndu þeim að
þú sért þakklátur fyrir allt sem
þeir hafa gert fyrir þig.
Qh\ VOGIN
22. SKIT -22 OKT.
Heilsan er eitthvað að angra
þig. Fjölskyldan reynir öll að
gera þér lífið léttara. I*ú verður
að slaka meira á og ekki ætla
þér of mikið.
■Li DREKINN
23.0KT.-21.NÓV.
Iht gengur best að vinna einn i
dag. Ef þú þarft að vinna með
hópi gengur allt á afturfótunum
Sýndu áhuga á því sem maki
þinn er að gera og láttu ekki
óánægju bitna á þínum nánustu.
BÍKiMAÐURINN
22. NÓV.-2I.DES.
Einhver óróleiki er yfir öllu í
dag og þú átt mjög erfitt með að
einbeita þér. Láttu ekki vini
þína koma nálægt fjármálum
þínum. I»ú hefur óþarfa áhyggj-
ur af ástamálunum.
STEINGEITIN
22. DES.-19. JAN.
Heimilislífið er ekki eins gott
og þú vildir hafa það í dag. Þér
kemur ekki vel saman við maka
þinn. Til að kóróna allt koma
óvelkomnir gestir á versta tima
í kvöld.
VATNSBERINN
—SÍ£ 20.JAN.-18. FEB.
I»ér reynist erfitt að koma mál-
um þinum á framfæri og Ijúka
viðskiptaerindum í dag.
(■eymdu viðskiptin til morguns,
þá eru líkur á að allt gangi bet-
< FISKARNIR
19. FEB.-20. MARZ
(■ættu þess að setja markið ekki
of hátt. Maki þinn eða foreldrar
eru mjög tilætlunarsöm. I»ú
verður að reyna að sigla milli
skers og báru, þú gerir málin
bara verri ef þú mótmælir.
CONAN VILLIMAÐUR
DÝRAGLENS
xþ? /Z
pBTTA \J£ZÐUfZ
/iUPVITAQ ALW
H'A LlSTKÆNr/
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
SMÁFÓLK
EVERVONE 15 C0MPLAININ6
A90UT THE HEAT,
CHARUE 8R0WN...
V
I KN0W...I HAVE T0 APMIT (T'5 PRETTV' \xJAm F0R PLAVIN6 BA5E0ALL J /the onlv one who^ HASN'T COMPLAINEP) Vj5 lucv... Jy
V vTy1
1 \~rC
8-20 r. \
I>að eru allir að kvarta undan hit- Ég skil það ... Ég verð að viður- Gunna er sú eina sem hefur ekki
anum, Kalli Bjarna ... kenna áhagstætt veður til horna- kvartað ...
' bollaspileris.
BRIDGE
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
(4) N-S á hættu; tvímenningur
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta 1 spaði 4 hjörtu ?
Þú átt í suður:
sG8
h -
t Á10952
I KD10953
Þessi þraut er úr TBW,
mars ’80.
Hér koma einkum fjórar
sagnir til greina: 4 spaðar (10
stig), dobl (9 stig), 4 grönd (8
stig) og 5 lauf (6 stig).
Alfred Sheinwold, sem rit-
stýrði þessari sagnaæfingu,
hafði eftirfarandi að segja um
þessar sagnir:
Það er líklegt að félagi sé
með góðan spaða, því ekki
virðist hann eiga mikið í hin-
um litunum. Fjórir spaðar
gætu því heppnast vel. En ef
þig skortir kjark til að taka
undir lit makkers á fjórða
sagnstigi með Gx, er til í dæm-
inu að reyna 5 lauf. En láglita-
geim í tvímenningi eru ekki
arðvænleg ef annað kemur til
greina. Auk þess gætirðu hitt
illa á makker.
En hvað þá með 4 grönd? Er
það ekki augljóslega beiðni til
makkers um að velja betri lág-
lit? Þér finnst það blasa við
miðað við þín spil, en veit
makker nema þú sért með
eitthvað þessu líkt:
s Kxxx
h x
6 Áx
I KD109xx
og sért að spyrja um ása?
Ef ég mætti ráða — það er
enn Sheinwold sem talar — þá
gæfi ég 10 stig fyrir dobl og
núll fyrir allar aðrar sagnir.
Doblið heldur öllum leiðum
opnum. Makker sér á sínum
spilum að doblið er ekki byggt
á hjartastyrk svo hann ætti að
gera sér grein fyrir hvernig
spil ég á. Hann tekur því út í 4
spaða með góðan lit, og ef
hann á fjórlit í láglit þegir
hann ekki yfir honum. Og svo
gæti hann átt kólgu í hjarta og
passað.
Þetta var álit Sheinwolds,
en bæði Þorlákur og Sigtrygg-
ur vildu segja 4 grönd.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á Miðjarðarhafssvæðamót-
inu í Budva i Júgóslavíu í vetur
kom þessi staða upp í skák ít-
alska stórmeistarans Mariotti
og gríska alþjóðameistarans
Makroppoulos, sem hafði
svart og átti leik.
20. — e3!, 21. dxc6 — exf2+,
22. Khl (Ef 22. Hxf2 þá Hxe2!,
23. Hxe2 - Ddl+, 24. Kf2 -
Rd4+ og vinnur) Hxe2 og
hvítur gafst upp, því hann á
enga vörn við hótuninni 23.
— Hel, sem að nokkru haldi
getur komið.