Morgunblaðið - 11.07.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.07.1982, Blaðsíða 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ1982 Kkkehard Schall í hlulverki Liszts ásaml Richard Burton i hlutverki nafna síns Wagners. Svíþjóð og gerðist þar hljóm- sveitarstjóri. Síðan fór hann til Weimar, þar sem hann kynntist Liszt, en þaðan fór hann í sjö ára útlegð í Zúrich. Árið 1861 fór hann aftur til Þýzkalands og ári síðar fór hann til Lundúna og Parísar þar sem „Tannháser" olli einhverju mesta hneyksli í gjörvöllum óperuannál. Áðeins fáeinir vinir hans stóðu með honum, þ.á m. Baudelaire, en eigi að síður hvarf hann aftur heim til Þýzkalands, kalinn á hjarta og vonlaus um að hasla sér völl á erlendri grund. Árið 1864 tókust sérkennilegir dáleik- • ar með tónskáldinu og Ludwig, hinum geggjaða kóngi í Bæjara- landi. Ásælni og eyðslusemi Wagners gekk að lokum fram af ráðgjöfum kóngsins og árið 1866 var honum ekki lengur vært í byggðarlaginu. Hélt hann þá til Lausanne í Sviss, þar sem hann komst í kynni við Nietzsche og Cosimu, óskilgetna dóttur Liszts, en hún sagði skilið við fyrri mann sinn þegar Wagner var kominn til sögunnar. Meðan á öllu þessu gekk var Richard Wagner að semja óperu- verk sem voru frábrugðin því sem áður hafði þekkzt. Fyrstur óperuhöfunda lagði hann áherzlu á að texti og tónlist væru órofa heild og hann skrif- aði sjálfur sína eigin óperutexta. í stað gamla einsöngsins var komin tjáningarful), tónræn framsögn. I myndinni kemur fram að til- finningalega var það ekki Cos- ima sem var aðalpersónan í lífi Wagners, heldur Minna, fyrri kona hans. „Óhamingjusamt hjónaband þeirra," segir kvikmyndastjór- inn, „skilnaðurinn og andlát hennar höfðu áhrif á þau ástar- sambönd sem Wagner stóð í eft- ir þetta, og þar er sennilega komin skýringin á hverflyndi hans í ástum. Eitt af þessum ástarsamböndum kann að hafa verið örsök dauða hans.“ Hér vitnar Palmer til ástarbréfs frá Carrie Pringle, sem var í hlut- verki blómastúlku þegar „Parsif- al“ var frumfluttur. Það var Cos- ima sem opnaði það bréf og rak það síðan framan í eiginmann- inn með tilheyrandi fyrirgangi. Þrátt fyrir alla hina óskemmtilegu þætti í fari Wagn- ers telur Palmer engan vafa leika á því að persónutöfrar hans og stórkostlegir hæfileikar hafi verið yfirsterkari þegar á heildina er litið, og að sú hlið persónunnar muni verða yfir- gnæfandi í augum áhorfenda. Hann segir að sá sem leikur Wagner búi yfir aðdráttarafli og persónutöfrum sem hæfi hlut- verkinu. „Hann lifir sig algjör- lega inn í hlutverkið," segir hann um Burton. „Hann er fyrstur á vettvang áður en kvikmyndataka á að hefjast og fylgist með öllu sem fram fer af óskaplegum áhuga. Og hann töfrar fólk, al- veg eins og Wagner hefur gert.“ Er fleira líkt með tónskáldinu og leikaranum? „Ég tel að báðir séu gæddir aðlögunarhæfileika. Báðir hafa verið örlátir á fé og gjarnir á að leggja allt undir þegar þannig stóð á, og báðir hafa haldið sínum ótrúlega styrk." Það er Vittorio Storano, Óskarsverðlaunahafi, vegna „Reds“ sem stjórnar kvikmynda- tökunni. Hann vekur athygli á því hve þeir eru líkir, þessir tveir Ríkharðar. Hann heldur því fram að þetta ágerist eftir því sem líði á kvikmyndatökuna. Hafi Richard Burton í upphafi ekki verið annað en leikari sem minnti á Wagner þá er hann nú orðinn að Wagner. „Það er ekki bara andlitið, heidur öll persónana. Þetta er þekkt fyrirbæri — það nægir að benda á Brando til að minna á það.“ En kvikmyndastjórinn segir: „Ég er ekki að slægjast eftir leikurum sem líkjast persónun- um í útliti. Richard er fær um að gæða Wagner lífi — að gera hann sannfærandi." I einu atriði myndarinnar sitja þeir saman, Wagner og Liszt, faðir Cosimu. Burton talar samfellt í tvær mínútur. Þetta er eintal sem gerir gífurlegar kröf- ur til leikarans og útheimtir fimm „tökur". Fyrst brýzt sólin fram, í annarri töku geltir hund- ur og í tveimur næstu er mynda- vélin ekki í fókus. Það sem held- ur atriðinu saman m.a. er full- komin frammistaða Burtons. Þegar tökunni er lokið segir hann um mótleikarann, Ekke- hart Schall, sem kemur úr Berl- iner Ensemble: „Einn mesti leik- ari sem nú er uppi. Þetta er ein samfelld áskorun. Maður lýkur kvikmyndatöku með stórleikara annan daginn og byrjar aftur með öðrum stórleikara næsta dag.“ Það er kominn matartími. Há- degisverðurinn er framreiddur í bátnum sem eltir kvikmynda- tökufólkið á milli hinna ýmsu staða í Feneyjum. Matreiðslu- mennirnir eru enskir og þessi 75 manna hópur er vel alinn. Að þessu sinni er á matseðlinum steikt svínakjöt, salad, og ávext- ir. En þetta er ekki eini báturinn sem er í slagtogi — alls eru þeir fjórtán talsins. Nú birtist Vanessa Redgrave til að koma fram í andlátsatrið- inu. „Ég var búinn að hlakka til að vinna með Richard," segir leikkonan, „Ég hef dáð hann síð- an hann lék ásamt föður mínum í Stratford-upon-Avon. Hvað það er sem 'gerir hann að svo góðum leikara? Það er þessi beina tjáning sem hann hefur á valdi sínu.“ Kvikmyndastjórinn aðstoðaði Ken Russel þegar Vanessa Red- grave lék í myndinni um ísadóru Duncan. „Mér þykir til þess koma hvað Tony hefur mikinn áhuga á að segja sögu eins og hún raunverulega var,“ segir leikkonan. „Ég leik hina hræði- legu Cosimu, þetta skrímsl. Það var Wagner auðvitað líka og það endaði með því að hann datt niður dauður í miðju rifrildi við hana.“ Áður en andlátsatriðið sjálft hefst sjást Cosima og Wagner í nærmynd. Hann er sjötugur að aldri, svartklæddur, hvítur fyrir hærum, grænblá augu hörkuleg og stingandi. I þessu atriði æpir þögnin, og síðan skellur fárviðr- ið á. Fjórar „tökur" — og síðan er öllu lokið. Um kvöldið er Richard Burton staddur í troðfullri borðstofunni í Gritti-höllinni við stærsta síkið í Feneyjum. Hann fitlar við mat- inn á disknum en er ekki jafná- hugalaus um vínið í glasinu.'' „Æ, ég er búinn að deyja svo oft, í kvikmyndum og á leik- sviði," segir hann, „en myndavél- in er miskunnarlaus. Meðan á töku þessa atriðis stóð hugsaði ég hvernig maður færi að því að láta augun í sér deyja. Það er ekki nóg að loka augunum. Ég spurði Vanessu hvort hún sæi dauðann í augunum á mér. Þegar hún sagði já, þá vissi ég að ég var búinn að ná því.“ Hvað annað hafa þau verið að ræða? „Um Lé konung, sem ég vonast til að leika á Broadway á næsta ári. En áður en ég geri það verð ég að þjálfa upp á mér handleggina. I fimmta þætti lyfti ég Kornelíu, og Vanessa er stæðilegur kvenmaður. Lér var frá Wales og mig hefur dreymt um það í tuttugu ár að leika hann.“ Hvernig finnst honum að leika harðbrjósta mann eins og Wagn- er? „Ég hef leikið Machbeth sem var morðingi. Það er ég ekki.“ Hvernig er sá Wagner sem hann er að lýsa? „Óumræðilega upp- tekinn af sjálfum sér, skemmti- legur án þess að vita af því — eiginlega fífl. En hann hlýtur að hafa haft alveg sérstaka hæfi- leika til að gabba fólk til að leggja fram allt þetta fé og til að komast yfir allar þessar konur.“ Svo kemur þögn á meðan Rich- ard Burton er að drekka vínið sitt. Leyfist stórleikurum að vera jafn öfgafullir og tónsnillingar geta leyft sér að vera? „Skáld- um, listmálurum og jafnvel leik- urum leyfist hvað sem er ef þeir skila einhverju af sér.“ Talið berst að þroska, aldri og elli. „Þegar ég var 27 ára lék ég Hamlet. Nokkrum árum síðar lék ég hann aftur og þá fann ég fjölmarga nýja fleti á hlutverk- inu. Ég hef kannski verið seinn til að taka út þroska — seinn til að finna sjálfan mig. Ég hef staðið í þessu leiklistarbrasi í mörg ár og ég held að ég hafi aldrei verið betri leikari en ég er nú. Hver einasti listamaður verður fyrir orkusprengingu ein- hverntíma á ferli sínum. Líttu á Shakespeare — fyrstu leikritin hans eru ekki ýkja merkileg samanborið við þau sem á eftir komu. Það er fyrst í gamanleikj- unum sem snilldin fer að koma í ljós og þegar hann er búinn að skrifa þá kemur orkusprenging- in sem þessir fimm stórkostlegu harmleikir verða til úr. Orka skiptir miklu máli hjá leikurum. Framan af tók leikurinn mjög á mig líkamlega. Ég réðst á hlut- verkin eins og ótt naut. Nú nota ég ekki eins mikla orku í þetta. Reynslan kemur að miklum not- um. Þess vegna er ég ekki hræddur við að eldast." Sér hann eftir einhverju? Hef- ur hann efasemdir um eitthvað sem hefur drifið á daga hans? „Ég get ekki annað en tekið und- ir með Edit Piaf þegar hún segir: „Je ne regrette rien“.“ Hvað ætlar hann að gera þeg- ar hann er hættur að leika? „Þá fer ég aftur til Wales. Ég ætla að sitja við þetta skelfilega haf í skelfilegu veðri, skjálfandi og nötrandi. Vonandi verður samt einhver þar við hliðina á mer.“ Þýð. og endursögn — Á.R. Jafnaðarmönnum spáð auknu fylgi Frá (.uófinnu Kat;narsdúUur, frúiiariiara Mbl. í Siokkhólmi. JAFNAÐARMENN vinna sænsku kosninj'arnar í haust og Olof l'alme jjetur myndað nýja stjórn, — þannig verður útkoma kosninganna ef trúa má nýjustu sænsku skoðana- könnunum. Fylgi jafnaðarmanna á að aukast úr 43% í 46%. Hægri flokkurinn á einnig að halda áfram að auka fylgi sitt og fá 27% alkvæða í stað 20% við kosningarnar 1979. Fylgi Þjóðarflokksins sem einn- ig er með í stjórninni minnkar úr 10,7% í 7%. Kommúnistaflokkur- inn rétt nær að halda sínu í þing- inu, en til þess þarf 4% atkvæða. Skoðanakönnunin spáir honum einungis 4,1% atkvæða, en í síð- ustu kosningum fékk hann 5,6%. Tveir smáflokkar munu bjóða fram í þingkosningur.um, sem verða í september í haust, en hvor- ugur þeirra mun ná kosningu sam- kvæmt skoðanakönnuninni. Ann- ar flokkanna hefur trúarleg tengsl og kallar sig Kristilega demó- krata, en hinn er Umhverfisflokk- ur sem er nýstofnaður. Umhverf- isflokkurinn mun samkvæmt spánni fá 2,7% atkvæða. Að baki þessarar skoðanakönn- unar, sem telst ein ábyggilegasta könnun landsins, standa meðal annars allir stjórnmálaflokkarnir. Við kosningarnar 1979 rættust spár skoðanakannaninnar í stór- um dráttum. Mestu frávik voru þá 1,8%. Borgaraflokkarnir þrír munu samkvæmt könnuninni fá samtals 45,2% atkvæða og jafnaðarmenn og kommúnistar 50,2%. Staðan getur þó breyst ef kommúnistar fá minna en 4% atkvæða. Kommúnistar og jafnaðarmenn hafa að jafnaði staðið saman gegn borgaraflokkunum þremur og í dag er aðeins eins atkvæðis munur á þeim á þinginu. Hingað til hefur verið mikill stöðugleiki í sænskum stjórnmál- um og skoðanir manna hafa lítið breyst milli kosninga. Reglan um að þingflokkar þurfi að fá 4% at- kvæða hefur einnig bægt smá- flokkum frá framboði. Aðalbreytingarnar núna munu verða, spáir skoðanakönnunin, að Hægri flokkurinn fær atkvæði frá Mið- og Þjóðarflokknum og jafn- aðarmönnum, en jafnaðarmenn fá atkvæði frá kommúnistum. Af þeim sem nú ganga til kosn- inga í fyrsta skipti munu, sam- kvæmt spánni, 31% kjósa jafnað- armenn, 21% Hægri flokkinn, 6% kommúnista en aðeins 2% munu kjósa Miðflokkinn og 1% Þjóðar- flokkinn, þá tvo flokka sem nú sitja í stjórn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.