Morgunblaðið - 11.07.1982, Page 4

Morgunblaðið - 11.07.1982, Page 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JULI1982 í leiðinni að kom flatt uppá heim- inn, þegar Ronald Reagan tilkynnti af- sögn Alexander Haigs, utan- ríkisráðherra síns, og boðaði George Shultz í það embætti. New York Times sagði í leið- ara, að með hvarfi A1 Haigs hafi Reagan misst einn sinn besta mann; hinn eina í stjórninni með hagnýta þekk- ingu á málefnum Evrópu, og bætti við: „Forsetinn er láns- amur að hafa haft slíkan mann sem George Shultz við höndina. Hann er maður heill, með víðtæka reynslu í ríkis- stjórn og nýtur greinilega trausts Reagans. En það munu líða vikurnar áður en hann tekur að láta að sér kveða. I heimsmálunum hefur stjórn Reagans sóað einu og hálfu ári; hinum dýrmætasta tíma í lífi ríkisstjórnar — og nú hef- ur hún einnig sóað hæfileikum og reynslu; hún hefur misst Al Haig.“ William Safire, hörkutól, fyrrum ráðgjafi Nixons og al- kunnur dálkahöfundur vestra, snæddi nýverið hádegisverð með Alexander Haig. Aður en þeir settust að borðum, sagði Haig þjóninum að láta sig vita umsvifalaust ef forsetinn hringdi. Safire hugsaði með sér, að Haig, vinur hans, væri að reyna að gera sig svolítið merkilegan, grunlaus um að einungis-tveimur stundum áð- ur hafði Alexander Haig sent Ronald Reagan afsagnarbréf með þeim formála, að hann gæti ekki haldið áfram starfi sínu, ef George Bush, James Baker og William Clark ætti að iíðast að taka fram fyrir hendurnar á sér í Líbanon- málinu. Þeir voru rétt sestir, þegar Haig lét í það skína, að hann yrði ekki ellidauður í embætti utanríkisráðherra. Safire kvað það fullvissu sína, að hvert orðspor um afsögn hans yrði umsvifalaust þaggað niður, en Haig rifjaði upp, að Henry Kissinger hefði sagt af sér þrjátíu sinnum á sinni utan- ríkisráðherratíð. Átta skipti reyndust fylla mælinn hjá Reagan — og A1 Haig var lát- inn fjúka. Safire rekur í grein í New York Times það sem Haig fór á milli í þessum síð- asta hádegisverði Alexander Haigs sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna: Var Haig of vægur í garð Sovétta, eftir afskipti þeirra af Póllandi? Haig sagði það ekki vera: „Sagan mun sýna, að ég var sá harðasti í þessari ríkis- stjórn!“ Þessu næst sagði hann, að sú ákvörðun Reagans að af- létta kornsölubanninu á Sov- étta hefðu verið „stærstu mis- tök þessarar stjórnar í utan- ríkismálum". Hann taldi áhrif andstöðunnar við lagningu gasleiðslunnar frá Síberíu léttvæga samanborið við áhrif kornsölubannsins. En fyrst Haig var „sá harð- asti“, hví viðurkenndi hann þá í revnd stjórnvöld á Kúbu með því að hitta kúbanska vara- forsetann að máli í Mexíkó- borg? Jú, sá fundur var að beinni skipun Reagans forseta, sem hafði áhyggjur af þeirri glæpaöldu sem fylgdi í kjöl- farið af komu kúbanskra „út- flytjenda" til Flórída. Þeir „útflytjendur" reyndust flestir hverjir sakamenn og geðsjúkl- ingar, sem kommúnistum á Kúbu fannst að væru best geymdir í Bandaríkjunum! Reagan vildi senda einhvern sem var harður í horn að taka á þennan fund, svo talað yrði mál sem Kúbanir skildu! Hvað um sambandið við Kína? Var ekki komið á dag- inn, að afstaða utanríkisráð- uneytisins til Kína var vins- amlegri en afstaða Hvíta hús- sins, sem krafðist vopnasölu til Taiwan? Haig vitnaði til Richard Nixons, viðurkennds sérfræð- ings í málefnum Kína, og sagði að framtíðaröryggi Ta- iwan byggðist fyrst og fremst á samkomulaginu milli Band- aríkjanna og Kína. Safire stríddi Haig á því, að hann væri vondur uppalandi: William Clark, núverandi ör- yggisráðgjafi forsetans, gæti ekki enn talað eins og fullorð- inn maður við blaðamenn, en hann var áður starfsmaður Haigs í utanríkisráðuneytinu í eitt ár. Haig viðurkenndi fús- lega að hann væri slæmur uppalandi — og það kom á daginn, að „lekinn" mikli úr utanríkisráðuneytinu stöðvað- ist um leið og Clark færði sig yfir í Hvíta húsið. Mest ræddu þeir Safire og Haig um Mið- Austurlönd á þessum hádegisfundi sínum, jafn- framt sem þeir skáluðu í dýr- indis rauðvíni og kýldu út vömbina á besta nautakjöti — ekki kaliforníukjöti samt. Haig lagði á það áherslu, að PLO yrði að hverfa á brott með allt sitt fólk frá Líbanon til að forða enn frekari blóðs- úthellingum og hörmungum almennings í landinu og bjarga Vestur-Beirút. Hann sagði ekki í hvaða skjól það fólk ætti að flýja, en kvaðst mjög andsnúinn þeirri stefnu sem Bandaríkjastjórn virtist hafa í málinu, því ef það yrði tilkynnt opinberlega að Bandaríkin tryggðu að ísrael- ar réðust ekki inní Vestur- Beirút, þá gæfi það PLO tæk- ifæri til að berjast áfram með öllum þeim hörmungum sem það hefði í för með sér. Haig gaf í skyn að þessi stefna væri runnin undan rifjum Bush varaforseta og Weinbergers varnarmálaráðherra, sem hefðu verið viðstaddir útför Khaleds konungs í Saudi- Arabíu. Þar að auki mátti skilja á Haig, að hann kenndi Bush um það, að Bandaríkin hefðu samþykkt ályktun Sameinuðu þjóðanna númer 509, sem kvað á um, að Israelar hyrfu um- svifalaust á brott frá Líbanon, en ekki Sýrlendingar og PLO í leiðinni. Þessi samþykkt var gerð á meðan Haig var í Evr- ópureisunni með Reagan. í lok þessa hádegisfundar fór Safire að tala um forseta- frambjóðanda repúblikana í kosningunum 1984. Haig brást þá við af mikilli hollustu við forseta sinn og mælti: „Eg hef margsinnis sagt honum, að hann verði að hætta að segja þessum drengj- um sem eru í kringum hann, að hann ætli ekki fram aftur!" Alexander Haig segist hafa verið hinn harði í stjórn Reagans, sá sterki. Ekki tekur Nicholas von Hoffman undir það. Hann er kunnur blaðamaður í Washington og skrifar stund- um dálka í Spectator. í miðri Falklandseyja-deilunni réðist hann harkalega á Haig, taldi hann í engu færan til að vera milligöngumaður í slíkri deilu, hann skorti allt það sem Kiss- inger hefði til brunns að bera og hefði sá þó gert margt glappaskotið. Alexander Haig er ekki sá sterki! segir Nicholas von Hoffman og bæt- ir við: „Háttalag Haigs í Hvíta húsinu, þegar fréttir bárust af mörðtilræðinu við Reagan í fyrra, hefur ekki gleymst og gefur allt aðra mynd af þess- um manni en sumir Evrópu- menn gera sér í hugarlund. Bandaríkjamenn minnast taugaæsts manns, skjálfandi og nötrandi á beinunum; æði í svipnum þegar Alexander Haig birtist á sjónvarpsskján- um og sagði: „Eg er við stjórn hér í Hvíta húsinu." Hann reyndist ekki einu sinni hafa stjórn á sjálfum sér þá stund- ina, því á næstu mínútu hnakkreifst hann við Caspar Weinbergar varnarmálaráð- herra um það, hver væri og hver væri ekki við stjórnina í Hvíta húsinu. Og það var ekki mörgum mánuðum seinna, sem Haig sló á þráðinn til blaðamanns nokkurs sem skrifar kjaftasögudálka og sagði honum, að „einhver" í ríkisstjórninni ræki „skæru- hernað" gegn sér. Þvílíkt og annað eins lagt saman við ýmsar frásagnir af talsmáta mannsins í hanastélsveislum, gefa þeim „spekúlasjónum" byr undir báða vængi, að hjartaaðgerð sú, sem Alex- ander Haig gekkst undir, hafi haft varanleg áhrif á persónu- gerð hans!“ Þessi orð Hoffmans eru ein- kennileg, en gefa nokkra mynd af skrifum erlendra blaða- manna um ríkisstjórn Reag- ans. Enhver dálkahöfundur- nn spurði í pistli, hví teagan hefði ekki afhent Bechtel Group-stórfyrirtæk- inu á einu bretti þá óreiðu sem utanríkismálastefna hans væri. Hinn nýi utanríkisráð- herra var nefnilega forstjóri þess fyrirtækis og varnarmálaráðherrann, Casp- ar Weinberger, er einnig úr þeirri átt! Annars segja menn, að Alexander Haig hafi vitað meira um utanríkismál en nokkur annar í stjórninni og það hefði verið gott og blessað, ef Haig hefði látið það vera að minna hina sífellt á það. Reagan vissi takmarkað um utanríkismál, þegar hann tók við embætti, nema að þau sneru að útlöndum og væru heldur hvimleið! Þetta fullyrð- ir James Reston í stuttum pistli í New York Times og bætir við: Eins var með Harry Truman. Hann setti líka besta manninn í embætti utanrík- isráðherra, James Byrnes, en Jimmy hélt eins og Haig, að hann væri klárari en forsetinn — og þegar hann tók að láta það uppi, var hann látinn fjúka! En hvað svo sem menn segja um Alexander Haig, þá verður afsögn hans alfarið að skrifast á reikning Reagans. Haig er hershöfðingi og Reagan lofaði honum frjálsum höndum í upphafi, en umkringdi hann svo af félögum sínum frá Kali- forníu í Pentagon og örygg- ismálaskrifstofunni og batt um leið hendur hans. Enginn hershöfðingi sættir sig við slíkt. Hvað sem þessu öllu líður, þá hefur meginmálið enn ekki komist á dagskrá fjölmiðla. Hvað er að gerast í utanrík- ismálum Bandaríkjanna? Virtur sendiherra í Washing- ton lét svo um mælt, þegar hann frétti afsögn Haigs: „Eg hef verið hér í þrjú ár og mun nú kynnast fjórða manninum í embætti utanríkisráðherra Bandaríkj- anna á sama tíma: Vance, Muskie, Haig og nú Shultz. Er ekki eitthvað að?“^ Jakob F. Ásgeirsson Fjórir utanríkisráðherrar í Bandaríkjunum á þremur árum: Vance, Muskie, (Haig) og nú Shultz. Þú keyrir, Schultz — við Weinberger og Clark stýrum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.