Morgunblaðið - 11.07.1982, Page 6

Morgunblaðið - 11.07.1982, Page 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ1982 Verður Edward Kennedy næsti forsetaframbjóðandi demókrata? „Kjörtímabii Ronaid Reagans er ekki hálfnaö, en þrátt fyrir það er baráttan um útnefningu til forsetakjörs byrjuö innan Demókrataflokksins. Þar ber nú þrjá menn hæst, Edward Kennedy, öldunga- deildarþingmann, fyrir Massachusetts, Walter Mondale, fyrrum varaforseta, og John Glenn, fyrr- um geimfara, en nú öldungadeildarþingmann fyrir Ohio.“ KJÖRTÍMABIL Ronald Reagans Bandaríkjaforseta er nú brátt hálfnað og verður næst gengið til forsetakosninga í nóvember 1984. Þó að rúm tvö ár séu til stefnu er nokkurs kosningaskjálfta farið að gæta innan Demókrataflokksins. Bandaríkjamenn hafa ekki fremur en aðrir farið varhluta af þeirri kreppu, sem hrjáir allan heim, at- vinnuleysi hefur aukist, háir vextir eru fyrirtækjunum þungir í skauti og aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnar- innar hafa ekki orðið til að auka á vinsældir Reagans á forsetastóli. Af þessum sökum m.a. þykir demó- krötum sem gatan muni greið í næstu forsetakosningum. Nú þegar er vitað pm 12 menn, sem ætla að keppa eftir útnefningu Demókrata- flokksins sem forsetaframbjóðandi en sem stendur eru þó aðeins þrír þeirra taldir koma til greina. Það eru þeir Edward Kennedy öldunga- deildarþingmaður, Walter Mondale fyrrum varaforseti og John Glenn, fyrrverandi orrustuflugmaður, geimfari og núverandi öldunga- deildarþingmaður. í skoðanakönnunum kemur fram, að Edward Kennedy og Walt- er Mondale njóta mests fylgis með- al demókrata og yfirleitt hefur John Glenn lent í þriðja sætinu. Aðrir virðast hafa lítið fylgi, eru svokallaðir „þriggja-prósenta- rnenn", en í þeirra hópi eru þó ýms- ir kunnir menn, eins og t.d. Gary Hart öldungadeildarþingmaður frá Colorado, Alan Cranston öldunga- deildarþingmaður frá Kaliforníu, Robert Strauss, fyrrum formaður Demókrataflokksins, og Edward Koch, borgarstjóri New York- borgar. Utkoma tveggja þeirra fyrst- nefndu í skoðanakönnunum nú þykir mjög athyglisverð með tilliti til frammistöðu þeirra á árinu 1980. Kennedy barðist þá um út- nefninguna við Jimmy Carter, sem var óvinsæll forseti, og var spáð auðveldum sigri en það fór þó á annan veg. Hann beið hinn herfi- legasta ósigur og þannig var einnig með Mondale við hlið Carters gegn Ronald Reagan og George Bush. Inn úr kuldanum Eftir ófarirnar í forkosningun- um og kjör íhaldssömustu ríkis- stjórnar, sem lengi hefur setið í Bandaríkjunum, þótti mörgum sem pólitísk saga hins frjálslynda Kennedys væri öll og framtíðar- horfur Mondales voru ekki taldar miklu betri. Þrátt fyrir það hefur Kennedy tekist að láta kveða að sér á nýjan leik svo um munar og þessa dagana vinnur hann ötullega að því að tryggja endurkjör sitt sem öld- ungadeildarþingmaður fyrir Massachusetts. í síðustu fjórum kosningum þar hefur hann fengið yfir 65% atkvæða og ef hann vill eiga góða möguleika á útnefningu í forsetakjörið má hann ekki við því að fá miklu lakari kosningu nú. Kapphlaupið um málefnin Afstaða keppinautanna, Kenn- edys og Mondales, til þeirra mál- efna, sem þeir telja munu verða efst á baugi í forsetakosningunum 1984, hefur verið að skýrast að und- anförnu en í þessum efnum virðist Kennedy einnig hafa nokkurt for- skot og vera fyrri til. Kennedy getur sagt með sanni — og lætur raunar ekkert tækifæri ónotað til þess — að hann hafi einn þeirra öldungadeildarþingmanna, sem nú leita eftir endurkjöri, greitt atkvæði gegn allri efnahagsmála- stefnu Reagans forseta og hann lætur heldur ekki undir höfuð leggjast að benda á hallann á fjár- lögunum. „Hann kann að verða þrefalt meiri en áður hefur þekkst hjá nokkurri ríkisstjórn," segir Kennedy og gerir hér gjarna hlé á máli sínu til að auka áhrifin. „Demókrötum er jafnan borið á brýn að vera miklar eyðsluklær en nú tekur fyrst steininn úr.“ Utanríkismál og varnarmál hafa ekki verið fyrirferðarmikil í mál- flutningi Kennedys til þessa en nú nýlega tók hann skýra afstöðu til hugmyndarinnar um allsherjar- stöðvun á framleiðslu kjarnorku- vopna og hefur síðan eignað sér það mál alveg. Honum hefur tekist að mynda nokkuð breiða samfylk- ingu þessu máli til framdráttar jafnt meðal pólitískra andstæðinga sinna sem samherja og lagði t.d. nú fyrir skemmstu fram um það álykt- un í öldungadeildinni ásamt Mark Eftir ófarirnar í forkosningunum 1980 var grunnt á því góda með Kennedy og Carter fyrst um sinn. Það jafnaðist þó og hér sést Kennedy ávarpa landsfund demókrata í New York það ár. Walter Mondale, fyrrum varaforseti. Hér er hann staddur í Þing- vallakirkju ásamt séra Eiríki J. Eiríkssyni fyrrv. þjóðgarðsverði, og var myndin tekin í heimsókn hans hér á landi í april 1979. Mondale er af norskum ættum og komu forfeður hans frá Mundal í Noregi. Hatfield, öldungadeildarþing- manni repúblikana frá Oregon. Mondale er einnig hlynntur gagnkvæmri stöðvun kjarnorku- vopnaframleiðslunnar og lýsti þeirri skoðun sinni fyrr en Kenn- edy en hefur samt sem áður ekki tekist að vekja jafn mikla athygli á þeim skoðunum sínum. Mondale er hins vegar enginn eftirbátur Kennedys í því að skamma repú- blikana fyrir aðgerðir þeirra í efnahagsmálum. Hann vill, að þingið falli frá tekjuskattslækkun- inni, sem ráðgerð er á þessu ári, að fyrirtækjum verði bannað að versla með fjárskuldbindingar, sem leiða til skattalækkunar, og hann vill miða skattvísitöluna við efna- hagsástandið og hallann á fjárlög- um. Hann hefur krafist 10 millj- arða dollara lækkunar á framlög- um til hermála og vill að komist verði að samkomulagi við seðla- bankann um að draga úr þeim hömlum, sem eru á peningamagni í umferð. Sammála um flest — en ekki allt Mondale og Kennedy eru í aðal- atriðum sammála en greinir þó á í nokkrum atriðum. Kennedy vill t.d. falla alveg frá skattvísitölunni og fresta en ekki afnema tekjuskatts- lækkunina. Hann er líka hlynntur frjálsum viðskiptum fyrirtækja með fjárskuldbindingar en vill samt setja þeim strangari skorður. Það eru einkum tvö mál, sem Mondale leggur mikla áherslu á og hefur tekist að gera að sínum ef svo má segja. Annað þeirra er vísindi og tækniþróunin. Hann hvetur til að fjárframlög til grundvallar- rannsókna og tæknilegrar þróunar verði stóraukin og er harðorður í garð ríkisstjórnar Reagans fyrir samdrátt í þessum efnum. Hitt málið er „fjármögnun stjórnmál- anna“. „Það á að leiða í lög,“ segir hann, „að fólkið sjálft kosti þing- kosningarnar og að kjörseðlarnir, ekki lagafrumvörp, ráði framvindu stjórnmálanna í þessu landi." Þeir, sem starfa að skoðanakönn- unum, láta í ljós nokkra undrun á gengi Kennedys. „Það er mjög merkilegt, að hann skuli njóta fylg- is 50-54% demókrata þegar höfð er í huga útreiðin, sem hann fékk 1980,“ segir einn þeirra, Peter Hart að nafni. Hann og kollegar hans segja þó, að almenningur viti hver Kennedy er og hvaða skoðanir hann hefur. Fólk veit líka ýmislegt um Mondale en þó er því ekki jafn ljóst hvaða mann hann hefur að geyma eða fyrir hverju hann berst. Bíll meö fjölbreytilega möguleika. Nú fyrirliggj- andi meö stuttum fyrir- vara. Verð frá 126.500 — gengískr. 1/7 ’82. HONDA Á ÍSLANDI Suöurlandsbraut 20, sími 38772

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.