Morgunblaðið - 11.07.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.07.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ1982 71 Eigandi og yfirlæknir Freeport held- ur fyrirlestur DR. FRANK Herzlin, eigandi og yfiriæknir Freeport Hospital er nú staddur hér á landi og heldur á þriöjudagskvöld fyrirlestur í Krist- alssal Hótels Loftleiða og svarar fyrirspurnum á eftir. I fréttatilkynningu frá Free- portklúbbnum segir, að hundruð Islendinga, sem ánetjast hafi áfengi og öðrum vímugjöfum, hafi öðlast lífshamingju á ný eftir kerfi, sem dr. Herzlin hefur þróað. Framhalds- aðalfundur NÆSTKOMANDI mánudag, þann 12. júlí, munu leigjendasamtökin halda framhaldsaðalfund sinn. Á fundinum er ætlunin að ræða stöðu húsaleigumálanna í dag og reifa framtíðarstarf samtakanna. Einnig verða reikningar samtak- anna lagðir fram og kosin verður ný stjórn. Fundurinn verður hald- inn á Hótel Borg og hefst kl. 20.30. Sögulegt samkvæmi l*arís, 9. júlí. Al\ SAUDI-ARABÍSKUR prins, 26 ára að aldri, var rændur í íbúð sinni í París aðfaranótt fóstudags, en inn til hans réðust fimm byssubúnir menn og höfðu á brott með sér u.þ.b. 5 milljónir franka í reiðufé og skart- gripum, samkvæmt heimildum frá lögreglunni í dag. Lögreglan segir að prinsinn, Ibn Saud Abdul Karim, sem er bróð- ursonur Faisal hins látna konungs Saudi-Arabíu, hafi verið að skemmta sér með fimm vinum sínum i íbúð sem hann á, nálægt Champs Elysee, þegar atburður- inn gerðist. Bílstjóri prinsins særðist lítil- lega er hann reyndi að hindra ræningjana í að komast á brott með þýfið, en var sleginn í höfuðið fyrir vikið. Engin slys urðu önnur á mönnum. Byssumennirnir fimm hringdu dyrabjöllu prinsins og voru ein- faldlega leiddir til stofu af grun- lausum þjóni. Þeir ógnuðu síðan prinsinum og gestum hans, rændu af þeim lausafé og skartgripum og flúðu síðan af vettvangi. Ekkert hefur spurst til þeirra síðan. GLÆSIVAGN Á GÚÐU VERÐI Amsterdammmm! AMSTERDAM er stadurinn Amsterdam er vingjarnleg borg iöandi af mannlífi — Amsterdam hefir eitthvað fyrir alla og þaóan liggja leiöir til allra átta. Allskonar feröamöguleikar á öllum verðum Flug og bíll — Verð frá 2.872,- Flug og gisting — Verð frá 3.970,- FEFH3A. MIÐSTODIIM AÐALSTRÆTI 9 S. 28133

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.