Morgunblaðið - 11.07.1982, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ1982
77
Paulo Rossi fagnar fyrsta marki sínu af þremur i leik ítala gegn Brasilíumönnum.
Rossi, Rummenigge
og Ríkisútvarpið
„Nokkrir félagar mínir gerðu
sér för til Amsterdam í vikunni
sem var, ekki til að njóta lysti-
semda þessa nafnfræga svallbælis
Evrópu og ekki heldur í viðskipta-
erindum; þeir fóru ásamt stórum
fjölda annarra íslendinga í leigu-
flugvélum til þess að sjá það sem
þeim og okkur öllum var meinað
að sjá hér heima; þeir skráðu sig
inn á hótelherbergi á víð og dreif
um borgina þar sem þeir gátu
horft á beinar útsendingar frá
Spáni í litasjónvörpum.
Æsilegri meistarakeppni í
knattspyrnu er að ljúka, sælir eru
/'þeir sem fengu að njóta hennar
uppi á áhorfendapöllum og sælir
eru þeir sem fengu að líta beinar
útsendingar frá leikvöllunum, því
það er séreðli knattspyrnulistar-
Karl-Heinz Rumenigge
Baldur Hermannsson
lærdóm af og taka af honum mið í
framtíðinni.
Því miður er saga Ríkisútvarps-
ins frá fyrsta degi til þessarar
stundar ein allsherjar kennslu-
stund í því náttúrulögmáli, að
ríkisvaldið er og verður vanhæft
til þess að selja fólki hlutlausa og
vandaða þjónustu af því tæi sem
er aðal útvarpsstöðva.
Hvað knattspyrnuna áhrærir,
þessa perlu íþróttanna, þá sér það
víst hver einasti maður sem nenn-
ir að hugsa, að það er ekki í verka-
hring ríkisvaldsins að úrskurða
hvenær leyfa skuli íslendingum að
horfa á fótboltaleiki og hvenær
þeim sé hollast að gera eitthvað
annað, til dæmis hlusta á hjal
framsóknarfréttamanns við fram-
sóknarráðherra í hljóðvarpinu.
En þótt það væri slæmt að
missa af beinu útsendingunum, þá
er það þyngra mál og skaðvæn-
legra hve ýmiskonar umfjöllun,
fréttir og fréttaskýringar í út-
varpi og sjónvarpi eru oft útúr-
borulegar og ganga þvert á lýð-
ræðisstefnu Vesturlanda, og þetta
er meinsemd sem þjóðin verður að
ráða bót á og það frekar fyrr en
seinna.
Um afþreyingarefni i hljóðvarpi og
sjónvarpi er það að segja, að ekki er
unnt að finna eina einustu röksemd
því til stuðnings að ríkisvaldið sé
réttur aðili til að fást um slika hluti,
enda mætti segja mér að sá
skemmtistaður eða diskótek ætti
ekki langra lífdaga auðið sem
hann Ragnar Arnalds og félagar
hefðu umsýslu með.
Minnumst þess, að þegar þjóð
okkar reif sig upp úr ládeyðunni
og sleit sig úr klóm Dana, þá var
það með ritað mál að vopni — yf-
irvöldin höfðu ekki einokunarvald
yfir þeirra tíma fjölmiðlum og
þessvegna gátu hugdjarfir ein-
staklingar barist fyrir rétti þjóð-
arinnar, útbreytt upplýsingar og
þekkingu og eflt þannig samstöð-
una heima fyrir.
Á sama hátt þarfnast ísland
þess í dag, að Alþingi aflétti snar-
lega hinni smánarlegu einokun á
hljóðvarpi og sjónvarpi, því að
engin vopn eru jafn öflug til fram-
fara og einmitt frjáls fjölmiðlun.
Baldur Hermannsson,
dagskrárgerðarmaður
á Sjónvarpi.“
Þakkarávarp
:: Hugheilar þakkir sendi ég öllum þeim sem glöddu mig á
einn eda annan hátt með auösýndum kærleika og vin-
semd á 75 ára afmæli mínu 3. júní 1982.
Fyrst alls þakka ég af hræröum hug bömum mínum og
tengdabörnum, svo og barnabörnum og vinum þeirra
' stórgjafir og alla ástúð.
Öllum öðrum ættingjum og vinum mínum sendi ég bestu
þakkir mínar fyrir heillaóskir í bundnu og óbundnu
máli hér syðra og að norðan og austan. Þetta var mér
mikil gleði, einnig öll blómin og aðrar gjafir.
Síðast en ekki síst þakka ég skólastjóra og Kennarafé- "
lagi Flataskóla höfðinglegar blómasendingar og þau orð
með, sem glöddu mig mjög.
Öðrum félagasamtökum í Garðabæ þakka ég einnig góð-
ar óskir.
Mér kom þessi vísa í hug síðla dags á afmælisdaginn:
Langar mig í Ijóði að tjá
lífs í aftanskini.
Það er víst að enginn á
elskulegri vini.
Með þakkarkveðjum og virðingu,
Leifur Eiríksson.
ALLTAF Á ÞRIÐJTJDÖGUM
ALLT UM URSLITA-
LEIKINN í
HM-KEPPNINNI Á
SPÁNI
LANDSLEIKURINN
GEGN FINNUM
Itarlegar og spennandi íþróttafréttir
innar að óvissan um úrslit eru
helmingur nautnarinnar.
Hversvegna fengum við hinir
sem heima sátum ekki að njóta
þessarar keppni? Hverskonar
fólska er það eiginlega að slökkva
á Skyggni þegar öll nauðsynleg
tæki eru til reiðu og hvorki fjár-
útlát né fyrirhöfn eru umtalsverð?
En það er hollur siður í fá-
mennu landi að erfa ekki yfirsjón-
ir þótt herfilegar séu, betra er að
leggja heilann í bleyti og leita
nýrra úrræða, og þessvegna skul-
um við ekki elta uppi syndaseli í
þessu dapurlega máli, en óhjá-
kvæmilegt er þó að draga þarfan
SIGGA V/ÖGA fi ÍILVZ9AU
LM
/EM \ K4LÍ.MAMSI WVd XVl
7A9ÓANÖA Á Fflfó \jON(M,
mmí vmr á mót/ á ham.
, W LÁTA Ðtl'b OG \\hNNI <o£
01