Morgunblaðið - 16.07.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ1982
5
72036-72032 72046
Ríkisstjórn íslands:
Leggur fram
800.000 krón-
ur til hjálp-
arstarfs
í Líbanon
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftir-
farandi frétt frá ríkisstjórn fslands:
Ríkisstjórn íslands hefur sam-
þykkt að leggja fram 800.000 krónur
til hjálparstarfs í Líbanon. Mun
Rauða krossi Islands og Palestínu-
hjálp Sameinuöu þjóðanna falið að
sjá um að fé þetta komi að sem mest-
um notum.
Innrás ísraelsmanna í Líbanon
hefur valdið dauða þúsunda
óbreyttra Líbana og Palestínu-
manna, fjöldi manna hefur særst og
a.m.k. hálf milljón manns hefur
misst heimili sín.
ísrael hefur virt að vettugi álykt-
anir Öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna frá 5. og 6. júní, þar sem skorað
er á aðila að hætta strax átökum og
þess krafist að Israel fari þegar í
stað á brott með heri sína úr landinu.
Sama máli gildir um nær einróma
ályktun skyndiallsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna um Palestínumálið
frá 26. júní, þar sem sömu kröfur eru
settar fram.
Styrjöldin í Líbanon hefur enn á
ný sýnt, að valdbeiting felur hvorki í
sér lausn á framtíðarvandamálum
Palestínumanna, né tryggir hún rétt
ísraelsmanna til að fá að lifa í friði
innan öruggra og viðurkenndra
landamæra. Samningar eru eina leið-
in til að koma á varanlegum friði í
þessum stríðshrjáða heimshluta.
Ríkisstjórn íslands harmar innrás
ísraelsmanna í Líbanon og ítrekar þá
grundvallarskoðun íslendinga að
deilur eigi að leysa með samningum
en ekki vopnavaldi.
Mótmæla bygg-
ingu Seðla-
bankahúss
NÚ ER f undirbúningi bréf sem
senda á borgarstjóranum í Reykjavík,
þar sem mótmælt er byggingu Seðla-
bankahúss á norðanverðum Arnar-
hóli.
í samtali við Morgunblaðið kvaðst
Þorsteinn Ö. Stephensen, einn að-
standa bréfsins ekki vilja tjá sig um
innihald þess að svo stöddu, en sagði
þó að verið væri að safna undir-
skriftum. Sagði hann að leitað yrði
til ákveðinna manna með ósk um
undirritun. Bjóst hann við að bréfið
yrði sent borgarstjóra einhvern
næstu daga.
■ JAKKAR OG BOLIR í GEYSIGÓÐU ÚRVALI
(ijlji KARNABÆR
'mJ* ■ og umboðsmenn um land allt
Cesar — Akureyri, Eplið — ísafirði, Eyjabær — Vestmannaeyjum, Fataval —■ Keflavík, Álfhóll — Siglufirði,
Óðinn — Akranesi, Ram — Húsavík, Bakhúsiö — Hafnarfirði, Austurbær — Reyöarfirði, Kaupfél, Rangæinga —
Hvolsvelli, Sparta — Sauöárkróki, Skógar — Egilsstööum, isbjörninn — Borgarnesi, Lea — Ólafsvík, Lindin —
Selfossi, Paloma — Vopnafiröi, Patróna — Patreksfirði, Báran — Grindavík, Bjóðsbær — Seyðisfirði, Þórsham-
ar — Stykkishólmi, Inga — Hellissandi, Hornabær — Höfn Hornafiröi.
Geithellnahreppur:
Hreppsnefndarkosn-
ingarnar kærðar
— Verður hugsanlega talið að nýju, seg-
ir hreppstjórinn, Guðmundur Björnsson
FJÓRIR aðilar í Geithellnahreppi,
Suður-Múlasýslu, hafa nú kært
hreppsnefndarkosningarnar þann
26. júní síðastliðinn til hreppsnefnd-
ar. Telja þeir að kjörstað hafi verið
lokað of snemma, að kjörstjórn hafi
á ólögmætan hátt meinað þeim að
vera viðstaddir talningu atkvæða og
að ekki hafi verið fenginn „óvið-
komandi áhorfandi" til að draga út
nöfn þeirra, sem jafnmörg atkvæði
hlutu.
Morgunblaðið hafði vegna þessa
samband við hreppsstjóra Geit-
hellnahrepps, Guðmund Björns-
son. Sagði hann, að kjörstaður
hefði verið opinn í 6 klukkustundir
og 43 mínútur og hefði honum þá
verið lokað þar sem enginn kjós-
andi hefði komið síðustu 38 mínút-
Þorsteinn Ö.
Stephensen og fleiri:
urnar og kjörstjórn hefði verið á
einu máli um að loka skyldi. Hefði
það þá verið ljóst að aðeins hefði
hugsanlega verið von á einum
kjósanda til viðbótar. Væri slíkt
samkvæmt kosningalögum. A
kjörskrá voru 80 manns.
Guðmundur sagði, að þá hefði
kjörstað verið lokað, gengið frá
utankjörstaðaatkvæðum í kjör-
kassa og ýmsu fleiru og talning
atkvæða hefði síðan hafizt. Vegna
óláta fyrir utan, svo sem barsmíða
og ökuláta hefði kjörstjórn ekki
talið sér fært að hleypa mönnum
inn meðan á talningu stóð. Vegna
þessa væru menn nú að kæra svo
og vegna þess að dyravörður hefði
verið fenginn til að draga um sæti
þeirra aðila, sem jafnmörg at-
kvæði hlutu. Teldu kærendur
hann ekki „óviðkomandi áhorf-
anda“ eins og segði í kosningalög-
unum, en vegna þessara tilfella
bæri að geta þess, að ekki hefði
verið um hlutbundna kosningu að
ræða. Kjörstjórn væri nú að ganga
frá umsögn sinni til hreppsnefnd-
ar, sem hefði viku frest til að af-
greiða málið. Ekki væri ljóst hvað
gert yrði, en gera mætti ráð fyrir
upptalningu, öll kjörgögn væru
varðveitt innsigluð eins og lög
gerðu ráð fyrir.
Óskar rannsókn-
ar á seladrápinu
STJÓRN Sambands dýraverndun-
arfélaga íslands hefur í bréfi til
Þórðar Björnssonar ríkisaksóknara,
kært „opinber afskipti sölusamtaka
Fiskiðnaðarins og hringormanefndar
(formaður er Björn Dagbjartsson) af
selveiðum sem hún telur brot á 116.
gr. alm. hegningarlaga, svo og 1. gr.
laga 47/1971 um náttúruvernd“.
í bréfi Sambands dýraverndun-
arfélaganna er bent á að sam-
kvæmt lögum um Stjórnarráð Is-
lands sé það landbúnaðarráðu-
neytið, er fari „með þau mál er
varða veiði í ám og vötnum, svo og
önnur veiðimál er eigi ber undir
annað ráðuneyti". Því hljóti að
teljast óeðlilegt og ólöglegt að
einkaaðilar „hvetji til selveiða" án
samráðs við opinbera aðila, og er
bent á ákvæði hegningarlaga er
segi, að hver sá er taki sér opin-
bert vald er hann ekki hefur skuli
sæta ábyrgð, sektum eða fangelsi.
Er í bréfinu farið fram á að
embætti ríkissaksóknara rannsaki
hvort lög hafi verið brotin í „sela-
drápsmálinu" eða ekki, og verði
rannsókn hraðað sem mest.
tgp| Sumarfötin
komin