Morgunblaðið - 16.07.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ1982
23
Predikar í
Aðventkirkjunni
Sr. Júlíus Guðmundsson er
staddur hér á landi í stuttri heim-
sókn. Hann var fyrsti skólastjóri
Hlíðardalsskóla í Ölfusi og stýrði
honum í mörg ár. Fjölda ára veitti
hann söfnuði Sjöunda dags Að-
ventista á Islandi forstöðu. Nokk-
ur síðastliðin ár hefur Júlíus verið
í Danmörku og starfað þar að
skólamálum og prestsstörfum á
vegum aðventista. Hann predikar
við guðsþjónustu í Aðventkirkj-
unni Ingólfsstræti 19, nk. laugar-
dag 17. júlí, kl. 11:00.
— Fréttatilkynning.
Júlíus Guðmundsson
Skoðanakönnun meðal sveitarstjórna:
Hvort á að kjósa í
júní eða
Samband íslenskra sveitarfélaga
gengst nú fyrir skoðanakönnun með-
al sveitarstjórna á landinu, þar sem
spurt er hvort þær telji heppilegra að
sveitarstjórnakosningar fari fram i
júlí eða október. Skoðanakönnunin
er unnin að ósk nefndar sem vinnur
að endurskoðun sveitarstjórnalaga.
Nefndin er þeirrar skoðunar,
segir í nýútkomnu tölublaði Sveit-
arstjórnamála, að æskilegt sé að
kosið verði til allra sveitarstjórna
á landinu á sama degi, en nú eru
kjördagar tveir eins og kunnugt
er. Nefndin hefur komist að þeirri
niðurstöðu, að tveir dagar séu öðr-
um heppilegri; annar laugardagur
í júní, eða annar laugardagur í
októbermánuði. — Það er sá val-
kostur, sem sveitarstjórnir eru nú
beðnar að segja álit sitt á, og þess
hefur verið óskað, að svör hafi
Leiðrétting
á forystugrein
í forystugrein blaðsins í gær féll
niður lína. Þessi málsgrein átti að
vera þannig:
„Meginkjarninn í hugmyndum
sjávarútvegsráðherra er, að hall-
anum af togaraútgerð skuli velt
yfir á ríkissjóð. Fiskvinnslufyrir-
tæki hafa lengi krafist endur-
greiðslu á uppsöfnuðum söluskatti
úr ríkissjóði. Nú vill sjávarút-
vegsráðherra að þannig verði
komið til móts við þessa kröfu, að
fiskvinnslan verði látin greiða
togaraútgerinni 6% hærra verð
fyrir fisk en áður, en síðan komi
til niðurgreiðslna úr ríkissjóði
undir því yfirskyni að það sé verið
að greiða fiskvinnslufyrirtækjum
uppsafnaðan söluskatt! Er unnt að
ímynda sér framsóknarlegri fram-
búðarlausn á vanda íslenskrar
togaraútgerðar?
Leiðrétting
TVÆR villur voru í frétt um
hæstu skattgreiðendur í Bolung-
arvík. Flosi Jakobsson, sem var 4.
efsti skattgreiðandinn þar vestra
var sagður stýrimaður á Guð-
bjarti, en þar átti að standa Guð-
björgu. Þá sagði einnig að 6. hæsti
skattgreiðandinn væri Guðmund-
ur Einarsson yfirverkstjóri. Hið
rétta er að það er nafni hans Guð-
mundur Einarsson sjómaður á
Guðbjörgu, sem er 6. hæsti
skattgreiðandinn í Bolungarvík.
Hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar á þessu ranghermi.
október?
borist fyrir 15. ágúst næstkom-
andi.
Morgunblaðið hafði samband
við nokkra sveitarstjórnarmenn
og leitaði álits á sameiningu kjör-
daganna og þá jafnframt hvorn
valkostinn menn teldu heppilegri.
Jónas Ólafsson, sveitarstjóri í
Þingeyrarhreppi, Vestur-Isafj arð-
arsýslu, sagði að það væri orðið
tímabært að sameinast um einn
kjördag enda væru breyttir tímar
og auðveldara fyrir fólk að komast
milli staða nú en áður var. Jón
sagðist fremur hallast að því, að
kjósa ætti í júnímánuði enda væri
mikil hætta fyrir þá Vestfirðinga,
að snjór og ófærð væri komin í
októbermánuði.
Þorvaldur Aðalsteinsson, odd-
viti hreppsnefndar í Reyðar-
fjarðarhreppi, Suður-Múlasýslu,
sagði að þessi hugmynd hafi verið
rædd í sveitarstjórninni og fengið
ágætar undirtektir. Honum fannst
eðlilegt og tímabært að sameinast
um einn kjördag. „Upphaflega
þegar þetta var rætt fannst mér
október ekki vitlaus tími, en með
hliðsjón af sveitahreppunum þar
sem sláturtíð fer fram á haustin
og vegna veðurfars í hreppum
norðanlands, finnst mér nú eðli-
legra að kjördagur verði valinn í
júní,“ sagði Þorvaldur.
Ólafur Helgason, sveitarstjórn-
armaður í Holtahreppi, Rangár-
vallasýslu, sagði að sér fyndist
eðlilegra að kosningar færu fram
á einum og sama degi. Ólafur
sagöi að honum þætti fyrri dagur-
inn, þ.e. í júní, ákjósanlegri val-
kostur enda væri sá tími mitt
milli vorverka og heyskapar, en
hinn kosturinn í annasamri siát-
urtíð.
Arnaldur Bjarnason, sveitar-
stjóri í Skútustaðahreppi, Suður-
Þingeyjarsýslu, sagði að þetta
málefni hefði verið tekið til um-
ræðu hjá fyrrverandi sveitar-
stjórn í lok síðasta kjörtímabils.
Þar hefðu menn verið sammála
um, að tímabært væri að samein-
ast um einn kjördag, og heppi-
legast fyrir þá væri að hafa kjör-
daginn um haustið. „Það er óeðli-
legt að sveitarstjórnarskipti séu á
miðju sumri, því fráfarandi sveit-
arstjórn gerir fjárhagsáætlun,
sem hún hefur takmarkaða mögu-
leika á að framfylgja sjálf. Sveit-
arstjórnaskipti fara nú fram þeg-
ar aðal framkvæmdatímabilið er
hafið, þ.e. yfir sumartímann.
Okkur finnst eðlilegt að hver
stjórn fái að axla þá ábyrgð, að
framfylgja sinni áætlun fram á
haustið", sagði Arnaldur.
Regngallarnir eftirspuröu nýkomnir, kr. 300,-
CoucfX&Z karlmannafötin kr. 998 og 1098.
cofinca karlmannafötin einhneppt og tvíhneppt.
Terylinbuxur, fjölbreytt úrval.
Gallabuxur, úlpur, margar geröir. Skyrtur, skyrtubolir
og m. fl. á frábæru veröi.
Andres, Skólavöröustíg 22.
„Heimsmynd-
ir“ Jóns frá
Pálmholti eru
komnar út
KOMIN er úl Ijóðabókin „Heims-
myndir" eftir Jón frá I’álmholti. llt-
gefandi er Letur, bókaútgáfa. Bókin er
62 hlaðsiður og fjölrituð.
Bókin skiptist í þrjá kafla. Hinn
fyrsti heitir „Nóttin brennir stjörn-
um“ og eru í honum 19 ljóð. Annar
kaflinn ber heitið „Slitur úr gamalli
bók“ og eru í þeim kafla 15 ljóð.
Síðari kaflinn heitir „Fuglarnir
fljúga heim“ og eru þar einnig 15
ljóð.
Forsíða Ijóðabókarinnar.
LEIÐRÉTTING
Á RITDÓMI
I ritdómi um bók dr. Hannesar
Jónssonar, sendiherra, Friends in
('onflict, sem birtist hér í blaðinu 14.
júlí voru tvær prentvillur, sem
ástæða er til að leiðrétta.
í fyrsta lagi segir, að á blaða-
mannafundi 16. janúar 1976 hafi
Geir Hallgrímsson, forsætisráðh-
erra, lýst því yfir, að 19. eða 20.
„febrúar" myndi ríkisstjórn hans
væntanlega taka ákvörðun um slit á
stjórnmálasambandi við Breta. I
stað „febrúar" á að standa „janúar".
í öðru lagi segir: Vegna þeirra um-
ræðna sem staðið hafa um nýjan
samning um efnahagssamvinnu við
„ísland“ má í lokin ... I stað orðsins
„ísland“ á að standa „Sovétríkin“.
HversegiraÓ þú getirekki
venó töfendi í úlpu?
SvoíXg peáw\
Skólavöróustig 3 Reykjavík Sími;25240