Morgunblaðið - 16.07.1982, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ1982
Enskir punktar:
Shilton frá Forest?
ALLT bendir tii þess að enski lands-
liðsmarkvörðurinn Peter Shilton fari
frá Nottingham Forest til South-
ampton, fyrir 250.000 sterlingspund.
Hafa félögin þegar samið um verðið,
og hefur Shilton rætt við Lawry
McMenemy, stjóra Southampton.
Brian ('lough hjá Forest vill þó
ekki missa Shilton, og hefur boðið
honum nýjan þriggja ára samning.
Shilton á eitt ár eftir af samningi
sínum við Forest, og eftir þann tíma
getur hann samið sjálfur við félög,
og hirt allt söluféð, þannig að
('lough vill heldur leyfa honum að
fara núna, en að þurfa að sjá á eftir
bæði leikmanninum og aurunum á
næsta ári.
Einnig hefur komið til tals, að
Shilton, sem er 32 ára, fari til
Manchester United. Vitað er, að
Clough hefur áhuga á að ná aftur í
Gary Birtles frá United, og er
reiðubúinn að láta Shilton í stað-
inn.
United er reiðubúið að láta
Birtles fara, og vantar þá einmitt
fé núna, þar sem þeir hafa áhuga á
Alan Brazil frá Ipswich. Brazil er
einn þeirra hjá félaginu, sem voru
ekki yfir sig hrifnir er Bobby
Ferguson, tók við af Bobby Rob-
son, sem framkvæmdastjóri Ips-
wich og vildi örugglega spila með
Arnold Muhren hjá United, ef
hann fengi tækifæri til þess.
Wolves, sem er nær gjaldþrota,
ætlar nú að selja Andy Gray og
Wayne Clarke til að laga fjárhag-
inn. Everton hefur áhuga á Gray,
og er tilbúið að skipta á honum og
• Peter Shilton, fer hann frá Forest?
Peter Eastoe og borga einnig í
milli.
Gamla Leeds-kempan, Eddie
Gray, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri hjá félaginu, en Al-
an Clarke var rekinn fyrir stuttu.
Eitthvað er óvíst með framtíð
Trevor Francis hjá Man. City.
Mun hann hafa hringt í John Bond
á dögunum og heimtað sölu ef ekki
yrðu keyptir nýir menn til að
styrkja liðið. Francis er orðinn 28
ára og vill vinna til verðlauna áð-
ur en ferlinum lýkur.
Þróttur N sigraði
EINN leikur fór fram í 2. deild í
gærkvöldi. Próttur Neskaupstað
sigraði Einherja 1—0, í miklum bar-
áttuleik. I’að var Hörður Rafnsson
sem skoraði sigurmark 1‘róttar N úr
vítaspyrnu á 29. mínútu leiksins.
Kinherjamenn áttu gullið tækifæri á
að jafna leikinn á síðustu mínútunni
er Páll Björnsson skallaði rétt fram-
hjá markinu úr opnu færi.
Leikur liðanna var nokkuð harður
ailan leikinn. Framan af átti
Þróttur meira í leiknum en upp úr
miðjum fyrri hálfleik var jafnræði
með liðunum. Bestu menn Þróttar
í leiknum voru tveir ungir og efni-
legir leikmenn, þeir Eysteinn
Kristinsson og Kristján Krist-
jánsson. Hjá Einherja var Ólafur
Jóhannesson bestur og stjórnaði
hann vörn Einherja af festu og
öryggi.
Jóhann/ÞR.
Staðan í
1. deild
STAÐAN í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu er nú þessi:
Valur — ÍA 3- -1
Víkingur — ÍBK 3- -1
Víkingur 10 5 4 1 17- -11 14
Valur 11 5 2 4 11- -11 12
KK 10 2 7 1 7- -6 11
ÍBV 9 5 1 3 12- -9 11
UBK 10 4 2 4 13- -14 10
Fram 9 3 3 3 11- -9 9
ÍA 9 3 3 3 11- -13 9
ÍBK 10 3 3 4 7- -11 9
KA 10 2 4 4 8- -11 H
ÍBÍ 10 2 3 5 13- -15 7
ÞR
14 lið keppa í 6. flokki
ÞAÐ verður mikið um að vera á
Smárahvammsvelli í Kópavogi á
laugardaginn. Haldið verður mið-
sumarsmót í mini-knattspyrnu 6.
flokks.
14. lið eru skráð til leiks (140
strákar) og verður leikið í þreraur
flokkum, A, B og C. í hverjum flokki
verður keppt um farandbikar og
leikmenn efsta liðs í hverjum flokki
fá verðlaunapeninga. Verðlaunin
verða afhent að loknu móti í hófi
sem haldið verður í Félagsheimili
Kópavogs. Allir leikmenn fá viður-
kenningarskjöl, gos og súkkulaði í
hófinu.
Mótið hefst kl. 9.00 á laugardag
og er stefnt að, að þvi verði lokið kl.
16.30.
Víkingar lögðu ÍBK 3-1
VÍKINGAR sigruðu lið ÍBK 3—1 á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi er
liðin mættust í 1. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu. Halda þeir enn
efsta sæti sínu í deildinni. Lið Vík-
ings fór vel af stað í gærkvöldi.
Heilladísirnar voru þeim hliðhollar
því að strax á þriðju mínútu leiksins
hafði liðið náð forystu 1—0, með
heppnismarki. Stefán Halldórsson
tók hornspyrnu. Virtist mikill snún-
ingur vera á boltanum í fyrirgjöfinni.
Mikil þröng var inni í markteignum
þar sem boltinn hrökk af Ingiber
Óskarssyni og í markið. Vikingum
tókst að bæta öðru marki við í fyrri
hálfleiknum. Á 34. mínútu hálfleiks-
ins náði Víkingur góðri sókn, léku
laglega inn í markteig ÍBK. Þor-
steinn Bjarnason reyndi að bjarga
með stuttu úthlaupi en Heimir
Karlsson varð fyrri til að ná boltan-
um nikkaði hann laglega út til
Gunnars Gunnarsson sem skoraði
mjög fallega með viðstöðulausu
Töstu skoti. Var vel að þessu marki
staðið. Staðan í hálfleik var 2—0.
Það brá oft fyrir ágætum leikköfl-
um hjá liðunum í fyrri hálfleikn-
um. Lið Víkings lék þá undan
strekkings vindi sem setti sitt
mark á leikinn. Víkingar sóttu
öllu meira í hálfleiknum, en ekki
áttu leikmenn liðsins mörg mark-
tækifæri. Besta tækifæri ÍBK í
fyrri hálfleiknum kom á 43. mín-
útu en þá bjargaði Ögmundur vel
með því að slá boltann í horn af
tánum á Ragnari Margeirssyni
sem var nálægt því að setja bolt-
ann í netið af stuttu færi.
Leikmenn ÍBK komu nokkuð
ákveðnir til leiks í upphafi síðari
hálfleiksins. Gerðu strax harða
hríð að marki Víkings, og litlu
munaði á 46. mínutu er góður
skalli Magnúsar Garðarssonar
sleikti þverslána. í síðari hálf-
leiknum höfðu Keflvíkingar vind-
inn með sér og ætluðu sér greini-
lega að færa sér hann í nyt. En
Víkingar vörðust vel. Þeim tókst
að ná góðum samleik á móti vind-
inum oft á tíðum. Og þriðja mark
Víkings kom einmitt eftir slíka
sókn. Sá sem átti stærstan þátt í
sókninni var bráðefnilegur og
frískur leikmaður Aðalsteinn
Aðalsteinsson. Hann átti góða
sendingu fyrir markið úr frekar
þröngu færi á Heimi sem þakkaði
fyrir sig með því að skora af
stuttu færi. Þetta mark virtist
draga mesta máttinn úr leik-
mönnum ÍBK um tíma, eða þar til
Ragnar Margeirsson skoraði eina
mark liðsins á 58. mínútu. Þor-
steinn Bjarnason átti langt út-
spark frá marki inn á miðjan
vallarhelming Víkings. Þar náði
Ragnar boltanum braust af harð-
fylgi í gegn og skoraði mjög fal-
legt mark.
Nú færðist mikið líf í leikmenn
IBK og börðust þeir mjög vel það
sem eftir var leiksins. Um tíma í
síðari hálfleiknum presssuðu þeir
stíft á mark Víkings en allt kom
fyrir ekki. Vörn Víkings var sterk
og gaf ekkert eftir. Nokkur harka
var í leiknum er líða tók á leikinn
og fengu þrír leikmenn gul spjöld.
Lið Víkings náði alloft vel sam-
an í leiknum, og sýndi þá góðan
samleik. Varnarleikur liðsins var
góður og miðjumennirnir unnu
vel. Bestu menn liðsins voru Helgi
Helgason, Aðalsteinn Aðalsteins-
son og Heimir Karlsson. Stefán
Liö Víkings:
Ogmundur Kristinsson
Magnús Þorvaldsson
Stefán Halldórsson
Jóhannes Báröarson
Ómar Torfason
Helgi Helgason
Gunnar Gunnarsson
Aöalsteinn Aöalsteinsson
Heimir Karlsson
Sverrir Herbertsson
Ragnar Gíslason
Liö ÍBK:
Þorsteinn Bjarnason
Gisli Eyjólfsson
Kristinn Jóhannsson
Rúnar Georgsson
Ingiber Óskarsson
Siguröur Björgvinsson
Magnús Garöarsson
Ragnar Margeirsson
Ólafur Júlíusson
Ólafur Þór Magnússon
Einar Ólafsson
Halldórsson kom vel frá varnar-
leiknum svo og Ragnar Gíslason.
Ögmundur var öruggur í markinu
og greip oft vel inn í leikinn.
Lið IBK getur meira en það
sýndi í gærkvöldi. Oft á tíðum brá
fyrir góðum sóknarleik hjá liðinu
en svo datt broddurinn alveg niður
langtímum saman. Liðið var
óheppið að fá á sig mark svona
snemma í leiknum og virtist það
hafa slæm áhrif á leikmenn. Bestu
menn í liði ÍBK voru Ragnar
Margeirsson, Ólafur Júlíusson og
Gísli Eyjólfsson.
íslandsmótið 1. deild Laugar-
dalsvöllur.
Víkingur—Keflavík 3----1
(2---0)
MÖRK VÍKINGS: Gunnar Gunn-
arsson á 34. mínútu og Heimir
Karlsson á 50. mínútu.
MÖRK ÍBK: Ingiber Óskarsson á
3. mínútu sjálfsmark, Ragnar
Margeirsson á 57. mínútu.
DÓMARI var Magnús Pétursson.
GUL SPJÖLD: Jóhannes Bárðar-
son Víking, Rúnar Georgsson ÍBK.
ÁHORFENDUR voru 413.
- ÞR.
Valur:
Brynjar Guömundsson 6
Úlfar Hróarsson 7
Grímur Sæmundsen 5
Magni Pétursson 5
Dýri Guömundsson 6
Þorgrímur Þráinsson 6
Ingi Björn Albertsson 5
Hilmar Sighvatsson 5
Njáll Eiðsson 5
Guömundur Þorbjörnsson 6
Þorsteinn Sigurðsson 5
ÍA:
Davíö Kristjánsson 5
Guöjón Þóröarson 4
Björn Björnsson 5
Siguröur Lárusson 6
Jón Gunnlaugsson 5
Jón Áskelsson 5
Kristján Olgeirsson 6
Sveinbjörn Hákonarson 5
Júlíus P. Ingólfsson 5
Guöbjörn Tryggvason 4
Árni Sveinsson $
Sigþór Ómarsson (vm) 5
~N
MYNDAVELAR
^ jV
LANDSINS MESTA b
URWAL <? 4? /// # £
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR ffUÍty
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
LAUGAVEG1178 REYKJAVÍK SÍMI85811