Morgunblaðið - 16.07.1982, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1982
31
«
— segir Guðni Halldórsson frkvstj. FRÍ
um undirbúninginn fyrir Reykjavíkurleikana
Guðni Halldórsson
Búist við mjög spennandi
keppni milli þjóðanna
• Grete Waitz í keppni fyrir skömmu, þar sem hún var aóeins hársbreidd
frá heimsmetinu i 5 km hlaupi.
2,10 þannig að þar og í þrístökki
ættu velskir að vinna tvöfalt.
Kastgreinarnar ættu íslend-
ingar að vinna, nema sleggjukast-
ið, þar sem Shaun Pickering, son-
ur hins fræga sjónvarpsmanns
Breta, hefur kastað 64 metra í ár.
Kringlukastið og kúluvarpið ættu
Oskar Jakobsson og Vésteinn Haf-
steinsson að vinna tvöfalt, Erlend-
ur Valdimarsson og Óskar Jakobs-
son ættu að komast upp á milli
þeirra velsku í sleggjukasti, og
Einar Vilhjálmsson ætti að vinna
spjótkastið, og ef heppnin verður
með llnnari Garöarssyni, gæti hann
komist upp á milli þeirra velsku.
Loks má við því búast, að löndin
skipti boðhlaupunum á milli sín,
en fyrirfram er þó aldrei hægt að
segja hvernig boðhlaup fari, þar
getur allt gerst. Þó eru sigurlíkur
Wales meiri í 4x100, en ísland ætti
að sigra í 4x400.
Gunnar Gunnarsson (lengst til vinstri) í Auglýsingaþjónustunni, fylgist hér
meó Guómundi Einarssyni og Gunnari Péturssyni GN, í Öldungamótinu í
golfi sem fram fór um síóustu helgi.
Guðmundur hlaut hornið
NÝLEGA lauk á Nesvellinum hinni
árlegu opnu öldungakeppni í golfi.
Nefnist hún „Hornið" og gefur
Auglýsingaþjónustan öll verðlaun til
hennar.
Keppendur núna voru yfir 40
talsins og léku þeir 36 holu högg-
leik á tveim dögum. Var keppnin
spennandi og margt gott sem sást
til gömlu mannanna í mótinu.
Úrslit urðu þau, að Guðmundur
Kinarsson GN hlaut hornið eftir-
sótta að þessu sinni. Kom hann
inn á 138 höggum nettó. Annar
varð Gunnar Pétursson GN á 140
höggum og þriðji Lárus Arnórsson
GR á 141 höggi.
Gunnar Pétursson GN sigraði í
keppninni án forgjafar. Lék hann
36 holurnar á 164 höggum. Annar
varð Ólafur Ág. Ólafsson GR á 168
en þar á eftir komu þeir Hafsteinn
Þorgeirsson GR og Gunnar Stef-
ánsson GN á 171 höggi.
Aukaverðlaun í mótinu — næst-
ir holu á 3. og 6. braut svo og fyrir
fæst pútt hlutu þeir Óli B. Jónsson
GN, Lárus Arnórsson GR og Guð-
mundur Ófeigsson GR.
Reykjavíkurleikarnir í frjálsíþrótt-
um verða haldnir i Laugardal um
helgina, og verða þar hátt á annað
hundrað útlendir keppendur. Þar
mæta kvennalandslið Svíþjóðar,
Noregs og Finnlands, tveggja manna
karlalandslið Wales, auk banda-
rískra, norskra, sovézkra, austur-
rískra og sænskra íþróttamanna,
sem flestir eru í hópi mestu afreks-
manna í veröldinni í sinum greinum.
Þar má nefna kringlukastarana Art
Burns, John Powell og Dean Crous-
er frá Bandarikjunum og Knut
Hjeltnes Noregi. Áuk þess sem mót
af þessu tagi krefst mikils undirbún-
ings er kostnaður gífurlegur. Hita og
þunga af öllum undrbúningi hefur
Guðni Halldórsson frkvstj. Frjáls-
íþróttasambandsins borið, og í til-
efni mótsins átti Morgunblaðið stutt
samtal við Guðna um mótið:
„Hér er um mikinn íþróttavið-
burð að ræða og einstakt tækifæri
fyrir íþróttaunnendur að sjá hátt
á annað hundrað frábærra frjáls-
íþróttamanna í keppni. Það er von
mín að fólk fjölmenni á völlinn og
ÍSLAND og Wales heyja lands-
kcppni i frjálsíþróttum á Laugar-
dalsvelli helgina 17. og 18. júlí. Er
keppnin liður í Reykjavíkurleikun-
um í frjálsíþróttum, en inni í þvi
móti er jafnframt Noröurlandabik-
arkeppni kvenna, þar sem landslið
Noregs, Svíþjóóar, Finnlands og ís-
lands berjast um Norðurlandabikar-
inn.
Ljóst er að keppni íslands og Wal-
es getur orðið æði spennandi og
hvort liðið sem sigrar, gerir það tæp-
ast nema með örfáum stigum. Ef
borinn er saman árangur okkar
manna og þeirra velsku, kemur
einnig í Ijós, að geta þessara þjóða
er að ýmsu leyti svipuð, og má því
búast við jafnri og spennandi keppni
í vel flestum greinanna.
í 100 metra hlaupi eru sigurlík-
ur Wales góðar, en hins vegar ætti
Oddur Sigurðsson að geta unnið
200 metrana, og ef allt gengur að
óskum ætti Island að sigra tvöfalt
í 400 metra hlaupi.
Jón Diðriksson og Gunnar Páll
Jóakimsson hafa jafnan staðið sig
vel í landskeppnum, og því til alls
líklegir í 1500 metra hlaupi, Jón
ætti að sigra örugglega, en Gunn-
ar gæti tryggt tvöfaldan sigur ef
um endasprettstaktík verður að
ræða, þar sem velsku hlaupararn-
ir eru frekar langhlauparar.
Gunnar Páll ætti að komast upp á
milli þeirra velsku í 800, en sá
betri hefur hlaupið á 1:48 í ár.
Þá er stór spurning hvað Jón
gerir í 5000 metra hlaupinu, þar
sem hann ætlar að reyna við ís-
landsmet. Jón er í góðri æfingu og
ætti að geta klekkt á þeim velsku,
sem hlaupið hafa á um 14 minút-
um. Hins vegar verður að búast
við öruggum sigri þeirra velsku í
10 km og hindrunarhlaupi, en þó
er aldrei að vita nema Sigurður
Pétur, sem varð fyrir skömmu
brezkur háskólameistari í 10 km
hlaupi, gæti komist upp á milli
Wales-búanna í 10 km.
Þorvaldur Þórsson hefur sýnt
miklar framfarir í grindahlaupun-
um, en þar verður að ætla heims-
meistara stúdenta, Berwyn Price,
sigur í styttra hlaupinu, en hins
vegar ætti Þorvaldur að geta sigr-
að í 400 metra grind, þar sem þeir
velsku eru með áþekkan árangur.
Stefán Hallgrimsson er óskrifað
blað, gæti gert góða hluti eins og
oft áður.
í stökkgreinum ætti ísland að
vinna tvöfaldan sigur í stangar-
stökkinu og Kristján Harðarson á
sigurlíkur í langstökkinu, en
Wales-menn þeirra eru með besta
hástökkvara Breta í ár, og lakari
maður þeirra er búinn að stökkva
Ifolri hoccn a Ulii ón lfo|ticáá
ppVCIU pcooU Ij KKI dll VISIIIo
Landskeppni ísland — Wales í frjálsum íþróttum um helgina
sýni áhuga sinn i verki, láti sér
ekki nægja að fylgjast með mótinu
í fjölmiðlum.
Mótið hefst klukkan 14 bæði
laugardag og sunnudag. Undir-
búningur er á lokastigi, en mikil
vinna liggur að baki móti af þessu
tagi. Það kostar mikla fjármuni að
stofna til móts af þessu tagi, en
margir aðilar hafa lagt okkur lið,
og kunnum við að meta þann
stuðning.
Volvo-umboðið styrkir þetta
mót þó sérstaklega, svo og aðra
starfsemi FRÍ. Það ber að þakka,
svo og þann skilning sem ég hef
fengið víða um land á betlikvabbi
mínu vegna þessa stórmóts. Þær
undirtektir sem ég fékk hjá
Volvo-umboðinu eykur mér
bjartsýni, enda enn ein vísbend-
ingin um aukna athygli sem
frjálsíþróttafólkið nýtur, og það
að verðleikum. Það má segja að ég
valdi þessu ekki án Veltis," sagði
Guðni Halldórsson að lokum.
iirnriiiira
Frjðlsar Itirðttir
Grete Waitz keppir á
Reykjavíkurleikunum
NORSKA hlaupadrottningin Grete
Waitz, sem óhætt er að fullyrða að
sé mesta hlaupakona heims síðustu
fimm ár, keppir á Reykjavikurleik-
unum í frjálsíþróttum, sem fara
fram á Laugardalsvelli á laugardag
og sunnudag. Á mótinu keppa flest-
allar fremstu frjálsíþróttakonur
Norðurlanda, þar sem til leiks mæta
landslið Noregs, Finnlands, Svíþjóð-
ar og íslands.
Grete Waitz keppir í 1.500 og
3.000 metra hlaupum á Reykjavík-
urleikunum. Grete á Norðurlanda-
metið í báðum greinum, og met
hennar í 3.000 metrum var lengi
vel heimsmet. Þá hefur Grete
margsinnis sigrað í New York-
maraþonhlaupinu fræga, einnig
orðið heimsmeistari í víðavangs-
hlaupum fimm sinnum á síðustu
sex árum, og fyrir tveimur vikum
var hún aðeins fjórum sekúndu-
brotum frá heimsmeti í 5 km
hlaupi á móti í Osló, sagðist hafa
sett met ef hún hefði áttað sig á
millitímunum.
Einnig keppir á mótinu sænska
stúlkan Susanne Lorentzon, Norð-
urlandamethafinn í hástökki, sem
Þórdís Gísiadóttir ÍR lagði að velli
á bandaríska háskólameistara-
mótinu í vor, en þá sigraði Þórdís
sællar minningar. Auk þeirra
verða margar frjálsíþróttakonur á
Evrópumælikvarða á mótinu, og
því um mikinn og athyglisverðan
íþróttaviðburð að ræða.
I