Morgunblaðið - 11.08.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1982
31
Þróunarsaga merki-
legrar hljómsveitar
Finnbogi Marinósson
Talking Heads
The name of this band
is Talking Heads
SIRE2SR 3590
Fimmta plata hljómsveitar-
innar Talking Heads kom út
fyrir nokkrum mánuðum en af
ókunnum ástæðum barst hún
ekki til landsins fyrr en fyrir
nokkru. Er hér um að ræða
hljómleikaplötu og samkvæmt
venjunni er hún tvöföld. Þessum
tveimur plötum er skipt í tvö
tímabil, 1977—1979 og
1980—1981. Fyrra tímabilið er á
hlið eitt og tvö. Hlið eitt hefur að
geyma upptökur frá 17. nóvem-
ber 1977 og eru lögin tekin upp
„live“ í stúdíói. Öll lögin eru af
fyrstu tveimur plötum hljóm-
sveitarinnar (77 og More Songs
about Foot Bildings) og greini-
legt að Talking Heads hefur ver-
ið góð hljómsveit frá upphafi.
Seinni hliðin geymir hinsvegar
upptökur sem eru teknar upp
nákvæmlega tveimur árum
seinna eða 17. nóvember 1979 og
nú í hljómleikasal. Á þessum
tveimur árum sem líða á milli
hefur tónlistin þróast hratt og er
talsverð breyting orðin á henni.
Öll lögin eru orðin flóknari og
mun þyngri áheyrnar. Samt sem
áður eru þau enn einungis fjögur
sem sjá um hljóðfæraleikinn. Nú
í seinni tíð hafa þau hinsvegar
notið aðstoðar aukahljófæraleik-
ara og hafa þá verið alls níu á
sviðinu.
Og á seinni plötunni eru þau
einmitt orðin níu og inniheldur
þessi plata lög frá tímabilinu
1980—1981. Upptökurnar eru frá
þrennum tónleikum og eru einir
þeirra haldnir í Central Park og
aðrir í Tókýó. Enn hefur orðið
nokkur breyting á tónlistinni þó
ekki sé hún eins mikil og á fyrri
plötunni. Lögin eru mjög vel
flutt og hvergi hnökra að finna.
Án efa hlítur það að vera nokkuð
erfitt að flytja tónlist þessa
„live“ en fjölgun hljóðfæraleik-
ara gerir það kleift. Aðstoðar-
fólkið er ekki af verri endanum
og má þar nefna Adrian Bleev en
hann hefur spilað með nöfnum
eins og Frank Zappa, og David
Bowie, Robert Ripp, Brian Eno,
King Crimson og japönsku
hljómsveitinni Yellow Magic
Orchestra. Piltur þessi er hreint
út sagt frábær hljóðfæraleikari
og leikur hans á plötunni gerir
hana þess virði að hún sé bara
keypt út á hann. Ekki má skilja
við þessa plötu án þess að geta
Brians Eno. Hann hefur starfað
mikið með Talking Heads og
haft mikil áhrif á tónlistina.
Engan veginn er hægt að gera
upp á milli laga en þó vil ég
nefna þrjú lög sem sennilega
ættu að vekja áhuga einhvers ef
hann hefur ekki heyrt neitt frá
Talking Heads. Þetta eru lögin
„New Feeling", „Psycho Killer"
og „Take me to the River“.
Með þessari plötu hefur Talk-
ing Heads skipað sér í hóp stóru
hljómsveitanna og sannað það
að hún er einhver merkilegasta
hljomsveit seinni ára.
FM
Gisting í tvær nætur og sigling
meö Baldri fram og til baka yfir
Breiöafjörö, meö viökomu í Flatey,
fvrir aöeins 645 krónur.
Skreppiö í Stykkishólm, skoöiö Snæfellsnes
og Breiöafjarðareyjar -perlur íslenskrar náttúru-
slakiö á í friðsæld á fyrsta flokks hóteli.
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
Þl ALGLYSIR l'M ALLT
LAND ÞEGAR ÞU AUG-
LÝSIR í MORGUNBLAÐINU
[>=0eEe[nlIB)M)eD4
Einnig fylgir m.a.:
Verö 27. júlí 1982
Beinskiptur 5 gíra EX
• Litaðar rúður
• Hiti, þurrka
afturrúðu
• Speglar stillanlegir
innan frá
• Snúningsmælir
• Klukka/dagatal
• Ásamt fleiru
kr. 160.000
Sjálfskiptur m/ overdrive EXS
kr. 169.000
Honda á Islandi
Suðurlandsbraut 20, sími 38772.
SérklasAning
Mœlaborö
Vökvastýri
Útvarp/segulband/rafm.ioftnet
Sóllúga/rafdrifin