Morgunblaðið - 11.08.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1982
33
Ar aldraðra — I>órir S. Gudbergsson
Vernd —
Fátt virðist nútímafólki eins
erfitt og að ræða um dauðann og
sorgina. Allt frá upphafi hafa
menn glímt við spurninguna um
tilgang lífsins og spurt: Hvaðan
kem ég? Hver er ég? Hvert er
förinni heitið?
Inn í þá umræðu fléttast
gjarnan vangaveltur um trúmál,
um tilveru Guðs og fyrirheit um
annað líf. Væri ærin ástæða til
þess að ræða þau mál sérstak-
lega, ekki síst með tilliti til trú-
hneigðar og trúrækni eldri
kynslóðarinnar og rótlausra
tíma meðal æskunnar sem virð-
ist í auknum mæli vera að missa
fótfestuna. Ekki verður það þó
gert að sinni heldur vikið nánar
að þeim aðstæðum og breyting-
um, sálfræðilegum og félagsleg-
um, sem við verðum fyrir við
missi ástvina, maka eða þegar
virkni —
Áfall
Dauði
Sorg
Fyrri hluti
við verðum fyrir alvarlegu áfalli,
t.d. af völdum slysa.
Á öld hraða og mikillar tækni
sem hefur haft í för með sér
ýmsar breytingar á þjóðfélags-
háttum er eins og fólk fjarlægist
hvert annað, persónuleg tengsl
verða minni en áður og þegar
fólk verður fyrir þungu áfalli
vellídan
eins og maka- eða ástvinamissi
segir fólk gjarna: „Uss, við skul-
um ekki ræða um þetta. Við
skulum heldur tala um eitthvað
skemmtilegt. Nóg er af sorginni
samt í veröldinni."
Þegar sorgin er annars vegar.
notum við andlega og líkamlega
orku til þess að lifa sorgina af og
komast yfir áfallið. Það tekur
misjafnlega langan tíma en með-
an á því stendur er eðlilegt að
við séum ekki eins virk og áður
og við missum jafnvel áhuga á
því sem annars er okkur mjög
ofarlega í huga.
Með þekkingu og reynslu vit-
um við að ferli sorgar tekur á sig
ákveðnar myndir, ákveðin stig
sem flestir eða allir þurfa að
ganga í gegnum. Þau eru mis-
jafnlega löng, allt frá nokkrum
vikum og upp í eitt til tvö ár eða
lengur.
Við áfall verða
margir óraunsæir
Þó að við höfum átt von á and-
láti maka eða ástvinar í langan
tíma verðum við engu að síður
fyrir áfalli þegar hann kveður
þennan heim. Á fyrsta stigi
áfallsins er gráturinn oft efst á
baugi. Einhver undarleg örvænt-
ing grípur okkur, við verðum
eirðarlaus og óróleg. Við finnum
jafnvel til likamlegs sársauka
eins og hluti af okkur sjálfum
hafi verið tekinn frá okkur. Við
verðum að gráta.
Við slíkt áfall verða margir
óraunsæir. Hugsa gjarna eitt-
hvað á þess leið: „Þetta getur
ekki verið. Þetta hlýtur að vera
draumur. Ég á þetta ekki skil-
ið ...“ o.s.frv. Það er eins og
menn lifi utan við sjálfa sig, séu
ekki eins og þeir eigi að sér að
vera.
Þessi einkenni geta gripið
okkur þegar í stað við áfallið,
komið í ljós við jarðarför eða
jafnvel löngu eftir að atburður-
inn átti sér stað.
Margir reyna að fela
eða dylja sorgina
Flestir eða allir finna fyrir til-
finningalegum óróleika við al-
varlegt áfall. Margir reyna að
fela eða dylja sorg sína, byrgja
hana inni, herða sig upp, „standa
sig vel“ eins og stundum er kom-
ist að orði um þá sem láta ekki
tilfinningar sínar í ljósi. Þetta er
þó einstaklingsbundið eins og
flest annað og misjafnt undir
ólíkum kringumstæðum.
Það er góður siður að hitta
vini og ættingja eftir jarðarfarir
t.d. og eiga með þeim góðar
stundir. Það hjálpar okkur í
sorginni og fáir taka til þess þó
að nokkur tár hrynji á vanga eða
tilfinningar séu látnar í ljósi við
slíkar aðstæður. Við höfum þörf
hvert fyrir annað.
í gyðingdómi er t.d. tekið tillit
til þáttar sorgar og við ást-
vinamissi eru eftirlifandi ástvin-
ir undanþegnir oki hins hvers-
dagslega lífs í heila viku og geta
þeir því tekið þátt í sorginni af
fullum huga, áttað sig á því sem
hefur gerst og verið með sínum
nánustu.
Vinnubílamir frá
4 mismunandi gerðir af Mazdabíl-
um, sem eru tilvalin lausn á
flutningaþörfum flestra fyrirtækja
og einstaklinga.
B 1800 PICK UP
Léttur og lipur skúffubíll, sem ber 1 tonn. 5 gíra kassi og
1800 cc vél, sem er í senn aflmikil og sparneytin, þægileg still-
anleg sæti fyrir 2 farþega auk ökumanns. Margar gerðir af létt-
um lausum húsum eru fáanlegar.
Verð kr: 109.500
323 SENDIBÍLL
Þetta er lokuð útgáfa af hinum geysivinsæla Mazda 323
stadion. Frá því að þessi bíll kom á markaðinn snemma á
þessu ári, þá höfum við aldrei annað eftirspurn. Sparneyt-
in 1300 cc vél. Þetta er tilvalinn bíll fyrir sölumenn, við-
gerðar og þjónustumenn og aðra sem þurfa hpran og þæg-
ilegan bíl, sem samt ber ótrúlega mikið.
Verð kr: 91.780
Sérlega rúmgóður og þægilegur frambyggður sendibíll
með 1 tonns burðarþoli, byggður á sterkri grind og með
tvöföldum afturhjólum. Rúmar óvenju vel, þar sem gólf
hleðslurýmis er alveg slétt og án hjólaskála, hleðsludyr
eru á báðum hhðum og gafli. 1600 cc vél og 5 gíra kassi.
Verð kr: 119.000
Pallbílsútgáfa af E1600 van hér til hhðar Sléttur pahur með
hleðsluhæð em er aðeins 73 cm með skjólborð felld niður.
Verð kr: 113.200
BÍLABORG HF.
Smlöshöföa 23, sími 812 99.