Morgunblaðið - 11.08.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1982
35
Fleiri hörkutói
í keppninni 1971 var Roger
Hanks meðal keppenda. Mikið
hörkutól, 41 árs gamall og hertur í
Kóreu-stríðinu. Hann er í olíu-
bransanum og gerðist hraðbáta-
kappi þegar læknirinn tilkynnti
honum, að hann væri að yfirkeyra
sig með vinnu og þarfnaðist hvíld-
ar! Viku áður en Cowes-Torquay-
Cowes-rallið hófst flaug hann útúr
báti sínum í Kaliforníuflóa og
mætti allur blár og marinn til
Cowes. Raunar mátti ekki muna
miklu, að Hanks hefði misst af
keppninni í þetta sinn. Rétt sem
hann var kominn til Cowes, bárust
honum þau tíðindi að skipið sem
flutti hraðbátinn hans yfir hafið,
myndi ekki fara til Southampton,
eins og ætlað var, heldur skilja
bátinn hans eftir í Rotterdam.
Hanks brást snarlega við og tókst
með mikilli útsjónarsemi að koma
bát sínum til Cowes einni klukku-
stund áður en lokaskráning í
keppnina lauk. Undirbúningur
hans síðustu dagana fyrir keppn-
ina var því slakur, en hann lenti á
endanum fjórði, eftir að hafa haft
forystu í upphafi. Hann var him-
inlifandi að hafa komist í mark í
þessari erfiðustu raun sinni í
hraðbátakeppni. Rallið 1971 þykir
nefnilega eitt hið erfiðasta í sög-
unni.
Sigurvegari varð Ronnie Bon-
elli, 22ja ára, sonur auðugrar ít-
alskrar fjölskyldu. Hann telur það
margfalt meiri skemmtun að
geysast um firði og flóa á hraðbát,
heldur en að aka sportbilunum
sínum, Ferrari-tegund og BMW.
Ronnie hefur frá unga aldri haft
ánægju af slíkri sjómennsku og
var um það leyti sem hann sigraði
í Cowes-Torquay-Cowes-rallinu,
lang efstur í hraðbátakeppninni á
Ítalíu.
í rallinu 1971 komu einungis 12
bátar í mark af þeim 41 sem hófu
keppnina. Strekkingsvindur var
meðan á á keppninni stóð og sjó-
gangur mikill. Ronnie varð örugg-
ur sigurvegari en tíminn slakur; 6
klukkustundir og 22 mínútur.
Hann var úrvinda af þreytu þegar
hann kom að landi og hafði þar að
auki fengið slæmt högg á höfuðið
og var borinn í land. Fjörutíu míl-
um undan markinu lenti bátur
hans í stórri öldu. Ronnie var
óviðbúinn og rotaðist í skellinum.
Hann vaknaði fljótlega úr dáinu,
þó ekki næði hann fullri meðvit-
und fyrr en bátur hans nálgaðist
endamarkið. Þar bjargaði honum
að vera með góðan mann við stýr-
ið, sem var Attilio Petronis, kunn-
ur hraðbátakappi á Ítalíu.
Dauðsfallið
Fyrsta dauðsfallið, og það eina
hingað til, í Cowes-Torquay-
Cowes-rallinu varð sumarið 1976.
Rétt sem Alf Bontoft lauk keppni í
báti sínum Blitz, missti hann
stjórnina, fékk högg á höfuðið og
kastaðist meðvitundarlaus út-
byrðis. Björgunarmenn fiskuðu
hann snarlega upp, en Alf komst
aldrei til meðvitundar. Sir Max
Aitken, einn af forvígismönnum
keppninnar, sagði drjúpandi höfði
við verðlaunaafhendingu:
„Alf Bontoft var einn af okkur.
Við vitum öll af áhættunni sem
við tökum; Alf vissi hver áhættan
var — og hann tók hana. Hann var
einn af okkur!"
En keppnin þetta árið var tví-
sýn. Tom Gentry hafði leitt allt
rallið á American Eagle, en Don
Shead á Uno Embassy og Dox-
ford-tvíburarnir á Limit Up
fylgdu honum fast á eftir. Á miðri
leið féllu þeir tveir síðastnefndu
úr keppninni og Gentry fannst
hann vera öruggur með sigur og
hægði ferðina. Hann vildi ekki
hætta neinu fyrr en nýir keppi-
nautar nálguðust. Hann kom ekki
auga á neinn og sigldi hinn roggn-
asti í mark, en uppgötvaði sér þá
til mikillar skelfingar, að þar voru
menn að skála í kampavíni.
Charles Gill og Ken Cassir fögn-
uðu innilega, að hafa lent í tveim-
ur fyrstu sætunum. Þeir höfðu að-
eins verið mínútu á eftir hinum
þremur bátunum sem þóttust
berjast um sigurinn, þegar bát-
arnir komu í Portland Bill, en
voru svo fimm mínútum á undan
Gentry í markið. Þegar Gill lag-
ðist uppað í bát sínum, I like it
too, spurði hann:
Hver vann?
Þú vannst! hrópuðu áhorfendur.
Tom Gentry trúði varla sínum
eigin augum og fannst þetta
óskiljanlegt fyrirbæri og var lengi
að jafna sig eftir vonbrigðin. Ef
hann hefði haldið sama hraðan-
um, hefði hann sigrað örugglega.
Amma gamla
Árið 1974 dróst þátttakenda-
fjöldinn mjög saman í Cowes-
Torquay-Cowes-rallinu. Olíu-
kreppan var skollin á. I þrjú ár
voru einungis um 20 keppendur í
hverju ralli, en árið 1978 jókst tal-
an aftur. Þá tók Betty Cook þátt í
rallinu. Hún er auðug kona í
Bandaríkjunum og var þá heims-
meistari kvenna í hraðbátakeppni,
55 ára gömul, síung í anda og gaf
venjulegum karlmanni ekkert eft-
ir í hreysti. Hún sigraði öllum að
óvörum í keppninni ’78 á báti sín-
um Kaama og kom í mark á innan
við þremur klukkustundum.
„Ég fer oft á skíði og spila tenn-
is,“ segir Betty, þegar hún er
spurð hvernig hún haldi sér í lík-
amlegri æfingu til svo erfiðrar
keppni, sem hraðbátarallið er. Svo
hlær hún og bætir við: „En mest
vil ég þakka dansæfingum mínum,
hvað ég er létt á mér. Ég vakna
jafnan klukkan hálfsex á morgn-
ana og tek þá til í húsinu, en
klukkan sjö fer ég í dansklúbbinn
minn og stíg þar nútímadansa
eins og unglingur!"
En hraðbátarallið Cowes-
Torquay-Cowes heldur áfram og
innan tíðar fara þeir að setja svip
á mannlífið á Wight-eyju, hinir
auðugu hraðbátakappar og hjálp-
armenn þeirra, sem búa sig undir
keppnina miklu í ágúst 1982.
Einn af „Limit Up“ bátum Doxford-tvíburanna í keppninni 1978.
Ævar Kvaran hefur
framsagnarnámskeið
þ. 6. september nk. Fagurri framburður, listraenni
lestur og flutningur máls.
Upplýsingar í síma 32175.
Útsala
Karlmannaföt frá kr. 300.
Terylinebuxur frá kr. 150.
Gallabuxur, flauelsbuxur, úlpur o.m.fl. ódýrt.
Andrés Skólavörðustíg 22, sími 18250.
VÉLALEIGA H.J.
Njálsgötu 72, s. 86772 — 22910 — 23981.
Loftpressur í öll verk.
Múrbrot, fleygun og borun.
Gerum föst tilboð ef óskaö er.
Suðurnesja-
konur athugið
Líkamsþjálfun —
leikfimi
Nýtt fjögurra vikna námskeið
hefst 17. ágúst i íþróttahúsi
Njarðvíkur.
Dag- og kvöldtímar tvisvar
sinnum í viku.
Styrkjandi og liðkandi æfingar
fyrir dömur á öllum aldri. Upp-
lýsingar i síma 6062.
Birna Magnúsdóttir.
j ,v^v
Bladburóarfólk óskast!
Kópavogur — Vesturbær Úthverfi Kópavogsbraut Langholtsvegur III frá Vesturbær 15i 208- Neshag?'' Forn- AuSturbær hagi, Reynimel- GrettisQata 1, ur 1 frá 1—56. frá 2 — 35. U| 3 P ¥ pplýsingar í síma 5408 taíöiíi
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SIMINN ER:
22480