Morgunblaðið - 11.08.1982, Blaðsíða 14
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1982
Klaufaskap-
ur kostaði
efeta sætið
í .síAustu viku lauk í Kaup-
mannahöfn alþjóðlegu skák-
móti þar sem undirritaður
tefldi fyrir íslands hönd. I>ótt
fjórir alþjóðameistarar og einn
FII)E-meistari hafi verið með-
al þátttakenda varð mótið
samt veikara en aðstandendur
þess höfðu gert ráð fyrir. Sov-
ézki stórmeistarinn Mikh-
ailchisin sendi t.d. afboð dag-
inn áður en mótið hófst vegna
þess, að hann hafði fengið
botnlangakast.
l>að var skákfélag verka-
manna í Kaupmannahöfn sem
stóð fyrir mótinu í tilefni af
því, að einn af meistaraflokks-
mönnum félagsins og núver-
andi formaður þess, Kigil Jo-
hansen, hefur í ár teflt skák í
hálfa öld.
Skák
Margeir Pétursson
Eigil er því ekkert unglamb
lengur, en var samt aðaldrif-
fjöðrin í mótshaldinu og fylgdist
auðvitað vel með hverri umferð.
„Eg vil ekki hafa nein stórmeist-
arajafntefli í afmælismótinu
mínu strákar," sagði hann jafn-
an þegar honum fannst dönsku
þátttakendurnir vera of friðsam-
ir, en það voru þeir óneitanlega.
Eg fékk óskabyrjun er ég lagði
sovézka alþjóðameistarann
Kozlov að velli í fyrstu umferð
með svörtu, en strax í næstu um-
ferð á eftir slapp ég með skrekk-
inn eftir að hafa átt gjörtapað
tafl gegn Fries-Nielsen. Síðan
gerði ég jafntefli við Brinck-
Clausen og vann annan Rússa,
Arsenjev. Það er vissulega
óvenjulegt að gera jafntefli við
heimamennina en vinna Rúss-
ana, en Arsenjev þessi er hár að
stigum og skilur greinilega mik-
ið í skák, en á Kaupmannahafn-
armótinu sá hann bókstaflega
ekki neitt og gekk í gildrur í
hverri skákinni á fætur annarri
eftir að hafa átt góðar stöður.
I fimmtu umferð vann ég
Hollendinginn Van Mil í
skemmtilegri skák sem hér fer á
eftir, en síðan fékk ég fyrsta
skellinn, er ég missti vinnings-
stöðu gegn hinum öfluga Hol-
lendingi Scheeren alla leið niður
í tap. Heppnin gekk þó í lið með
mér aftur er ég sveið þá Brönd-
um og Hartung í steindauðum
endatöflum í næstu tveimur um-
ferðum og mér nægði því jafn-
tefli við Hei í síðustu umferðinni
til þess að tryggja mér efsta sæt-
ið.
Framan af úrslitaskákinni lék
allt í lyndi, staðan var lokuð og
greinilega mér hagstæð. En eftir
að Hoi hafði hafnað jafnteflis-
boði, missti ég þolinmæðina og
hóf að tefla til vinnings. Það var
fyllilega réttlætanlegt þegar
tekið var tillit til stöðunnar á
borðinu, en í framhaldinu mis-
steig ég mig hvað eftir annað og
í raun þurfti Hoi lítið að hafa
fyrir vinningnum.
Hann náði því af mér efsta
sætinu, en hann vann þrjár síð-
ustu skákir sínar og má því heita
vel að sigrinum kominn, þó
óneitanlega hafi hann verið
heppnastur þátttakenda. Kozlov
tók sig einnig á í lokin og náði
mér að vinningum, en hann
tefldi þó miklum mun lakar en
búist hafði verið við, því fyrir
nokkrum árum náði hann stór-
meistaraárangri á alþjóðlegu
móti. Um miðbik mótsins virtist
Scheeren sigurstranglegastur,
en þá tapaði hann óvænt fyrir
jafntefliskóngnum Fries-Nielsen
og náði sér ekki á strik eftir það.
Brinck-Clausen hefur verið á
meðal fremstu skákmanna Dana
í 20 ár, en hefur gengið furðulega
illa að afla sér alþjóðlegra titla.
Að þessu sinni var hann hálfum
vinningi frá árangri alþjóðlegs
meistara.
Hvítt: Van Mil (Hollandi)
Svart: Margeir Pétursson
1. e4 — c5 2. Rf3 — Rc6 3.
Be2l? — Rf6 4. e5 — Rg4 5. b4
Hér krossbrá mér, því skyndi-
lega rann það upp fyrir mér að
ég væri að tefla eitt af hættu-
legustu afbrigðum enska leiksins
með skiptum litum, en það kem-
ur upp eftir: 1. c4 — e5 2. Rc3 —
Rf6 3. Rf3 - e4 4. Rg5 - b5.
Þessu er talið bezt að svara með
5. d3 og eftir nokkra yfirlegu
komst ég að því að sá leikur ætti
einnig vel við hér.
5. - d6! 6. e6?
Hvítum yfirsást sjöundi leikur
svarts.
6. — Bxe6 7. Rg5 — Dd7! 8. Rxe6
— Dxe6 9. 0-0!?
Annars leikur svartur 9. —
Rd4.
9. — De5 10. Bxg4 — Dxal 11.
Rc3 — cxb4 12. De2!
Eina leiðin til að halda hvíta
taflinu gangandi. Eftir 12. Rd5
— Kd8 hefur svartur ekkert að
óttast.
12. — e6
Öruggast. Ef 12. — bxc3 þá 13.
Db5 — Hb8 14. Bf3 og vatnið er
orðið mjög gruggugt. Að vísu
virðist svartur sleppa eftir 14. —
Kd8 15. Bxc6 — Dxa2 16. Bxb7 —
e6, því ef 17. dxc3 þá Dd5!, en
hvítur getur reynt 16. Bf3.
13. Ba3 - Dxfl+ 14. Kxfl — bxc3
15. dxc3 — Be7 16. Bf3 — 0-0 17.
Db5 — Hac8
Svartur gefur peð, því í fram-
haldinu verða svörtu hrókarnir
miklum mun öflugri en hvíta
drottningin.
18. Bxc6 — bxc6 19. Dxc6 — Hfc8
20. Dd7 — Bf8 21. Bb4 — a6 22.
Ke2 — g6 23. Kd3 — Bg7! 24. Da7
— Ha8 25. Db6 — d5 26. f4 —
Hc4 27. g3 — Hac8 28. Dxa6 —
Bxc3 29. Bxc3 — Hxc3+ 30. Kd4
— Hxc2 31. a4 — H8c4+ 32. Ke5
— Kg7 33. Da7 — d4 34. Ke4 —
H2c3 35. T5 — He3+ 36. Kf4 —
exf5 37. Dd7 — He4+ 38. Kf3 —
Hc2 og hvítur gafst upp.
Þrátt fyrir hið klaufalega tap
fyrir Hoi í síðustu umferðinni
var heppnin þó stundum með
mér á mótinu. í biðskákinni við
Hartung hafði ég gefið upp alla
von með að geta unnið skákina
þegar ég fékk skyndilega hug-
mynd:
Svart: Margeir Pétursson
Hvitt: Hartung
64. — f6+!? 65. Kxe6 — c3 66.
Ha5+?
Eina jafnteflisleiðin var 66.
Hxa4! - Bxd5+ 67. Kxf6 - c2 68.
Hal — Be4 69. Kg5 og hvítur
nær að skipta upp á peðunum á
kóngsvæng.
66. — Kd4 67. Kd6 — c2 68. Hc5
— Bc4! og hvítur gafst upp.
TIT' tU. / 2 3 H 5- (c » T í 9 10 VÍNN NR.
1 H0I ÍPanrmor m É 1 Yz 'fz k ■ 54 / 'fz 1 6/z i
2 MAR6EIR PÉTURSS. m 0 m i 0 k < 54 / i 1 6 2-3.
3 KOZLOVCSovítr.) m 54 O m. 44 k ‘ 44 / i 1 (o 2-3.
H SCHEERENOiol/U m 'k / 'fz 1 k '/ ÍO / k 1 5k H-5.
5 mHCK-ClRUSíNÚ>) FM 'lz k 'tz k lc 5 54 / / / 5/z H-5.
(o Vf\N MIL (Holland;) 0 O 0 k í % % 7z / / vk é-7.
T U. FRIES-NIELSENCD) k k k i k o k 7z H'/z E-?.
S f\ RSEHJf ]/ CSové ír) o o 0 o O'/ 4 1 m !z ’/z 2/z M.
<? gR0NDUM(Vo™) 'fz o 0 /4 0 c 5 54 54 i 'fz 2/z M
10 0 0 a o oc 5'A 54 •fz 1 i'k iO
Þess vegna
þarftu ÞOL
á þakið
ÞOL er einstök málningartegund, sem
er sérhönnuð fyrir bárujárnsþök
á íslandi.
VEÐURHELDNI OG MV
eru þeir höfuðkostir ÞOLS, sem sérstö
áhersla hefur verið lögð á, vegna:
• fádæmrar endingar við mikið veður-
álag, svo sem slagregn, sem er sér-
einkenni íslensks veðurfars, og
• einstaks viðnáms gegn orkuríkum
geislum sólar og þeim gífurlegu hita-
sveiflum, sem bárujárnsþök verða fyrir í
sólskini, snjó og frosti.
Notaðu þvf ÞOL á þökin og aðra járn-
klæðningu. Kynntu þér leiðbeiningar fyrir
málun. Yfir 20 ára reynsla sannar gæðin.
Fjölbreytt litakort fæst í næstu málningar-
vöruverslun.
HE1CO